Morgunblaðið - 07.01.2021, Síða 10

Morgunblaðið - 07.01.2021, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Þegar frost er á fróni Þinn dagur, þín áskorun 100% Merino ullarnærföt fyrir dömur og herra Stærðir: S–XXL Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | run@run.is | www.runehf.is OLYMPIA Sölustaðir: Hagkaup • Fjarðarkaup • Útilíf • N1 • Vesturröst • Verslun Guðsteins Eyjólfssonar • Verslunin Bjarg, Akranesi Herrahúsið, Ármúla 27 • JMJ, Akureyri • Lífland, Hvolsvelli og Blönduósi • Verslunin Blossi, Grundafirði • Efnalaug Vopnafjarðar Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki • Verslun Grétars Þórarinssonar, Vestmannaeyjum • Borgarsport, Borgarnesi Kaupfélag V-Húnvetninga, Hvammstanga • Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík • Þernan, Dalvík • Siglósport, Siglufirði Bókaverslun Breiðarfjarðar, Stykkishólmi • Vaskur, Egilsstöðum • Skóbúð Húsavíkur • Efnalaug Suðurlands, Selfossi • run.is ferðaskipum fyrr en búið er að ná betri tökum á faraldrinum í heim- inum.“ Alls voru sjö komur farþegaskipa til Faxaflóahafna í fyrrasumar með 1.346 farþega. Þetta var gríðar- legur samdráttur frá árinu 2019. Það ár voru 190 komur farþega- skipa til Faxaflóahafna með 188.630 farþega. Samdrátturinn milli ára var um 99%, eða sem nem- ur 187.284 farþegum. Tekjutap Faxaflóahafna var gríð- arlegt. Tekjur fóru úr 597 millj- ónum árið 2019 niður í 11,2 millj- ónir í fyrra. Sama á við um aðrar hafnir. Í fjárhagsáætlun Faxaflóahafna fyrir árið 2021 er ekki gert ráð fyr- ir miklum tekjum af skipakomum skemmtiferðaskipa, segir Erna. „Tímarammi farþegaskipanna er svipaður og farfuglanna, vanalega frá lok apríl til október með nokkr- um undantekningum. Þar sem tímaramminn er stuttur mun taka aðeins lengri tíma fyrir þennan iðn- að að rétta sig af en flugfélög, sem eru að fljúga til Íslands allt árið um kring. Við verðum hins vegar að vera bjartsýn og vona að árið 2021 verði betra en árið 2020 í skipa- komum. Það koma fleiri skip en í fyrra en hversu mörg þau verða, það getum við ekki sagt til um að svo stöddu,“ segir Erna. Hún segir hins vegar að árið 2022 líti mjög vel út og kveðst ekki trúa öðru en þær bókanir muni standast. 217.399 farþega. „Hins vegar eru þetta væntingar skipafélaganna,“ segir Erna „Þau vilja hefja sigl- ingar til Íslands en hinn almenni borgari er ekki tilbúinn að ferðast enn þá. Heimsfaraldurinn setur strik í reikninginn og fólk ekki jafn tilkippilegt að bóka ferðir. Fólk vill ferðast til öruggra landa og mestu máli skiptir að bólusetning hjá þjóðum gangi vel fyrir sig og beri árangur. Ég held að fólk fari ekk- ert að ferðast með skemmti- Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Búið var að bóka tæplega 200 kom- ur skemmtiferðaskipa til Reykja- víkur næsta sumar. En vegna far- aldurs kórónuveirunnar eru blikur á lofti og síðustu vikurnar hafa af- bókanir byrjað að berast, að sögn Ernu Kristjánsdóttur, markaðs- stjóra Faxaflóahafna. Bókunarstaðan hjá Faxaflóa- höfnum eru 198 skipakomur með Morgunblaðið/RAX Tignarleg sjón Ekkert af stóru skemmtiferðaskipunum kom hingað í fyrra en vonir standa til að einhver komi í sumar. Celebrity Eclipse hefur komið hingað nokkrum sinnum undanfarin ár. Skipafélögin byrjuð að afboða  Bókunarstaða skemmtiferðaskipa góð fyrir sumarið  Blikur á lofti vegna kórónuveirunnar Jóhannes Tryggvi Sveinbjörnsson, sem jafnan er kenndur við Postura, var í Héraðsdómi Reykjaness í gær dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað fjórum konum á með- ferðarstofu sinni. Um nokkurra ára gömul mál er að ræða en brotin eru talin hafa átt sér stað á tímabilinu 2009 til 2015. Um fimmtán konur kærðu Jóhannes upphaflega til lög- reglu, en rannsókn lögreglu leiddi til þess að ákært var í fjórum tilvikum. Í dómnum segir að hann hafi beitt konurnar ólögmætri nauðung. Í ein- hverjum tilvikum var Jóhannes sak- aður um að fara með hönd sína inn að kynfærum skjólstæðinga sinna. Jó- hannes rak fyrirtækið Postura þar sem hann meðhöndlaði fólk sem glímdi við stoðkerfiskvilla. Steinbergur Finnbogason, verj- andi Jóhannesar, sagði við mbl.is í gær að dómnum verði áfrýjað. „Það eru engar sannanir og þetta er ekk- ert annað en orð gegn orði. Það verð- ur tekist á um þetta fyrir Landsrétti, það er að segja hvort þetta sé nóg til að sakfella hann.“ Fimm ára fangelsi fyrir nauðganir  Dómnum áfrýjað til Landsréttar Hagnaður af rekstri FISK Seafood og dótturfélaga á síðasta ári nam um þremur milljörðum króna. Þá voru skuldir lækkaðar auk þess sem fjár- fest var m.a. í tækjabúnaði og við- haldi, að því er fram kemur í pistli eft- ir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóra félagsins, á vef fyrirtækisins. Þar segir framkvæmdastjórinn þörf á að marka stefnu og hefja und- irbúning að frekari uppbyggingu. Bendir hann á að togarinn Málmey og frystiskipið Arnar nálgast „þann ald- ur að þörf er á endurnýjun“. Jafnframt segir Friðbjörn þörf á að hefja undirbúning „mikillar uppbygg- ingar og endurnýjunar húsakosts“ á Sauðárkróki, en á árinu seldi félagið tvær eignir á Grundarfirði og fasteign sem áður hýsti frystihúsið á Hofsósi. „Framundan eru því umtalsverðar fjárfestingar, m.a. með niðurrifi húsa- kosts og nýbyggingum, nýjum tækja- búnaði, t.d. fyrir svokallaða Skinpack- framleiðslu, o.fl. Með nýjum skipum og endurnýjuðu frystihúsi munu að- stæður okkar til veiða og vinnslu verða í allra fremstu röð hér á landi,“ skrifar framkvæmdastjórinn. Til stendur að afhenda sveitarfé- laginu á Skagaströnd án endurgjalds svokallað stjórnsýsluhús sem nú hýs- ir Vinnumálastofnun og skrifstofur sveitarfélagsins. Einnig verður af- hent gamla síldarvinnslan og rækju- vinnslan. gso@mbl.is Boðar miklar fjárfestingar  FISK Seafood skilaði myndarlegum hagnaði á síðasta ári Morgunblaðið/RAX Togari Drangey er með nýjustu skipum landsins, von er á fleirum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.