Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 32
32 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Hæ sæti
– hvað vilt þú borða!
Bragðgott,
hollt
og næringar
ríkt
Smáralind, Kringlunni, Spönginni, Reykjanesbæ og Akranesi – dyrabaer.is
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Byko, Selfossi | Garðheimar | Heimkaup |Dýrabær
7. janúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 127.21
Sterlingspund 172.76
Kanadadalur 99.71
Dönsk króna 20.986
Norsk króna 14.915
Sænsk króna 15.524
Svissn. franki 144.53
Japanskt jen 1.2362
SDR 184.05
Evra 156.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 186.1655
Hrávöruverð
Gull 1946.55 ($/únsa)
Ál 2013.5 ($/tonn) LME
Hráolía 50.95 ($/fatið) Brent
● Mikil hækkun
varð á bréfum í ol-
íufélaginu Skelj-
ungi í gær í Kaup-
höll Íslands, þegar
bréfin hækkuðu
um 7,57% í rúm-
lega 3,3 milljarða
króna viðskiptum.
Var gengi bréfanna
í lok gærdagsins
9,8 krónur hver
hlutur.
Eins og fjallað var um í Viðskipta-
Mogganum í gær lauk yfirtökutilboði
Strengs hf. í hlutabréf í félaginu á
mánudag, og samþykktu hluthafar sem
eiga 2,56% hlutafjár tilboðið. Gengið
sem boðið var í þeim viðskiptum var
8,315 krónur hver hlutur.
Eftir að yfirtökutilboði lauk var eign-
arhlutur Strengs rúm 40%.
Iceland Seafood hækkaði
Næstmesta hækkun gærdagsins í
Kauphöllinni var á bréfum fisksölufyr-
irtækisins Iceland Seafood, eða 2,63% í
625 milljóna króna viðskiptum. Þriðja
mesta hækkunin varð á bréfum útgerð-
arfélagsins Brims, 2,26% í 134 milljóna
króna viðskiptum.
Mesta lækkun gærdagsins varð á
bréfum TM, en þau lækkuðu um 1,97%.
Mikil viðskipti með bréf
Skeljungs í Kauphöllinni
Skeljungur
Strengur á 40%.
STUTT
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fram kom í ViðskiptaMogganum að
horfur í ferðaþjónustu væru metnar
dekkri eftir að bólusetning reyndist
ekki í samræmi við væntingar.
Þannig telur Jóhannes Þór Skúla-
son, framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar, að það magni
kerfisáhættu í greininni að næsta
sumar líti ekki lengur jafn vel út.
Yngvi Harðarson, hagfræðingur
og framkvæmdastjóri Analytica,
segir að það geti haft mikil efnahags-
leg áhrif ef ferðaþjónustan kemst
ekki í gang vegna þessa.
Í þessu samhengi skipti þó einnig
miklu máli framvinda faraldursins
erlendis, bólusetning þar og alþjóð-
legar takmarkanir á ferðalög.
Samkvæmt leiðandi hagvísi
Analytica var gert ráð fyrir mögu-
legum viðsnúningi í átt að efnahags-
bata á öðrum ársfjórðungi.
Frestast fram á 3. fjórðung
Yngvi segir aðspurður að vegna
dekkri horfa í ferðaþjónustu kunni
batinn að frestast fram á þriðja fjórð-
ung, eða fram yfir mitt þetta ár.
Yngvi rifjar upp að hinn leiðandi
hagvísir taki m.a. tillit til væntinga
almennings um efnahagslífið og at-
vinnuástand.
Vísar hann þar til væntingavísitölu
Gallup sem stóð í 95,4 stigum í des-
ember og hafði ekki verið hærri síðan
í febrúar í fyrra, eða áður en sam-
komubann var sett á. Hafa fleiri
mælst neikvæðir á horfur en jákvæð-
ir (sjá graf) frá ágúst 2018, þegar nið-
ursveifla í ferðaþjónustu var hafin.
Eins og grafið sýnir ruku vænt-
ingar upp eftir að jákvæðar fréttir
bárust af þróun bóluefna í nóvember:
Hlutfall jákvæðra nær tvöfaldaðist
milli október og desember. Nú er
spurningin hvernig væntingar þróast
í ljósi nýrra upplýsinga um bólusetn-
ingu landsmanna í ár.
Að sögn Yngva mun það hafa áhrif
á væntingar almennings ef hægt
gengur að bólusetja þjóðina á næstu
vikum og mánuðum. Það geti aftur
haft áhrif á útgjöld og framkvæmdir.
Loðnuvertíð gæti haft áhrif
„Ég er svartsýnn á að við sjáum
hraðan viðsnúning í efnahagsmálum
án þess að ferðaþjónustan komist al-
mennilega á skrið aftur,“ segir
Yngvi. Fleiri þættir muni þó hafa
áhrif á hagvöxtinn. Meðal annars
hvernig loðnuvertíðin verði í ár.
Kristrún Frostadóttir, aðalhag-
fræðingur Kviku banka, segir það
munu hafa slæm áhrif á efnahagsbat-
ann ef ferðaþjónustan kemst ekki
aftur af stað. Langstærstur hluti at-
vinnuleysis sé nú tengdur ferðaþjón-
ustu eða afleiddum greinum.
„Vandinn við þessa kreppu, eins og
bent hefur verið á, er mikið atvinnu-
leysi vegna áfalls í greinum sem eru
mjög háðar vinnuafli. Ef ferðaþjón-
ustan kemst ekki af stað mun lítið
draga úr atvinnuleysi. Það er erfitt
fyrir fólk að færa sig hratt yfir í önn-
ur störf þegar áfallið nær yfir heilar
atvinnugreinar, enda umbreyta
menn ekki getu og þekkingu sinni á
einni nóttu. Sama á raunar við um öll
störf sem krefjast nándar í dag og
sæta sóttvarnahömlum. Kannanir
meðal stjórnenda benda til að fyrir-
tæki sem hafi svigrúm séu líka í bið-
stöðu og vilji bíða og sjá hvað muni
gerast.“
Fækkun í flestum greinum
Spurð hvort vísbendingar séu um
tilfærslu starfa úr ferðaþjónustu yfir
í aðrar atvinnugreinar segir Kristrún
almennt fá störf í boði.
„Störf hafa tapast í allflestum
greinum en áhrifin eru langþyngst í
ferðaþjónustu og greinum sem krefj-
ast nándar eða mannmergðar. Þegar
heilar atvinnugreinar sæta hömlum
eða lenda í miklu áfalli eru tækifærin
fá, enda færir fólk sig oftast á milli
líkra starfa. T.a.m. innan nándar-
þjónustugeirans og eins í og úr ferða-
þjónustu. Við vitum að þetta er fyrst
og fremst ungt fólk, innflytjendur og
fólk í láglaunastörfum sem hefur
misst vinnuna. Ég er því svartsýn á
að þessi tilfærsla geti orðið á skömm-
um tíma. Langstærsti hópurinn sem
hefur haldið starfinu í þessari niður-
sveiflu eru einstaklingar sem hafa al-
mennt meiri menntun og hærri
tekjur. Fólk sem getur unnið heima
hjá sér. Fyrrnefndi hópurinn er því
dálítið fastur í þessari stöðu og það er
langtímaverkefni að breyta því ef
fólk er svartsýnt á endurkomu meiri-
hluta þessara starfa á næstunni. Við
umbreytum ekki samsetningu vinnu-
markaðarins á nokkrum mánuðum,
sérstaklega þegar við bætist inn-
byggð tregða við sköpun starfa
vegna sóttvarnaaðgerða. Svona til-
færsla eru nógu erfið í venjulegu ár-
ferði,“ segir Kristrún.
Hún segir fyrri hluta ársins ekki
líta vel út í efnahagslegu tilliti.
„Ég held að fólk sé skiljanlega
svartsýnt núna. Ég er sjálf frekar
svartsýn miðað við stöðuna erlendis,“
segir Kristrún um stöðuna.
Dekkri horfur gætu haft
áhrif á einkaneysluna
Hagfræðingar segja endurmat í ferðaþjónustu ekki gefa tilefni til bjartsýni
Væntingar og atvinnuleysi
Júlí 2018 til desember 2020
18%
15%
12%
9%
6%
3%
0%
120
100
80
60
40
20
0
2018 2019 2020
Heimildir: Gallup/Vinnumálastofnun
Atvinnuleysi Vísitala
*Sé Væntingavísitalan 100 merkir það að
jafn margir eru jákvæðir og neikvæðir.
Ef hún er hærri eru fleiri jákvæðir og ef
hún er lægri eru fleiri neikvæðir.
Almennt atvinnuleysi
Vegna skerts starfshlutfalls
Væntingavísitala Gallup
17,8%
12%
95,4
43,8
102,6
2,2%
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri
Vinnumálastofnunar, segir mikla
óvissu um þróunina á vinnumarkaði.
Það muni skýrast
í janúarlok hvort
áhrif kórónu-
veirufaraldursins
á atvinnuleysið
séu að fullu kom-
in fram. Þ.e.a.s.
hversu margar
umsóknir um at-
vinnuleysisbætur
muni berast í
byrjun ársins.
Færri umsóknir en í nóvember
„Reynslan af íslenskum vinnu-
markaði er sú að í erfiðu árferði hef-
ur nóvember verið slæmur, desem-
ber aðeins betri, janúar slæmur og
svo hefur orðið hægur bati. Það
voru mun færri umsóknir um
atvinnuleysisbætur í desember en í
nóvember. Þá hefur janúar farið
hægar af stað en nóvember hvað
varðar umsóknir um bætur,“ segir
Unnur.
Það kunni aftur að vera vísbend-
ing um að toppinum í atvinnuleysinu
sé náð.
Aldrei jafn margir án vinnu
„Það er mikil óvissa í kortunum.
Staðan er mjög slæm en aldrei hafa
jafn margir verið atvinnulausir og í
nóvember í fjölda talið og hlutfalls-
lega. Og ég reikna með að álíka
margir verði án vinnu í desember,“
segir Unnur.
Almennt hafi þróun faraldursins
gríðarleg áhrif á horfur á vinnu-
markaði. Atvinnuleysi verði áfram
mikið á fyrri hluta ársins, ef ferða-
þjónustan kemst ekki í gang. Fyrir
vikið muni dreifing bóluefnis hér á
Íslandi hafa áhrif á atvinnustigið.
Á hinn bóginn gefi það tilefni til
nokkurrar bjartsýni að bílaleigur
séu í einhverjum mæli farnar að ráða
inn fólk. Þá kunni eftirspurn eftir
ferðalögum innanlands að styrkja
ferðaþjónustuna.
Fram kemur í skýrslu Vinnumála-
stofnunar í nóvember að þá voru
20.906 einstaklingar án vinnu í al-
menna bótakerfinu og 5.448 í skerta
starfshlutfallinu, eða alls 26.354.
Til að setja síðastnefndu töluna í
samhengi voru 154 störf auglýst hjá
Vinnumálastofnun í nóvember.
Vísbending um að
botninum sé náð
Þó er útlit fyrir mikið atvinnuleysi
Unnur
Sverrisdóttir