Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
✝ AðalheiðurBenedikta
Ormsdóttir fæddist
á Hólmavík 30. maí
1933. Hún lést á
Sjúkrahúsi Siglu-
fjarðar 19. desem-
ber 2020. Hún var
dóttir Orms Haf-
steins Samúelsson-
ar hreppstjóra, f.
1888, d. 1951, og
Jóhönnu Daníels-
dóttur, f. 1896, d. 1986. Aðal-
heiður átti einn albróður, Jón
Ormar, f. 1938, og tvo hálf-
bræður samfeðra, þá Jón Ólaf,
f. 1920, og Halldór Zakarías, f.
1922, d. 2003, auk uppeldis-
bróður sem var Ragnar H.
Valdimarsson, f. 1918, d. 1996.
Aðalheiður giftist árið 1953
Halldóri Þormari Jónssyni, f.
19. nóvember 1929, d. 14. des-
ember 1995. Halldór var við
ævilok sýslumaður á Sauðár-
króki. Börn þeirra eru: 1)
Hanna Björg, f. 29. desember
1952. Hún á tvö börn með Erni
Ólafssyni, Rúnar Þór, f. 1974,
og Auði Sif, f. 1978. Rúnar er
kvæntur Sigríði Láru Geirdal
og á hún dótturina Selmu Rán
Hlinadóttur, f. 2001. Auður er
gift Vali Árnasyni og eiga þau
börnin Júlíu, f. 2004, Jóhannes,
börnin Sóleyju Pálu, f. 2014, og
Elmar Frosta, f. 2018. Sam-
býlismaður Unu er Jón Kort
Snorrason. Þau eiga soninn
Andra Berg, f. 2020. Sambýlis-
maður Ólafar er Björn Sindri
Eiríksson. Þau eiga soninn
Viktor Breka, f. 2018, en Ólöf á
dótturina Anítu Maren, f. 2012,
með Örvari Andra Sævarssyni.
Aðalheiður ólst upp á Hólma-
vík og sótti unglingaskóla að
Reykjum í Hrútafirði. Hún flutti
ung til Reykjavíkur þar sem
hún starfaði í atvinnumálaráðu-
neytinu. Aðalheiður stofnaði
þar fjölskyldu ásamt Halldóri
eiginmanni sínum, en árið 1957
fluttu þau til Stykkishólms og
svo til Sauðárkróks árið 1960,
þar sem þau bjuggu nær óslitið
fram til ársins 1995 þegar Hall-
dór lést. Þau bjuggu um
tveggja ára skeið á Siglufirði
frá 1980-1982. Aðalheiður vann
ýmis skrifstofustörf á þessum
tíma og síðasta starf hennar var
við þinglýsingar hjá sýslu-
mannsembættinu á Sauðár-
króki. Hún flutti til Reykjavíkur
árið 1996 og bjó þar fram til
ársins 2012, en þá flutti hún til
Siglufjarðar og bjó þar til ævi-
loka. Aðalheiður hafði mikinn
áhuga á sagnfræði, ekki síst
kvennasögu, trúarbragðafræði
og bókmenntum. Hún ritaði
bókina „Við Ósinn“ sem kom út
1987 og greinar um sögulegt
efni.
Úför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju hinn 7. janúar
2021.
f. 2006, og Hönnu,
f. 2015. 2) Jón
Ormur, f. 5. mars
1954. Hann á börn-
in Gunnar Hrafn, f.
1981, með Jónínu
Leósdóttur og
Klöru Benediktu, f.
2001, og Tómas
Jökul, f. 2005, með
Auði Eddu Jök-
ulsdóttur. Gunnar
á dótturina Nínu, f.
2014, með Kolbrúnu Kristínu
Karlsdóttur. 3) Ingibjörg f. 28.
apríl 1958, gift Hermanni Jón-
assyni. Þau eiga börnin Helgu,
f. 1976, og Halldór Þormar, f.
1984. Helga er gift Jóni Sal-
mannssyni og eiga þau börnin
Hermann Inga, f. 1995, og Rut,
f. 2001. Hermann er í sambúð
með Ólöfu Þóru Tómasdóttur
og eiga þau börnin Oliver Ares,
f. 2017, og Iðunni Ýri, f. 2018. 4)
Halldór Þormar, f. 1964, kvænt-
ur Hönnu Björnsdóttur, f. 1960.
Hanna á með Sighvati Elefsen
börnin Björn, f. 1980, Höskuld,
f. 1985, og Unu og Ólöfu, f.
1989. Björn er kvæntur Þórunni
Grétarsdóttur og eiga þau
börnin Mörtu, f. 2007, Tryggva,
f. 2010, og Óttar, f. 2015. Sam-
býliskona Höskuldar er Edda
Rut Þorvaldsdóttir og eiga þau
Í dag kveð ég elskulegu
tengdamóður mína Aðalheiði
Benediktu Ormsdóttur sem hefur
verið stór hluti af lífi mínu til 22
ára. Þessi einstaka kona hefur
reynst mér sem móðir, en ég
missti móður mína aðeins 31 árs
að aldri og vantaði því margt í líf
mitt þar til ég kynntist henni. Á
meðan hún bjó í Reykjavík þurfti
ég oft að vera þar vegna starfa
minna og átti með henni margar
ógleymanlegar og ljúfar stundir
við spjall um heimsmálin, búðar-
ferðir og rabb. Stundum komu
systur mínar í heimsókn og
drukku með okkur kaffi en þær
höfðu af henni svipaða upplifun og
ég. Hún ræddi oft heimsmálin,
enda fylgdist hún vel með öllu sem
var að gerast og las fréttamiðla á
hverjum degi á fleiri en einu
tungumáli. Hún var hafsjór af
fróðleik og visku um lífið sem hún
miðlaði óspart og þegar hún talaði
um sagnfræði, listir og stjórnmál,
hlustaði fólk oft agndofa yfir því
sem hún hafði fram að færa. Það
var alltaf hægt að fræðast við að
hlusta á hana eða ræða áhugamál
okkar sem voru handavinna, garð-
rækt og ferðalög. Eftir hana ligg-
ur mikið af fallegri og vandaðri
handavinnu, en hún vildi líka
leggja sitt af mörkum og heklaði
meðal annars tugi teppa sem hún
gaf Barnaspítala Hringsins og síð-
ar spítölum á Grænlandi. Þetta
lýsir henni vel. Við hjónin fórum í
nokkur ógleymanleg ferðalög með
henni. Þar má nefna siglingu um
Breiðafjörð og ferð norður á
Strandir. Þetta voru staðir þar
sem rætur hennar lágu og hún
naut að heimsækja. Hún var alltaf
svo ánægð þegar okkur datt í hug
að fara í einhverja bíltúra, hvort
sem það var til næsta bæjarfélags
eða bara út í sveitina og hafði hún
orð á hvað við værum dugleg að
fara með „gamlingjana“ í bíltúr,
en þar átti hún við sig og hundinn
okkar Plató, sem henni þótti mjög
vænt um.
Sú væntumþykja var endur-
goldin, enda lumaði hún oft á
harðfiskbita og öðru góðgæti.
Stundum voru heimsótt kaffihús
og blaðað í tímaritum og bókum
sem henni þótti nauðsynleg nær-
ing fyrir sálina. Aldrei fór hún úr
húsi nema uppáklædd því hún var
mjög smekkleg og átti falleg,
klassísk og vönduð föt. Hún var
líka einstakur fagurkeri og safn-
aði á langri ævi mörgum fallegum
hlutum, sem hún gaf líka af sínu
stóra hjarta til þeirra sem kunnu
að meta þá. Á 86 ára afmælisdeg-
inum hlotnaðist mér sá heiður að
vera stödd með henni í Færeyjum,
en þangað fórum við ásamt eldri
borgurum á Siglufirði. Þetta var
staður sem hana hafði langað mik-
ið til að heimsækja. Við skemmt-
um okkur konunglega og fífluð-
umst mikið, eins og við gerðum
oft, en mestu máli skipti hvað hún
var sæl og ánægð að eyða þessum
degi á þessum stað.
Hún tengdamóðir mín var ein-
stök og yndisleg kona og þakka ég
fyrir að hafa fengið að kynnast
henni svona náið. Ég hef aldrei
kynnst neinum sem bjó yfir slíkri
visku og fordómaleysi sem hún
átti. Hún tók fjórum börnum mín-
um á sama hátt og þau væru henn-
ar eigin afkomendur og reyndist
þeim ómetanlega vel í alla staði.
Ég kveð hana með miklum
söknuði en veit að hún er komin á
góðan stað. Elsku tengdamamma,
takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir
mig og með mér. Hvíldu í friði.
Hanna Björnsdóttir.
Elsku besta amma Stella.
Það er okkur alveg óskiljanlegt
að þú sért farin frá okkur og það
eru fá orð til yfir það hversu mikið
við söknum þín. Það mun taka
okkur langan tíma að sætta okkur
við að þú ert ekki lengur til staðar
með þína miklu ást og umhyggju.
Það verður okkur erfitt að koma
til Sigló vitandi það að amma
Stella verði ekki lengur með okk-
ur.
Við munum þó á endanum
sætta okkur við það, því við vitum
að nú ert þú umvafin svo mörgum
öðrum sem elska þig eins og við
gerum. Við erum svo þakklátar
fyrir að hafa kynnst þér. Þú
kenndir okkur systrum svo margt
og eitt það dýrmætasta sem þú
kenndir okkur, er að vera þakk-
látar fyrir lífið. Aldrei höfum við
kynnst manneskju sem þakkaði
jafn oft fyrir það eitt að fá að lifa
svona lengi og að fá að „borga líf-
inu til baka“ eins og þú orðaðir
það. Allar þær minningar sem við
fengum að skapa með þér eru okk-
ur ómetanlegar.
Við gerðum svo ótalmarga hluti
saman og má þá helst nefna pæju-
ferðirnar okkar í Portúgal, allar
súpurnar sem þú eldaðir fyrir
okkur á Kvisthaganum, öll jól og
áramót sem við fengum að verja
með þér, teppin sem þú heklaðir
og sagðir við okkur að það væri
„love í hverri lykkju“. Svo rúnt-
arnir yfir á Ólafsfjörð til þess að
kaupa meira garn, vindlalyktin
sem okkur hefur alltaf þótt svo
góð og hvað þú varst hrædd við
Plató fyrst þegar þið hittust en
eftir að þú kynntist honum urðuð
þið bestu vinir. Hann var reyndar
alltaf ánægður með þig, enda fékk
hann reglulega nammi frá þér ef
hann bara myndi „gyssa ömmu“.
Það var svo gaman að sjá ykkur
gamlingjana saman. Sú minning
sem er okkur hvað kærust er sú
hvað þú varst alltaf góð við okkur
og alla þá ást og hlýju sem þú hef-
ur umvafið okkur frá því við fyrst
hittumst.
Þú varst líka svo dugleg að
minna okkur systur á hvað þú
værir stolt af okkur og að við vær-
um bónusbörnin þín. Ekki af því
að við unnum í Bónus heldur af því
að þér fannst þú hafa verið heppin
að fá svona auka börn. Ekki má
svo gleyma
Unu Theodóru og Ólöfu Theo-
dóru sem þú kallaðir okkur systur
alltaf og sagðir okkur að Theodóra
þýddi guðsgjöf. Okkur er líka
minnisstætt hversu fróð og vitur
þú varst. Þú kunnir svör og ráð við
öllu og það var hægt að tala um
allt við þig og fá ráð úr þínum
óendanlega djúpa brunni. Það var
ótrúlegt að hlusta á þig tala um
það sem þú vissir. Þú varst líka
svo dugleg að afla þér fróðleiks.
Hvort sem það var um tölvuna
þína á öllum erlendu miðlunum
sem þú skoðaðir eða úr bókum af
bókasafninu sem voru svo gamlar
sumar að þær voru skrifaðar með
bókstafnum z. Ekki má svo heldur
gleyma að þú hafir farið í háskóla
á þínum efri árum að gamni þínu.
Það sem okkur systrum fannst
það fyndið á sama tíma og okkur
fannst það svo töff. Elsku amma
Stella, við lofum því að halda alltaf
efst í huganum dýrmætu minning-
unum af okkur saman. Þú átt eftir
að eignast mun fleiri barnabarna-
börn og við lofum þér því amma,
að þau fá öll að heyra fullt af sög-
um um þig.Hafðu það sem allra
best, elsku amma Stella, við elsk-
um þig svo heitt.
Þínar rúsínu- og rjómabollur,
Una og Ólöf.
Aðalheiður Benedikta – eða
amma Benedikta eins og börnin
mín kölluðu hana alltaf – var ein-
stök kona í okkar lífi. Börnin
þekktu hana af kærleika og gjaf-
mildi – og um leið af miklum húm-
or og þeirri gleði og þakklæti sem
einkenndu hana sífellt meira eftir
því sem á ævina leið. Þetta voru
ríflega 25 ár sem við áttum sam-
leið sem tengdamóðir og tengda-
dóttir og fyrir tímann með henni
er ég innilega þakklát. Það sem ég
tók alltaf mest eftir í fari Aðalheið-
ar, umfram það sem börnin mín
sáu svo skýrt, var hennar mikli
fróðleiksþorsti og þörf fyrir að
rannsaka og skilja þá hluti sem
áttu hug hennar. Það var saga og
réttindabarátta kvenna bæði er-
lendis og hér heima, miðaldir hér
á landi og í Evrópu og svo guð-
fræði, sérstaklega kvennaguð-
fræði, sem fönguðu huga hennar
mest. Hún kallað þetta grúsk og
forvitni en hún náði seint á ævinni
að skrifa ritgerðir um kvennasögu
sem birtust í tímaritum og bókum.
Hún settist líka á skólabekk í Há-
skóla Íslands eftir að flytja til
Reykjavíkur á sjötugsaldri í kjöl-
far andláts Halldórs mannsins
síns sem var sýslumaður Skag-
firðinga öll þeirra síðustu ár sam-
an.
Hér syðra sótti hún í nokkur ár
námskeið í sagnfræði, bókmennt-
um og kynjafræði. Það fór ekki
framhjá neinum sem þekkti Að-
alheiði vel að þarna var hún að
taka upp þráð sem hafði slitnað á
unglingsárum og það ekki sárs-
aukalaust.
Aðalheiður hefði án nokkurs
vafa lagt fyrir sig langt háskóla-
nám og sennilega eytt starfsæv-
inni við einhvers konar rannsókn-
ir ef hún hefði átt þess kost. En
Ísland, og heimurinn allur, var
öðru vísi um miðja síðustu öld og
örlög kvenna mótuðust af þröng-
um skorðum sem samfélagið setti
þeim. Hún fékk hins vegar að sjá
tímana breytast og gladdist mjög
yfir jákvæðri þróun jafnréttis-
mála og verulega auknum tæki-
færum kvenna til að gera sig gild-
andi á öllum sviðum bæði hér
heima og erlendis. Ég hugsa með
þakklæti til hennar fyrir stuðning
og hvatningu í minn garð og
barnanna og gleðst einnig yfir því
að hún sjálf fékk að lokum tæki-
færi til þess að sinna því því sem
hugur hennar stóð alltaf til. Sjálf
var Aðalheiður innilega þakklát
fyrir sitt líf. Hún átti mjög fallegt
ævikvöld þar sem hún las hvern
dag dagblöð á þremur tungumál-
um, sem hún hafði að mestu kennt
sér sjálf, heklaði teppi í hundr-
aðavís til fjáröflunar fyrir Barna-
spítalann og bágstödd börn víða
um heim og hafði yfir fögur ljóð og
vitur sem höfðu fylgt henni í gegn-
um lífið. Það var fallegt að sjá góð-
vildina og þakklætið sem ein-
kenndu hana æ meir eftir því sem
árin liðu. Börnin okkar Jóns
Orms, Klara Benedikta, sem ber
nafn ömmu sinnar, og Tómas Jök-
ull, syrgja yndislega ömmu.
Börnum og barnabörnum Að-
alheiðar votta ég mína dýpstu
samúð.
Ég kveð þessa dugmiklu, kláru
og góðu konu af virðingu og með
djúpu þakklæti.
Blessuð sé minning hennar.
Auður Edda Jökulsdóttir.
Aðalheiður Bene-
dikta Ormsdóttir
Sálm. 9.11
biblian.is
Þeir sem þekkja
nafn þitt treysta
þér því að þú,
Drottinn, bregst
ekki þeim sem til
þín leita. Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Elskulegur bróðir okkar og mágur,
SIGURÐUR KRISTINN EINARSSON,
Álftarima 3, Selfossi,
lést á Ljósheimum mánudaginn 4. janúar.
Einar Hólm Ólafsson
Jarþrúður Einarsdóttir Sigurbjörn Árnason
Margrét Einarsdóttir
Sonja I. Einarsdóttir Hrafn Stefánsson
Elskulegur eiginmaður minn,
HREINN GUNNARSSON,
Þórarinsstöðum, Hrunamannahreppi,
lést á Fossheimum sunnudaginn 3. janúar.
Útförin fer fram frá Hrunakirkju
laugardaginn 9. janúar. Í ljósi aðstæðna
verður athöfninni streymt á facebooksíðu Hrunaprestakalls
www.facebook.com/hrunaprestakall klukkan 15:30.
Steinunn Þorsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HERMANN ÁGÚST,
Engjavegi 53, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum á
Selfossi sunnudaginn 3. janúar.
Guðmunda Auður Auðunsdóttir
Auðunn Hermannsson Bergþóra Þorkelsdóttir
Birna G. Hermannsdóttir Björn Sigþórsson
Hulda Soffía Hermannsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Auður Á. Hermannsdóttir Guðjón Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN MARÍA TÓMASDÓTTIR,
húsmóðir og skólaritari,
áður til heimilis á Laugalæk 48,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
miðvikudaginn 30. desember. Útförin fer fram frá Stafholtskirkju
í Borgarfirði, 16. janúar klukkan 13 að viðstaddri nánustu
fjölskyldu og ættingjum.
Tómas Jóhannesson Pálína Héðinsdóttir
Helgi Jóhannesson Gunnlaug Helga Einarsdóttir
Sigríður Jóhannesdóttir Skarphéðinn B. Steinarsson
Guðmundur Þ. Jóhannesson Laufey Ása Bjarnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn,
SVEINN SVEINSSON
sjómaður,
Vopnafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sundabúð
fimmtudaginn 31. desember.
Útförin fer fram frá Vopnafjarðarkirkju laugardaginn 9. janúar
klukkan 13. Jarðsett verður í Hofskirkjugarði. Streymt verður frá
athöfninni í facebookhópnum Útför Sveins Sveinssonar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Valgerður H. Friðriksdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
DR. JAKOB MAGNÚSSON
fiskifræðingur,
lést 1. janúar á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 13. janúar klukkan 15. Vegna aðstæðna verða
aðeins nánustu ættingjar viðstaddir. Útförinni verður streymt á
slóðinni: utfor-dr-jakobs-magnussonar.is
Vilhelmína Vilhelmsdóttir
börn, tengdabörn og barnabörn