Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Með allt á hreinu 2021
Jakkaföt og skyrtur Gluggatjöld og áklæði Úlpur, kápur og frakkar
Rúmföt og heimilisþvottur Kjólar og blússur Servíettu- og dúkaþvottur
STOFNAÐ 1953Háaleitisbraut 58–60 • 108 Reykjavík • haaleiti@bjorg.is • www.facebook.com/efnalauginbjorg • Sími: 553 1380
Við þökkum viðskiptavinum okkar fyrir árið
sem er að líða og óskum landsmönnum öllum
farsældar á komandi ári.
Það fór illa um dag-
inn. Smitum snar-
fjölgaði, farsóttarhús
og sjúkradeildir fyllt-
ust, dauðsföll, þegar
þetta er ritað, eru
orðin 29. Landspít-
alinn fór á neyðarstig.
Skólastarf langt frá
því sem eðlilegt getur
talist og félagslíf …
hvað er nú það?
Eftir að hafa dansað þennan
línudans, sem virðist bæði vera or-
sök og afleiðing, eru margir orðnir
þreyttir – og er þá vægt til orða
tekið. Eðlilega spyrja því margir:
Er ekki hægt að hætta þessum
dansi þar sem sífellt er verið að
slaka og herða á sóttvörnum? Er
ekki hægt að loka landinu í alvöru
og beita miklum prófunum og
ströngum sóttvörnum, finna smit
innanlands sem fyrst og taka á
þeim af festu? Eiginlega þurrka
veiruna upp innan frá?
Ef þetta er gert af fullri einurð
losnum við þá ekki að mestu – eða
með öllu – við veiruna á t.d. einum
mánuði, jafnvel minna? Blessuð
börnin geta þá gengið í skóla eins
og þeim er eðlilegt og ljúka þá
vonandi prófum í vor. Þeir sem
hafa eða fá atvinnu geta gengið til
starfa sinna. Samkomustaði verður
hægt að opna svo og íþrótta-
miðstöðvar. Trúræknir geta fjöl-
mennt í kirkjur. Svo er nú tími
vetraríþrótta, þorrablóta og árshá-
tíða. Ef þetta gengur komum við
lifandi og að mestu laus við mis-
munandi þunglyndi undan snjóum
í vor – beint í páskafríið.
Mér er vel ljóst að
harðar sóttvarnir
munu valda leiða, reiði
og jafnvel þunglyndi.
Samt minni en ef við
erum að herða og
slaka til vors. En við
skulum vera meðvituð
um slíkar tilfinn-
ingasveiflur og tiltæk
ráð. Annað væri
ósanngjarnt gagnvart
þeim sem við vitum að
kann að líða illa.
Ég tel nauðsynlegt
að reyna þetta, illa nauðsyn, sem
við höfum ekki óskað eftir en hefur
vaxið svo hætta stafar af.
Ég hef nokkrum sinnum heyrt
fjármálaráðherra og fleiri nefna að
það sé dýrt að loka landinu. En
eins og stjórnmálamanna er siður
eru ekki nefndar fastar tölur eða
úr hvaða vösum krónurnar munu
tapast. Enn síður er gerð tilraun
til að bera þær tölur saman við
annað tap þjóðarinnar og ein-
staklinga: Hvernig verðmetum við
dauða sjúklings, fráfall ættingja
t.d. barnabarns eða ömmu og afa,
brottfall úr skóla, þunglyndi,
sjálfsvíg? Eða kostnað við endur-
menntun nemenda? Margt af
þessu og fleira til tengist beint eða
óbeint þeim vágesti sem þessi far-
aldur er – og ekki sér fyrir endann
á.
Gleymum því ekki að við getum
lifað góðu lífi á Íslandi þó að við
skellum tímabundið í lás. Við höf-
um gnægð vatns, rafmagns og
hita. Heilan bústofn, ein stærstu
fiskimið í heimi og full gróðurhús
til að sjá okkur fyrir matvælum.
Þá höfum við allan nútímabúnað til
fjarskipta og flutninga, þannig að
við getum flutt inn það litla sem
okkur vantar, s.s. olíu, varahluti og
lyf, þ.m.t. bóluefni, sem heilbrigð-
isstéttirnar hafa þá líka tíma til að
gefa allri þjóðinni.
Ekki eru nema ellefu ár síðan
reynt var að hræða okkur með því
að Ísland yrði „Kúba norðursins“
ef við greiddum ekki Icesave-
kröfuna frægu. Látum ekki slíkan
áróður hafa áhrif á okkur nú þegar
við tökum ákvarðanir.
Öryggismál
Mestalla starfsævi mína hef ég
unnið við margs konar öryggismál
og vil koma að atriði frá þeim sjón-
arhóli séð í sambandi við farald-
urinn: Eitt af grunnatriðum örygg-
ismála er, að ef nauðsynlegt er að
láta eitthvað gerast, eða að einhver
persóna sýni af sér ákveðna hátt-
semi, framkvæmi eitthvað á ákveð-
inn hátt og/eða á ákveðnum tíma,
þá þarf að tryggja að það sé gert.
Gulltryggja.
Skoðum landamæragæslu Ís-
lands á Keflavíkurflugvelli fyrr á
árinu 2020 – svona sem dæmi:
Ákveðið var að opna fyrir er-
lenda ferðamenn. Skimunarbásar
settir upp með hraði. Komuf-
arþegar skimaðir og síðan sagt að
fara beint á hótel sitt og bíða eftir
hringingu um hvort skimunin hafi
reynst jákvæð eða hvort þeim sé
frjálst að fara út, en ella bíða eftir
að verða fluttir í sóttkví.
Síðar sama dag kemur í ljós að
einhverjir eru ekki þar sem þeir
kváðust ætla að vera og fáeinir
aðrir voru á rölti í miðbænum með
ferðatöskurnar sínar, spyrjandi
borgarbúa til vegar.
Nú spyr maður: Skildu komu-
farþegar þau fyrirmæli sem þeir
fengu í skoðunarbásnum? Skildu
þeir alvöru málsins? Hvernig er
það vitað? Fengu þeir fyrimælin
skrifleg, með refsiákvæðum, og
þurftu þeir að staðfesta móttöku
þeirra í básnum? Fór örygg-
isvörður eða lögregluþjónn með í
rútunni og fylgdist með hverjir
fóru úr henni og hvar? Og loks að
allir tækju bíl frá lokastöð rút-
unnar, hver að dyrum síns hótels?
Var hótelum sagt að staðfesta
komu þeirra við miðstöð landa-
mæragæslu eða sóttvarna. Og
hvernig?
Ég vænti þess að öllum sem
sendir eru í einangrun sé gert ljóst
að þeir eiga að halda sig á sínum
herbergjum, ekki heimsækja fólkið
í næsta herbergi, ekki skreppa á
barinn, ekki nota neina hluti úr
öðrum herbergjum og aðeins nota
snyrtingu í eigin herbergi. Ég held
að flestir skilji þetta. En það virð-
ist vanta aga, eftirfylgni, refsi-
ákvæði og e.t.v. skýr, sannanlega
skilin og óumdeilanleg fyrirmæli.
Að útskýra reglur og biðla til fólks
að fara eftir þeim eða hvetja fólk
til fara nú varlega og muna að
spritta o.s.frv. hrífur ekki á alla.
Fleiri munu taka „fyrirmæli“ gild
en „ábendingar“. Ekki síst ef við-
urlög eru ljós, t.d. sekt eða brott-
vísun úr landi. Enn betur ef far-
þegar fá reglurnar afhentar við
komu til landsins af lögregluþjóni
og þurfa að kvitta á afrit og skilja
eftir í vörslu hans. „Þessum Ís-
lendingum er greinilega alvara.“
Að lokum
Þær ábendingar og dæmi sem
ég gef hér má ekki taka sem tæm-
andi tillögur. Aðstaða og vinnulag
eru háð aðstæðum og verkefnum.
Nú þarf að horfa fram á veg og
tryggja að þjóðin sé sem best búin
undir að mæta af öryggi áföllum af
ýmsu tagi. Það verkefni bíður
stjórnvalda og eftir atvikum þjóð-
aröryggisráðs.
Nú fréttist af nýju afbrigði veir-
unnar t.d. í Bretlandi. Sú er sögð
„bráðsmitandi“ og illvígari en upp-
runalega veiran. Þrátt fyrir að
Bretar búi nú við ströngustu sótt-
varnareglur síðan í mars sl. er svo
komið að „þar er heilbrigðiskerfið
að kikna undan álaginu“ að sögn
RÚV kl. 19 í kvöld, daginn fyrir
þrettándann. Boris Johnson for-
sætisráðherra telur kerfið geta
sprungið eftir þrjár vikur. Ekki er
langt síðan um 20.000 nýsmit
greindust daglega í Bretlandi, nú
hefur sú tala meira en tvöfaldast
og er nú 50.000 nýsmit á dag.
Við Íslendingar höfum engar af-
sakanir ef við beitum ekki hverri
þeirri aðferð sem hugsanlega gæti
haldið veirunni frá ströndum
landsins. Alls engar afsakanir. Við
erum í stríði við mannskæða veiru,
Covid-19. Við höfum þegar orðið
fyrir nokkru mannfalli. Munum orð
hershöfðingjans sem sagði: „Vís-
asta leiðin til að tapa stríðinu er að
vanmeta aðstæður og styrk and-
stæðingsins.“
Við viljum ekki tapa þessu stríði,
þetta er dauðans alvara.
Grimmur óvinur
Eftir Baldur
Ágústsson » Við viljum ekki tapa
þessu stríði, þetta er
dauðans alvara.
Baldur Ágústsson
Höfundur er fv. forstjóri, flugumferðar-
stjóri og forsetaframbjóðandi 2004.
bagustsson@mac.com