Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Íslendingar þurfa að horfa víðar um
völl þegar um utanríkisviðskipti er
að ræða, bæði hvað varðar viðskipti
með vörur og þjónustu. Þróun
heimsviðskipta ber það augljóslega
með sér og lýðfræðilegar breyt-
ingar á helstu viðskiptalöndum
sömuleiðis. Vægi Evrópu er þar að
minnka, ekki síst þó vegna gríð-
armikils vaxtar miðstéttar í heim-
inum utan Vesturlanda, sérstaklega
í Kína og Indlandi. Þá er athygl-
isvert að það er Bandaríkjadalur
sem er helsta viðskiptamynt Ís-
lands, ekki evran, eins og sumir
gætu ætlað.
Þetta er meðal þess helsta sem
lesa má úr nýrri skýrslu um utan-
ríkisviðskiptastefnu Íslands, sem
utanríkisráðuneytið gaf út í gær. Í
henni má finna á einum stað helstu
upplýsingar um stöðu utanríkisvið-
skiptanna og helstu horfur. Það eru
á hverjum tíma athyglisverðar upp-
lýsingar um undirstöðu hagsældar í
landinu, en sjálfsagt enn tímabær-
ari en endranær nú, þegar blikur
eru á lofti í alþjóðaviðskiptum,
Bretar nýgengnir úr Evrópusam-
bandinu (ESB) og bandalagið
mögulega á nokkrum tímamótum af
þeirri og ýmsum ástæðum öðrum.
Við bætist svo auðvitað heimsfar-
aldurinn, sem hefur haft gríðar-
mikil áhrif á heimsviðskipti og þá
ekki síst ferðaþjónustu, sem á raun-
ar frekar við á Íslandi en víðast
hvar.
Útflutningsríkið Ísland
Ísland er útflutningsdrifið hag-
kerfi með lítinn innanlandsmarkað
og tiltölulega fábreytta framleiðslu.
Þar skipta auðlindir landsins mestu,
hvort heldur horft er til próteins,
orku eða nátttúrufegurðar, en eftir
sem áður þarf að nýta þær og koma
á framfæri við umheiminn, eigi þær
að koma að gagni og skapa verð-
mæti.
Sem þjóð erum við því háð greið-
um aðgangi að erlendum mörkuðum
og aðföngum erlendis frá. Þar eiga
Íslendingar því afar mikið undir frí-
verslun, bæði til þess að koma ís-
lenskri vöru og þjónustu á framfæri
við heimsþorpið, og einnig til þess að
Íslendingar geti notið hins besta
sem umheimurinn hefur að bjóða.
Evrópska efnahagssvæðið
Skýrslan fjallar í nokkru máli um
fríverslunarsamninga Íslands. Þar
er mestur veigur í samningnum um
Evrópska efnahagssvæðið (EES),
en innan þess eru um 500 milljónir
manna. Sá óhefti aðgangur að innri
markaði Evrópu er kjölfesta í utan-
ríkisviðskiptum.
Stærstur hluti viðskipta Íslands
er við Evrópuríki og á það við um út-
flutning og innflutning á vöru og
þjónustu. Samningur Evrópusam-
bandsins (ESB) og EFTA-ríkjanna
um Evrópska efnahagssvæðið
(EES) er grundvöllur þessara við-
skipta og hefur tryggt greiðan að-
gang íslenskra útflytjenda að evr-
ópska markaðnum í rúm 25 ár.
Á árinu 2019 fóru yfir 80% af öll-
um vöruútflutningi Íslendinga til
Evrópuríkja og um 2⁄3 hlutar alls inn-
flutnings komu þaðan. Hlutfall vöru-
útflutnings til Evrópusambands-
ríkja (ESB28) var 70,9%, en ef
Bretland er undanskilið (ESB27)
lækkar hlutfall Evrópusambandsins
í 60,5%. Ekki er þó allt sem sýnist
um vægi Evrópu (eða evrunnar) í
þeim efnum. Þannig er Holland
meðal helstu viðskiptalanda Íslands,
Aukin viðskipti utan Evrópu
Ný skýrsla um utanríkisviðskipti bendir til þess að áherslan sé að færast frá Vesturlöndum Mest
viðskipti við Bandaríkin Dalurinn vegur þyngra en evran ESB-aðild myndi hækka vöruverð
Samanburður á fríverslunarneti Íslands og ESB
Eins og staðan er, fleiri samningar eru í farvatninu
Fríverslun við Ísland og ESB Fríverslun við Ísland en ekki ESB Fríverslun við ESB en ekki Ísland ESB
GRUNNUR AÐ
GÓÐRI HEILSU
Vissir þú að um 80% af ónæmiskerfinu eru í meltingarveginum?
KEFIR er auðugur af lifandi góðgerlum sem fjölmargar rannsóknir
hafa sýnt að bæta meltinguna og viðhalda heilbrigðri þarmaflóru.
Hann inniheldur einnig mikið af próteini, kalki og nauðsynlegum
vítamínum eins og B12.
KEFIR - KOMDU HEILSUNNI Í JAFNVÆGI
Toyota á Íslandi býður til sýningar
laugardaginn 9. janúar í Kauptúni í
Garðabæ, á Selfossi, Akureyri og í
Reykjanesbæ. Fjórir fjórhjóladrifn-
ir bílar verða í aðalhlutverki; High-
lander Hybrid sem nú er frum-
sýndur á Íslandi, 70 ára afmælis-
útgáfa Land Cruiser, nýr Hilux með
stærri vél og aukinni dráttargetu og
RAV4 Hybrid og Plug in Hybrid
sem njóta mikilla vinsælda.
Nýr Toyota Highlander Hybrid
kemur nú á markað í fyrsta sinn í V-
Evrópu og þar með á Íslandi. High-
lander er stór sportjeppi með góða
aksturseiginleika og mikið innan-
rými. Þá verður sýndur nýr Toyota
Hilux með verulegum breytingum.
Toyota Land Cruiser er nú 70 ára
orðinn og kominn með endurbætta
vél sem eykur afl og hröðun bílsins.
Síðast eru nefndir Toyota RAV4
Hybrid og Plug in Hybrid sem hafa
heldur betur slegið í gegn
„Þetta er spennandi sýning fyrir
þá sem hafa áhuga á fjórhjóladrifn-
um bílum og það er sérstaklega
gaman að fá Highlander í hópinn.
Þetta er stór fjölskyldubíll og
stærsti hybridbíllinn sem Toyota er
með. Þetta og fleira eru tíðindi í
jeppaheiminum,“ segir Kristinn J.
Einarsson, sölustjóri hjá Toyota
Kauptúni.
Toyota sýnir fjóra
fjórhjóladrifna
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Jeppar Spennandi sýning fyrir þá sem hafa áhuga á fjórhjóladrifnum bílum, segir Kristinn J. Einarsson sölustjóri.