Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Ármúla 24 • rafkaup.is 20% ∙ 50% ∙ 70% ÚTSALA Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 11-16 Uppbygging í Vestmannaeyjum „Það eru eflaust nokkrar skýr- ingar á því að mikið er byggt í Vestmannaeyjum þótt íbúum fjölgi ekki í sama hlutfalli. Ungt fólk er að snúa heim og fjárfesta og Eyja- menn búsettir annars staðar eru að kaupa íbúðir til að eiga hér at- hvarf. Það eru færri um hverja íbúð en áður og hér er töluvert af útlendingum sem hafa ílengst og kaupa sér íbúðir,“ segir Magnús Sigurðsson, framkvæmdastjóri og eigandi Steina og Olla, um þró- unina í bænum en fyrirtækið er hið stærsta og elsta starfandi á bygg- ingamarkaðnum í Eyjum. Steini og Olli var stofnað árið 1988 og árið 2010 keyptu Magnús og kona hans, Ester S. Helgadótt- ir, félagið og hafa rekið það síðan. Í dag vinna um 40 manns hjá Steina og Olla. Meðal verkefna hafa verið Eldheimar 2014, Varma- dælustöðin sem tekin var í notkun 2019 og frystiklefi fyrir Ísfélagið og allar tengibyggingar, sem var stórt verkefni. Byggt fyrir Ísfélagið „Það voru um 4.000 fermetrar en við höfum víðar komið við sögu í gegnum árin. Byggðum meðal ann- ars nýjar þjónustuíbúðir aldraðra í Eyjahrauni, viðbyggingu við að- stöðu Ísfells á Kleifum sem og stækkun húsnæðis Hampiðjunnar á Kleifum, tengivirki fyrir HS veit- ur og endurnýjun þakvirkis fisk- mjölsverksmiðju Ísfélagsins. Á síð- asta ári byggðum við þrjú einbýlishús, endurnýjuðum bún- ingsklefa í Íþróttamiðstöðinni, byggðum tankahús Ísfélagsins og erum að byggja búningsaðstöðu við Hásteinsvöll,“ segir Magnús en stærsta verkefnið núna er bygging íbúða- og þjónustukjarna þar sem skrifstofur Ísfélagsins voru til húsa ásamt verkstæði og verbúð- um. Ísfélagið og skrifstofur félagsins settu mikinn svip á miðbæinn í Vestmannaeyjum frá miðri síðustu öld og fram á þessa. „Það var 2018 sem gengið var frá samningi um byggingu þessa þróunarverkefnis í kjölfar auglýs- ingar Vestmannaeyjabæjar þar sem áhugasamir aðilar skiluðu inn sínum tillögum. Í júní 2019 hófum við svo framkvæmdir og er verkið í góðum gangi. Í allt eru þetta rúmir 4.000 fermetrar á fjórum hæðum og í allt 27 íbúðir frá 55 fermetrum upp í 170 fermetra og allar seldar.“ Stefnt er að afhendingu næsta sumar á íbúðum á efstu tveimur hæðunum. „Þetta er stærsta verk- efnið í augnablikinu og svo erum við í smærri verkefnum vítt og breitt um bæinn. Verkefnastaðan er góð og við erum að hefja und- irbúning að byggingu fimm íbúða raðhúss við Áshamar. Annað stórt sér maður ekki í augnablikinu en það munu koma frekari verkefni í framtíðinni, svo mikið er víst,“ seg- ir Magnús að endingu. Byggja 27 íbúðir og allar seldar  Byggingarfyr- irtækið Steini og Olli umsvifamikið Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Framkvæmdir Magnús Sigurðsson, framkvæmdastjóri og eigandi Steina og Olla, fyrir framan gamla Ísfélagshúsið, þar sem koma nýjar íbúðir. „Það seljast í kringum 100 eignir á ári í Eyjum, bæði í fjölbýli og sérbýli, oftast meira í fjölbýlis- húsum. Er hlutfallið um sex á móti fjórum en það breytist á milli ára. Fjöldi íbúðareigna í Eyjum er um 1.800 og skipta því um 5% þeirra um eigendur ár hvert,“ segir Helgi Bragason hrl. og lög- giltur fasteignasali hjá Fast- eignasölu Vestmannaeyja. Hann segir talsvert meira hafa verið um nýbyggingar á und- anförnum árum, mest í fjölbýlis- húsum, í miðbænum, við smábáta- höfnina og í raðhúsum í vesturbænum. „Það hefur gengið vel að selja þessar íbúðir og ný verkefni í burðarliðnum,“ segir Helgi og nefnir raðhús í Áshamri og svo er fyrirhugað nýtt fjölbýlishús við Sólhlíð neðan við spítalann. „Fjöldi eigna til sölu hefur verið í kringum 120 en í dag er framboð eitthvað minna.“ Verðþróunin stöðug Helgi segir þróun verðs hafa verið nokkuð stöðuga, hækkun um 5% til 10% á ári undanfarið. Meðalfermetraverð samkvæmt Þjóðskrá árið 2020 er í Eyjum í kringum 220.000 til 225.000 krón- ur sem er nálægt því helmings- verð miðað við höfuðborg- arsvæðið. Í nýju húsunum í miðbænum er verðið um 450.000 krónur. „Mér sýnist að meðalfermetra- verð hér sé 25% til 30% lægra en á Selfossi, Akureyri, Akranesi og Reykjanesbæ. Við sjáum ungt fólk sjá tækifæri í lægra íbúða- verði í Eyjum og störfum hér án staðsetningar fer fjölgandi,“ segir Helgi. Hann segir fasteigna- markað í Vest- mannaeyjum lúta sömu lög- málum og ann- ars staðar á landinu. Láns- framboð og kjör hafi verið hagstæð, kaup- máttur, atvinnustig og fleira hafi líka sitt að segja. „Í Eyjum skipta góðar sam- göngur líka miklu máli. Framboð af góðu húsnæði á góðu verði hef- ur áhrif og aukið framboð af ný- byggingum er jákvætt fyrir bæj- arfélagið á allan hátt. Það sýnir bjartsýni og dug, skapar störf og tekjur og gefur möguleika á fjölg- un íbúa ef aðrir þættir eru í lagi eins og atvinna, samgöngur, inn- viðir og þjónusta.“ Helgi segir töluvert um að fólk sem hefur ekki hér heilsársbúsetu kaupi eignir og sé hér tímabundið en eigi ekki alltaf lögheimili í Eyj- um, fjölgun íbúða og eigenda íbúða í Eyjum kemur því ekki að fullu fram í íbúafjöldanum. Vest- mannaeyjar hafa mikið aðdrátt- arafl, einkum á sumrin; fallegt umhverfi, framboð á ýmiss konar afþreyingu og skemmtunum, góð- ur golfvöllur og aðstaða til íþróttaiðkunar og fleira.“ Að lokum bendir hann á að leigumarkaður hafi verið ágætur, mesta framboðið sé á haustin og veturna en minnki með hækkandi sól og á sumrin geti verið erfitt að finna leiguhúsnæði. Líflegur fast- eignamarkaður  Lægra fasteignaverð í Vest- mannaeyjum freistar unga fólksins Helgi Bragason  20
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.