Morgunblaðið - 07.01.2021, Blaðsíða 37
37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Viðbit Ljósmyndari fylgist með tilburðum krumma í miðborginni við að ná sér í viðbit. Ekkert gekk og krummi varð argur.
Eggert
Í fréttum þessa vetrar hefur
fátt annað verið í fréttum en kór-
ónuvírusinn. Nema ef vera skyldi
bóluefni. Það er því ekki úr vegi
að benda lesendum á eitt atriði
sem farið hefur hljótt. Á næstu
vikum verður auglýstur viðauki
við aðalskipulag Reykjavíkur.
Aðalskipulagið gildir til 2030, en
viðaukinn gildir til 2040. Hús-
næðisþörf er mikil í borginni,
enda hefur skipulagður skortur á
byggingarlóðum leitt til hækk-
unar langt umfram almennt
verðlag.
Kapall sem seint gengur upp
Samkvæmt lífskjarasamn-
ingnum átti að hefja skipulagn-
ingu Keldnalandsins árið 2019.
Það hefur ekki verið gert. Í áætl-
un um framboð á byggingar-
lóðum gerir borgin ráð fyrir að
helsta uppbyggingarsvæðið verði
á Ártúnshöfða næstu árin, en til
að svo megi verða þarf að flytja
atvinnufyrirtækin annað. Gert er
ráð fyrir að ganga á helsta íbúða-
svæðið við Úlfarsárdal og gera það að atvinnusvæði, þvert á
fyrri loforð um uppbyggingu. Til að kapallinn gangi upp þarf
svo að setja Sæbraut í stokk, en forsenda þess er lega Sunda-
brautar. Hún liggur ekki fyrir. Þá gerir borgin ráð fyrir því
að byggðar verði meira en 4.000 íbúðir þar sem Reykjavík-
urflugvöllur er. Þetta er gert þrátt fyrir að fyrir liggi að flug-
völlurinn er ekki á förum. Næstu árin verður barátta um að
endurheimta störf í flugrekstri og lítið fjármagn til að byggja
þriðja flugvöllinn á suðvesturhorninu. Það er því mikil bjart-
sýni að gera beinlínis ráð fyrir því að húsnæðisþörf verði
mætt með því að gera ráð fyrir þúsundum íbúða á flug-
brautum Reykjavíkurflugvallar. Ekki er gert ráð fyrir að
byggt verði á Keldum fyrir en eftir áratug. Ekkert á að
byggja íbúðir í Örfirisey eða á BSÍ-reit. Engin hagkvæm
byggingarsvæði nýtt en treyst á að flugvöllurinn fari í
Hvassahraun. Fyrri áætlanir um nægt framboð bygging-
arlands í Reykjavík gengu ekki eftir. Fjölgunin fór annað. Nú
er verið að fækka hagkvæmum byggingarsvæðum til næstu
20 ára. Viljandi. Þess í stað er gert beinlínis ráð fyrir því að
flugvöllurinn víki þótt nýlega sé búið að semja um að hann
verði áfram að óbreyttu. Gatið í áætluninni er gríðarstórt eða
sem nemur heilu kjörtímabili þar sem þörf er fyrir um 1.100
íbúðir á ári. Kapall sem skortir lykilspil gengur aldrei upp.
Húsnæðisáætlun sem nýtir ekki hagkvæm byggingarsvæði
fellur um sjálfa sig.
Eftir Eyþór Arnalds
» Á næstu vik-
um verður
auglýstur við-
auki við aðal-
skipulag
Reykjavíkur.
Aðalskipulagið
gildir til 2030,
en viðaukinn
gildir til 2040.
Eyþór Arnalds
Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Gölluð og
galin áætlun
Það þarf ekki að
fara mörgum orðum
um að atlagan að
kórónuveirufaraldr-
inum hefur valdið
verulegum usla í ís-
lensku samfélagi. Þó
að aðgerðir stjórn-
valda til að halda far-
aldrinum í skefjum
hafi reynst árangurs-
ríkar hafa takmarkanir á virkni
samfélagsins að sama skapi haft
neikvæðar afleiðingar, m.a. fyrir at-
vinnulíf, skóla og íþróttastarf.
Ekki verður um það deilt að
strangar sóttvarnaráðstafanir hafa
á tíðum verið nauðsynlegar til að
hefta útbreiðslu smits. En það er
ekki síst fólkið í landinu sem á hrós
skilið fyrir að hafa undan-
tekningarlítið brugðist vel við að-
gerðum stjórnvalda, jafnvel þótt
þeim hafi fylgt verulegar búsifjar.
Það er gleðilegt að tekist hefur að
halda fjölda innanlandssmitum inn-
an skaplegra marka síðustu vikur
og því eðlilegt að velta fyrir sér
hvort nú sé betri tíð í vændum. Á
hinn bóginn er áhyggjuefni að vax-
andi fjöldi smita hefur greinst á
landamærunum undanfarna daga
sem skýrist af því að faraldurinn er
enn á miklu flugi í nágrannalönd-
unum. Við teljum því mikilvægt að
áfram verði lögð áhersla á tvöfalda
skimun við komu til landsins og að
íhuga ætti að gera hana að skyldu.
Við vitum ekki hvernig kórónu-
veirufaraldurinn mun þróast á
þessu ári því þótt miklar væntingar
séu til bóluefnis sem við höfum
tryggt okkur þá ríkir óvissa um af-
hendingartíma þess. Myndun
hjarðónæmis í samfélaginu virðist
því ekki alveg í augsýn þannig að
við getum tæplega gert ráð fyrir að
lífið hér verði komið í eðlilegt horf
fyrr en í fyrsta lagi eftir mitt ár
2021. Þangað til við getum útrýmt
veirunni verðum við einfaldlega að
lifa með henni. Það er því mikil-
vægt að huga að því hvernig við
getum þraukað næstu mánuði með
því að beita hömlum á skyn-
samlegan og markvissan máta og
forðast jafnframt að fórnarkostn-
aðurinn verði okkur um megn. Að
okkar mati er brýnt að fyrirliggj-
andi þekking og reynsla verði nýtt
til að veita vel ígrundaðar tilslakan-
ir sem miða að því að auka virkni
samfélagsins án þess að því þurfi
að fylgja mikil hætta á dreifingu
smits.
Hvað á þá að heimila og hvað
ekki? Að okkar dómi þarf að skil-
greina starfsemi og viðburði sem
ætti að vera unnt að útfæra með
sóttvarnaráðstöfunum sem draga
verulega úr smithættu og yrði þá
höfðað til ábyrgðar forsvarsaðila á
að reglum yrði framfylgt auk þess
sem eftirlit yrði með starfseminni.
Dæmi um slíka starfsemi eru
íþróttaiðkun í líkamsræktastöðvum
og ýmiss konar menningarstarf-
semi, m.a. sviðslistir. Að sama
skapi er mikilvægt að forðast alfar-
ið aðstæður sem vitað er að hafa
mikla smithættu í för með sér.
Þekkt er að hópsýkingar hafa
gjarnan myndast þegar fólk hefur
komið saman án þess að gæta
nægilega að sóttvörnum og er smit-
hættan sérlega mikil í lokuðu rými
með ófullnægjandi loftræstingu. Þá
verður ekki hjá því komist að geta
áfengisneyslu sem áhættuþáttar því
margar hópsýkingar hafa átt sér
stað í tengslum við gleðskap, bæði
á skemmtistöðum og í heima-
húsum. Kemur það ekki á óvart í
ljósi þess að áfengi slævir dóm-
greind fólks og dregur úr hæfni til
að sinna persónubundnum sótt-
vörnum. Af þeim sökum er ástæða
til að farið verði varlega í aflétt-
ingu takmarkana á afgreiðslutíma
vínveitingahúsa.
Hafa verður í huga að reglu-
bundin hreyfing er mörgum afar
mikilvæg. Heilsufarsleg gildi henn-
ar eru ótvíræð og margir nota lík-
amsþjálfun enn fremur til að létta
á áhyggjum og streitu, sem
kannski hefur sjaldan verið meiri
þörf fyrir en nú. Þótt margir stundi
fjölbreytta útivist eru enn fleiri
sem nýta sér líkamsræktarstöðv-
arnar í þessum tilgangi. Þær hafa
hins vegar verið meira og minna
lokaðar frá því í byrjun október
síðastliðins og hefur það haft nei-
kvæð líkamleg og sálræn áhrif á
fjölda fólks. Í staðinn hefur fólk
brugðið á það ráð að ganga eða
skokka utanhúss en hætt er við að
aðstæður til þess versni yfir dimm-
ustu vetramánuðina og hafi í för
með sér hættu á byltum og jafnvel
brotum, ekki síst meðal þeirra sem
rosknir eru.
Afreksíþróttir hafa verið heim-
ilaðar í nokkrum mæli í nágranna-
löndunum þrátt fyrir mikla út-
breiðslu farsóttarinnar og verður
ekki betur séð en vel hafi tekist til.
Sú spurning vaknar hvort nýta
megi reynslu af afreksíþróttum á
farsóttartímum við skipulag
íþróttaiðkunar almennings. Það
ætti að vera mögulegt að útfæra
sóttvarnir á líkamsræktarstöðvum
á þann hátt að smithætta sé í lág-
marki. Sem dæmi mætti hafa bún-
ingsklefa lokaða, takmarka fjölda
fólks í æfingasal, framfylgja
tveggja metra reglu, gera kröfu um
grímuskyldu og hanskanotkun og
sótthreinsa búnað fyrir og eftir
notkun. Ástundun líkamsræktar við
þessar kringumstæðum ætti tæp-
lega að leiða til aukinnar smithættu
umfram það sem gengur og gerist í
samfélaginu. Þá er hugsanlegt að
þjálfun í sóttvörnum í tengslum við
íþróttaiðkun gæti leitt til aukinnar
varfærni í hinu daglega lífi. Sama
gæti átt við um nám og ýmsa aðra
starfsemi.
Ljóst er að viðbragðsaðgerðir
gegn útbreiðslu kórónuveirunnar
skila mestum árangri ef fólk fylgir
í hvívetna settum reglum, ekki síst
handhreinsun, tveggja metra reglu
og takmarkaðri hópamyndun. Þetta
er kjarni málsins ef við viljum
hægt og rólega byrja feta okkur
aftur í átt að því sem við köllum
eðlilegt líf. Eru ekki allir reiðubún-
ir að taka þátt í því?
Er tímabært að aflétta hömlum vegna COVID-19?
Eftir Davíð O.
Arnar og
Runólf Pálsson
» Það er því mikilvægt
að huga að því
hvernig við getum
þraukað næstu mánuði
með því að beita höml-
um á skynsamlegan og
markvissan máta og
forðast jafnframt að
fórnarkostnaðurinn
verði okkur um megn.Davíð O. Arnar
Höfundar eru læknar.
Runólfur Pálsson