Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 26

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Laugavegi 178,105 Rvk. | Sími 551 3366 | www.misty.is BREYTT OPNUN: Virka daga 12-18, laugardaga kl.11-15 COMFORT BRA Mjúkur teygjanlegur toppur með léttum púðum inní sem hægt er að taka úr. Stærðir S-XXL – Verð 4.990,- DREAM INVISIBLE Nærbuxur Litir: Svart, hvítt og beige Þrjú snið – Tvær í pakka Verð 3.990,- ALLT FYRIR ÞÆGINDIN BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Núverandi hreinsistöð við Kletta- garða í Sundahöfn uppfyllir gildandi starfsleyfisskilyrði og reiknað er með að stöðin geti áfram sinnt hlut- verki sínu um ókomin ár nema ef til koma breytingar á lögum og reglum. Þetta kemur fram í skriflegu svari Ólafar Snæhólm Baldursdóttur, upplýsingafulltrúa Veitna, við fyrir- spurn Morgunblaðsins. Tilefni fyrirspurnarinnar var að Faxaflóahafnir voru með til kynn- ingar drög að tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum vegna framkvæmda við dýpkun Við- eyjarsunds og landfyllinga. Þar kom m.a. fram að ráðist verði í frekari landfyllingar við Klettagarða vegna stækkunar skólphreinsistöðvar Veitna. Ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í þessa landfyllingu, að sögn Magnúsar Þórs Ásmundssonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna.Verkið sé t.a.m. ekki á fjárfestinga- eða framkvæmdaáætlun ársins 2021. Grófhreinsun á skólpinu Skólphreinsistöðin í Klettagörð- um var tekin í notkun árið 2002, seg- ir í svari Ólafar. Í stöðinni fer fram grófhreinsun, en í því felst að öll föst efni stærri en þrír millimetrar í þvermál eru síuð frá skólpinu og að auki eru fita og sandur skilin frá. Eftir þessa hreinsun er skólpinu síð- an dælt út í sjó um 5,5 kílómetra langa útræsislögn. Til að mæta auknum kröfum sem búast má við í lögum og reglum, auk þess að uppfylla markmið Veitna um hreinar strendur, meiri nýtingu á orkustraumum og vegna umhverfis- sjónarmiða, þarf á næstu árum að bæta við hreinsiþrepum. Þetta felur í sér stækkun hreinsistöðvanna við Klettagarða og Ánanaust. Núver- andi hreinsistöðvar eru við sjávar- síðuna og horft er til þess möguleika að stækka stöðvarnar á landfylling- um, gerist þess þörf. Ekki er endanlega búið að meta þörf á landrými undir mannvirkin en samkvæmt útreikningum Veitna er plássþörf fyrir stækkun hreinsi- stöðvarinnar við Klettagarða u.þ.b. fimm hektarar. Þessi áform eru í samræmi við áætlanir sem fram koma á deili- skipulagi Klettasvæðis sem var sam- þykkt 26. október 1999 þar sem fram kemur afmörkun fyllingar fyrir seinni þrep hreinsunar, þar sem heildarstærð fyllingar er 50.000 fm. Samkvæmt samningi um samein- ingu Fráveitu Reykjavíkur og Orku- veitu Reykjavíkur ber Reykjavíkur- borg að sjá til þess að fráveitan fái lóðir undir mannvirki. Þetta er talið nauðsynlegt til að fráveitan geti upp- fyllt framtíðarkröfur um hreinsun skólps. Útfærsla skólphreinsistöðv- arinnar liggur ekki fyrir, en unnið verður sérstakt mat á umhverfis- áhrifum fyrir byggingu og rekstur stöðvarinnar þegar þau áform liggja fyrir. Norðan við Laugarnes stendur til að halda áfram með landfyllingu sem byrjað var á 2019 og lokið 2020, segir í drögum að matsáætlun sem verk- fræðistofan Efla vann. Landfylling verði lengd til norðausturs og verður fyrir utan skólphreinsistöð Veitna í Klettagörðum. Hún muni mæta stækkunarþörf skólphreinsistöðvar Veitna og framtíðarlandþörf þeirrar starfsemi. Ströndin á þessum kafla sé öll manngerð landfylling, engri náttúrulegri strandlengju verði raskað. „Athygli er vakin á því að umhverfisáhrif skólphreinsistöðv- arinnar eru ekki til umfjöllunar í þessu umhverfismati, eingöngu land- fyllingin. Unnið verður sérstakt mat á umhverfisáhrifum fyrir byggingu og rekstur skólphreinsistöðvarinnar þegar útfærsla og frekari áform liggja fyrir,“ segir í matsáætluninni. Hreinsistöð á nýja landfyllingu  Faxaflóahafnir áforma að stækka landfyllinguna við Klettagarða í Sundahöfn  Stækkuð skólp- hreinsistöð Veitna verður á landfyllingunni  Stækkun er ekki aðkallandi að óbreyttum reglum Til stendur að byggja nýjar höf- uðstöðvar Faxaflóahafna á þeirri landfyllingu sem tilbúin er við Klettagarða. Einnig verði þar aðstaða fyrir dráttarbáta. Engin ákvörðun hefur verið tek- in um tímasetningu. Landfyllingin, sem er rétt austan Laugarness, hefur verið umdeild síðan fréttir fóru að berast af framkvæmdinni. Með- al annars var á það bent í blaða- grein í Morgunblaðinu að Laug- arnestangi væri vinsælt útivistarsvæði og einstakur út- sýnisstaður. Byggingar á land- fyllingunni myndu skyggja á út- sýnið til Viðeyjar og Viðeyjar- stofu, sem væri óviðjafnanlegt á þessum stað. Miðstöð hafnanna LANDFYLLINGIN Ljósmynd/Efla Klettagarðar Svona mun landfyllingin líta út í endanlegri mynd. Brúni hlutinn er tilbúinn en sá blágrái er næstur. www.mats.is Skólphreinsistöðin Eftir að hreinsun hefur farið fram í hinni öflugu stöð við Klettagarða er skólpinu dælt út í sjó um 5,5 kílómetra langa útræsislögn. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.