Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS ULLARTEPPI & ULLARSJÖL Ullarteppi lítið 90x130 cm – 11.900,- Ullarteppi stórt 130x180 cm – 19.900.- Margir litir Ullarsjal 19.900,- Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Gera þurfti hlé á talningu kjörmanna á Bandaríkjaþingi eftir að stór hópur stuðningsmanna Donalds Trump Bandaríkjaforseta náði að brjóta sér leið inn í þinghúsið um hálf-áttaleytið að íslenskum tíma í gærkvöldi. Mót- mælendur og lögreglan höfðu tekist á fyrir utan þinghúsið og beitti lögregl- an táragasi og piparúða til þess að reyna að ná tökum á ástandinu, en án árangurs. Ekki var ljóst hver staðan var þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi, en sjá mátti á frétta- myndum mótmælendur ganga um sali þinghússins án nokkurrar mót- spyrnu. Muriel Bowser, forsprakkar þings- ins og lögreglan í Washington-borg kölluðu öll eftir aðstoð frá alríkisyf- irvöldum, en nokkrir grunsamlegir pakkar fundust á víð og dreif um ná- grenni þinghússins. Sendi Trump Bandaríkjaforseti þjóðvarðliða á vettvang. Hvatti hann mótmælendur á Twitter-síðu sinni til þess að vera friðsama, en forsetinn ávarpaði mót- mælafundinn fyrr um daginn. Innrás mótmælendanna truflaði umræðu sem þá var nýhafin í báðum deildum þingsins eftir að þingmenn repúblikana höfðu gert athugasemd við kjörmenn frá Arizona-ríki, einu af þeim ríkjum sem Joe Biden, verðandi Bandaríkjaforseti, vann af Trump í kosningunum í nóvember. Snýst gegn varaforseta sínum Lífverðir Mike Pence varaforseta leiddu hann úr sal öldungadeildar- innar og komu honum í skjól, en hann hóf sameiginlegan þingfund þingsins á því að lesa upp yfirlýs- ingu, þar sem hann tók fram að stjórnarskráin veitti sér enga heim- ild til þess að breyta niðurstöðu kosninganna, en Trump hafði haldið því fram að varaforsetinn hefði heim- ild til þess að telja þau atkvæði sem sér sýndist, þar á meðal „kjörmenn“ repúblikana í þeim ríkjum þar sem gerður hafði verið ágreiningur um niðurstöðuna. Trump brást reiður við yfirlýsingu Pence á Twitter-síðu sinni og sakaði Pence um að hafa „skort hugrekki“ til þess að gera hið rétta. Nokkrir þingmenn repúblikana í báðum deildum höfðu lýst því yfir fyrirfram að þeir hygðust gera at- hugasemdir við talningu kjörmanna í allt að sex ríkjum, en hver athuga- semd kallar á umræðu sem getur staðið yfir í allt að tvo tíma. Ekki þótti neinn vafi leika á því að allar athugasemdirnar yrðu felldar og hóf Mitch McConnell, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, um- ræðuna með því að fordæma þá koll- ega sína í deildinni sem hygðust gera athugasemdir við talninguna. Sagði McConnell að með gjörðum sínum kynnu þingmennirnir að valda lýð- veldi Bandaríkjanna „varanlegum skaða“, þar sem enginn efi væri leng- ur um að Biden hefði sigrað. Demókratar með yfirhöndina Fyrr um daginn hafði hagur demó- krata á Bandaríkjaþingi þótt vænk- ast mjög, en allt benti þá til þess að Raphael Warnock og Jon Ossoff, frambjóðendur þeirra til öldunga- deildarinnar í Georgíu, hefðu sigrað þau Kelly Loeffler og David Perdue í seinni umferð kosninga. Voru báðir demókratar komnir með forystu í gær í talningunni, en endanleg nið- urstaða mun ekki liggja fyrir fyrr en á morgun, föstudag. Sigur Warnocks, sem þjónar sem prestur í sömu kirkju og Martin Lut- her King var á sínum tíma, þótti ekki í vafa, en óvíst var enn hvort mun- urinn á milli Ossoffs og Perdue yrði nægur til þess að ekki þyrfti að end- urtelja atkvæði. Sendi framboð Perdue frá sér yfir- lýsingu í fyrrinótt, þar sem lýst var yfir að það hygðist halda baráttunni áfram, og var jafnvel gert ráð fyrir að Perdue myndi reyna að kæra kosn- ingarnar og framkvæmd þeirra. Bæði Perdue og Loeffler þykja nánir bandamenn Donalds Trump Banda- ríkjaforseta, og hafa þau bæði tekið undir efasemdir Trumps um niður- stöðu forsetakosninganna. Óvíst er þó hvaða áhrif það hafi haft á gengi þeirra, en framámenn í Repúblikana- flokknum höfðu óttast að barátta Trumps við að snúa niðurstöðu kosn- inganna við hefði dregið úr kjörsókn meðal repúblikana í fyrradag. Garland tilnefndur Verði sigur Warnocks og Ossoffs staðfestur þykir það mikill sigur fyrir Joe Biden, verðandi Bandaríkjafor- seta, þar sem demókratar munu þá hafa 50 þingsæti í öldungadeildinni á móti 50 þingsætum repúblikana, sem hingað til hafa haft meirihlutann í höndum sér. Þar sem oddaatkvæðið er í hönd- um varaforsetans hverju sinni, þýðir það að um leið og Biden sver embætt- iseið sinn 20. janúar næstkomandi hljóta demókratar meirihlutann í deildinni, sem aftur auðveldar Biden að koma stefnumálum sínum í gegn, en deildin gegnir bæði mikilvægu hlutverki í utanríkismálum og við skipan bæði ráðherra og dómara. Biden, sem sjálfur var öldunga- deildarþingmaður í rúma þrjá ára- tugi, hafði til dæmis beðið með að út- nefna í stöðu dómsmálaráðherra þar til ljóst væri hvernig kosningarnar færu, þar sem ekki var vitað hvort hann gæti treyst á stuðning deildar- innar, eða hvort Biden þyrfti að semja við McConnell um skipan rík- isstjórnar sinnar. Biden tilkynnti svo í gær að hann hefði ákveðið að skipa dómarann Merrick Garland í stöðuna, en Gar- land er þekktastur utan Bandaríkj- anna fyrir að hafa verið útnefndur af Barack Obama í stöðu hæstaréttar- dómara árið 2016. Repúblikanar lögðust þá gegn skipan Garlands, þar sem um kosningaár væri að ræða. Garland þykir miðjusinnaður demó- krati líkt og Biden. Þá þykir víst að öldungadeildin muni nú samþykkja ýmsar fjárveit- ingar sem fulltrúadeildin hefur lagt til, en þar á meðal er tillaga um að hver Bandaríkjamaður fái ávísun upp á 2.000 Bandaríkjadali frá ríkinu vegna kórónuveirufaraldursins, en bæði fulltrúadeildin og Trump Bandaríkjaforseti höfðu kallað eftir því í andstöðu við McConnell. Stjórnmálaskýrendur vestanhafs sögðu þó að ekki mætti ætla að Biden og Demókrataflokkurinn myndu hafa frítt spil til að gera sem sér sýndist, jafnvel þótt bæði framkvæmda- og löggjafarvald yrðu nú á sömu hendi, þar sem meirihlutinn væri ekki traustari en svo að aðeins einn demó- krata þyrfti til að fella mál. Þá bíða erfiðar þingkosningar árið 2022, en flokkur sitjandi forseta tapar jafnan þingsætum í þeim. AFP Óeirðir Lífverðir verja innganginn að sal fulltrúadeildarinnar í þinghúsinu á meðan þingmenn yfirgefa salinn. Brutu sér leið inn í þinghúsið  Hlé gert á talningu kjörmanna á Bandaríkjaþingi  Pence hugðist ekki reyna að breyta niðurstöðu kosninganna  McConnell fordæmir kollega sína og segir þá geta valdið lýðveldinu varanlegum skaða Taldar eru góðar líkur á því að Inger Støjberg, fyrrverandi varaformaður Venstre og fv. ráðherra innflytj- endamála, yrði sakfelld fyrir emb- ættisafglöp sín fyrir Landsdómi Danmerkur, að mati tveggja óháðra lögfræðinga sem unnu skýrslu fyrir danska þingið. Greidd verða atkvæði í næstu viku um hvort Støjberg verði ákærð. Støjberg sagði af sér varafor- mennsku í Venstre, helsta stjórnar- andstöðuflokki Danmerkur, skömmu fyrir áramót, en þá hafði komið í ljós að hún hafði afvegaleitt danska þingið um þá atburðarás sem leiddi til þess að ráðuneyti hennar gaf út árið 2016 ólögleg fyrirmæli um aðskilnað allra para sem sóttu um hæli í Danmörku, ef annar aðilinn var undir 18 ára aldri. Fyrirmælin voru síðar sögð ólögleg af umboðs- manni þingsins, þar sem þau kölluðu á aðskilnað án nokkurrar undan- tekningar eða rannsóknar á málsat- vikum. Jakob Elleman-Jensen, formaður Venstre, lýsti því yfir fyrir áramót að hann styddi að Støjberg yrði dregin fyrir Landsdóm vegna málsins, en stjórnmálaskýrendur danska ríkis- útvarpsins sögðu í gær að bæði Ven- stre og Sósíaldemókrataflokkurinn væru hikandi við að stíga það skref, en gera má ráð fyrir innanflokks- átökum í Venstre vegna málsins. Landsdómur var síðast kallaður saman í Danmörku á 10. áratug 20. aldar vegna Tamíla-málsins svo- nefnda, en þá var Erik Ninn-Hansen dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í fjóra mánuði fyrir að hafa komið í veg fyrir að flóttamenn úr hópi Tam- íla gætu sameinast fjölskyldum sín- um sem þegar voru löglega í Dan- mörku. Mögulega ákærð fyrir Landsdómi  Líkur taldar á sakfellingu Støjberg AFP Í vanda Støjberg sést hér hlýða á umræðu á þinginu árið 2016.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.