Morgunblaðið - 05.01.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.01.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021 Framboð til stjórnar Festi hf. Tilnefningarnefnd Festi hf. auglýsir hér með eftir tilnefningum eða framboðum til stjórnar félagsins vegna aðalfundar Festi sem haldinn verður 22. mars næstkomandi. Hlutverk tilnefningarnefndar er að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins á aðalfundi. Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma. Við gerð tillögu um kosningu stjórnarmanna í Festi skal tilnefningarnefndin horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar. Þurfa stjórnarmenn jafnframt að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi. Allir fimm núverandi stjórnarmenn í Festi hf. hyggjast gefa kosta á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi hf. vegna sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið dags. 30. júlí 2018. Geta frambjóðendur kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga. Þess er óskað að tilnefningum eða framboðum sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstökum eyðublöðum ásamt ferilskrá fyrir 3. febrúar 2021, tilnefningarnefnd@festi.is. Nálgast má gögnin á www.festi.is undir fjárfestatengsl/aðalfundur Festi 2021. Festi | Dalvegi 10-14 | 201 Kópavogi | festi.is Núverandi reglur um samkomu- takmarkanir vegna kórónuveir- unnar gilda til og með þriðjudeg- inum 12. janúar. Ef ekkert óvænt á sér stað í faraldrinum út þessa viku standa vonir til að hægt verði að grípa til einhverra tilslakana. Þetta kom fram í máli Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis á upplýsingafundi almannavarna í gær. Hann sagði enn fremur að vikan fram undan skæri úr um hvort álíka vel hefði gengið í baráttunni við veiruna um áramót og um jól. Það myndi koma í ljós seinni hluta vikunnar. Alls hafa 35 greinst með kórónu- veirusmit innanlands síðustu vik- una og af þeim var 21 í sóttkví. Á sunnudag greindust 10 með veir- una innanlands og voru sjö í sóttkví. Fram kom í máli Þórólfs að 17 einstaklingar hefðu greinst hér á landi með svonefnt breskt afbrigði veirunnar, sem virðist meira smit- andi en aðrir stofnar. 16 greindust við landamæraskimun og einn inn- anlands en hann er fjölskyldu- meðlimur einstaklings sem greind- ist á landamærunum. Óútreiknanleg veira Jóhann Björn Skúlason, yf- irmaður smitrakningateymis Al- mannavarna, sagði við mbl.is í gær, að það virðist tilviljanakennt hve margir smitast úr hópi fólks sem hefur umgengist smitaðan einstakling. Bæði séu dæmi um að svo til allir sem hafa verið í rými með smituðum einstaklingi hafi smitast og að enginn smitist. „Þetta er rosalega misjafnt og við höfum ekki náð að festa hend- ur á því hvers vegna þetta er,“ sagði Jóhann Björn og bætti við, að ekki hafi verið sýnt fram á að smit berist misjafnlega á milli fólks eftir afbrigðum veirunnar. Hins vegar sé ljóst að varnarbún- aður á borð við grímur hafi á áhrif. Nýgengi innanlands: 21,3 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 10 ný inn an lands-smit greindust sl. sólarhring 13 smit greindust á landamærum sl. sólarhring, þar af bíða 10 eftir mótefna- mælingu 100 80 60 40 20 0 101 er með virkt smit og í einangrun Fjöldi smita frá 30.6. 2020 Heimild: covid.is júlí ágúst september október nóvember desember Nýgengi, landamæri: 16,6 Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum Vikan sker úr um hvort slakað verði á „Við megum ekki gleyma því að við erum með minni getu til að takast á við svona áföll en margar aðrar þjóð- ir því við erum með fremur lítið heilbrigðiskerfi og einangruð í Norður-Atlants- hafi,“ segir Magnús Gott- freðsson, prófess- or og yfirlæknir á Landspítala, sem furðar sig á því að strax sé farið að tala um að herða sultarólarnar þrátt fyrir að orrustan við kórónuveiruna sé ekki búin. „Það sendir skrýtin skilaboð, segir Magn- ús í viðtali við Læknablaðið. Vísar Magnús þar til aðhaldskröf- unnar sem nú er gerð á Landspít- alann. „Ég spyr mig hvort þetta séu skilaboðin sem almenningur vill senda inn í heilbrigðiskerfið eins og staðan er? Ég er ekki viss um að það sé þannig,“ segir yfirlæknirinnn sem telur að heilbrigðiskerfið hafi lengi verið vanfjármagnað. „Fjármagn hefur nýlega verið fært frá spítalan- um til heilsugæslunnar. Það er póli- tísk ákvörðun með sínum rökum, en það var ekki beðið um það. Almenn- ingur var að biðja um betri fjár- mögnun kerfisins í heild og við stöndum samt nánast á sama punkt- inum.“ Í desember var kynnt samkomu- lag um fjármál Landspítala sem mið- ar að því að spítalinn þurfi ekki að vinna á uppsöfnuðum rekstrarhalla á árunum 2021-2023. Nánar á mbl.is. Telur skilaboð stjórnvalda skrýtin  Yfirlæknir furðar sig á aðhaldskröfu Morgunblaðið/Árni Sæberg Landspítali Yfirlæknir telur að ekki eigi að herða sultarólar í veirufaraldri. Magnús Gottfreðsson Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Þetta var alveg ótrúlegt augnablik og ég á aldrei eftir að gleyma þessu. Þetta mun fylgja mér alla tíð,“ sagði Andri Már Margrétarson í samtali við Morgunblaðið. Hann átti mjög eftirminnileg kynni við haförn á ann- an dag jóla vestur í Ísafjarðardjúpi. Andri og konan hans, Ólafía Krist- jánsdóttir, voru akandi í Djúpinu í mjög góðu veðri þegar þau sáu örn- inn sitja niðri við sjó. Þau voru sam- mála um að þetta þyrftu þau að skoða nánar. „Ég stoppa, hoppa út í skott og næ í töskuna. Set á 135 mm linsu sem er það lengsta sem ég á og keyri til baka,“ skrifaði Andri með mynd- unum sem hann birti fyrst á Face- book-síðunni Íslenskar fuglateg- undir/Icelandic birds. „Þar stendur örn á steini eins og hann væri að bíða eftir mér og var í 5 mínútur al- veg rólegur og leyfði mér að mynda sig á alla vegu. Hleypti mér alltaf nær og nær, þegar næst var þá las ég 4,7 metra fókusfjarlægð. Svo hoppaði hann á milli steina eins og hann hafi verið að reyna að stilla sér betur upp og svo eftir allt montið í sér toppaði hann sig og flaug með þvílíkum þokka út á hafið og hljóðin sem því fylgdu voru alveg svakaleg.“ Andri sagði að örninn hafi verið mjög gæfur og gefið sér góðan tíma til að spóka sig um. Hann er að stíga sín fyrstu skref í ljósmyndun og sagði að þau Ólafía hefðu verið í marga daga að jafna sig eftir þessa eftirminnilegu og ánægjulegu lífs- reynslu. Þetta hafi verið svo mögnuð sjón. Andri sagði að samkvæmt því sem hann hefur kynnt sér hafi lík- lega verið um ungan haförn að ræða. Hausinn og stélið á haförnum hvítni með aldrinum og þessi hafi enn verið nokkuð dökkur til haussins. Ef til vill skýri það hvað hann var gæfur og hleypti ljósmyndaranum nærri sér. Andri kvaðst hafa náð að taka yfir 200 ljósmyndir og myndskeið af fyrirsætunni glæsilegu áður en hún flaug burt. Mögnuð kynni af gæfum haferni í Ísafjarðardjúpi Ljósmynd/Andri Már Margrétarson Haförn Eftir góða stund og margar uppstillingar fyrir myndatökurnar tók örninn flugið og flaug með háværum skrækjum út yfir sjóinn.  Örninn stillti sér upp fyrir myndatöku og tók svo flugið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.