Morgunblaðið - 05.01.2021, Blaðsíða 32
Starfsfólk bókaverslana
Eymundsson heldur utan
um sérstakan metsölulista
með þeim bókum sem seld-
ar eru í verslunum. Listinn
yfir tíu söluhæstu bækur
liðins árs í verslunum ligg-
ur fyrir og trónir Snerting
Ólafs Jóhanns Ólafssonar á
toppnum. Næstsöluhæst
var Vetrarmein Ragnars
Jónassonar og í þriðja sæti
Þagnarmúr Arnalds Indr-
iðasonar. Þá koma Gata
mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, Bráðin
eftir Yrsu Sigurðardóttur, Dýralíf eftir Auði Övu Ólafs-
dóttur, Vegahandbókin 2020, Þess vegna sofum við
eftir Matthew Walker, Fjarvera þín er myrkur eftir Jón
Kalman Stefánsson og tíunda bók á listanum er
Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason.
Snerting eftir Ólaf Jóhann seldist
best í verslunum Eymundsson
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sjálfseignarstofnunin Strandagaldur
hefur undanfarin 20 ár byggt upp
sýningar og söfn, sem tengjast göldr-
um, á tveimur stöðum á Ströndum. Í
tilefni tímamótanna var sett upp sér-
stök afmælissýning í safninu á
Hólmavík og verður hún út árið.
„Þetta er sýning um það markverð-
asta sem hefur gerst og áunnist á
undanförnum 20 árum,“ segir Anna
Björg Þórarinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Strandagaldurs.
Undirbúningur að stofnun safnsins
hófst 1996. Anna Björg rifjar upp að
Strandamaðurinn Jón Jónsson, þjóð-
fræðingur og nú stjórnarformaður
stofnunarinnar, hafi bent á í skýrslu
hvernig þjóðfræðin gæti nýst sam-
félaginu. Hópur heimamanna hafi
gripið hugmyndina á lofti, skipt með
sér verkum, lagst í fræði- og rann-
sóknarvinnu og síðan fengið Árna
Pál Jóhannesson leikmyndahönnuð
til að hanna sýninguna í gamla kaup-
félagshúsinu við höfnina, sem þar
með hafi fengið nýtt hlutverk. Sig-
urður Atlason hafi verið einn stofn-
enda og verið framkvæmdastjóri frá
byrjun til dánardags og hún síðan
tekið við í ársbyrjun 2019.
„Safnið og vöxtur þess er fyrst og
fremst Sigurði að þakka, það var
opnað á Jónsmessunni árið 2000 og
hefur verið opið síðan.“
Aðdráttarafl
Grunnsýningin á Hólmavík fjallar
um galdrafárið á 17. öld og lýsir fjöl-
breyttum göldrum og galdrastöfum,
sem notaðir voru á Íslandi, þjóðsög-
um sem tengjast göldrum og refs-
ingum vegna galdra. Sýningin var
hugsuð sem aðdráttarafl fyrir svæðið
og upphaflega var gert ráð fyrir því
að vera með sýningar á mismunandi
stöðum til að vekja athygli á þeim, að
sögn Önnu Bjargar.
Annar hluti sýningarinnar, Kotbýli
kuklarans, var opnaður í eftirlíkingu
bóndabæjar frá 17. öld í Bjarnarfirði
2005. „Flestir sem sakaðir voru um
galdur voru úr hópi alþýðunnar, fólk
sem barðist fyrir lífi sínu og greip til
kukls í von um að það myndi veita því
vernd og aukna veiði úr sjó,“ útskýrir
Anna Björg. Kotbýli kuklarans hafi
verið sett upp til að veita innsýn í
þessa lífsbaráttu og sýna hlut kukls-
ins í henni.
Auk sýninga hefur stofnunin stað-
ið að ýmsum viðburðum, sinnt rann-
sóknum og útgáfu, meðal annars gef-
ið út bækur um galdrafárið, auk þess
sem hún tengdist sérstakri þjóð-
fræðistofu sem nú er rannsóknar-
stofa Háskóla Íslands. Þá sé vakin at-
hygli á því hvernig þjóðtrúin hafi
verið gagnvart göldrum. „Við erum
til dæmis með eftirlíkingu af nábrók,
brók sem búin var til úr skinni af
dauðum manni. Menn fóru í brókina,
voru með galdrastaf, stálu peningum,
settu í punginn og voru þar með
komnir með peningapung.“
Anna Björg bætir við að til standi
að opna þriðja hluta sýningarinnar í
Árneshreppi. „Þar voru þrír menn
brenndir og sagt hefur verið að það
hafi markað upphaf galdrafársins.“
Galdrafár og þjóð-
sögur á Ströndum
Galdrasafn Anna Björg Þórarinsdóttir með tilbera, sem er skepna búin til
með göldrum til að stela mjólk frá kúm og kindum.
Sérstök afmælissýning verður í safninu á Hólmavík út árið
Sýning Nábrækurnar eiga að draga að peninga til þess sem gengur í þeim.
INXX II
Glæsilegasta lína okkar til þessa.
INXX II
BLÖNDUNARTÆKI
Brushed brass
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 5. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Fjarvera Arons er vitaskuld blóðtaka enda leikmaður
sem er reglulega í undanúrslitum Meistaradeildarinnar
með félagsliðum sínum og nú fyrirliði íslenska lands-
liðsins eftir að Guðjón Valur Sigurðsson hætti keppni.
Á EM í Svíþjóð snerist sóknarleikur íslenska liðsins
mikið í kringum Aron sem er ósköp skiljanlegt. Nú þarf
þjálfarateymið að bregðast við og finna aðrar út-
færslur,“ segir meðal annars í grein um karlalandsliðið
í handknattleik í blaðinu í dag en Aron Pálmarsson
verður ekki með í næstu verkefnum í janúar. »27
Bregðast þarf við fjarveru Arons og
finna aðrar útfærslur í sókninni
ÍÞRÓTTIR MENNING