KSK-blaðið - 01.12.1991, Side 20
KSK - BLAÐIÐ
Tvær vertíði r
-Keflvíkingurinn Magnús Jónsson er vöruhússtjóri KÁ á Selfossi
Magnús Jónsson, vöruhússtjóri
KÁ. - „Suðurnesjamenn versla
mikið hjá okkur á sumrin.“
„Þaö má segja aö hér séu tvær virkilega góöar vertíðir í versl-
uninni, annars vegar í júlí og hins vegar fyrir jólin," segir Magnús
Jónsson, vöruhússtjóri KÁ á Selfossi, en hann er fyrrum versl-
unarstjóri í Samkaup.
Viöbrigöi
Magnús er ekki „hrein-
ræktaður" Suðurnesjamað-
ur því hann er fæddur í Ár-
nessýslu en bjó í.Keflavík
frá 1 7 ára aldri. Hann hefur
sótt aftur á heimaslóðir því
síðan í maí 1988 hefur
Magnús gegnt starfi vöru-
hússtjóra KÁ, sem er al-
hliða stórverslun Kaup-
félags Árnesinga á Selfossi.
„Það voru talsverð við-
brigði að fara úr Samkaup
í Vöruhús KÁ. Þetta er allt
meira og stærra í sniðum. í
byrjun fannst mér fólk hér
fyrir austan ekki láta eins
mikið eftir sér í verslun eins
og Suðurnesjamenn gera.
En verslunarmáti fólks hef-
ur breytst" segir Magnús.
Starfsmenn KÁ eru um
70 í 45 stöðugildum. Vöru-
húsið sjálft er mjög stórt
eða samtals 4700 fermetrar
en sjálf verslunin í tæpum
helming af því. Kjallari
undir luisinu nýtist sem-
fóðursala og þar er einnig
seld byggingavara, þ.e.a.s.
plötur, fittings og fleira.
Tvœr vertíöir
„Verslunin hjá okkur er
miklu meiri á sumrin. Júlí-
mánuður er annar stærsti
mánuðurinn hjá okkur á
eftir desember. Þetta er
mikið ferðamanna- og
sumarbústaðasvæði. Við
bjóðum mikið úrval af úti-
leguvöru, sólhúsgögnum
og almennri sumarvöru.
Veðrið getur því haft tals-
verð áhrif á viðskiptin hjá
okkur. Gott sumar skilar
fleira fólki í bústaðina og í
ferðalög og við njótum
góðs af því".
Magnús segir að margir
Suðurnesjamenn komi í KÁ
á sumrin. „Suðurnesjafólk
er mjög mikið í bústöðum
hér í nágrenninu. Þess
vegna hittir maður oft vini
og kunningja að sunnan
sem koma til að versla hjá
okkur. Það er mjög
ánægjulegt".
Reykjavíkurgrýla
Magnús segir að versl-
anir á Selfossi og í nágrenni
búi við sömu „Reykja-
víkurgrýluna" og verslunin
á Suðurnesjum. „Það er
alltaf talvert um það aó fólk
héðan fari til Reykjavíkur
til að versla. Ég vona bara
að það verði harður vetur.
Þá er ekki spennandi að
keyra til höfuðborgarinn-
ar".
Svartsýnn á
jólavertíð
Aðspurður um komandi
jólavertíð segist Magnús
vera frekar svartsýnn á
hana. „Við höfum lagt
okkur mikið fram í að
bjóða mikið vöruúrval í
sérvörunni, sem við höfum
flutt inn sjálf að miklu leyti.
Ég er hræddur um að salan
í henni verði minni vegna
hinna miklu utanlands-
ferða landans. Almennt
held ég að jólaverslun
verði minni í ár en und-
anfarin ár" sagði Magnús
að lokum.
20