Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 12

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 12
Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Hún Lilla var ofboðslegaskemmtileg. Hún var ein-hver sú fyndnasta konasem var í lífi mínu, algjör skrípill,“ segir Edda Björgvinsdóttir en hún og Viðar Björgvins, frændi hennar og sonur fyrrnefndrar Lillu, tóku sig til og gáfu nýlega út Upp- skriftabók Lillu frænku, en hún er byggð á gamalli húsmæðraskólabók Lillu, eða Margrétar Önnu Elías- dóttur eins og hún hét fullu nafni. „Hún var aldrei kölluð annað en Lilla frænka, þó hún væri ekki frænka okkar, heldur var maðurinn hennar Nonni frændi. Nonni var bróðir pabba míns, eða reyndar voru þeir ekki bræður heldur systkinasynir í báðar ættir, en þeir ól- ust upp saman sem bræður hjá ömmu og afa. Það var svo fallegt bræðra- samband á milli pabba og Nonna alla tíð. Lilla og mamma mín voru mjög líkar, þó þær væru ekki blóðskyldar, bæði í útliti og sem manneskjur. Þetta er svo skemmtileg og flókin saga um tengsl fólksins míns.“ Taskan undir rúmi Sagan á bak við upp- skriftabók Lillu er sú að þegar Lilla flutti til Am- eríku árið 1953 ásamt Nonna sínum og tveim- ur ungum sonum, þá aðeins 27 ára stelpa, tók hún með sér út í heim uppskriftabók sem hún hafði samviskusamlega handskrifað í Hús- mæðraskóla Ísa- fjarðar. „Þau Nonni bjuggu allan sinn búskap í Ameríku og gátu ekki komið í heimsókn til Ís- lands fyrstu árin, en þau komu oftar eftir því sem leið á ævi þeirra. Viðar sagði kíminn að Lilla mamma hans hefði fyrstu árin ver- ið með tösku tilbúna undir rúmi, því hún ætlaði ekkert að stoppa lengi,“ segir Edda og bætir við að vissulega hafi það þótt ansi mikil dirfska hjá unga fólkinu á þessum tíma að flytja í aðra heims- álfu. „Foreldrar mínir voru ævintýra- gjarnt fólk og þau studdu ævintýri Lillu og Nonna vel og þeim þótti þetta æðislegt. Mamma og pabbi fóru oft í heimsókn til þeirra en ég fór fyrst með þeim þegar ég var 13 ára og við vorum í heilan mánuð hjá þeim. Þá var Lilla alltaf með gömlu uppskriftabók- ina sína á lofti og eldaði upp úr henni. Sumt í bókinni varð víðfrægt í hverf- inu hennar úti, til dæmis jólasmákök- urnar. Pabbi heimsótti Nonna reglu- lega síðustu árin sem hann lifði og þá skiptust þeir á að elda upp úr bókinni hennar Lillu. Pabbi man mjög vel eftir þessari slitnu og mikið notuðu bók.“ Snjóbúðingur og áfasúpa Margt í uppskriftum Lillu er framandi fyrir ungt fólk í dag, til dæmis áfasúpa, en áfir eru sá vökvi sem verður eftir þegar smjör er unnið úr rjóma. Þar eru líka frumleg heiti á uppskriftum eins og snjóbúðingur og bóndadóttir með blæju, sem Edda man vel eftir að mamma hennar og systur hennar voru með allskonar að- ferðir við að búa til. „Ég prófaði að elda fiskibollur í tartalettum og hélt að fiskibollurnar væru vandlega útfærðar og eldaðar frá grunni í húsmæðraskólanum, en nei, þá stendur í uppskriftinni að nota skuli hálfdós af fiskibollum, niður- soðnum frá ORA. Þetta þótti mér mikið grín,“ segir Edda og bætir við að það sé mikil gleði í þessari nýju bók, rétt eins og í Lillu. „Við vildum sýna bókina eins og hún er, svo þetta eru myndir af síðunum úr henni, en Alexandra Buhl hönnuður bjó til alveg nýja útgáfu með því að teikna og vinna með ljósmyndir úr fjölskyldualmbúmi Lillu. Húmorinn er allsráðandi og Alexandra grípur algerlega stemn- inguna og persónuleika Lillu. Til dæmis eru Lilla og Nonni ung í faðm- lögum að kyssast við uppskrift að ástarbollum. Þau voru bæði rosalegir húmoristar og það var dásamlegt að vera með þeim. Þau voru svo mikil krútt saman, stríðin og sprelligosar.“ Gaman saman Edda fyrir miðju, Ólöf systir Lillu lengst t.v, Lilla við hlið hennar, Gísli sonur Lillu og Viðar sonur hennar. Koss Lilla og Nonni kyssast að sjálfsögðu á gamalli ljósmynd sem skreytir síðu með uppskrift að unaðslegum ástarbollum. Stemning Ljósmyndirnar í bókinni eru úr fjölskyldualmbúmi Lillu frænku og oft er þar setið við veisluborð fyrr á árum. Lilla frænka var algjör skrípill „Þau voru rosalegir húmoristar og það var dásamlegt að vera með þeim,“ segir Edda Björgvinsdóttir þegar hún rifjar upp heimsóknir til Lillu og Nonna í Amer- íku þar sem eldað var upp úr gamalli bók Lillu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Töffari Lilla ung að árum að matreiða prinsessusúpu úti í náttúrunni. Edda „Lilla tók með sér út í heim uppskriftabók sem hún hafði sam- viskusamlega handskrifað.“ 12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Casa býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa/Euro) í allt að 6 mánuði. LÝSTU UPP skammdegið 2097/30 Ljósakróna króm Ummál: 88 cm Hönnun: Gino Sarfatti (1958) Verð 259.000,-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.