Morgunblaðið - 11.01.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 11.01.2021, Síða 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 HRÖKKBRAUÐ Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segist enn gera ráð fyrir að meirihluti Íslendinga verði bólusett- ur um mitt ár. Hún segir að bólu- efnasamningar breytist hratt en að- eins í jákvæða átt. Framleiðslugeta bóluefnaframleiðenda fari sívaxandi og því geti horfurnar aðeins batnað. Richard Bergström, talsmaður Ís- lands, Svíþjóðar og Noregs gagnvart ESB um bóluefnakaup, sagði við rík- isútvarpið um helgina að hann teldi að hér á landi yrðu allir fullorðnir bólusettir um mitt ár. Hann segir einnig að ESB hafi eyrnamerkt Ís- landi ríflega milljón skammta af bóluefni frá fimm framleiðendum; Pfizer, Moderna, AstraZeneca, Janssen og Curevac. Spurð út í orð hans segir Katrín: „Ég hef áður sagt að mínar vænt- ingar séu þær að stór hluti þjóðar- innar verði bólusettur fyrir mitt ár. Það má einnig segja að hér hafi gengið mjög vel, það gat enginn séð það fyrir nokkrum mánuðum að við yrðum komin á þetta stig,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. Hvorki náðist í Svandísi Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra og að- stoðarmenn hennar né Þórólf Guðnason sóttvarnalækni við vinnslu fréttarinnar í gær. Katrín bendir á að nú þegar fram- leiðslugeta bóluefnaframleiðenda aukist þá muni ganga betur að fá fleiri skammta til landsins. Hlutirnir muni því aðeins gerast hraðar eftir því sem líður á og halda áfram að gerast hraðar og hraðar þar til þorri landsmanna verði bólusettur. Ný- lega fékk bóluefni framleiðandans Moderna markaðsleyfi í Evrópu og þar með hér á landi líka. Von er á fimm þúsund skömmtum frá Mod- erna í janúar og febrúar sem dugar þá fyrir um 2.500 manns. Eftir það verður dreifingin hraðari að því er segir á vef heilbrigðisráðuneytisins. Samningur Íslands við Moderna kveður á um að hingað til lands komi 128 þúsund skammtar sem duga þá fyrir 64 þúsund einstaklinga. Þá hef- ur lyfjarisinn Pfizer tvöfaldað þann fjölda bóluefnaskammta sem Evr- ópusambandið fær. Það þýðir að Ís- land á von á helmingi fleiri skömmt- um en áður var talið eða um 500 þúsund skömmtum sem duga fyrir 250 þúsund Íslendinga, en hingað til hefur verið ráðgert að um 284 þús- und Íslendingar verði bólusettir við kórónuveirunni. Þrátt fyrir að þetta sé ljóst er þó enn margt á huldu. Ekki ligg- ur þannig fyrir hvenær þessir 500 þúsund skammtar frá Pfizer koma til landsins og yfir hve langt tímabil. Þá liggur heldur ekki fyrir hvenær allir skammtar frá Moderna og AstraZeneca koma til landsins. Þetta segir Katrín að eigi alls ekki bara við um Íslendinga. „Eðlilega finnst fólki óvissan erfið en það er nú bara þannig að umræð- an í löndunum í kringum okkur er keimlík. Í Bretlandi til að mynda, þar sem bóluefni voru tekin í notkun fyrr en annars staðar, þar er umræð- an svipuð og hér heima,“ segir Katr- ín um óvissu gagnvart afhendingar- tíma bóluefna. Þórólfur Guðnason greindi frá því í ríkisútvarpinu í gær að það væri ekki við íslensk stjórnvöld að sakast að ekki væri hér til meira af bóluefn- um en raun ber vitni. „Það er ekkert land með dreifingaráætlun eða tíma- plan og mér finnst það ekki sann- gjarnt að vera endilega að skammast út í ráðherra, heilbrigðisráðherra eða heilbrigðisráðuneytið varðandi þetta,“ sagði Þórólfur. Ísraelar fyrri til Viðræður Þórólfs og Kára Stef- ánssonar forstjóra Íslenskrar erfða- greiningar við Pfizer hafa enn ekki borið árangur. Þær hafa snúist um að fá hingað til lands nægt magn bóluefnis frá Pfizer á skömmum tíma til að ná svokölluðu hjarðónæmi í til- raunaskyni. Þetta mun þó raunger- ast í Ísrael þar sem samningar hafa náðst við Pfizer um tilraunaverkefni. Þar í landi hafa nú um 20% allra full- orðinna fengið fyrri skammt bólu- efnis frá Pfizer og í gær var Benja- mín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, bólusettur öðru sinni með bóluefni Pfizer, fyrstur Ísraela. Til samanburðar hafa um 1,4% Íslend- inga verið bólusett, sem er í takt við löndin í kringum okkur. Kári Stef- ánsson sagði við mbl.is um helgina að árangur Ísraels sýndi hversu mik- ilvægt það gæti verið fyrir ríki heimsins að geta samið um bóluefna- kaup á eigin spýtur. Spurður hvort viðræðum hans við Pfizer væri lokið sagði Kári: „Það þarf ekki að vera. Að minnsta kosti er þetta ekki að hreyfast mjög hratt, svo mikið er víst. Ég er kominn mjög nálægt því að gefast upp á þessu en ég er ekki búinn að gefast alveg upp.“ Katrín heldur sig við fyrri spár  Umræðan um afhendingartíma sú sama í öðrum löndum að sögn ráðherra  Bóluefnaboltinn muni aðeins rúlla hraðar og hraðar á komandi misserum  Ísrael og Pfizer gera samning um tilraunaverkefni AFP Kári Stefánsson Katrín Jakobsdóttir Þórólfur Guðnason Bólusetning Forsætisráðherra heldur sig við fyrri spá og segist enn vænta þess að þorri landsmanna verði bólusettur við kórónuveirunni fyrir mitt ár. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Það eru sóknarfæri á ákveðnum sviðum samfélagsins. Þar er ég fyrst og fremst að horfa til íþrótta- og menningarstarfsemi,“ segir Run- ólfur Pálsson, prófessor í lyflækn- isfræði og yfirlæknir á lyflækn- ingasviði Landspítala. Vísar hann í máli sínu til takmarkana sem nú eru í gildi vegna faraldurs kórónuveiru. Fyrir helgi var ákveðið að slaka á samkomutakmörkunum úr tíu manns í tuttugu. Reglugerð heil- brigðisráðherra tekur gildi 13. jan- úar, en tilslakanir ná m.a. til íþrótta, líkamsræktarstöðva og sviðslista. Hvað líkamsræktarstöðvar varðar verður starfsemin heimil en þó með miklum takmörkunum. Þannig verður einvörðungu opið fyrir hóp- tíma með tuttugu manns að há- marki. Ekki verður hægt að fara í tækjasal. Aðspurður segist Run- ólfur ekki geta fullyrt hvers vegna svo sé. „Ég átta mig ekki alveg á því, en tækjabúnaðurinn getur borið smit. Þetta fer eftir því hvernig fólk met- ur smithættu. Í hóptímum er um að ræða stórt loftræst rými þar sem ákveðin fjarlægð er á milli fólks. Smithættan þar er því takmörkuð, ég býst við því að þetta sé hugsað þannig,“ segir Runólfur og bætir við að hugsanlega sé hægt að opna tækjasali með ákveðnum takmörk- unum. Ákveðnir þættir umdeildir „Hvað sem verður gert þá þarf að hugsa það til enda. Ég tel að það séu sóknarfæri víða ef við hugum að sóttvörnum. Ef opna á tækjasali þyrfti að hafa eftirlit með því þar sem starfsmenn myndu sótthreinsa búnað að notkun lokinni. Þetta er allt spurning um áhættumat,“ segir Runólfur. Að hans sögn er eðlilegt að ein- hverjar reglur séu umdeilanlegar. Þá sé hugsanlegt að skoða verði ákveðna þætti betur. „Þetta þarf allt að vera mjög vel ígrundað. Um leið og smit fer af stað er hætta á að það dreifist því maður veit aldrei hvenær smitaður einstaklingur kemur til sögunnar. Það þarf að eiga sér stað umræða um hvar sókn- arfæri séu en auðvitað geta ákveðnir þættir verið umdeildir.“ Gott eftirlit nauð- synlegt í ræktinni  Sóknarfæri ef sóttvörnum er fylgt

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.