Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 38
38 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Með allt á hreinu 2021 Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380 Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir árið sem er að líða og óskum landsmönnum öllum farsældar á komandi ári. Það fór illa um dag- inn. Smitum snar- fjölgaði, farsóttarhús og sjúkradeildir fyllt- ust, dauðsföll, þegar þetta er ritað, eru orðin 29. Landspít- alinn fór á neyðarstig. Skólastarf langt frá því sem eðlilegt getur talist og félagslíf … hvað er nú það? Eftir að hafa dansað þennan línudans, sem virðist bæði vera or- sök og afleiðing, eru margir orðnir þreyttir – og er þá vægt til orða tekið. Eðlilega spyrja því margir: Er ekki hægt að hætta þessum dansi þar sem sífellt er verið að slaka og herða á sóttvörnum? Er ekki hægt að loka landinu í alvöru og beita miklum prófunum og ströngum sóttvörnum, finna smit innanlands sem fyrst og taka á þeim af festu? Eiginlega þurrka veiruna upp innan frá? Ef þetta er gert af fullri einurð losnum við þá ekki að mestu – eða með öllu – við veiruna á t.d. einum mánuði, jafnvel minna? Blessuð börnin geta þá gengið í skóla eins og þeim er eðlilegt og ljúka þá vonandi prófum í vor. Þeir sem hafa eða fá atvinnu geta gengið til starfa sinna. Samkomustaði verður hægt að opna svo og íþrótta- miðstöðvar. Trúræknir geta fjöl- mennt í kirkjur. Svo er nú tími vetraríþrótta, þorrablóta og árshá- tíða. Ef þetta gengur komum við lifandi og að mestu laus við mis- munandi þunglyndi undan snjóum í vor – beint í páskafríið. Mér er vel ljóst að harðar sóttvarnir munu valda leiða, reiði og jafnvel þunglyndi. Samt minni en ef við erum að herða og slaka til vors. En við skulum vera meðvituð um slíkar tilfinn- ingasveiflur og tiltæk ráð. Annað væri ósanngjarnt gagnvart þeim sem við vitum að kann að líða illa. Ég tel nauðsynlegt að reyna þetta, illa nauðsyn, sem við höfum ekki óskað eftir en hefur vaxið svo hætta stafar af. Ég hef nokkrum sinnum heyrt fjármálaráðherra og fleiri nefna að það sé dýrt að loka landinu. En eins og stjórnmálamanna er siður eru ekki nefndar fastar tölur eða úr hvaða vösum krónurnar munu tapast. Enn síður er gerð tilraun til að bera þær tölur saman við annað tap þjóðarinnar og ein- staklinga: Hvernig verðmetum við dauða sjúklings, fráfall ættingja t.d. barnabarns eða ömmu og afa, brottfall úr skóla, þunglyndi, sjálfsvíg? Eða kostnað við endur- menntun nemenda? Margt af þessu og fleira til tengist beint eða óbeint þeim vágesti sem þessi far- aldur er – og ekki sér fyrir endann á. Gleymum því ekki að við getum lifað góðu lífi á Íslandi þó að við skellum tímabundið í lás. Við höf- um gnægð vatns, rafmagns og hita. Heilan bústofn, ein stærstu fiskimið í heimi og full gróðurhús til að sjá okkur fyrir matvælum. Þá höfum við allan nútímabúnað til fjarskipta og flutninga, þannig að við getum flutt inn það litla sem okkur vantar, s.s. olíu, varahluti og lyf, þ.m.t. bóluefni, sem heilbrigð- isstéttirnar hafa þá líka tíma til að gefa allri þjóðinni. Ekki eru nema ellefu ár síðan reynt var að hræða okkur með því að Ísland yrði „Kúba norðursins“ ef við greiddum ekki Icesave- kröfuna frægu. Látum ekki slíkan áróður hafa áhrif á okkur nú þegar við tökum ákvarðanir. Öryggismál Mestalla starfsævi mína hef ég unnið við margs konar öryggismál og vil koma að atriði frá þeim sjón- arhóli séð í sambandi við farald- urinn: Eitt af grunnatriðum örygg- ismála er, að ef nauðsynlegt er að láta eitthvað gerast, eða að einhver persóna sýni af sér ákveðna hátt- semi, framkvæmi eitthvað á ákveð- inn hátt og/eða á ákveðnum tíma, þá þarf að tryggja að það sé gert. Gulltryggja. Skoðum landamæragæslu Ís- lands á Keflavíkurflugvelli fyrr á árinu 2020 – svona sem dæmi: Ákveðið var að opna fyrir er- lenda ferðamenn. Skimunarbásar settir upp með hraði. Komuf- arþegar skimaðir og síðan sagt að fara beint á hótel sitt og bíða eftir hringingu um hvort skimunin hafi reynst jákvæð eða hvort þeim sé frjálst að fara út, en ella bíða eftir að verða fluttir í sóttkví. Síðar sama dag kemur í ljós að einhverjir eru ekki þar sem þeir kváðust ætla að vera og fáeinir aðrir voru á rölti í miðbænum með ferðatöskurnar sínar, spyrjandi borgarbúa til vegar. Nú spyr maður: Skildu komu- farþegar þau fyrirmæli sem þeir fengu í skoðunarbásnum? Skildu þeir alvöru málsins? Hvernig er það vitað? Fengu þeir fyrimælin skrifleg, með refsiákvæðum, og þurftu þeir að staðfesta móttöku þeirra í básnum? Fór örygg- isvörður eða lögregluþjónn með í rútunni og fylgdist með hverjir fóru úr henni og hvar? Og loks að allir tækju bíl frá lokastöð rút- unnar, hver að dyrum síns hótels? Var hótelum sagt að staðfesta komu þeirra við miðstöð landa- mæragæslu eða sóttvarna. Og hvernig? Ég vænti þess að öllum sem sendir eru í einangrun sé gert ljóst að þeir eiga að halda sig á sínum herbergjum, ekki heimsækja fólkið í næsta herbergi, ekki skreppa á barinn, ekki nota neina hluti úr öðrum herbergjum og aðeins nota snyrtingu í eigin herbergi. Ég held að flestir skilji þetta. En það virð- ist vanta aga, eftirfylgni, refsi- ákvæði og e.t.v. skýr, sannanlega skilin og óumdeilanleg fyrirmæli. Að útskýra reglur og biðla til fólks að fara eftir þeim eða hvetja fólk til fara nú varlega og muna að spritta o.s.frv. hrífur ekki á alla. Fleiri munu taka „fyrirmæli“ gild en „ábendingar“. Ekki síst ef við- urlög eru ljós, t.d. sekt eða brott- vísun úr landi. Enn betur ef far- þegar fá reglurnar afhentar við komu til landsins af lögregluþjóni og þurfa að kvitta á afrit og skilja eftir í vörslu hans. „Þessum Ís- lendingum er greinilega alvara.“ Að lokum Þær ábendingar og dæmi sem ég gef hér má ekki taka sem tæm- andi tillögur. Aðstaða og vinnulag eru háð aðstæðum og verkefnum. Nú þarf að horfa fram á veg og tryggja að þjóðin sé sem best búin undir að mæta af öryggi áföllum af ýmsu tagi. Það verkefni bíður stjórnvalda og eftir atvikum þjóð- aröryggisráðs. Nú fréttist af nýju afbrigði veir- unnar t.d. í Bretlandi. Sú er sögð „bráðsmitandi“ og illvígari en upp- runalega veiran. Þrátt fyrir að Bretar búi nú við ströngustu sótt- varnareglur síðan í mars sl. er svo komið að „þar er heilbrigðiskerfið að kikna undan álaginu“ að sögn RÚV kl. 19 í kvöld, daginn fyrir þrettándann. Boris Johnson for- sætisráðherra telur kerfið geta sprungið eftir þrjár vikur. Ekki er langt síðan um 20.000 nýsmit greindust daglega í Bretlandi, nú hefur sú tala meira en tvöfaldast og er nú 50.000 nýsmit á dag. Við Íslendingar höfum engar af- sakanir ef við beitum ekki hverri þeirri aðferð sem hugsanlega gæti haldið veirunni frá ströndum landsins. Alls engar afsakanir. Við erum í stríði við mannskæða veiru, Covid-19. Við höfum þegar orðið fyrir nokkru mannfalli. Munum orð hershöfðingjans sem sagði: „Vís- asta leiðin til að tapa stríðinu er að vanmeta aðstæður og styrk and- stæðingsins.“ Við viljum ekki tapa þessu stríði, þetta er dauðans alvara. Grimmur óvinur Eftir Baldur Ágústsson » Við viljum ekki tapa þessu stríði, þetta er dauðans alvara. Baldur Ágústsson Höfundur er fv. forstjóri, flugumferðar- stjóri og forsetaframbjóðandi 2004. bagustsson@mac.com
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.