Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 20

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Uppbygging í Vestmannaeyjum Sjávarútvegsfyrirtækin stóru í Vest- mannaeyjum, Ísfélagið, Vinnslustöðin og Leo Seafood, hafa fjárfest mikið á und- anförnum árum og eru enn að. „Í frystihúsinu byggðum við frystiklefa og flokkunarstöð á árunum 2015 og 2016. Í FES, bræðslunni okkar, byggðum við einn stóran hráefnistank 2013 og fjóra litla 2020,“ segir Stefán Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Ísfélagsins. „Fram undan á þessu ári er að setja upp fjórðu pökkunarlínuna í uppsjávarvinnsl- unni og í febrúar tökum við á móti uppsjáv- arskipi sem við keyptum í Noregi í haust en það var smíðað 2003,“ segir Stefán. Leo Seafood hefur unnið að miklum endurbótum á húsi og tækjabúnaði í húsnæði sínu við Garðaveg og er það eitt tæknivæddasta frystihús landsins. En ekki er látið staðar numið þar. Byrjað er að grafa fyrir 4.000 fm húsi fyrir botni Friðarhafnar. „Þetta verður frystihús með frystiklefa sem eykur möguleika okkar í vinnslu á sjáv- arafurðum. Stefnt er að því að ljúka fram- kvæmdum eftir tvö ár en það ræðst auðvit- að af ýmsum þáttum,“ segir Daði Pálsson, eigandi og stjórnarformaður Leo Seafood sem ekki er maður einhamur. „Ég hef kom- ið að nokkrum byggingarverkefnum og er núna ásamt fleirum að undirbúa að byggja 20 íbúðir í fjölbýlishúsum við Sólhlíð,“ bætti hann við. 13 milljarða framkvæmdir „Við höfum fjárfest fyrir 86 milljónir evra síðustu fimm ár, jafngildi 13,3 millj- arða íslenskra króna. Þar af 69 milljónir evra í varanlegum rekstrarfjármunum, jafngildi 10,7 milljóna króna,“ segir Sig- urgeir Brynjar Kristgeirsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, en tek- ur fram að fjárfestingar rekstrarfjármuna 2020 hafi verið óverulegar. Meðal fjárfest- inga nefnir hann kaupin á togaranum Breka sem smíðaður var í Kína. „Við höfum líka fjárfest í nýbyggingum. Má þar nefna uppsjávarfrystihús, frysti- klefa, hráefnistanka, mjölgeymslu, flokk- unarstöð og starfsmannaaðstöðu sem verð- ur tekin í notkun í ár. Það var kominn tími til að ráðast í uppbyggingu félagsins enda bæði skip og húsakostur orðinn gamall. En við eigum enn eftir að endurnýja botn- fiskhlið félagsins. Það kemur vonandi á næstu árum,“ sagði Sigurgeir Brynjar einnig. Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Breytt mynd Ísfélagið og Fiskiðjan voru lengi ein helstu kennileiti í Vestmannaeyjum. Nú hafa Fiskiðjan og Vigtarhúsið fengið nýtt hlutverk og setja mikinn svip á hafnarsvæðið í bænum. Fiskvinnsla, tankar og tækninýjungar  Miklar framkvæmdir hjá stóru sjávarútvegsfyrirtækjunum í Vestmannaeyjum á síðustu árum „Ísfélagshúsið var á sínum tíma mikið kennileiti í miðbæ Vest- mannaeyja og var lagt upp úr því að einkenni hússins myndu halda sér og setja áfram svip á bæinn en húsið er í hjarta miðbæjarins, þar sem stutt er í þjónustu og mikið mannlíf er almennt á svæðinu,“ sagði Ólafur Snorrason, fram- kvæmdastjóri hjá Vestmanna- eyjabæ. Í endurbyggðu húsinu er verið að innrétta þjónustuíbúðir fyrir fyrir fatlað fólk. Verktakafyrir- tækið Steini og Olli byggir húsið og er mikið lagt upp úr að íbúða- kjarninn sé heimilislegur og íbú- um líði vel. „Innanhússhönnun er í höndum ungra Vestmannaeyinga en þau Ríkharður Örn Stefánsson arkitekt, Sigrún Arna Gunn- arsdóttir innanhússhönnuður og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, for- stöðumaður þjónustuíbúða Vest- mannaeyjabæjar, tóku að sér verk- ið og hefur þeim tekist einstaklega vel upp að okkar mati. Sérstaklega er hugað að sérþörf- um íbúa og m.a. er bílakjallari þar sem hægt er að geyma t.d. raf- skutlur og hlaða þær innandyra. Hver íbúð er sjálfstæð eining með aðgengi að þjónustu eins og best verður á kosið,“ segir Ólafur. Kennileiti í miðbænum Þjónustukjarni Tölvumynd af Ísfélagshúsinu í Vestmannayjum eins og það mun líta út.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.