Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
Uppbygging í Vestmannaeyjum
„Það hefur verið gaman að
fylgjast með og taka þátt í
þeirri miklu uppbyggingu sem
nú er í Vestmannaeyjum. Íbúð-
arhús og íbúðir af öllum gerðum
og stærðum rjúka upp og fyrir-
tæki á almennum markaði eru
að byggja yfir reksturinn. Mikið
er framkvæmt við sjávarsíðuna
þar sem sjávarútvegsfyrirtækin
hafa undanfarin ár verið að nú-
tímavæða reksturinn með ný-
byggingum og fullkomnasta
tæknibúnaði og eru enn að. Með
því styrkja þau stöðu sína í
harðri samkeppni á alþjóðlegum
mörkuðum sem örugglega á eft-
ir að harðna vegna þess ástands
sem ríki í heiminum í dag,“ seg-
ir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, við Morg-
unblaðið.
„Vestmannaeyjabær stendur
líka í ströngu með byggingu á
nýrri slökkvistöð og byggingu
níu íbúða og þjónustukjarna fyr-
ir fatlaða á Ísfélagsreitnum. Við
erum að vinna að endurbótum á
Ráðhúsinu okkar fallega og
flytjum vonandi inn síðsumars.
Hafinn er undirbúningur við
stækkun á Hamarsskóla sem er
yngribarnaskólinn okkar. Auk
þess eru áætlanir um að hefja
uppbyggingu á þriðju hæð í
Fiskiðjunni. Í dag er öflugur at-
vinnu- og rannsóknaklasi á ann-
arri hæðinni sem er í umsjón
Þekkingarseturs Vestmanna-
eyja. Nú er hafinn undirbún-
ingur að innréttingu nýsköp-
unar- og frumkvöðlaklasa á
þriðju hæðinni sem sýnir að
Eyjamenn hugsa fram á við.“
Tækifæri til uppbyggingar
Íris segist því bjartsýn á
framhaldið í Vestmannaeyjum.
„Auðvitað höfum við ekki far-
ið varhluta af kófinu sem er
mikið högg fyrir fyrirtæki í
ferðaþjónustu en nýjar fréttir í
baráttunni við Covid-19 vekja
bjartsýni. Hér eru mikil tækfæri
til uppbyggingar í ferðaþjónustu
og spennandi hlutir fram undan.
Sjávarútvegur hefur á ótrúlegan
hátt náð að halda sjó og verður
fljótur að ná vopnum sínum að
fullu þegar birtir. Líkur á loðnu-
veiði í vetur eru góð tíðindi fyrir
Vestmannaeyjar, sem ráða yfir
um 30% heildarloðnukvótans,“
sagði Íris að lokum.
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Bjartsýn Íris Róbertsdóttir er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Uppbygging
hjá bænum og
fyrirtækjum
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum
segist bjartsýn á framtíðina
18
Vestmannaeyjabær stendur í umtalsverðum fram-
kvæmdum á tvennum vígstöðvum. Annars vegar er
það ný 600 fermetra slökkvistöð sem er viðbygging
við Þjónustumiðstöð bæjarins við Heiðarveg. Hins
vegar þjónustuíbúðir fyrir fatlaða við Strandveg sem
eru hluti íbúða- og þjónustukjarna sem rís á grunni
skrifstofu Ísfélagsins sem reis um miðja síðustu öld
og hefur sett svip á Strandveginn í Eyjum.
Þjónustumiðstöðin var reist eftir gosið 1973 og tek-
in í notkun 1975 sem Áhaldahús Vestmannaeyja og
hýsti vélamiðstöð, verkstæði og geymsluhús. Endur-
bætur eru gerðar á gamla húsinu en Slökkvistöðin,
þar sem hægt er að koma fyrir sex slökkvi- og
sjúkrabílum, er tæplega 600 fm að stærð. Verktaki er
2 Þ ehf.
„Nýja slökkvistöðin leysir af hólmi gömlu stöðina
sem reist var 1946 sem netaverkstæði. Allt verður
endurnýjað og fært til nútímans. Settir upp kynja-
skiptir búningsklefar auk annarrar starfsmanna-
aðstöðu, bæði fyrir þjónustumiðstöð og slökkvilið. Ríf-
lega 40 fermetra stigahúsi verður bætt við húsnæðið,“
segir Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri hjá bæn-
um.
Íbúða- og þjónustukjarninn á Strandvegi 26 er fjór-
ar hæðir og á annarri hæðinni verða níu íbúðir fatl-
aðra sem Vestmannaeyjabær lætur byggja.
„Í allt eru þetta liðlega 800 fermetrar og verða
íbúðirnar sjö klárar á þessu ári. Gert er ráð fyrir sér-
þjónustukjarna fyrir íbúðirnar auk skammtímavist-
unar með sólarhringsþjónustu.“
Ný slökkvistöð og níu íbúða kjarni fyrir fatlaða
Viðbygging Slökkvistöðin í Eyjum verður eum 600 fermetrar að stærð og er viðbygging við Þjónustumiðstöð bæjarins við Heiðarveg.
SVIÐSLJÓS
Ómar Garðarsson
Vestmannaeyjum
Í dag eru 48 íbúðir í smíðum í Vestmanna-
eyjum og alls hafa 68 nýjar íbúðir verið tekn-
ar í notkun þar síðustu fimm árin. Auk þess
er búið að úthluta lóðum fyrir 15 til 20 íbúðir
sem munu rísa á næstu misserum og árum.
Allt selst jafnóðum og ber vott um sterka
stöðu Vestmannaeyja.
Auk þessa fjárfesta sjávarútvegsfyrirtækin
grimmt þannig að mikið hefur verið að gera
hjá iðnaðarmönnum undanfarin ár. Atvinnu-
ástand er yfirleitt gott nema í ferðaþjónustu
sem þó hefur sloppið nokkuð vel miðað við
mörg sveitarfélög. Miðað við almennt atvinnu-
leysi voru 129 á skrá í Vestmannaeyjum í nóv-
ember sl. eða 5,3% fólks á vinnumarkaði. Er
það með því lægsta á landinu en landsmeð-
altal var 10,2% og á Suðurlandi 9,3%. Þótt at-
vinnuleysi sé lítið á landsvísu telst það mikið í
Vestmannaeyjum þar sem meðalatvinnuleysi
er 2,5% frá aldamótum.
Fréttaritari og ljósmyndari Morgunblaðsins
í Eyjum tóku stöðuna á nokkrum aðilum sem
koma að uppbyggingunni um þessar mundir.
Eyjamenn byggja og byggja
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Vestmannaeyjar Bogi Rúnarsson, Óðinn Sæbjörnsson, Jóhann Sveinn Sveinsson, Sveinn Sveinsson og
Gunnar Guðjónsson, starfsmenn Steina og Olla, sem er að reisa fjölbýlishús í gamla Ísfélagshúsinu.
Uppbygging
» Á fimm árum hafa verið
byggðar ríflega 100 íbúðir í
Eyjum og nýtt atvinnuhúsnæði
á 18 þúsund fermetrum.
» Í dag eru í byggingu um 10
þúsund fermetrar af atvinnu-
húsnæði. Mestar framkvæmdir
eru norðan Strandvegar.
» Þar ber helst að nefna nýtt
fiskvinnsluhús Leo Seafood í
botni Friðarhafnar.
» 48 íbúðir eru núna í bygg-
ingu í 17 húsum, alls um 6.000
fermetrar, á mismunandi bygg-
ingarstigi.
» Undanfarin fimm ár hafa alls
68 nýjar íbúðir í 25 húsum ver-
ið teknar í notkun. Alls eru
þetta um 10.000 fermetrar, að
sögn byggingarfulltrúa Vest-
mannaeyja, Sigurðar Smára.