Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
ALVÖRU
VERKFÆRI
145
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
VIÐTAL
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Í störfum mínum um dagana hef
ég kynnst miklum fjölda fólks;
flestu góðu, velviljuðu og skemmti-
legu. Slíkt er dýrmætt og hefur
verið gæfa mín í lífinu,“ segir Helga
R. Einarsdóttir á Selfossi. „Ég hef
líka reynt eins og aðstæður hafa
leyft að missa ekki tengslin við fólk
sem mér fellur við. Þetta er
kannski hluti af því að hafa áhuga á
samfélaginu og vilja lifa og hrærast
í atburðum hins daglega lífs.“
Jólagjöf Helgu til fjölskyldu og
vina var hennar eigin ævisaga.
Bókin heitir Með björtum augum –
frá upphafi til eftirlauna. Þetta eru
frásagnir Helgu því sem á dagana
hefur drifið í 70 ár. Aðdragandinn
að útgáfu bókarinnar var langur.
Helga segist alla ævi hafa fundið
ánægju í því að skrifa eða punkta
hjá sér sitthvað sem á dagana hefur
drifið. Margt hafi fallið til og sagna-
bankinn stækkað með árunum.
Margt sé aðeins í handritum og á
minnisblöðum. Þá hefur Helga oft
skrifað lesendabréf eða pistla sem
birst hafa í héraðsblöðum á Suður-
landi og annars staðar eftir atvik-
um.
Samstarfsverkefni mæðgina
„Fyrir nokkrum misserum fór ég
að blaða í þessum pappírum með
Guðmundi Karli, syni mínum, sem
hefur starfað við blaðamennsku og
útgáfu í mörg ár. Við fundum fljótt
í þessu heildstæðan þráð sem
reyndar þurfti að spinna betur og
bæta ýmsu við. Slíkt var líka gert
og úr því varð handrit að bók, sem
Guðmundur setti upp og bjó til
prentunar,“ segir Helga. „Þetta var
samstarfsverkefni okkar mæðg-
inanna og við sögðum engum frá,
utan hvað maðurinn minn vissi af
þessu. Daginn fyrir Þorláksmessu
kom bókin úr prentsmiðju og var
sett í pakka til ættingja og vina.
Þetta var óvænt jólagjöf, og við-
brögðin frá því fólki og öðrum sem
lesið hafa eru bæði skemmtileg og
góð.“
Helga R. Einarsdóttir er fædd á
Engi í Grafarholti, sem þá var í
Mosfellssveit, í mars 1944. For-
eldrar hennar, Einar Hallgríms og
Sigurbjörg Hreiðarsdóttir, höfðu
kynnst austur í Hrunamannahreppi
og ákveðið að skapa sína framtíð
þar. „Móðir mín fór að Engi til að
fæða mig en svo var farið með mig
austur í appelsínukassa þegar kom-
ið var fram í maí á þessu blessaða
lýðsveldisári. Þar stofnuðu þau
garðyrkjubýlið Garð og þar ólst ég
upp,“ segir Helga sem í bókinni
greinir frá lífinu í sveitinni, stað-
háttum þar og örnefnum.
Meira en kók og pylsur
„Ég átti skemmtilega æsku og
var strax forvitin um allt í umhverfi
mínu. Það hefur fylgt mér alla tíð,“
segir Helga sem er elst fjögurra
systkina. Hún gekk í barnaskólann
á Flúðum, fór síðar í Héraðsskól-
ann í Skógum undir Eyjafjöllum og
var tæplega tvítug í eitt ár í lýðhá-
skóla í Noregi. – Um tvítugt tóku
þau svo saman, Helga og Sigurdór
Karlsson trésmiður, og byrjuðu að
búa, byggja hús og eignast börn,
sem urðu þrjú talsins.
„Þetta kom eitt af öðru og mér
finnst þegar ég lít til baka hafa
upplifað ævintýri á hverjum degi,“
segir Helga sem – að ýmsum störf-
um um skemmri tíma frátöldum –
byrjaði árið 1972 að vinna í sölu-
skálanum Fossnesti á Selfossi.
„Fyrstu árin voru þetta ígrip, en
föst vinna alveg frá því um 1980 eða
frá því krakkarnir komust á legg.
Að vinna í sjoppunni var óskaplega
skemmtilegt, þótt oft væri annríki
og vinnudagarnir langir. Þarna
stoppuðu rútur með ferðamenn,
sveitafólkið renndi við og eins bæj-
arbúar á Selfossi. Hundruð fólks á
hverjum einasta degi og í þessu
starfi kynntist ég ótölulegum fjölda
fólks af öllu Suðurlandi og víða frá.
Margt af því urðu vinir mínir.
Starfið var svo miklu meira en bara
að selja kók og pylsur. Ég vann í
Fossnesti alveg til ársins 1996 og
telst svo til að á mínum 24 árum
þarna hafi ég starfað með um 200
manns, kannski fleirum.“
Rithöfundur er stór titill
Helga kom til starfa í Sólvalla-
skóla á Selfossi árið 1996 og var þar
út starfsævina. Í bókinni segist
henni svo frá að sér hafi fljótt lærst
að komast af við krakkana og eign-
ast vináttu þeirra. Gauragangur í
unglingsstrákum hafi sjaldnast haft
mikla dýpt og oft verið afleiðing
vanmetakenndar. Flestum hafi ver-
ið auðvelt að ná niður á jörðina.
„Skólaárin voru skemmtileg,“
segir Helga sem í bókinni greinir
líka frá bæjarbragnum á Selfossi,
skondnum atvikum, ferðalögum og
fyrirbærum. Margt sé til dæmis
minnisstætt frá sumarblómasöl-
unni, sem Helga hafði með höndum
í mörg ár, hvar hún seldi ræktun
frá býli foreldra sinna í Garði.
Einnig starfi sínu viðhangandi
Karlakór Selfoss, sem Sigurdór
eiginmaður hennar hefur starfað
með frá stofnun árið 1965.
„Já, ég á margt til skrifað sem er
óbirt og ég er ekki hætt. Hver veit
nema meira komi út í fyllingu tím-
ans. Minningar og setningar
streyma fram þegar ég sest niður
með blað og penna eða við tölvuna.
Eins og ég segi frá í bókinni hef ég
jafnan verið sátt við þau verkefni
sem ég hef tekið mér fyrir hendur;
svo sem afgreiðslustörf, blómasölu
eða að vinna í grunnskóla. Að fara
svo að skrifa bók komin á efri ár er
svo líka alveg stórgott. Ég segist
vera ritari lífs míns en rithöfundur
er kannski of stór titill,“ segir
Helga R. Einarsdóttir að síðustu.
Fór í sveitina í appelsínukassa
Ævisaga Helgu R. Einarsdóttur var óvænt jólagjöf Sveitastúlkan sem vann í sjoppunni á Selfossi
Segir það gæfu að kynnast góðu fólki Er forvitin um umhverfi sitt Skólastörf og sumarblómin
Morgunblaðið/Eggert
Höfundur Minningar og setningar streyma fram þegar ég sest niður með blað og penna eða við tölvuna, segir Helga
R. Einarsdóttir um ævibók sína. Kynni af góðu fólki í nærumhverfi hennar á Suðurlandi eru meginstef sögu hennar.
Bók Lipur texti og skemmtilegar
myndir á tæplega 200 blaðsíðum.
Nýju samstarfsverkefni fyrir upp-
byggingu Seyðisfjarðar, eftir þær
hamfarir sem urðu í bænum rétt fyrir
jólin, hefur verið hleypt af stokk-
unum. Yfirskrift verkefnisins er Sam-
an fyrir Seyðisfjörð. Lítill hópur vel-
unnara sem tengjast hátíðunum
LungA og List í ljósi auk lista-
mannasetursins Heima er nú að
skipuleggja styrktartónleika þar sem
einvalalið íslensks tónlistarfólks kem-
ur fram, auk þess sem bryddað verð-
ur upp á fleiru skemmtilegu.
Styrktartónleikarnir verða haldnir
sem streymi á netinu og allur ágóði
mun renna til íbúa og samfélagsins á
Seyðisfirði. Áformað er að tónleik-
arnir hefði haldnir nú í lok janúar og
verður tilkynnt um nákvæma dag-
setningu von bráðar. Rauði krossinn
heldur utan um fjársöfnunina og sér
um að útdeila þeim fjármunum er
safnast í nánu samstarfi við ýmsa að-
ila í samfélaginu.
Í gær voru samfélagsmiðlar átaks-
ins settir í loftið, en þar verður veitt
einstök innsýn í líf íbúa Seyðisfjarðar
auk tónlistarbrota og annars ágætis.
Þeir sem leggja vilja málinu lið geta
lagt inn á bankareikning 0342-26-
000012 og kennitalan er
530269-2649
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Bær í sárum eftir hamfarirnar fáeinum dögum fyrir jólin.
Listafólkið leggur
lið eftir hamfarirnar
Fyrir Seyðisfjörð Tónleikasteymi