Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Í upphafi þessa árs eru tæpir 17 mánuðir til næstu borgarstjórn- arkosninga í maí 2022. Ekki einungis Reyk- víkingum, heldur öllum landsmönnum, er ljóst að það stríð sem geisað hefur á vettvangi borg- arstjórnar frá upphafi þessa kjörtímabils hef- ur haft lamandi áhrif á störf ráða og nefnda borgarinnar. Slík staða bitnar ekki síst á góðri þjónustu við borgarbúa, sem þurfa að leita úrlausna erinda sinna hjá borgaryfirvöldum. Fjölgun borgarfulltrúa úr 15 í 23 voru slæm og dýr mistök. Sú ákvörðun hefur síður en svo bætt stjórnsýslu borgarinnar og á stóran þátt í því upplausnarástandi sem nú ríkir í borgarstjórn. Fjölgun borg- arfulltrúa átti sér fyrst stað úr 15 í 21 árin 1982-1986. Sjálfstæðisflokk- urinn náði meirihluta í borgarstjórn- arkosningunum árið 1982 og breytti þeirri ákvörðun. Frá 1986-2018 voru þeir á ný 15 og stjórnkerfið varð mun skilvirkara og þjónaði íbúum miklu betur en nú er raunin á þeim vettvangi. Frá 2018 hafa borg- arfulltrúar verið 23 og reynslan af fjölgun þeirra er afleit. Ástandið ekki borgarbúum bjóðandi Óhætt er að fullyrða að það ástand sem ríkt hefur í borgarstjórn frá upphafi þessa kjörtímabils sé borgarbúum almennt ekki að skapi. Samstarf meiri- og minnihluta í borgarstjórn er í flestum mikil- vægum málum við frostmark. Málefnaleg umræða um mikilvæg hagsmunamál borgarbúa og einnig hvöss gagnrýni minnihluta í um- deildum málum er nauðsynleg. Sam- starf borgarfulltrúa ólíkra flokka er mikilvægt og styrkir borgarstjórn til framgangs góðra mála. Ekki veit- ir af nú á viðsjárverðum tímum. Við lestur fundargerða borgarráðs allt frá upphafi þessa kjörtímabils blasa við í flestum mikilvægum málum langar og ítarlegar bókanir og nán- ast engin samstaða. Slíkar bókanir skila ekki miklum árangri, hafa miklu fremur á sér yf- irbragð málflutnings og áróðurs en að borg- arfulltrúi vilji með stuttri athugasemd gera grein fyrir af- stöðu sinni. Í sam- þykktum um stjórn Reykjavíkurborgar segir m.a.: „Óheimilt er að færa í gerðarbók greinargerðir eða hvers konar skriflegan málflutning um afstöðu borgarfulltrúa til mála sem til meðferðar eru.“ Þessi samþykkt er oft ekki virt. Átök frá fyrsta degi Áhugaleysi meirihlutans til að bjóða upp á eðlilegt samráð og sam- starf hefur átt stærstan þátt i alvar- legum samskiptavanda á vettvangi borgarstjórnar. Þvert á móti hefur meirihlutinn beitt sér fyrir því að torvelda störf borgarfulltrúa minni- hlutans í ráðum og nefndum eins og kostur er. Til dæmis er það nú vinnuregla að ekki sé hægt að leggja fram fyrirspurn um mál í borgarráði sem snúa að ráðum borgarinnar, ef flokkur borgarráðs- fulltrúa á fulltrúa í þeim ráðum sem varða fyrirspurnina. Með þeirri ákvörðun er beinlínis verið að tak- marka aðkomu borgarfulltrúa í minnihlutanum að málum. Hvað kemur næst? Reykvíkingar og aðrir landsmenn hafa allt frá upphafi þessa kjör- tímabils vaknað flesta daga við fréttir úr borgarstjórn sem end- urspegla þá upplausn, mér liggur við að segja óeirðir, sem á sér stað á þeim vettvangi. Frá fyrsta degi nú- verandi borgarstjórnar hafa hörð átök einkennt nánast alla fundi borgarstjórnar og borgarráðs. Þótt oft áður hafi verið tekist hart á um einstök deilumál í borgarstjórn hafa önnur eins samfelld átök og nú fara fram á þeim vettvangi ekki átt sér stað áður. Ekki vinnufriður hjá starfs- mönnum Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg býr yfir miklum mannauði í starfsfólki sínu. Enda- lausar illdeilur borgarfulltrúa í borgarstjórn, borgarráði og víða annars staðar í borgarkerfinu hafa slæm áhrif á vinnuanda og öryggi starfsmanna. Stöðug illvíg og rætin átök milli margra borgarfulltrúa meiri- og minnihluta borgarstjórnar á opinberum vettvangi, í nefndum og ráðum borgarinnar, hafa að sjálf- sögu áhrif á starfsmenn borg- arinnar. Sá sem þetta ritar þekkir það ágætlega frá veru sinni í 28 ár í borgarstjórn og hafandi fylgst með borgarmálum nokkuð vel síðustu 10 ár, að embættismenn og aðrir starfsmenn borgarinnar eru upp til hópa vandað og gott starfsfólk, sem vinnur fyrir alla borgarstjórn og alla íbúa borgarinnar. Þau átakastjórn- mál sem nú eru nú höfð að leiðarljósi í borgarstjórn hafa lamandi áhrif á störf mikilvægra ráða og nefnda í borgarkerfinu og auðvelda ekki fjöl- mörgum starfsmönnum borgarinnar og kjörnum fulltrúum störf sín nema síður sé. Tengslin slitnuðu ekki Auðvitað hafa alla tíð komið upp alvarleg ágreiningsmál í borgar- stjórn, en tengslin ekki slitnað á milli meiri- og minnihluta, eins og nú hefur gerst. Ég minnist sérstaklega þeirra ára sem undirritaður átti samleið með þáverandi borgar- stjóra, Davíð Oddssyni, þ.e. frá 1982-1991, að þrátt fyrir hörð átök af og til um ýmis mál var nauðsyn- legur samráðs- og samstarfsvett- vangur ávallt til staðar milli borg- arfulltrúa. Vinnubrögð á vettvangi borgar- stjórnar í dag eru ekki bjóðandi borgarbúum. Nú hefur þetta ástand varað í hátt á þriðja ár og ekkert sem bendir til að það breytist. Starfsfólki borgarinnar og stórum hluta kjósenda í Reykjavík getur varla verið skemmt yfir þessari stöðu, heldur miklu fremur misboð- ið. Kjósendur eiga betra skilið Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » „Fjölgun borgarfull- trúa úr 15 í 23 voru slæm og dýr mistök. Sú ákvörðun hefur síður en svo bætt stjórnsýslu borgarinnar.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Lífshamingjan ræðst að litlu leyti af því sem hendir okkur, en mestu leyti af við- horfum okkar og við- brögðum. Lífsleiðin er vandrataður vegur en jákvæðni er góður vegvísir.Lítil en stór- huga þjóð á norð- urhjara veraldar – vogskorinni eyju á berangri Atlantshafs- ins – byggði lífsbjörg liðinna tíma á væntingum um bjartari daga. Ís- lensk tunga ber þess víða merki, enda skírskotar tungumálið gjarn- an til jákvæðni og bjartsýni. Fátt er nefnilega svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Bót fylgir böli hverju og öll él birtir upp um síðir. Fáir kveðja liðið ár með söknuði. Ástvinamissir, heilsubrestur og at- vinnuleysi urðu mörgum áfall. Fólk missti heimili sín, lífsviðurværið og öryggið. Úr áföllunum verður ekki lítið gert. Þjóðin hélt í óvissuför upp mikinn bratta en af bjartsýni má vona að ferðalagið framundan verði aflíðandi vegferð í átt að betri tíð. Verkefnin framundan verða krefjandi – en með réttu hugarfari má draga lærdóm og leita tæki- færa. Um þetta ber dæmisagan af ferðamanninum og heimamanninum ágætt vitni. Eftir stutta dvöl í fjallaþorpi gekk ferðamaður niður fjallshlíð í átt að sjávarþorpi. Á niðurleiðinni mætti hann heimamanni og tóku þeir tal saman. Ferðamaðurinn sagðist á leið til sjávarþorpsins og spurði við hverju mætti búast. Heimamaðurinn spurði hvaðan ferðamaðurinn væri að koma og hvernig honum hefði líkað. Ferða- maðurinn sagðist nýkominn úr fjallaþorpinu og reynslan hefði ver- ið hrein hörmung. Hann hefði ekki skilið tungumálið, hefði verið látinn sofa á moldargólfi, veðrið hefði ver- ið skelfilegt og maturinn hreinn viðbjóður. Heimamaðurinn svaraði á þá leið að sennilega yrði upplifun hans af sjávarþorpinu hin sama. Örfáum klukkustundum síðar gengur annar ferðamaður niður fjallshlíðina í átt að sjávarþorpinu. Hann mætir heimamann- inum og spyr við hverju megi búast í sjávarþorpinu. Heima- maðurinn spyr hvaðan ferðamaðurinn hafi verið að koma og hvernig honum hefði líkað. Ferðamaðurinn sagðist nýkominn úr fjallaþorpinu og reynslan hefði verið stórkostleg. Hann hefði ekki skilið tungumálið svo öll samskipti hefðu farið fram með áhugaverðum handahreyfingum, hann hefði verið látinn sofa á mold- argólfi sem hefði verið ógleymanleg lífsreynsla og veðrið hefði verið slæmt sem hefði gert dvölina eft- irminnilegri. Jafnframt hefði mat- urinn verið sérkennilegur en áhugavert hefði verið að setja sig inn í allar aðstæður heimamanna. Heimamaðurinn svaraði á þá leið að sennilega yrði upplifun hans af sjávarþorpinu sú sama. Við veljum ekki allar aðstæður okkar en við eigum val um við- brögð. Lífshamingjan ræðst að litlu leyti af því sem hendir okkur, en mestu leyti af viðhorfum okkar og viðbrögðum. Lífsleiðin er vandrat- aður vegur en jákvæðni er góður vegvísir. Góður dagur byrjar að morgni. Nýtt ár slær nýjan tón. Verkefnin fram undan eru ærin en í þeim fel- ast jafnframt fjölmörg tækifæri. Horfum björtum augum fram á veginn. Hin íslenska bjartsýni mun koma okkur langt. Gleðilegt ár. Íslenska bjartsýnin Eftir Hildi Björnsdóttur Hildur Björnsdóttir » Lífshamingjan ræðst að litlu leyti af því sem hendir okkur, en mestu leyti af viðhorfum okkar og viðbrögðum. Lífsleiðin er vandratað- ur vegur en jákvæðni er góður vegvísir. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks. hildurb@reykjavik.is Áburðarverk- smiðjan í Gufunesi lagði niður starfsemi árið 2001 eftir sprengingu í amm- oníakshúsi verksmiðj- unnar. Þar með lauk merkilegri sögu í iðn- aðarframleiðslu okkar Íslendinga, en bygg- ing verksmiðjunnar var fjármögnuð með Marshall-aðstoð Bandaríkjamanna árið 1954. Verksmiðjan notaði vatn, loft og orku til framleiðslu áburðarins. Í verksmiðjunni voru gerðar nokkrar veigamiklar breytingar á æviskeiðinu, sérstaklega er um að ræða breytingar á geymslu amm- oníaks og blöndunarhúsi eða NPK-byggingu verksmiðjunnar, en þar var lokaferli í fram- leiðslukerfi hennar. Áburðurinn eða afurðin, sem var amm- oníumnítrat, var bættur með íblöndunarefnum sem juku gæði áburðarins og fjölbreytileika. Ammoníak er aðalefnið í fram- leiðslu áburðarins og gerðar voru þær umbætur að reisa kúlulaga geymi á verksmiðjusvæðinu, 1.000 m3 að stærð. Skip þurftu að flytja ammoníakið til landsins og komu þau reglulega í nokkur skipti á ári hverju. Tvö alvarleg atvik áttu sér stað í verk- smiðjunni. Seinna at- vikið varð verksmiðj- unni að fjörtjóni og leiddi til stöðvunar reksturs. Það var sprenging í amm- oníakshúsi hennar ár- ið 2001. Fyrra atvikið átti sér stað annan í pásk- um 1990, en það var mjög hættulegur bruni skv. mínu mati á toppi ammoníaksgeymiskúl- unnar. Mat þetta studdu þýski efnaiðnaðarrisinn BASF, ráðgjaf- arfyrirtækið Technica, Danska vinnueftirlitið og Landesamt für Immissionschutz Nordrhein- Westfalen. Íkveikjuvaldar voru taldir geta verið tveir rafknúnir mótorlokar, sem voru uppi á toppi kúlunnar (mistök eftirlitsaðila) og þau mistök verksmiðjustjórnar að setja plaströr á útöndunarloka á toppi kúlunnar, sem braut í bága við öryggisreglur um örugga vinnu á toppi kúlunnar. Löndun á ammoníaki úr amm- oníaksskipi leysti þessa hættulegu atburðarás úr læðingi eftir að löndunarbarki sprakk við upphaf löndunar. Eldar léku um yfirborð kúlunnar, reyndar á afmörkuðu svæði í kringum þennan útblást- ursloka. Ýtrustu (alvarlegustu) af- leiðingar hefðu getað orðið þær að allt innihald geymisins, sem á þeim tímapunkti var rúmlega 100 tonn, hefði farið út í umhverfið og valdið þar spjöllum og hugs- anlegum mjög alvarlegum afleið- ingum jafnvel dauða og áttunar- vanda starfsmanna og annarra í umhverfinu, allt eftir því hvaðan vindur blés. Ekki má gleyma hug- rekki Þórðar Bogasonar, slökkvi- liðsmanns og ökukennara, sem setti sig í lífshættu er hann stökk með hraði upp stigann á kúlutopp- inn og náði að slökkva vetniseld- inn á síðustu stundu. Vídeóupptöku sem sýnd var í sjónvarpi RÚV sama kvöld var breytt og skornar voru út senur sem sýndu ráðaleysi og fát verk- smiðjustjóra og aðdraganda at- burðanna, sem var löndun á amm- oníaki í kúlu úr ammoníaksskipi. Þennan atburð rannsakaði ég sem deildarverkfræðingur Vinnu- eftirlitsins og lét taka sýni úr kúl- unni við botnloka hennar. Mikið magn af vetni fannst í þessu sýni. Þrjár rannsóknarstofur voru sam- mála um þá niðurstöðu. Ég gerði skýrslu um þessa rannsókn og skilaði í þremur eintökum á skrif- stofu forstjóra Vinnueftirlitsins, áður en ég yfirgaf stofnunina í ágúst 1991. Árin liðu og ekki var mikil um- fjöllun um hættur tengdar rekstri verksmiðjunnar, en skyndilega ár- ið 2001 berast fregnir af spreng- ingu í ammoníakshúsi verksmiðj- unnar Sprengingin var raunverulegt slys og því mun alvarlegra en fyrra „slysið“ og flaug þá 7,5 tonna steypustykki í umhverfið, en ekkert manntjón varð sem bet- ur fer. Vinnueftirlitið gerði skýrslu um seinna slysið (www.vinnueftirlit.is) og „nú var vetni“ greint sem frumorsök sprengingarinnar. Rekstur verk- smiðjunnar var stöðvaður eftir þessa sprengingu og líftíma henn- ar því lokið. Hvað er hægt að læra af þessu dæmi? Þekking sem varð til við rann- sókn fyrra slyssins (óhappsins) var ekki nýtt í þágu slysavarna! Hvorki Vinnueftirlit né verk- smiðjustjórn Áburðarverksmiðju vildu læra af atburðinum eða taka ábyrgð á honum. Nauðsynlegt er að finna frumorsakir í orsaka- keðju sem leiðir til slyss en það getur orðið viðkvæmt. Mikilvægt er að draga fram orsakir, en ekki að búa til sökudólga. Mannleg mistök eru eðlileg og í stór- slysaumhverfi verður ávallt að greina orsakir mjög ítarlega, eig- inlega verða stjórnendur að fara í naflaskoðun og nota greining- arniðurstöður úr þeim til að efla varnir. Í greiningarvinnu á slíkum verksmiðjum er kerfisverkfræði mikilvæg auk þekkingar á efna- ferlum. Kerfisgreining er tiltölulega ung fræðigrein og ýmsir fræðimenn telja að hún hafi komið fram upp úr 1950 og sé tengd framþróun í tækni kjarnorkuvera. Ljóst er að notkun fræðigreinarinnar getur haft mikil fjárhagsleg áhrif í sam- félaginu, ef það tekst að ná fram hagkvæmum lausnum, t.d. orku- sparnaði í stóriðju, og þar eru ef- laust mörg tækifæri enn vannýtt. Þegar litið er yfir farinn veg í málefnum verksmiðjunnar þá verður ekki fram hjá því horft að framleiðslan hafði mikil áhrif á landbúnaðinn í landinu, en ekki er eingöngu hægt að byggja á líf- rænum áburði. Kjarninn var nýtt- ur víðar, til að mynda til sprengi- efnaframleiðslu. Blöndun kjarna með olíu í ákveðnum hlutföllum er í reynd framleiðsla á sprengiefn- inu ANFO en það var mikið notað við framkvæmdir hér á landi. Vinnueftirlitið leyfði notkun með reglum og ákveðnum tak- mörkunum. Endalok Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi Eftir Stefán Einarsson » Þekking sem varð til við rannsókn fyrra slyssins (óhappsins) var ekki nýtt í þágu slysa- varna! Stefán Einarsson Höfundur er áhættufræðingur og efnaverkfræðingur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.