Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Bjóðum upp á gler
með blágeislavörn á góðu verði
Eyesland gleraugnaverslun
Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð
Sími 510 0110 | www.eyesland.is
Ath. 10% afsláttur fyrir námsmenn
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn desember var óvenjuúr-
komusamur á Norðaustur- og Aust-
urlandi og mældist úrkoman þar víða
sú mesta sem vitað er um í desem-
ber. Mánuðurinn var með snjólétt-
asta móti miðað við árstíma en jafn-
framt sá vindasamasti í 28 ár. Þetta
kemur fram í yfirliti Veðustofunnar
um tíðarfar í desember.
Mikil úrkomuákefð var á Aust-
fjörðum dagana 14. til 18. og féllu
miklar aurskriður á Seyðisfirði, sú
stærsta þann 18. desember, eins og
rækilega hefur komið fram í fréttum.
Hleypur tjón af þeirra sökum á
hundruðum milljóna króna.
Fjöldi desemberúrkomumeta var
settur á Norðaustur- og Austurlandi.
Til dæmis á Hánefstöðum í Seyðis-
firði, Gilsá í Breiðdal, Skjaldþings-
stöðum, Vöglum og Sauðanesvita.
Mikil úrkoma mældist á sjálf-
virkum úrkomustöðvum á Austur-
landi. Mest mældist mánaðar-
úrkoman á Seyðisfirði, 813,5
millimetrar. Í Neskaupstað mældist
úrkoman 628 mm, 587 mm á Fá-
skrúðsfirði og 564 mm á Eskifirði.
Mikill hluti mánaðarúrkomunnar á
þessum stöðum féll á tíu daga tíma-
bilinu 9. til 18.
Mest var úrkomuákefðin dagana
14. til 18. desember. Heildar-
úrkoman á Seyðisfirði þessa fimm
daga mældist 577,5 millimetrar. Það
er mesta úrkoma sem mælst hefur á
fimm dögum á Íslandi.
Á Akureyri mældist úrkoman í
desember 211,9 millimetrar, sem er
fjórfalt meiri en meðalúrkoma ár-
anna 1961 til 1990. Úrkoman þar er
sú mesta sem mælst hefur á Akur-
eyri í einum mánuði frá upphafi mæl-
inga árið 1927. Úrkoma í Reykjavík í
desember mældist 58,1 mm sem er
74% af meðalúrkomu áranna 1961 til
1990. Í Stykkishólmi mældist úr-
koman 87,6 mm og 198,1 mm á Höfn
í Hornafirði.
Snjólétt var víðast hvar
Mánuðurinn var snjóléttur víðast
hvar á landinu. Alhvítir dagar í
Reykjavík voru tveir sem er 11 færri
en að meðaltali 1971 til 2000. Á Ak-
ureyri voru alhvítu dagarnir sjö,
þrettán færri en að meðaltali sama
tímabils.
Meðalvindhraði á landsvísu var
mikill, eða um 1,3 m/s yfir meðallagi.
Meðalvindhraði í desember hefur
ekki verið eins mikill síðan í desem-
ber árið 1992, en þá var hann tölu-
vert hærri. Norðaustlægar áttir
voru ríkjandi í mánuðinum.
Að tiltölu var hlýjast á höfuðborg-
arsvæðinu í desember, í innsveitum
suðvestan- og vestanlands og á
Norðurlandi vestra. Að tiltölu var
kaldast á Austurlandi og á annesjum
norðanlands.
Meðalhiti í Reykjavík í desember
var 1,8 stig og er það 2,0 stigum yfir
meðallagi áranna 1961 til 1990, en
1,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu
ára. Raðast mánuðurinn í 22. sæti af
150 mælingum. Á Akureyri var með-
alhitinn -0,6 stig, 1,3 stigum yfir
meðallagi áranna 1961 til 1990, en
0,4 stigum yfir meðallagi síðustu tíu
ára. Í Stykkishólmi var meðalhitinn
0,7 stig og 1,3 stig á Höfn í Horna-
firði.
Kalt var á landinu í byrjun mán-
aðar en þó nokkur hlýindi voru á
landinu um hann miðjan.
Metúrkoma en óvenjulítill snjór
Morgunblaðið/Eggert
Seyðisfjörður Miklar aurskriður féllu um miðjan desember í kjölfar gríð-
arlegrar úrkomu. Tjón af þeirra völdum nemur hundruðum milljóna.
Nýliðinn desember var afar úrkomu- og vindasamur á landinu en jafnframt sérlega snjóléttur
Þrátt fyrir litla úrkomu og kuldatíð á
hálendinu stendur orkukerfi Lands-
virkjunar vel og er ekki útlit fyrir
takmarkanir á raforkuafhendingu á
yfirstandandi vetri. Þetta kemur
fram á heimasíðu fyrirtækisins.
Innrennsli í miðlunarlón Lands-
virkjunar hefur verið í minna lagi í
haust og engir vetrarblotar náð inn á
hálendið það sem af er vetri. Öll
miðlunarlón voru full fram yfir miðj-
an október, en frá þeim tíma hefur
niðurdráttur verið samfelldur. Um
er að ræða Þórisvatn, Hálslón og
Blöndulón.
Vegna þessa er heildarstaða miðl-
ana um áramót ívið lakari en í fyrra.
Innrennsli á Þjórsársvæði og í Háls-
lón hefur verið með allra minnsta
móti. Á móti kemur að orkusala hef-
ur verið undir væntingum þannig að
miðlunarstaðan nú um áramót er vel
þolanleg, segir í fréttinni.
Hægt er að fylgjast með vatnshæð
lóna daglega á vöktunarsíðu vefs
Landsvirkjunar. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Hálslón Innrennsli í miðlunarlón
var í minna lagi síðastliðið haust.
Ekki þarf að
skammta
rafmagn
Sameiginleg rafræn gátt vegna of-
beldis fyrir þolendur, gerendur og
aðstandendur, 112.is, sem opnuð
var formlega í október, býður nú
upp á allar upplýsingar á ensku og
pólsku. Þörfin fyrir slíkt upplýs-
ingatorg hefur líklega aldrei verið
meiri nú í miðjum Covid-19-
faraldri, segir í tilkynningu
Vefurinn 112.is er allsherjar upp-
lýsingatorg um allt sem viðkemur
ofbeldi, ásamt því að opnað er á
beint samtal við neyðarverði í
netspjalli 112. Frú Eliza Reid for-
setafrú opnaði enska og pólska
hlutann formlega í gær.
Ofbeldisgátt á
pólsku og ensku