Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Það var frábær bóksala í allt haust.
Íslensk skáldverk og fræðibækur
seldust sérstaklega vel,“ segir Mar-
grét Jóna Guðbergsdóttir, vöru-
stjóri íslenskra bóka hjá Pennanum-
Eymundssyni.
Fyrirtækið rek-
ur 16 bókaversl-
anir víða um
land. Með ís-
lenskum skáld-
verkum er átt við
harðspjaldabæk-
ur á íslensku eft-
ir íslenska og er-
lenda höfunda.
„Það voru allir
mjög ánægðir og
frábært að sjá hvað þetta kom vel út
því margir voru frekar uggandi fyrir
vertíðina um hvernig þetta myndi
fara,“ segir Margrét. Hún vill ekki
gefa upp tölur en segir að „mjög
mikil aukning“ hafi verið á milli ára.
Nokkrir titlar kláruðust hjá út-
gefendum og voru endurprentaðir
eins og t.d. skáldsagan Snerting eft-
ir Ólaf Jóhann Ólafsson. Hún var
mest selda bókin hjá Pennanum/Ey-
mundssyni í fyrra. „Við náðum að
eiga bækur til sölu alveg fram að jól-
um,“ sagði Margrét. Aðrir titlar
seldust upp í sumum búðum og var
þá hægt að færa óseld eintök á milli
búða. Þeirra á meðal var Spænska
veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason
sem seldist upp hjá útgefandanum
nokkrum dögum fyrir jól.
Mjög góð sala úti á landi
„Salan gekk frábærlega vel í öllum
búðum okkar úti á landi,“ sagði Mar-
grét. „Þar var mikil söluaukning allt
árið og sérstaklega fyrir jólin. Það
var líka gaman að sjá hvað búðirnar í
miðbæ Reykjavíkur komu vel út í
desember. Þær sóttu í sig veðrið
miðað við árið á undan á meðan salan
minnkaði í búðum okkar í verslunar-
miðstöðvunum. Eins var góð sala í
búðum okkar í Hafnarfirði og Hall-
armúla allt árið í fyrra. Þar getur
fólk lagt fyrir utan og hlaupið inn og
út aftur. Ég held að fólk hafi ef til vill
heldur viljað það en að fara í mann-
mergð í verslunarmiðstöðvum.“
Penninn-Eymundsson er með
bókaverslun í Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavíkurflugvelli. Hún er
opnuð í hvert skipti sem er flogið.
Salan þar í fyrra var aðeins svipur
hjá sjón miðað við fyrri ár vegna
mikillar fækkunar flugfarþega. Þar
hafa aðallega selst kiljur, alls konar
afþreying og ferðamannabækur.
Einnig hefur sala á bókum til
ferðamanna dottið niður í öðrum
bókabúðum Pennans-Eymundsson-
ar en ferðamenn kaupa mikið af bók-
um, m.a. landkynningarbækur og ís-
lensk skáldverk í erlendum
þýðingum. „Um leið og þetta ástand
byrjaði seldist meira öll afþreying,
hvort sem voru bækur, litir, litabæk-
ur eða púsluspil. Salan í því rauk
upp. Eins sala kennslubóka í lestri,
skrift og reikningi og öðru til að hafa
ofan af fyrir börnunum,“ sagði Mar-
grét.
Bóksalan jókst mikið á milli ára
Íslensk skáldverk og fræðibækur seldust vel Salan gekk vel úti á landi Góð sala í miðborg
Reykjavíkur fyrir jólin Sala á bókum og vörum til afþreyingar hefur rokið upp í faraldrinum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bókaverslun Sala bóka gekk mjög vel hjá Pennanum-Eymundssyni í fyrra og jólavertíðin tókst vel. Mynd úr safni.
Margrét Jóna
Guðbergsdóttir
Snerting, skáldsaga Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar, trónir efst
á Metsölulista Eymundsson
fyrir árið 2020. Starfsfólk
bókaverslana Pennans-
Eymundssonar heldur utan
um sölu bóka sem eru á boð-
stólum í verslununum og gef-
ur reglulega út lista yfir mest
seldu bækurnar. Loks er gef-
inn út metsölulisti hvers árs.
Í 2. sæti metsölulistans var
að þessu sinni bókin Vetrar-
mein eftir Ragnar Jónasson, í
3. sæti Þagnarmúr eftir Arn-
ald Indriðason, í 4. sæti var
Gata mæðranna eftir Kristínu
Marju Baldursdóttur, í 5. sæti
Bráðin eftir Yrsu Sigurð-
ardóttur, í 6. sæti Dýralíf eftir
Auði Övu Ólafsdóttur, í 7.
sæti Vegahandbókin 2020 eft-
ir Steindór Steindórsson og
fleiri, í 8. sæti var Þess vegna
sofum við eftir Matthew Wal-
ker, í 9. sæti var Fjarvera þín
er myrkur og í 10. sæti var
Spænska veikin eftir Gunnar
Þór Bjarnason.
Snerting í
fyrsta sæti
METSÖLULISTINN 2020