Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 63

Morgunblaðið - 07.01.2021, Side 63
MENNING 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Titill gamanmyndarinnarThe Forty-Year Old Vers-ion vísar til hins gríðar-vinsæla grínslagara The Forty-Year Old Virgin sem skart- aði Steve Carrell í hlutverki fávísa hreina sveinsins. Útúrsnúningurinn er til þess gerður að fanga athygli meginstraumsáhorfenda, líkt og myndin sem notar kunnuglegt frá- sagnarform og þemu til að bjóða upp á ferskt og fáheyrt sjónarhorn. Söguhetja Fertugu gerðarinnar, Radha Blank, er svört, fertug og kvenkyns leikskáld sem býr í New York. Radha stendur á ákveðnum krossgötum en þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur ferillinn ekki náð flugi og einkennst af endalausri höfnun undanfarinn áratug. Hún er óörugg í eigin skinni, aukakílóin plaga hana og þar að auki hefur hún nýverið misst móður sína. Til að ná endum saman kennir hún leiklist í menntaskóla í hverfi sínu Harlem. Æskuvinur og umboðs- maður hennar, hinn kóreskættaði Archie, reynir eftir fremsta megni að koma leikritum hennar að í leik- húsum breiðstrætanna. Á óvæntan hátt finnur Radha flóknum tilfinn- ingum sínum farveg í rapptónlist og tekur upp emmsjénafnið Radha- MUSprime (önnur lunkin afbökun á poppmenningu en Rodimus Prime er einn leiðtoga Transform- ers-vélmennanna og líkt og Radha hrjáist hann af efa og litlu sjálfs- trausti). Um leið kynnist hún yngri taktsmiði og lagahöfundi að nafni D en þau tengjast nánum böndum í gegnum sköpunina og sameigin- legan móðurmissi. D fyllir glaður skarð rómantíska viðfangsins (sem þarf, jú, alltaf að fylla). Fertuga gerðin ber ýmsa eigin- leika sjálfvísandi skáldskapar. Einna helst að því leyti að leikstjóri og handritshöfundur hennar fer með aðalhlutverkið sem er eins konar skáldræn útgáfa af henni sjálfri. Fléttan og söguatriði eru að miklu leyti byggð á ævi höfund- arins. Radha Blank er í leikskáld með (aðeins) eitt uppsett leikrit á ferilskránni og hún á sér sama rapphliðarsjálf og persóna mynd- arinnar. Bróðir Rödhu kemur fram sem hann sjálfur í myndinni og at- riðin sem varða foreldra þeirra eru sannleikanum samkvæm – faðir þeirra var trommari og smiður og móðir þeirra myndlistarkona og kennari sem lést fyrir stuttu (m.a. eru notaðar ljósmyndir af þeim og listaverk móðurinnar í myndinni). Allt er þetta hluti af leik með mörk raunveruleika og skáldskapar. Í grunninn er þetta listamannasaga en samfélagslegir þættir og sjálfs- myndarpólítík eru í fyrirrúmi og veltir Fertuga gerðin markvisst fyrir sér hvernig er hægt sé að skapa svartar frásagnir í listaheimi sem samanstendur af hvítum lykla- vörðum. Eins og sígílt er í gríni snýr það að miklu leyti að aðalpersónunni sjálfri og hennar hrakföllum (sér- staklega framan af). Radha er frá- bær í aðalhlutverki hinnar sein- heppnu en bráðsnjöllu listaspíru, sem glímir við eigin sjálfsmynd (en hún er gjarnan mynduð í spegli). Ferðalag hennar inn í karllægan heim rappsins er stórskemmtilegt og textarnir eru jafn beittir og skop myndarinnar í heild. Ekki kemur á óvart að upphaflega var Fertuga gerðin hugsuð sem net- þáttaröð og gæti frásögnin ekki síður fallið vel að því formi. Líklega er ætlunin með svarthvítri kvik- myndatöku að veita myndinni auk- inn „bíóblæ“ og skipa sér á þann hátt á skör listrænna New York- gamanmynda eins og Manhattan Woodys Allens og She’s Gotta Have It Spikes Lees – en sjónræna hliðin er ekki beinlínis styrkur myndarinnar. Grínið er þó sterkast þegar það ögrar og lætur (hvíta) áhorfandann endurmeta afstöðu sína til svartar listar (áhrif kvikmynda Spikes Lees eru ótvíræð). Spjótunum er beint að leikhúsheiminum sér- staklega en einnig á samfélagið í víðum skilningi. Innan söguheims- ins einskorðast rými fyrir frásagnir svartra við „fátæktarklám“ og rappsöngleiki, sem uppfylla um- fram allt þarfir hvítrar millistéttar. Undirgefni og/eða kynferðislegir greiðar eru eina leiðin inn í þessa veröld. Smeðjulegi leikhúsframleið- andinn J. Whitman er holdgerv- ingur allra þessara annarlegu kennda og valdaójafnvægis (óvænt innskot af slöppum skinnpoka myndgerir vandamálið á snilldar- legan og sprenghlægilegan máta) en hann er frábærlega leikinn af Reed Birney. Enn fremur tekur ír- ónían á sér skýra frásagnarlega mynd í grískum kór sem ávarpar Rödhu og hlutskipti hennar beint í myndavélina í innskotsmyndskeið- um. Kórinn er skipaður svörtum erkitýpum, „fólki úr hverfinu“. Þar er að finna hressa rónann á horn- inu með klúru brandarana og fyndnu konuna í eldri kantinum sem veitir óumbeðið lífsráð í sífellu. Erkitýpurnar vita að þær eru klisj- ur og tala um það í samskiptum sínum við Rödhu, sem gerir grínið enn fyndnara. Frásögnin fylgir að öðru leyti hefðbundnu mynstri – Radha upp- lifir mótlæti og lærir af því og stendur eftir stoltari fyrir vikið. Bent hefur verið á að hún sé full- sjálfhverf persóna, þ.e.a.s. að erfitt sé að halda með henni þar sem hún (og myndin) líti niður á þorra per- sónanna sem verða á vegi hennar. Þó að tilfinningalegt ferðalag sögu- hetjunnar sé ekki endilega full- nægjandi helgar tilgangurinn með- alið að þessu sinni. Í heildina er Fertuga gerðin frumleg, beitt og fyndin frumraun leikstjórans. Getur einhver elskað …? Fertug „Þó að tilfinningalegt ferðalag söguhetjunnar sé ekki endilega fullnægjandi helgar tilgangurinn meðalið að þessu sinni,“ skrifar gagnrýnandi. Netflix Fertuga gerðin/ The 40 Year Old Version bbbmn Leikstjórn: Radha Blank. Handrit: Radha Blank. Kvikmyndataka: Eric Branco. Aðalleikarar: Radha Blank, Peter Kim, Oswin Benjamin, Reed Birney, Imani Lewis. Bandaríkin, 2020. 123 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.