Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 45

Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Fallinn er frá fyrrverandi samstarfsmaður og góður félagi. Ímynd hins hrausta manns, hann Róbert, þurfti að játa sig sigraðan nú rétt fyrir jólin eftir snarpa baráttu við illvígan sjúk- dóm. Ég kynntist Róberti fyrst þegar hann réðst til starfa sem smíðakennari, eins og það hét þá, við Breiðholtsskóla. Breið- holtsskóli var fjölmennur skóli fjölbreytileikans með úrvalshóp frábærra kennara sem höfðu unnið lengi saman. Í senn sterkan og samrýmdan hóp en um leið formfastan og jafnvel nokkuð lokaðan á ýmsum sviðum. Í félagslífinu voru konurnar í skólanum með sinn hóp, við karlarnir með okkar og svo skemmtum við okkur öll saman þess á milli. Þegar nýr karlkennari kom til starfa ætluðumst við hinir til að hann gerði nánast eins og við sögðum eða jafnvel sögðum ekki. Sérstaklega þegar kom að ár- legum ferðum veiðifélagsins, þá skipaði kafteinninn niður í hlut- verk og allir hlýddu. Fljótt kom í ljós að nýi smíða- kennarinn var lítið fyrir að láta ráðskast með sig. Hann sagði sína meiningu, kom jafnt fram við alla og honum hentaði betur að leiða en vera leiddur. Við hin- ir sáum fljótlega að þennan mann yrði að virkja til góðra verka þar sem illa gengi að temja hann. Róbert fann sitt hlutverk í hópnum, hvort sem það var að hlaupa eftir rjúpu upp um fjöll, skjóta gæs í skurði, græja net fyrir misjafnlega leyfilegar netalagnir, grilla að kveldi lambalæri í holu eða spjalla og hlusta á góðan djass eftir matinn. Í þessari samveru komu fram þau karaktereinkenni sem prýddu Róbert. Hann var harð- duglegur, ósérhlífinn, ráðagóð- ur, hjálpsamur og góður vinur vina sinna. Fyrir hönd okkar veiðifélag- anna í VKKB þakka ég allt bras- ið við veiðarnar og allar ógleym- anlegar samveru- og gleðistundir sem við áttum til fjölda ára. Róbert var mikill keppnis- maður í öllu sem hann fékkst við og þoldi illa að tapa. Þegar við kennararnir kepptum við eldri nemendur okkar í körfubolta, hinum fagra leik án snertingar, kom það fyrir í jöfnum leik að varnartilbrigði Róberts kölluðu á miklar kvartanir hjá okkar ágætu nemendum. Hann var í þessu til að vinna. Róbert var frábær kennari, fagmaður í smíðum fram í fing- urgóma og mikill frumkvöðull í sínu fagi. Það var sama hvaða nem- endahópum hann kenndi; hann nýtti alltaf alla sína fagmennsku sem kennari til að ná til nemend- anna. Hann varði þá sem minna máttu sín og fann styrkleika þeirra í handiðninni, sem oft komu bóklegu kennurunum á óvart. Hann hafði miklar væntingar til nemenda sinna og reyndi allt- af að styrkja þekkingu þeirra og viðhorf. Róbert var vel liðinn af nem- endum, hann hélt uppi réttlátum aga og góðum kennsluháttum og fékk í staðinn kurteisi og frammistöðu frá þeim. Við leiðarlok vil ég þakka Ró- berti fyrir frábært samstarf og samveru í gegn um árin. Sem fyrrverandi skólastjóri við Breiðholtsskóla vil ég þó allra mest þakka honum, fyrir hönd hans fjölmörgu nemenda, alla þá frábæru kennslu og umhyggju sem hann veitti þeim. Minningin um góðan mann og frábæran kennara mun lifa með okkur. Ég færi Helgu og fjölskyld- unni allri innilegar samúðar- kveðjur. Ragnar Þorsteinsson. Það var alltaf gaman að koma í smiðjuna til afa og Jensa frænda, að sjá þegar „mjólkin“ rann á stálið þegar ver- ið var að skera lengjur og þegar stálkrullurnar komu frá renni- bekkjunum var algjört ævintýri. Ég fylgdi mömmu ótal sinnum inn í smiðju og í hvert sinn sá ég eitthvað nýtt og spennandi. Mig minnir að um helgar hafi afi keypt heit vínabrauð fyrir karl- ana í smiðjunni, þetta voru bestu vínarbrauð sem ég hef á ævinni smakkað. Hugsanlega er það góð minning sem yljar frekar en bakkelsið, ilmurinn og full kaffi- stofa af körlum að spjalla og fá sér kaffi og heit vínarbrauð. Afi var klár karl, hann var mjög góður í skák og kenndi mér mannganginn. Hann kenndi mér líka að vinnan göfgar manninn. Afi vildi ekki skulda neinum neitt og kenndi mér að eiga fyrir hlut- unum. Ég minnist þess þegar ég var 17 ára og var að spá í bíla- kaup, þá bauðst afi til að selja mér bíl sem þau Ingibjörg voru að fara að losa sig við. Við sömd- um um að ég myndi greiða að lág- marki 10.000 kr. hver mánaða- mót, en þar sem ég vann með menntaskóla var það gerlegt. Það sat þó í mér að það væri ekki gott að skulda þannig að ég kappkost- aði að greiða helst alltaf meira en Friðrik Hafsteinn Guðjónsson ✝ Friðrik Haf-steinn Guð- jónsson fæddist 8. febrúar 1927. Hann andaðist 20. desem- ber 2020. Útför Hafsteins fór fram 5. janúar 2021. 10.000 í hverjum mánuði. Þetta gladdi afa og þegar kom að því að ég átti eftir um 50.000 kr. af skuldinni sagði hann: „Jæja Sigrún, þar sem þú hefur verið svo dugleg að greiða af bílnum í hverjum mánuði og oft meira en um var samið ætla ég að gefa þér restina af skuldinni fyrir dugnaðinn.“ Afa þótti gaman að dansa og var virkilega góður dansari. Það var alveg óþarfi að kunna neitt í dansi til að dansa við hann. Afi elskaði líka að veiða, bæði fara í laxveiði og vera á sjónum. Hann átti trillu sem hét Hrólfur og voru ófá skiptin sem við fengum símtal um að koma niður á bryggju til að sækja fisk. Alltaf var ferskur fiskur á borðum heima, því voru mikil vonbrigði þegar ég varð fullorðin og keypti fisk í matvöru- búð sem var langt frá þeim gæð- um sem ég átti að venjast úr æsku. Ég man að mér þótti leiðinlegt að afi bauð mér aldrei með í veiði eða að fara út á sjó með sér en barnabörn konu hans fengu bæði að fara í laxveiði og út á sjó með afa. Afi var af gamla skólanum; hann sá um að vinna og skaffa til heimilisins en konan sá um fé- lagsleg tengsl. Þannig voru heim- sóknir til okkar færri en til barna- barna hennar. Mér þótti það miður en innst inni vissi ég að afa þótti samt vænt um mig. Hans leið var að gefa rausnarlegar gjafir þótt ég hafi alltaf frekar viljað njóta samvista með honum. Eftir andlát Ingibjargar og Jens frænda fannst mér afi breytast, hann varð þakklátari fyrir okkur barnabörnin og barnabarnabörnin. Ég minnist þess þegar hann lá eitt sinn á LSH eftir aðgerð og ég var að þrífa heyrnartækin hans, þá horfði hann á mig og þakkaði mér fyrir að sjá svona vel um sig. Við áttum mörg góð samtöl á þessum tíma og er ég þakklát fyrir þau. Afi kvaddi oft með „takk fyrir komuna“ og voru það hans síð- ustu orð til mín. Hvíl í friði elsku afi minn og takk fyrir allt, nú haldið þið Jens áfram að smíða á himnum. Þín Sigrún. Kveðja frá Kiwanis- klúbbnum Heklu Hafsteinn Guðjónsson fram- kvæmdastjóri gekk í Kiwanis- klúbbinn Heklu 10. desember 1968 og hefur því verið Kiwanis- félagi í 52 ár. 13. desember 2018 var hann sæmdur 50 ára gull- stjörnu klúbbsins. Hafsteinn var ötull og áhugasamur Kiwanis- félagi, hann var einn af stofn- félögum Nesklúbbsins sem var stofnaður 1971. Hafsteinn var þar forseti 1979-1980 og aftur 1998- 1999, auk annarra embætta sem hann var valinn til og hann sá meðal annars um uppsetningu á Kiwanisklukkunni á Eiðistorgi. Einnig má þakka honum sérstak- lega fyrir aðkomu hans við bygg- ingu Kiwanishússins við Engja- teig, með dyggum stuðningi. Hafsteinn gekk aftur í Heklu þegar Nesklúbburinn var sam- einaður Heklu 2006. Við Heklufélagar þökkum Haf- steini fyrir öll þau störf sem hann innti af hendi fyrir klúbbinn og Kiwanishreyfinguna. Við sendum samúðarkveðjur til aðstandenda. Fyrir hönd Heklufélaga, Sighvatur Halldórsson forseti Heklu. ✝ Axel Kvaranfæddist í Sig- urhæðum á Ak- ureyri 7. janúar 1932. Foreldrar hans voru Ágúst Kvaran, leikari og verslunarmaður á Akureyri, og kona hans Anna Eva Catherine Kvaran, fædd Schiöth. Systir Axels er Anna Lilja Kvaran, f. 28. októ- ber 1935. Systur Axels sam- feðra eru Þórdís Edda Kvaran, fædd 21. ágúst 1920, látin 21. febrúar 1981 og Hjördís Briem, fædd 2. nóvember 1929. Axel starfaði lengst sem aðal- varðstjóri í lög- reglunni í Reykja- vík en var líka um árabil forstöðu- maður Skilorðseft- irlits ríkisins. Hann var frum- kvöðull í iðkun sjó- sunds á Íslandi og var ötull stuðn- ingsmaður Knatt- spyrnufélags Akureyrar alla ævi. Eftirlifandi eiginkona hans er Jónína Ósk Kvaran. Axel lést á hjúkrunarheim- ilinu Eir 12. apríl 2020. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu fór út- för fram í kyrrþey. Faðir minn og alnafni hefði orðið 89 ára hinn 7. janúar. Hann lést síðastliðinn páskadag eftir stutt veikindi. Hann hafði verið heilsuveill síðustu tvö ár- in svo að baráttuþrekið var ekki mikið. Andlát hans fór hljótt í skugga heimsfaraldurs og langar mig því að minnast hans með nokkrum orðum. Pabbi hafði eins og allir af hans kynslóð upplifað tímana tvenna. Hann fæddist á Akur- eyri á fyrri hluta síðustu aldar. Akureyri var þá lítill bær og voru uppvaxtarárin pabba kær. Á Akureyri hafði á árum áður sest að mikið af dönsku fólki og átti pabbi ættir að rekja til þeirra. Það má því segja að pabbi hafi alist upp í dansk- akureyrsku umhverfi og stað- festi það af eigin reynslu að á Akureyri var töluð danska á sunnudögum. Konur í móður- ætt pabba stofnuðu Lystigarð- inn á Akureyri. Varð það fastur liður í heimsóknum norður að heimsækja Lystigarðinn og taka hópmynd við brjóstmynd af formóður okkar Margréti Schiöth. Ég heimsótti oft Ak- ureyri með pabba og sakna þess nú að hafa ekki skráð allar sögurnar hans úr bæjarlífinu. Pabbi varð stúdent frá MA. Útskriftarhópur hans var sam- heldinn og átti pabbi þar kæra ævilanga vini. Pabbi keppti í íþróttum fyrir KA á yngri árum og var mikill KA-maður. KA var stofnað á heimili afa hans og ömmu og KA-merkið aldrei langt undan. Bíllinn skartaði KA-fánanum og þegar einn okkar bræðra hljóp ofurmaraþon í Suður-Afr- íku var að sjálfsögðu tryggt að það væri KA-merki á hlaupa- bolnum. Leiðin lá svo til Reykjavíkur í laganám. Það átti að vera stutt námsdvöl en aldrei flutti hann aftur til Akureyrar. Hann kynntist móður okkar og lífið tók við. Hann hafði unnið sem lögreglumaður með náminu og þar kom að hann hætti námi og gerði lögreglustörfin að ævi- starfi. Hann fór til náms til Bandaríkjanna og var um ára- bil aðalvarðstjóri í lögreglunni í Reykjavík. Í lögreglunni kynntist hann sjósundi og var frumkvöðull í þeirri íþrótt ásamt starfsfélaga sínum Eyjólfi Jónssyni. Synti hann meðal annars Drangeyj- arsund og Vestmannaeyjasund. Þeir félagar ætluðu að reyna við Ermarsundið en urðu því miður að hætta við. Sundið var pabba kært og synti hann ætíð mikið. Síðar varð hann forstöðu- maður Skilorðseftirlits ríkisins og starfaði þar út starfsævina. Það starf átti vel við hann og átti umhyggja hans fyrir skjól- stæðingum sínum oft ríkan þátt í að þeir sneru lífi sínu á betri braut. Ef maður var á gangi með pabba og hitti skjólstæð- inga hans vildu þeir alltaf spjalla og greinilegt að þar var gagnkvæm virðing. Pabbi var hægur maður með mikið jafnaðargeð og eins og tamt var um menn af hans kyn- slóð flíkaði hann ekki mikið til- finningum sínum eða skoðun- um. Ævi pabba spannaði miklar breytingar í íslensku þjóðlífi. Að mér hefur læðst grunur um að stundum hafi hann átt erfitt með að fóta sig í þeim miklu breytingum og umbrotum. Það var því gott að sjá að síðustu æviárin virtist pabbi hafa tekið lífið í sátt og átti áhyggjulaust ævikvöld í sátt við sig og sína. Í lögreglunni átti hann í tals- verðum samskiptum við herlög- regluna og átti hann þar ævi- langa vini sem komu síðar oft til Íslands. Einu sinni var ég á ferð með einum þeirra og þá barst talið að Íslandi og því hversu vel hann nyti þessara heimsókna. Þá sneri hann sér að mér og sagði: „And Axel, yo- ur dad is the nicest man I have ever met.“ Ég held ég láti það vera lokaorðin. Axel Kvaran. Axel Kvaran Elskulegur bróðir okkar, TÓMAS REYNIR HAUKSSON rafvirkjameistari, Helsinki, Finnlandi, lést á heimili sínu í Helsinki föstudaginn 11. desember. Útför hans fer fram laugardaginn 9. janúar klukkan 8 að íslenskum tíma og verður streymt á vefslóðinni: https://hautaus-mononen.fi/palvelut/virtuaalihautajaiset/hautajai set-tomas-hauksson/ innskráning: tomhauk Fyrir hönd eiginkonu hans, barna, tengdabarna og barnabarna, Hafliði Pétursson Arnar Hauksson Vilhelmína Hauksdóttir Loftur B. Hauksson Kolbrún Hauksdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANNES HELGASON rafeindavirkjameistari, lést á Landakoti K-2 á Þorláksmessu. Útför fer fram í Bústaðakirkju mánudaginn 11. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Athöfninni verður streymt á slóðinni:https://youtu.be/YOeQSjB2vpY Fríða Sigurveig Traustadóttir Sigríður Jóhannesdóttir Björg Jóhannesdóttir Hringur Sigurðsson Olgeir Jóhannesson Margareth Hartvedt Una Jóhannesdóttir Óskar S. Magnússon Trausti Jóhannesson Steinunn L. Þorvaldsdóttir barnabörn og langafabörn Elsku hjartans dóttir mín, mamma okkar, tengdamamma, amma og langamma, MARÍA J. VALGARÐSDÓTTIR frá Sauðárkróki, lést laugardaginn 26. desember á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi. Útförin fer fram frá Glaumbæjarkirkju laugardaginn 9. janúar klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis nánustu ættingjar viðstaddir. Athöfninni verður steymt á vefslóðinni: https://youtu.be/0LTVOLhxLJA Jakobína R. Valdimarsdóttir Finna Guðrún Ragnarsdóttir Garðar Smárason Valgarður I. Ragnarsson Jórunn Sigurðardóttir Ragna María Ragnarsdóttir Guðmundur Hreinsson ömmu og langömmubörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR PÉTURSSON rafvirki, lést fimmtudaginn 31. desember á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður aðeins nánasta fjölskylda viðstödd. Streymt verður beint frá athöfninni á slóðinni https://www.facebook.com/groups/hilmarpetursson/ Kristinn Hilmarsson Sara Bertha Þorsteinsdóttir Aðalheiður Héðinsdóttir Hörður Hilmarsson Guðrún Finnsdóttir afa- og langafabörn Elskulegur faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og frændi, SIGURGEIR BJARNI GUÐMANNSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 30. desember. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra. Rannveig Sigurgeirsdóttir Sverrir Jónsson Elín Guðmannsdóttir Bára Guðmannsdóttir Alda Guðmannsdóttir Anna S. Guðmundsdóttir Guðmann Sigurgeir, Bára og Bára Vilborg systkinabörn og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.