Skessuhorn


Skessuhorn - 07.07.2021, Qupperneq 23

Skessuhorn - 07.07.2021, Qupperneq 23
MIðVIKudAGuR 7. júlÍ 2021 23 ERT ÞÚ AÐ FYLGJAST MEÐ? Sími 433 5500 - skessuhorn@skessuhorn.is - www.skessuhorn.is Helgina 9.-11. júlí verður Nátt- úrubarnahátíð á Ströndum hald- in með pompi og prakt í fimmta skiptið á Sauðfjársetrinu í Sævangi, rétt sunnan við Hólmavík. Þetta er fjölskylduhátíð þar sem gestir, börn og fullorðnir, fá kjörið tækifæri til að finna eða rækta sitt innra nátt- úrubarn á fjölbreyttum viðburðum sem einkennast af útivist, fróðleik og skemmtun. Það er Náttúrubarnaskólinn sem stendur fyrir hátíðinni en það er dagrún Ósk jónsdóttir þjóðfræð- ingur sem sér um hann. „Markmið Náttúrubarnaskólans er að líta sér nær og sjá hvað allt í kringum okk- ur er merkileg, að leita ekki langt yfir skammt. Þegar við þekkjum náttúruna hugsum við líka betur um hana,“ segir dagrún Ósk. Nátt- úrubarnaskólinn stendur fyrir fjöl- breyttum námskeiðum fyrir börn yfir sumartímann sem miðar að því að fræða börn um ólíkar hliðar náttúrunnar. „Hátíðin hefst á föstudegi og fer að mestu fram utandyra, svo við hefjum hana á því að framkvæma veðurgaldur, til að tryggja gott veður um helgina,“ segir dagrún. „Skipulagningin gengur mjög vel, við erum með glæsilega dagskrá, fjölbreytt og skemmtileg atriði, tónlist, spennandi smiðjur, göngu- ferðir og útivist. Ég hlakka mjög til. Sævangur er frábært svæði fyrir hátíð af þessu tagi, nálægt fjörunni, þar er fjölbreytt fuglalíf og plöntu- lífríki,“ bætir dagrún við. Fyrir þau sem mæta snemma verður sirkushópurinn Hringleik- ur á Hólmavík í vikunni með nám- skeið fyrir krakka og svo með sýn- inguna Allra veðra von í Sævangi á fimmtudeginum. Á hátíðinni um helgina verða meðal annars á dagskrá kvöld- skemmtun með Gunna og Fel- ix, tónleikar með Sauðatónum, Stjörnu-Sævar, Benedikt búálfur og dídí koma í heimsókn og Einar Aron töframaður verður með magn- aða töfrasýningu. Það verða spenn- andi smiðjur með Arfistanum, Þykjó og Eldraunum, hægt að fara á hest- bak, taka þátt í núvitundarævintýri með Kyrrðarkrafti, náttúrubarna- jóga með Hvatastöðinni, útileikj- um, gönguferðum, fjölskylduplokki, spurningaleik, hlusta á drauga- og tröllasögur, skjóta af boga og margt fleira. Það er frítt á öll atriði hátíðarinn- ar en hún er styrkt af uppbygginga- sjóði Vestfjarða, Sterkum Ströndum og Orkubúi Vestfjarða. Það er hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur, sam- lokur og ís í Sævangi alla helgina. Gestum hátíðarinnar býðst að tjalda frítt á Kirkjubóli sem er beint á móti Sævangi en þar er þó ekki eigin- legt tjaldsvæði (ekkert rafmagn). Á Hólmavík er svo frábært tjaldsvæði og ýmsir gististaðir í grenndinni. „Ég hvet náttúrubörn á öllum aldri til að koma og kynnast nátt- úrunni, leika sér saman og skapa skemmtilegar minningar,“ segir dagrún að lokum. Hægt er að kynna sér hátíðina á Facebook síðu Náttúrubarnaskól- ans, á natturubarnaskoli@gmail.com eða hjá dagrúnu í síma 661-2213. dagskrána í heild sinni má nálg- ast á: https://www.facebook.com/ events/782069226047041 mm Í aðdraganda einnar af stærstu ferðahelgum ársins tók björgun- arsveita- og slysavarnadeildarfólk vegfarendur tali á einum 50 stöðum á landinu á Safetravel deginum. Safetravel dagurinn var á föstu- daginn en hann er haldinn á hverju ári. Hvatt er til góðrar og ábyrgr- ar ferðahegðunar á vegum sem utan þeirra. Afhentur var poki með fræðsluefni og glaðningi um leið og hvatt var til slysalauss sumars. dag- urinn markaði sömuleiðis form- legt upphaf hálendisvaktar björg- unarsveita en næstu tvo mánuði verða björgunarsveitir með við- veru á þremur stöðum á hálend- inu; landmannalaugum, Nýjadal og við drekagil. Verða þeir til taks ef óhöpp og slysa verða en síðustu árin hafa á bilinu 1.400 til 2.000 verkefni verið leyst af hálendisvakt- inni. mm/ Ljósm. Landsbjörg. „já, það gekk vel í Norðurá og alltaf jafn skemmtilegt að veiða þar,“ sagði Árni Friðleifsson í sam- tali við tíðindamann Skessuhorns. Norðurá er nú komin í 280 laxa og virðist laxveiðin ganga einna best þar. Flestir fiskarnir hafa samt veiðst í Þjórsá, en Norðurá er nú í öðru sæti við veiðitoppinn og á eftir henni kemur Þverá í Borgar- firði. ,,Við vorum löggur að veiða og það var gaman. Á myndinni er Sig- urgeir Ómar Sigmundsson yfir- lögregluþjónn á Keflavíkurflug- velli og ég, já þessi var handtekinn en sleppt aftur í Norðurána eftir stutta yfirheyrslu. Þetta skeði allt á Stokkhylsbrotinu. Sjálfur veiddi ég þann fyrsta fyrir ofan Glanna en þessi smálax veiddist í Poka fyrir neðan Króksfossinn. Mjög skemmtilegur veiðitúr,“ bætti Árni við. Þverá er að komast yfir 200 laxa en rólegt hefur verið í langá á Mýrum enn sem komið er. Síðasta holl fékk fimm laxa. Góður gang- ur hefur verið í Haffjarðará og áin komin yfir 100 laxa, en veitt er á fjórar stangir þessa dagana í ánni. Flott veiði í Grundarfirði ,,Við við lentum í flottri veiði í Grundarfirði á miðnætti síðasta laugardag,“ sagði Ellert Vopni Olgeirsson í samtali við tíðinda- mann. dóttir hans var með í þess- ari skemmtilegu veiðiferð þar sem fiskurinn var að gefa sig við strönd- ina. „Það var mokveiði á smá- þorski og dóttirin Ísabella Máney veiddi vel, en hún er bara fjögurra ára. Við fengum á milli 15 og 20 fiska á um það bil klukkutíma og henni fannst þetta bara gaman og er komin með mikla veiðidellu,“ sagði Ellert Vopni. Margir veiðimenn hefja veiði- skapinn á bryggjum landsins og núna er tíminn. Fiskurinn að gefa sig víða við landið. Makríllinn hef- ur lítið látið sjá sig enn þá en hann kemur væntanlega, en mörgum finnst gaman að veiða hann þeg- ar hann tekur grimmt og sprikl- ar mikið. Margir veiðimenn hafa til að mynda stundað Seleyrina grimmt síðustu daga og veiðimenn hafa verið að fá fína veiði. gb Það gekk vel í Norðurá Ísabella Máney Ellertsdóttir glað- hlakkaleg með þaraþyrskling úr Grundarfirði. Ljósm. Ellert. Sigurgeir Ómar Sigmundsson yfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli og Árni Frið- leifsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsnæðinu. Ræddu við ökumenn á leið í fríið Náttúrubarnahátíð á Ströndum um næstu helgi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.