Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 31

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 31
FRÉTTIR 31Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það var frábær bóksala í allt haust. Íslensk skáldverk og fræðibækur seldust sérstaklega vel,“ segir Mar- grét Jóna Guðbergsdóttir, vöru- stjóri íslenskra bóka hjá Pennanum- Eymundssyni. Fyrirtækið rek- ur 16 bókaversl- anir víða um land. Með ís- lenskum skáld- verkum er átt við harðspjaldabæk- ur á íslensku eft- ir íslenska og er- lenda höfunda. „Það voru allir mjög ánægðir og frábært að sjá hvað þetta kom vel út því margir voru frekar uggandi fyrir vertíðina um hvernig þetta myndi fara,“ segir Margrét. Hún vill ekki gefa upp tölur en segir að „mjög mikil aukning“ hafi verið á milli ára. Nokkrir titlar kláruðust hjá út- gefendum og voru endurprentaðir eins og t.d. skáldsagan Snerting eft- ir Ólaf Jóhann Ólafsson. Hún var mest selda bókin hjá Pennanum/Ey- mundssyni í fyrra. „Við náðum að eiga bækur til sölu alveg fram að jól- um,“ sagði Margrét. Aðrir titlar seldust upp í sumum búðum og var þá hægt að færa óseld eintök á milli búða. Þeirra á meðal var Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason sem seldist upp hjá útgefandanum nokkrum dögum fyrir jól. Mjög góð sala úti á landi „Salan gekk frábærlega vel í öllum búðum okkar úti á landi,“ sagði Mar- grét. „Þar var mikil söluaukning allt árið og sérstaklega fyrir jólin. Það var líka gaman að sjá hvað búðirnar í miðbæ Reykjavíkur komu vel út í desember. Þær sóttu í sig veðrið miðað við árið á undan á meðan salan minnkaði í búðum okkar í verslunar- miðstöðvunum. Eins var góð sala í búðum okkar í Hafnarfirði og Hall- armúla allt árið í fyrra. Þar getur fólk lagt fyrir utan og hlaupið inn og út aftur. Ég held að fólk hafi ef til vill heldur viljað það en að fara í mann- mergð í verslunarmiðstöðvum.“ Penninn-Eymundsson er með bókaverslun í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar á Keflavíkurflugvelli. Hún er opnuð í hvert skipti sem er flogið. Salan þar í fyrra var aðeins svipur hjá sjón miðað við fyrri ár vegna mikillar fækkunar flugfarþega. Þar hafa aðallega selst kiljur, alls konar afþreying og ferðamannabækur. Einnig hefur sala á bókum til ferðamanna dottið niður í öðrum bókabúðum Pennans-Eymundsson- ar en ferðamenn kaupa mikið af bók- um, m.a. landkynningarbækur og ís- lensk skáldverk í erlendum þýðingum. „Um leið og þetta ástand byrjaði seldist meira öll afþreying, hvort sem voru bækur, litir, litabæk- ur eða púsluspil. Salan í því rauk upp. Eins sala kennslubóka í lestri, skrift og reikningi og öðru til að hafa ofan af fyrir börnunum,“ sagði Mar- grét. Bóksalan jókst mikið á milli ára  Íslensk skáldverk og fræðibækur seldust vel  Salan gekk vel úti á landi  Góð sala í miðborg Reykjavíkur fyrir jólin  Sala á bókum og vörum til afþreyingar hefur rokið upp í faraldrinum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bókaverslun Sala bóka gekk mjög vel hjá Pennanum-Eymundssyni í fyrra og jólavertíðin tókst vel. Mynd úr safni. Margrét Jóna Guðbergsdóttir Snerting, skáldsaga Ólafs Jó- hanns Ólafssonar, trónir efst á Metsölulista Eymundsson fyrir árið 2020. Starfsfólk bókaverslana Pennans- Eymundssonar heldur utan um sölu bóka sem eru á boð- stólum í verslununum og gef- ur reglulega út lista yfir mest seldu bækurnar. Loks er gef- inn út metsölulisti hvers árs. Í 2. sæti metsölulistans var að þessu sinni bókin Vetrar- mein eftir Ragnar Jónasson, í 3. sæti Þagnarmúr eftir Arn- ald Indriðason, í 4. sæti var Gata mæðranna eftir Kristínu Marju Baldursdóttur, í 5. sæti Bráðin eftir Yrsu Sigurð- ardóttur, í 6. sæti Dýralíf eftir Auði Övu Ólafsdóttur, í 7. sæti Vegahandbókin 2020 eft- ir Steindór Steindórsson og fleiri, í 8. sæti var Þess vegna sofum við eftir Matthew Wal- ker, í 9. sæti var Fjarvera þín er myrkur og í 10. sæti var Spænska veikin eftir Gunnar Þór Bjarnason. Snerting í fyrsta sæti METSÖLULISTINN 2020

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.