Morgunblaðið - 05.01.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JANÚAR 2021
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
60 ára Anna er frá
Stokkseyri og er hús-
móðir og bóndi í Eyði-
Sandvík í Árborg. Hún
rekur kúabú þar
ásamt eiginmanni.
Anna er mikið fyrir
handavinnu.
Maki: Ólafur Ingi Sigurmundsson, f.
1961, bóndi.
Börn: María Ósk, f. 1982, Guðbjörn
Már, f. 1984, Rúnar Geir, f. 1988, og
Ólafur Dagur, f. 1989, d. 1999. Barna-
börnin eru orðin sex.
Foreldrar: Gísli Rúnar Guðmundsson, f.
1938, fyrrverandi sjómaður og vann
síðan við fiskvinnslu, búsettur á Eyrar-
bakka, og Unnur Guðmundsdóttir, f.
1943, d. 2005, húsmóðir og vann við
verslunarstörf.
Anna
Gísladóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sambönd halda áfram að vera ögr-
andi og eitthvað mikilvægt gerist í kvöld.
Ættingjar treysta á þig og þú bregst þeim
ekki.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu fyrri til að rétta fram sáttahönd,
því sjaldan veldur einn þá tveir deila. Þér
hættir til að sjá ekki hluti sem eru fyrir fram-
an nefið á þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú verður í aðstöðu til að ráða
ungu fólki heilt í dag. Ef líkaminn er hraustur
og geðið gott er eins og allur heimurinn sé á
þínu bandi.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Njóttu þess að vera samvistum við
fjölskylduna í dag. Þú ert löngu búin/n að
átta þig á að hún skiptir öllu máli. Góður vin-
ur hefur samband og biður um ráð.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Nú ertu komin/n á gott ról í því sem þú
ert að gera og það veitir þér ákveðna hugar-
ró. Ekki láta gremju annarra hafa áhrif á þig,
haltu þínu striki.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ert ekki eins og þú átt að þér og
ættir að vera heiðarleg/ur við þig og aðra.
Spurðu þig hvað þú hefur lært og hvernig þú
getur nýtt þér það.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vandamál sem hefur elt þig lengi virðist
auðleysanlegt með hjálp einhvers sem þekk-
ir það af eigin raun. Njóttu þess að eiga frí.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Samstarfsmenn þínir munu
koma auga á hæfileika þína og vilja njóta
þeirra. Vertu til staðar fyrir fjölskylduna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Haltu þig við skammtímaáætl-
anirnar og láttu hjá líða um sinn að skipu-
leggja til lengri tíma. Leitaðu tilboða, ekki
taka því fyrsta sem þú færð.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú ert í góðri aðstöðu til þess að
koma þér á framfæri í dag. Ekki gefast upp
þótt á móti blási. Þú getur allt sem þú ætlar
þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú munt halda áfram að fá góð
tækifæri í fasteignaviðskiptum á næstunni.
Fólk lítur lífið misjöfnum augum og þér er
frjálst að velja þá sýn sem hentar þér best.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Óljós vafi um eitthvað sem þú hyggst
taka þér fyrir hendur fyllir þig óöryggi. Mak-
inn er eitthvað öfugsnúinn í dag, reyndu að
komast að af hverju.
kennsluna og betra að einbeita sér
að stjórnunarstörfunum.“
Skólastarfið í Verzlunarskólanum
hefur tekið miklum breytingum frá
hefur hann m.a. setið í stjórn Fé-
lags stjórnenda í framhaldsskólum.
Þorkell lauk BA-námi í íslensku í
Háskóla Íslands 1995 og kennara-
menntun 1997. Hann byrjaði að
kenna í Verzlunarskólanum sama
ár og hefur verið þar síðan. „Ég
stökk í háskólann í smá stund en
kom síðan aftur í Versló. Það er
einstakur andi í skólanum og mér
hefur alltaf liðið mjög vel þar, fyrst
sem nemanda og ekki síður sem
kennara. Það er alltaf gaman að
mæta í vinnuna.“
Þorkell kenndi fyrst íslensku og
tölvunotkun og síðan eingöngu ís-
lensku en varð svo yfirkennari 2008
og hefur verið það síðan. „Það eru
voða fáir sem kallast yfirkennarar í
dag, ætli þeir kallist ekki aðstoð-
arskólastjórar núna, sem mér
finnst synd því yfirkennari er fal-
legt starfsheiti. Ég sinni bara
stjórnunarstörfum núorðið, ég
kenndi reyndar samhliða fyrstu
önninni minni sem yfirkennari en
mér fannst það bitna á nemend-
unum. Það var margt sem truflaði
Þ
orkell Hjálmarsson
Diego fæddist 5. janúar
1971 á Fæðingarheim-
ilinu í Reykjavík en ólst
upp í Breiðholti, nánar
tiltekið í Hólunum. „Ég er mikið
borgarbarn og var til að mynda
aldrei í sveit sem krakki. Ætli það
komist ekki næst því að ég var há-
seti á fraktara tvö sumur 16-17 ára
gamall. Það stóð samt aldrei til að
ég fetaði í fótspor föður míns og
gerðist sjómaður,“ segir Þorkell að-
spurður. „En þetta eru eftir-
minnileg sumur og það að vera
hluti af áhöfn og sinna daglegum
störfum til sjós var mjög þrosk-
andi. Mér þykir alltaf jafn vænt um
að eiga þessa starfsreynslu á feril-
skránni.“
Þorkell er mikill Breiðhyltingur
en hefur aðeins flutt sig um set og
býr í Seljahverfinu. „Fljótlega eftir
að við hjónin hófum sambúð flutt-
um við þangað og höfum komið
okkur vel fyrir í hverfinu og líður
mjög vel.“
Þorkell gekk í Hólabrekkuskóla
og var formaður nemendafélagsins
þar og eftir grunnskólann lá leiðin í
Verzlunarskóla Íslands. „Þar tók
ég virkan þátt í félagslífinu og var
meðal annars í stjórn nemenda-
félagsins.“
Versló hefur lengi lagt mikinn
metnað í söngleikjauppfærslur sín-
ar. „Ég tók samt bara einu sinni
þátt í söngleik í skólanum, en það
var í Bugsy Malone,“ segir Þorkell
þegar hann er spurður út í þátt-
töku sína í þeim. „Ég reyndi að
komast í kórinn en þótti ekki nógu
lagviss, sem kom svo sem ekki á
óvart, en ég grenjaði mig inn sem
dansari. Það hefur alltaf verið mik-
ill metnaður í þessum sýningum og
danshlutverk mitt minnkaði í réttu
hlutfalli við það og eiginlega má
segja að ég hafi endað sem hluti af
sviðsmyndinni fremur en dansari.
Ég gef mig alls ekki út fyrir að
vera félagsmálatröll en þegar ég lít
til baka þá hef ég komið nokkuð
víða við. Ég lít svo á að ef ég tel
mig hafa eitthvað fram að færa, þá
reyni ég að leggja mitt á vogar-
skálarnar.“ Þorkell tók þátt í stúd-
entapólitíkinni í Háskóla Íslands og
því að Þorkell hóf að kenna. „Öll
upplýsingatæknin sem hefur komið
í skólann, kennsluhættir hafa
breyst, stúdentsprófið hefur verið
stytt um eitt ár og svo sjáum við
fram á nýjar hæfnikröfur, t.d. í
tengslum við loftslagsmál og fjórðu
iðnbyltinguna. Það eru spennandi
tímar fram undan í skólamálum.“
Skólastarfið í ár hófst í gær, en
eins og kunnugt er var það æði
sérstakt á liðnu ári. „Við sjáum
sem betur fer fram á að vera með
meiri staðkennslu en á síðustu önn
og stefnum meira og minna á að
vera með fulla kennslu í skólanum
í trausti þess að smitin í samfélag-
inu haldi áfram að vera fá. En að
sjálfsögðu fylgjum við öllum fyrir-
mælum yfirvalda í þeim efnum.“
Árið 2015 ákvað Þorkell að kom-
inn væri tími á endurmenntun og
skráði hann sig í MBA-nám við
Háskólann í Reykjavík og lauk
náminu 2017. „Í MBA-náminu
gafst mér svo tækifæri til þess að
láta gamlan draum rætast og það
var að fara út í skiptinám. Fyrir
Þorkell H. Diego yfirkennari – 50 ára
Ljósmynd/Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir
Sumar á Íslandi 2020 „Fjölskyldan að leggja saman upp í fyrstu fjallgönguna og varð Helgafell fyrir valinu. Þær hafa
nú reyndar ekki verið fleiri, fjölskylduferðirnar upp á fjall.“ F.v.: Þórunn, Þorkell, Hulda María og Hjálmar Tumi.
Alltaf liðið vel í Versló
Hjónin Sigríður og Þorkell í göngu
upp á Esju í nóvember síðastliðnum.
40 ára Sandra ólst
upp í Reykjavík og á
Akureyri og býr í
Bökkunum í Breið-
holti. Hún er ritari
framkvæmdastjórnar
á Reykjalundi. Sandra
hefur m.a. verið for-
maður nemenda- og starfsmannafélaga
og situr í stjórn Starfsmannafélags
Reykjalundar.
Maki: Trausti Bergmann, f. 1986, pípari.
Börn: Almar Blær Ragnarsson, f. 2000,
Kara Kristrún Bergmann, f. 2013, Andrés
Ingi Bergmann, f. 2016, og Brynjar
Trausti Bergmann, f. 2018.
Foreldrar: Halldóra Berglind Brynjars-
dóttir, f. 1961, og Andrés Einar Einars-
son, f. 1960, sjómaður hjá Sjóla. Þau eru
búsett í Mosfellsbæ.
Sandra Ösp
Andrésdóttir
Til hamingju með daginn
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is