Morgunblaðið - 07.01.2021, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021
Marta María
mm@mbl.is
Hæ.
Ég er með slæm ör í húðinni eft-
ir unglingabólur, sérstaklega á
kinnum. Hefur ekkert truflað mig
mikið en svo allt í einu eru þau
farin að fara í taugarnar á mér og
ég var að velta því fyrir mér hvað
ég geti gert. Hvaða meðferðir eru
bestar við svona örum?
Kveðja,
BB
Komdu sæl.
Þrymlabólur (acne vulgaris) og
innfallin ör vegna þeirra eru einn af
algengustu húðsjúkdómunum sem
við húðlæknar meðhöndlum. Það er
mikilvægt að hafa í huga að ör eftir
bólur eru mjög mismunandi og þar
af leiðandi alls ekki ein meðferð
sem hentar öllum. Oftast eru þau
innfallin í húðina og sjást betur í
vissri lýsingu sem skuggar í húð-
inni, en stundum geta þau verið úti-
standandi. Í meginatriðum ganga
allar meðferðirnar út á það að
minnka sýnileika þeirra og til þess
notum við medical peel, lasera, ör-
nálarmeðferð (Dermapen) eða jafn-
vel skurðaðgerðir og fylliefni eftir
því hve djúp þau eru.
Því fyrr sem meðhöndlunin byrj-
ar því betri verður árangurinn en
það er alltaf hægt að minnka sýni-
leika allra öra. Flestir ná um 70-
80% bata eftir meðferðirnar. Hvaða
meðferð hentar fer eftir útliti ör-
anna, aldri þeirra og húðgerð þinni.
Hér dugar yfirleitt aldrei nein ein
meðferð og besti árangurinn næst
með því að nota margar ólíkar með-
ferðir saman. Hvert meðferðarplan
getur tekið frá 2 til 14 mánaða, en
lengd meðferðarinnar fer eftir gerð
og alvarleika öranna ásamt húð-
gerðinni.
Innföllnum örum eftir þrymlaból-
ur (acne scars) er í megindráttum
skipt niður í nokkrar gerðir eftir
útliti og dýpt, eða; rúllandi (rolling)
ör, kassalaga (boxcar) ör og ísnála-
(ice-prick) ör. Flestir hafa margar
gerðir af örum í einu og þá þarf að
beita ólíkum meðferðartegundum
til að ná góðum árangri þar sem ör-
in liggja misdjúpt í húðinni. Yfir-
leitt nær meðferðarplanið yfir 6-12
mánuði.
Ef örin eru væg eða lítið sýnileg
þá geta nokkur meðferðarskipti
með medical peel verið nægjanlegt.
Medical peel er mjög góð meðferð
við ysta lagi húðarinnar og bætir
því einnig við árangurinn eftir
djúpa picolaserinn sem tekur örin í
dýpri lögum húðarinnar. Rann-
sóknir hafa sýnt fram á að medical
peel með sterkum AHA-sýrum
virkar betur á ör eftir þrymlabólur
en örnálarmeðferð (Dermapen).
Fractionell laser eða picolaser
eins og við notum virkar þannig að
lasergeislinn sem er beint að húð-
inni dreifist þannig að hann gerir
mörg lítil göt í aðeins örlítinn hluta
húðarinnar (fraction of the skin) og
skilur eftir heila húð á milli gat-
anna. Hve djúpt hann fer og með
hve miklum krafti stillum við fyrir
hverja meðferð, en það fer eftir
gerð öranna og húðgerð viðkomandi
einstaklings. Árangurinn getur
komið í ljós eftir einungis nokkrar
vikur en hámarksárangri er oft
ekki náð fyrr en eftir hálft ár þar
sem bandvefurinn sem örvast getur
verið mjög lengi að taka við sér.
Þegar örin eru mjög djúp þarf
stundum að skera þau í burtu.
Einnig er algengt að við húðlæknar
notum tækni sem kallast „sub-
cision“ ef örin eru föst við undir-
lagið og renna saman í stórt svæði.
Þá er svæðið staðdeyft og farið með
óbeittri nál undir húðina og örvef-
urinn losaður. Með þessari aðferð
næst enn betri árangur með hinum
meðferðunum sem koma svo í kjöl-
farið.
Fylliefni geta virkað mjög vel
gegn innföllnum örum. Árangurinn
kemur þá yfirleitt strax í ljós og
batatíminn nær enginn. Sumir sjúk-
lingar þurfa nokkur meðferðar-
skipti til að ná góðum árangri, eða
2-4 meðferðir, en margir þurfa bara
eina meðferð. Þegar við notum fylli-
efnin sem meðferð við örum þá ger-
um við yfirleitt „subcision“ um leið
eða losum um örvefinn undir húð-
inni. Fylliefnin virkja svo nýmynd-
un kollagens og einnig virkjast við-
gerðarferli húðarinnar við
„skaðann“ sem myndast í húðinni
við bæði nálarstunguna og losun
örvefjarins. Stundum þarf að end-
urtaka meðferðina eftir 1-2 ár.
Örnálarmeðferð eða Dermapen
getur virkað gegn vægum nýlegum
örum. Dermapen örvar nýmyndun
kollagens eins og djúpi picolaserinn
en okkar reynsla er að picolaserinn
er mun áhrifaríkari og notum við
því hann frekar en Dermapen sem
örameðferð.
Ég myndi ráðleggja þér að leita
til húðlæknis til að fá ráðgjöf hvaða
meðferð hentar þér best og setja
upp meðferðarplan. Gangi þér vel!
Kær kveðja,
Jenna Huld Eysteinsdóttir
húðlæknir.
Er hægt að losna við ör
eftir unglingabólur?
Jenna Huld Eysteins-
dóttir húðlæknir á Húð-
læknastöðinni svarar
spurningum lesenda
Smartlands. Hér fær
hún spurningu varðandi
ör eftir unglingabólur og
hvað sé til ráða til að
lagfæra húðina.
Ljósmynd/Gígja Einarsdóttir
Húðvandamál Jenna Huld Eysteins-
dóttir húðlæknir á Húðlæknastöðinni
hefur mikla þekkingu á sínu sviði.
Árangur Hér sést hvernig húðin skánaði eftir að hafa verið meðhöndluð af Jennu Huld húðlækni.
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú
getur sent Jennu Huld spurningu
inni á Smartlandi á mbl.is.