Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 53

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Marta María mm@mbl.is Hæ. Ég er með slæm ör í húðinni eft- ir unglingabólur, sérstaklega á kinnum. Hefur ekkert truflað mig mikið en svo allt í einu eru þau farin að fara í taugarnar á mér og ég var að velta því fyrir mér hvað ég geti gert. Hvaða meðferðir eru bestar við svona örum? Kveðja, BB Komdu sæl. Þrymlabólur (acne vulgaris) og innfallin ör vegna þeirra eru einn af algengustu húðsjúkdómunum sem við húðlæknar meðhöndlum. Það er mikilvægt að hafa í huga að ör eftir bólur eru mjög mismunandi og þar af leiðandi alls ekki ein meðferð sem hentar öllum. Oftast eru þau innfallin í húðina og sjást betur í vissri lýsingu sem skuggar í húð- inni, en stundum geta þau verið úti- standandi. Í meginatriðum ganga allar meðferðirnar út á það að minnka sýnileika þeirra og til þess notum við medical peel, lasera, ör- nálarmeðferð (Dermapen) eða jafn- vel skurðaðgerðir og fylliefni eftir því hve djúp þau eru. Því fyrr sem meðhöndlunin byrj- ar því betri verður árangurinn en það er alltaf hægt að minnka sýni- leika allra öra. Flestir ná um 70- 80% bata eftir meðferðirnar. Hvaða meðferð hentar fer eftir útliti ör- anna, aldri þeirra og húðgerð þinni. Hér dugar yfirleitt aldrei nein ein meðferð og besti árangurinn næst með því að nota margar ólíkar með- ferðir saman. Hvert meðferðarplan getur tekið frá 2 til 14 mánaða, en lengd meðferðarinnar fer eftir gerð og alvarleika öranna ásamt húð- gerðinni. Innföllnum örum eftir þrymlaból- ur (acne scars) er í megindráttum skipt niður í nokkrar gerðir eftir útliti og dýpt, eða; rúllandi (rolling) ör, kassalaga (boxcar) ör og ísnála- (ice-prick) ör. Flestir hafa margar gerðir af örum í einu og þá þarf að beita ólíkum meðferðartegundum til að ná góðum árangri þar sem ör- in liggja misdjúpt í húðinni. Yfir- leitt nær meðferðarplanið yfir 6-12 mánuði. Ef örin eru væg eða lítið sýnileg þá geta nokkur meðferðarskipti með medical peel verið nægjanlegt. Medical peel er mjög góð meðferð við ysta lagi húðarinnar og bætir því einnig við árangurinn eftir djúpa picolaserinn sem tekur örin í dýpri lögum húðarinnar. Rann- sóknir hafa sýnt fram á að medical peel með sterkum AHA-sýrum virkar betur á ör eftir þrymlabólur en örnálarmeðferð (Dermapen). Fractionell laser eða picolaser eins og við notum virkar þannig að lasergeislinn sem er beint að húð- inni dreifist þannig að hann gerir mörg lítil göt í aðeins örlítinn hluta húðarinnar (fraction of the skin) og skilur eftir heila húð á milli gat- anna. Hve djúpt hann fer og með hve miklum krafti stillum við fyrir hverja meðferð, en það fer eftir gerð öranna og húðgerð viðkomandi einstaklings. Árangurinn getur komið í ljós eftir einungis nokkrar vikur en hámarksárangri er oft ekki náð fyrr en eftir hálft ár þar sem bandvefurinn sem örvast getur verið mjög lengi að taka við sér. Þegar örin eru mjög djúp þarf stundum að skera þau í burtu. Einnig er algengt að við húðlæknar notum tækni sem kallast „sub- cision“ ef örin eru föst við undir- lagið og renna saman í stórt svæði. Þá er svæðið staðdeyft og farið með óbeittri nál undir húðina og örvef- urinn losaður. Með þessari aðferð næst enn betri árangur með hinum meðferðunum sem koma svo í kjöl- farið. Fylliefni geta virkað mjög vel gegn innföllnum örum. Árangurinn kemur þá yfirleitt strax í ljós og batatíminn nær enginn. Sumir sjúk- lingar þurfa nokkur meðferðar- skipti til að ná góðum árangri, eða 2-4 meðferðir, en margir þurfa bara eina meðferð. Þegar við notum fylli- efnin sem meðferð við örum þá ger- um við yfirleitt „subcision“ um leið eða losum um örvefinn undir húð- inni. Fylliefnin virkja svo nýmynd- un kollagens og einnig virkjast við- gerðarferli húðarinnar við „skaðann“ sem myndast í húðinni við bæði nálarstunguna og losun örvefjarins. Stundum þarf að end- urtaka meðferðina eftir 1-2 ár. Örnálarmeðferð eða Dermapen getur virkað gegn vægum nýlegum örum. Dermapen örvar nýmyndun kollagens eins og djúpi picolaserinn en okkar reynsla er að picolaserinn er mun áhrifaríkari og notum við því hann frekar en Dermapen sem örameðferð. Ég myndi ráðleggja þér að leita til húðlæknis til að fá ráðgjöf hvaða meðferð hentar þér best og setja upp meðferðarplan. Gangi þér vel! Kær kveðja, Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir. Er hægt að losna við ör eftir unglingabólur? Jenna Huld Eysteins- dóttir húðlæknir á Húð- læknastöðinni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu varðandi ör eftir unglingabólur og hvað sé til ráða til að lagfæra húðina. Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir Húðvandamál Jenna Huld Eysteins- dóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni hefur mikla þekkingu á sínu sviði. Árangur Hér sést hvernig húðin skánaði eftir að hafa verið meðhöndluð af Jennu Huld húðlækni. Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Jennu Huld spurningu inni á Smartlandi á mbl.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.