Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 54

Morgunblaðið - 07.01.2021, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 SUNNUDAGSSTEIK Við eldum, þú sækir, tilbúið beint á borðið hjá þér! Heilt lambalæri á gamla mátann • Koníaksbætt sveppa-piparsósa, kartöflugratín, rauðkál og salat • Marengsbomba Fyrir 4-6 manns Verð 12.990 kr. Pantaðu fyrir kl.18 laugardaginn 9. jan. á info@matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000. Afhent milli 17.30 og 19.00 sunnudaginn 10. jan. TAKE AWAY 25% afsláttur af sérstökum Take Away matseðli ef þú sækir Frí heimsending á pöntunum yfir 10.000 kr. gildir ekki með öðrum tilboðum. Aðalstræti 2, 101 Rvk. |www.matarkjallarinn.is Takmarkað magn í boði Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is Svokallaðar safahreinsanir njóta mikilla vinsælda en þær hjálpa lík- amanum að hreinsa sig og núllstilla. Að sögn Karenar Jónsóttur sem á og rekur Matbúr Kaju hefur ásókn- in farið fram úr björtustu vonum nú í upphafi árs. „Ég hef venjulega boðið upp á svona hreinsanir tvisvar á ári en nú er ég að fjölga þeim verulega sem er virkilega ánægjulegt enda hafa flestir gott af því að hreinsa líkam- ann með þessum hætti, segir Kaja en hreinsunin stendur yfir í viku og fá þátttakendur daglegan skammt af samsettum söfum sem hugsaðir eru til að hreinsa og næra líkamann eins vel og kostur er. Eingöngu er notað hágæða lífrænt hráefni en Kaja segir það mikilvægan hluta af hreinsuninni enda sé eitt af mark- miðunum að ná sem bestri hreins- un. Uppljómun á fimmta degi „Fólk finnur mikinn mun, segir Kaja. „Fyrstu tveir til þrír dagarnir eru erfiðir, sérstaklega þegar fólk er að fara í hreinsun í fyrsta sinn, en á þriðja til fimmta degi verður oft svokölluð uppljómun. Bólgur minnka og jafnvel hverfa, skapið verður léttara og svo verður bara öll líðan svo einstök. Ég fer í safa- hreinsun tvisvar á ári; á vorin og svo haustin og það heldur mér gangandi,“ segir Kaja um safa- hreinsunina en slíkar hreinsanir hafa notið mikilla vinsælda og hafa sannað gildi sitt. „Í upphafi var ég ein að vesenast í þessu en í gegnum árin hef ég fengið samferðafólk sem hefur hrifist af safahreinsunni og í dag er þetta orðið að námskeiði sem haldið er tvisvar á ári. Safahreins- unin er ekki megrunarkúr heldur er horft á að hvíla líffærin og gefa þeim tækifæri á að hreinsa út og fara í smá naflaskoðun og núllstilla sig. Núllstilling auðveldar að ná tökum á breyttum lífsstíl og að gera drastískar breytingar á mataræði. Safahreinsanir njóta mikilla vinsælda Mikil ásókn er í safa- hreinsanir á nýju ári enda fólk almennt tilbú- ið að takast á við nýjar áskoranir og þyrst í taka til í lífsstílnum með hækkandi sól eftir þung- an og erfiðan vetur. Morgunblaðið/Eggert Nauðsynlegt Þeir sem prófa að taka alvöru safahreinsun eru yfirleitt ólmir í að endurtaka leikinn. Hægt er að skrá sig á Facebook-síðu Matarbúrs Kaju. Veganúar er brostinn á með öllum sínum frábæru vegan-nýjungum og nú hefur Dom- inós bætt í og er með þrennt meðlæti á mat- seðlinum sem er vegan en þar af er tvennt nýtt. Um er að ræða gömlu góðu brauðstang- irnar sem núna hafa verið baðaðar í sterkri cajun kryddolíu, vinsæla kanilgottið sem er nú bakað úr létta deiginu en þar er notuð kanilolía í stað kanilsmjörs. Að síðustu eru það kartöflubátarnir sem eru og hafa alltaf verið vegan. Að sögn Helgu Thors, markaðsstjóra Dominós, er þetta forsmekkurinn að vegan úrvali á Veganúar og verður bætt við vegan úrvalið hægt og rólega út janúar. Þess megi jafnframt geta að pizzan Vegas er vegan pizza en hún kom á matseðil í fyrra og var unnin með vegan rýnihópi Dominós. Það sé kannski ekki hægt að segja að grænkerar séu stór hópur viðskiptavina hjá Dominós, en hann fer stöðugt vaxandi auk þess sem Ve- gas hefur verið vinsæl hjá grænmetisætum og öðrum sem huga almennt að heilsunni. Það sé því afar ánægjulegt að geta boðið upp á breiðara vöruúrval fyrir þann hóp. Vegan veisla Tvennt nýtt vegan meðlæti er nú komið á matseðil Dominós og fleira væntanlegt. Nýtt vegan meðlæti á matseðli Dominós

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.