KSK-blaðið - 01.12.1991, Page 30
KSK - BLAÐIÐ
Endurskoöendur Kaupfélagsins
Endurskoðendur Kaupfélags Suðurnsja eiga langt og gott
starf aö baki. Við smelltum af þeim mynd fyrr á árinu þar
sem þeir voru að fara yfir bókhaldsskjölin. F.v. Asgeir Ein-
arsson, Guðjón Stefánsson, kaupfélagstjóri og Hilmar Pét-
ursson.
Stjórn deildarráds
Stjórn deildarráðs er skipuð þeim Jóni Einarssyni, As-
laugu Húnbogadóttur og Guðbjörgu Ingimundardóttur.
Þau litu upp úr önnum þegar Ijósmyndara blaðsins bar að
garði sem smellti þessari mynd af þeim.
ÞRJÁR
MEÐ
25 ÁR
Kaupfélag Suðurnesja hefur
átt því að fagna frá stofnun að
hafa gott starfsfóik. All nokkrir
þeirra eiga nú orðið all mörg
ár að baki í starfi. Þrjár konur
sem nú vinna í Sparkaup hafa
allar náð 25 ára starfsaldri.
Þetta eru þær Aðalheiður
Jónsdóttir, Svanhildur Guð-
mundsdóttir og Anney Guð-
jónsdóttir.
§i ' ■
Árleg kynning í Járn og Skip fyrir iðnaðarmenn
□ in árlega kynning járn og Skips fyrir iðnaðarmenn og stærri viðskipavini verslunarinnar var laugardaginn 23. nóvember sl. Fjöldi
manns sótti kynninguna og þáði veitingar í boði verslunarinnar. Fulltrúar frá söluaðilum voru á staðnum og kynntu ýmsar nýjungar.
Ljósmyndari blaðsins tók meðfylgjandi myndir við þetta tækifæri.
30