Morgunblaðið - 11.01.2021, Síða 19

Morgunblaðið - 11.01.2021, Síða 19
og hafði unun af að segja okkur sögur um lífið, veðrið og margt fleira. Mér er minnisstætt að eitt sinn fórum við fjölskyldan til Siglufjarðar þar sem elsta dóttir okkar keppti á fótbolta- móti. Jói, sem er alinn upp á Siglufirði og þekkir því aðstæð- ur þar vel, benti okkur á að fylgjast vel með veðrinu, sér- staklega rigningu við fjöllin. Veðrið var yndilegt, 25 stiga hiti í ágústmánuði, margir úti að grilla. Trausti sér skýin þykkna og nálgast. Hann fer að orðum Jóa, pakkar saman grilldótinu og setur inn ásamt matnum sem við vorum að grilla. Í því byrjar að hellirigna og flestir enn þá úti að grilla þegar rigningin skellur allt í einu á. Fleiri minningar koma upp í hugann sem gaman er að rifja upp. Þegar við Trausti vorum kærustupar gistum við af og til heima hjá Jóa og Fríðu. Einn morguninn vakti Jói okkur og sagðist hafa sett bílinn okkar í gang til að hita hann fyrir okk- ur. Svo fóru Jói og Fríða í vinn- una en við kærustuparið sofn- uðum óvart aftur. Þegar við svo loks vöknuðum og flýttum okkur út hafði bíllinn verið í gangi dá- góða stund og orðinn sjóðheitur. Minningar um góðar sam- verustundir lifa með okkur fjöl- skyldunni. Ég minnist Jóa með hlýhug. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Hvíl í friði. Steinunn Lovísa Þorvaldsdóttir. Vinur okkar og göngufélagi til margra ára, Jóhannes Helga- son rafeindavirki, er látinn eftir erfið veikindi. Við félagar hans söknum vinar í stað og sendum Fríðu eiginkonu hans, vinkonu okkar og göngusystur, okkar dýpstu samúðarkveðjur sem og börnum þeirra hjóna. Við höfum haldið saman í gönguhópi í hart- nær þrjá áratugi og hafa þau hjónin Jói og Fríða verið okkur sérstakir gleðigjafar og hvergi látið deigan síga á ferðalögum og samkomum þótt heilsubrest- ur kæmi í veg fyrir lengri göng- ur. Síðast vorum við með þeim í bráðskemmtilegri og fræðandi ferð í Tromsø í Norður-Noregi fyrir tveimur árum. Minningar úr ferðum heima og erlendis standa okkur lifandi fyrir hug- skotssjónum nú þegar við sjáum á bak Jóa okkar. Jóhannes var fæddur og upp- alinn á Siglufirði. Þótt starfs- vettvangur hans væri ekki þar hefur umhverfi síldveiðanna trú- lega haft áhrif á starfsval hans. Í mörg ár rak hann fyrirtæki sem tengdist tæknibúnaði veiði- skipa, dýptarmælar, ratsjár og hvers kyns fiskileitartæki voru viðfangsefni hans og var hann þá búsettur í Keflavík. Það var oft gaman að heyra Jóhannes segja frá viðureign sinni við tæknina í veiðiskipum sem komu inn með biluð tæki og varð að gera við eins og skot og kannski ekki mörgum til að dreifa í viðgerðirnar. Hann hafði góða frásagnarhæfileika og kímnigáfu. Síðar varð Jóhannes kennari í rafeindavirkjun við Iðnskólann í Reykjavík. Honum var alla tíð umhugað um vöxt og viðgang sinnar sérgreinar og eftir starfslok skrifaði hann bók- ina Frumherjar í útvarpsvirkj- un. Það leyndi sér ekki í viðræð- um við Jóhannes að hann var mikill málafylgjumaður og hafði ríka réttlætiskennd. Það sem gera þurfti og átti að gera var best að gera strax og ganga í málin með oddi og egg. Jóhann- es var stór maður og mikill vexti og þegar hugur fylgdi máli hjá Jóa þurfti ekki að spyrja að leikslokum, sannfæringarkraftur hans og réttlætisþörf var það sem knúði málafylgju hans áfram, hann þurfti ekki að blaka hönd þeim málum til framdrátt- ar. Þau hjón eiga tvo heyrn- arskerta syni og þeir vildu stunda nám eins og lög og regl- ur kveða á um en framkvæmdin vill oft verða önnur en reglu- gerðin mælir fyrir um. Okkar maður gekk í málið. Ef einhverj- ir skyldu halda að afskipti for- eldra af námi barna sinna séu tiltölulega nýtilkomin þá ættu þeir hinir sömu að þekkja stuðn- ing Jóa við nám sona sinna, hann ekki bara barðist fyrir réttindum þeirra heldur sat hann í kennslustundum með öðrum og lærði það sama og studdi hann með ráðum og dáð í náminu. Hjónaband Jóa og Fríðu var fallegt og ástúðlegt. Þau eru ólík um margt og er þá ekki bara horft til útlits. Saman mynduðu þau sterka heild þar sem hvort naut sinnar sérstöðu en heimilið samstöðu og væntumþykju. Við göngufélagar færum Fríðu og börnum þeirra fimm samúðarkveðjur og erum þess fullviss að minningin um mætan og skilningsríkan eiginmann og föður verður til hugbótar um alla tíð. Fyrir hönd gönguhópsins, Eiríkur Páll Eiríksson Guðmundur B. Kristmundsson Elsku Jói frændi. Jói frændi minn var bara 12 ára þegar ég kom inn í líf hans og frá þeim tíma höfum við átt samleið í gegnum lífið, samleið sem aldrei hefur borið skugga á. Jói var yngstur í fjögurra systkina hópi, átti Stínu stórusystur og bræð- urna Jón og Kristján. Nonni, Diddi og Jói voru líklega fyrstu nöfnin sem ég lærði, alltaf taldir upp í aldursröð, litla frænka í Bakka á Siglufirði sem fékk í vöggugjöf þessa yndislegu frændur. Drengirnir sem vökn- uðu upp við vondan draum þeg- ar litla frænka þeirra bættist við fjölskylduna í Bakka, sú sem svaf vært alla daga og grét allar nætur. Helgi afi og Kidda amma voru systkinabörn og því kallaði afi mig alltaf litlu frænku þótt ég væri barnabarn hans. Fyrir okkur barnabörnin 14 hefur frænda- eða frænkutitillinn allt- af verið eðlilegur viðbætir við nöfn okkar innan fjölskyldunn- ar, eins konar sameiginlegur heiðurstitill. Jói frændi var umvafinn góð- um konum allt sitt líf. Svein- björg amma hans var hluti af hinni sístækkandi ungu fjöl- skyldu á Akureyri, fjögur börn fædd á fimm árum. Langamma, amma og mamma dekruðu við hann, en hann átti við veikindi að stríða fram á fermingaraldur, hann náði sér þó að fullu, þökk sé þeim og Halldóri lækni á Siglufirði. Konurnar í lífi Jóa frænda urðu fleiri. Hann kynnt- ist ungur ástinni í lífi sínu, henni Fríðu, sem átti fimm systur. Ég man enn eftir deginum þegar ég hitti þær og mömmu þeirra fyrst, þessar fallegu konur sem höfðu svo smitandi dillandi hlát- ur. Ég hafði aldrei upplifað hlát- urmildari konur. Jói og Fríða eignuðust ung börnin sín fimm, ríkidæmi þeirra, Sigríði, Björg, Olgeir, Unu og Trausta. Þau hafa haldið vel utan um stóra barnahópinn sinn og afkomend- ur þeirra og hafa ríkulega upp- skorið uppeldið og alla þá um- hyggju sem þau veittu þeim. Ég hef notið þess að vera hluti af fjölskyldu Jóa og Fríðu alla tíð, tengslin órofin gegnum kynslóðirnar, ég sem barnapía hjá þeim á Þrastargötunni og seinna tók Sigríður frænka mín, dóttir þeirra, við hlutverkinu og passaði Hildi dóttur mína í Kaupmannahöfn og Hildur síðan Iðunni dóttur Sigríðar í Kefla- vík. Ég vil þakka elsku Jóa frænda fyrir órjúfanlega vináttu og fyrir samfylgdina og kveð hann með ógleymanlegum en hefðbundnum kveðjuorðum Kiddu ömmu minnar og mömmu hans: „Vertu nú ævinlega marg- blessaður og sæll og Guð fylgi þér.“ Helga frænka. Erfitt ár er gengið um garð og okkar bíður það nýja með miklar væntingar. Við sem vor- um svo heppin að þekkja og deila stundum með Jóa erum betur búin til að vinna úr þess- um væntingum, þökk því sem hann lét af sér leiða. Eftir margra tuga ára vináttu og náið fjölskyldusamband koma upp óteljandi minningar sem staðfesta þá ímynd sem ég mun ávallt geyma um góðan vin og tengdaföður. Þessar minningar spanna langan tíma, marga staði og stundir þar sem við unnum og lærðum saman, ferðuðumst um Evrópu, Asíu og Bandaríkin og auðvitað ótal heimsóknir á milli okkar heimila. Ég leyfi mér að halda að heimshornaheim- sóknir Jóa og Fríðu til okkar Unu hafi fært okkur öllum breiðari sýn á heiminn og fólk. Og frá mínum bæjardyrum séð þykir mér vænt um hvað Jói og Fríða voru dugleg að leggja í allar þessar ferðir og oft æv- intýri til að gefa börnunum okk- ar tækifæri á að kynnast afa og ömmu aðeins betur, það verður seint þakkað að fullu. Að flytja með unga og stóra fjölskyldu suður með sjó og byrja með sitt eigið fyrirtæki krefst mikils hugrekkis, það sama hugrekki og Jói sýndi sem frumherji þegar kom að menntamálum heyrnarskertra. Það tók ekkert minna en til- færslu á ævistarfi til að koma menntamálum sona hans í rétt horf sem síðan leiddi til þess að Jói varð farsæll kennari við Iðn- skólann í Reykjavík í fjölmörg ár. Þessi framsækni og elja lýsa Jóa vel og hvernig hann sigldi í gegnum íþyngjandi mál án þess að láta á því bera, t.d. að reka innflutnings- og þjónustufyrir- tæki í 70% verðbólgu og viku- legum gengisfellingum, en þetta var raunveruleikinn þegar þeir Siggi ráku Sónar í Keflavík. Ég á eftir að sakna þess að tala við Jóa um okkar mörgu sameiginlegu áhugamál og hversu mikinn áhuga hann sýndi minni vinnu og mörgu verkefn- um, og þá sérstaklega þeim sem höfðu með fjarskipti að gera. Þessi sömu samtöl og við áttum svo oft á leiðinni heim seint um nótt eftir að hafa eytt mörgum klukkustundum um borð til að koma skipatæki eða loftneti í lag svo að hetjur úthafsins gætu haldið til veiða. Mér er það til happs að geta kallað fjölskyldu Jóa og Fríðu mína eigin, þennan stóra hóp af efnilegu fólki sem þau hafa hald- ið utan um og ræktað. Með þakklæti í huga fyrir góða fjöl- skyldu og hversu vel Jói studdi við mig ótal sinnum, þ.á m. á þeirri stund lífsins þegar mig vantaði stefnu í menntamálum, skrifa ég þessar línur og setur hljóðan. Elsku Fríða, þú átt alla mína samúð og aðdáun yfir því hvern- ig þú hefur barist við hlið Jóa okkar þetta erfiða ár. Blessuð sé minning Jóhann- esar Helgasonar. Óskar S. Magnússon. Jói minn. Mér varð hugsað til þess hve dásamlegur maður þú ert og hve heppinn ég er að hafa fengið að kynnast þér. Eins og þú kannski veist var nærvera föður míns ekki mikil þegar ég ólst upp og þegar hann var þar, þá skipti ég hann litlu máli. Þess vegna lít ég mikið upp til góðra manna eins og þín og reyni að taka þig mér til fyr- irmyndar. Ég man um aldamótin þegar við Sigríður komum til Íslands, þið bjugguð á Klapparstígnum. Ég hafði aldrei farið út fyrir landsteinana fyrr og allt í einu er ég kominn til Íslands á fal- lega heimilið þitt og Fríðu. Sig- ríður sendi mig strax í rúmið því hún vildi að ég yrði úthvíldur þegar fjölskyldan kæmi til að heilsa upp á okkur. Ég er þakk- látur henni fyrir það því þegar ég vaknaði var eins og heimili ykkar hefði verið breytt í Grand Central Station. Ég held að ég hafi hitt alla íbúa Reykjavíkur þennan morgun. Ég man líka þegar þú fórst með mig upp að Nesjavöllum. Ótrúlegasta stund lífs míns. Ég hef aldrei upplifað aðra eins orku og kraft. Það var rétt eins og væri verið að skjóta upp eld- flaug. Þú leiddir mig upp að hol- unni þar sem rörin komu upp úr jörðinni og við báðir lögðum hendur okkar á rörin til að finna kraft jarðarinnar. Ég er svo þakklátur fyrir að þú skyldir sýna mér þennan ótrúlega stað. Við höfum gert hluti saman, ekki satt? Mér verður líka of hugsað til þess þegar ég kom til Íslands aðeins með verkfærin mín og undirföt til skiptanna í farangr- inum. Planið var að setja upp stigann fyrir Björgu með þér og Trausta. Hugsaðu um það, þrír strákar sem töluðu ekki sama tungumál og við létum það ger- ast. Við lukum verkinu og út- koman var bara nokkuð góð. Engar leiðbeiningar eða þýðing- ar, við bara gerðum það. Ég hugsa um þinn frábæra barnahóp, barnabörn og barna- barnabörn sem þú getur verið svo stoltur af. Sigríður sagði mér oft frá því hve mikið þú þurftir að vinna til að hafa ofan í ykkur og á á uppvaxtarárum þeirra. Og til að toppa það tókst þér að gefa út bók um útvarps- virkjun á Íslandi. Jói minn, þú hefur svo sannarlega lifað fal- legu lífi sem speglast í dásam- legum afkomendum þínum sem allir hafa lært af þér. En oftast minnist ég þess tíma þegar þið Fríða og Alla og Nonni komuð í heimsókn til okkar í Washington. Við karlarnir sátum saman, drukkum bjór, spjölluðum um lífið, grallarastrik unglingsára okkar, tilveruna og áhugamál, og kvenmenn, auðvitað haha, á meðan þær sátu saman, drukku vín og gerðu plön fyrir sigl- inguna sem við vorum öll að fara í. Það var svo gaman. Þú varst maður sem öllum líkaði vel við og ég get sagt með sanni að það er mér mikill heið- ur að hafa fengið að kynnast þér. Reyndu nú að hvíla þig Jói minn. Þú ert kominn í Sum- arlandið og ert þar með Öllu og Nonna. Jói minn, þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu sem dásam- legur faðir, eiginmaður og vinur. Billy. Kveðjur frá samstarfs- mönnum við Iðnskólann í Reykjavík Fyrstu kynni margra iðn- skólakennara af Jóhannesi Helgasyni voru þegar hann sett- ist á skólabekk í byrjun níunda áratugar síðustu aldar. Höfðinu hærri en aðrir í bekknum og nokkrum áratugum eldri. Þarna var hann í þeim tilgangi að að- stoða Olgeir son sinn við nám í útvarps- og sjónvarpsvirkjun. Olgeir var algjörlega heyrnar- laus og því í mjög erfiðri stöðu við tileinkun námsefnis. Margir er til þekktu töldu þetta kennslufræðilega ómögulegt. Þeir gerðu sér ekki grein fyrir seiglu og dugnaði Olgeirs og óbilandi stuðningi föður hans. Síðar átti Jói eftir að styðja á sambærilegan hátt yngri son sinn Trausta en báðir synir hans luku námi við skólann með góð- um árangri. Upphaflega hafði Jóhannes hugsað sér þetta verkefni sem ólaunað starf en hann hafði þá nýlega hætt rekstri fyrirtækis síns Sónar sem hann hafði rekið um árabil með góðum félaga. En þegar á leið helgaði hann sig kennslu enda frábær kennari, og vel að sér í faginu, ekki síst í því er varðaði fjarskipti. Það gleymist stundum þegar rætt er um fengsælan sjávar- útveg og duglega sjómenn að bakhjarlar þar eru tæknimenn sem sjá til þess að tæki og bún- aður séu í lagi. Það myndi lítið fiskast ef ekki væru græjurnar. Sónar vann einkum við að þjón- usta flotann. Til eru margar sögur um útsjónarsemi og þol- gæði Jóa við þau störf. Oft var unnið undir mikilli tímapressu. Áhöfn og grenjandi skipstjórn- armenn áttu allt sitt undir því að nauðsynleg tæki kæmust í lag. Það kom fyrir að Jói var tekinn með í túrinn til að ljúka viðgerð. Það þarf stáltaugar til að vinna við slíkar aðstæður með fáa varahluti og frumstæð mælitæki. Við námsaðstoð bræðranna rákust bæði Jóhannes og skóla- menn á nær ókleifan vegg. Skilningur á aðstoð við heyrn- arlausa og aðra fatlaða nemend- ur var í skötulíki á þessum ár- um. En þarna sem annars staðar var Jói betri en enginn. Hann var fylginn sér og ákveð- inn og nýtti þessa eiginleika í samskiptum við stjórnendur ráðuneyta. Fyrir kom að hann fékk þau svör að viðkomandi væri upptekinn. Ekkert mál, ég bara bíð. Það er óvíst hvenær hann losnar. Ekkert mál ég bara bíð. Hann verður ekki meira við í dag. Ekkert mál ég bara bíð. Dropinn holar steininn og Jóhannes fékk oftar en ekki viðunandi úrlausn mála. Þessi barátta nýttist ekki bara sonum hans heldur fjölda annarra heyrnarlausra og fatl- aðra nemenda. Segja má að hann hafi þarna fylgt í fótspor fyrrverandi kennara síns og vin- ar Jóns Sætrans. Jón hafði u.þ.b áratug áður verið einn aðal- hvatamanna við stofnun fram- haldsdeildar Heyrnleysingja- skólans. Það nám brúaði bilið fyrir fjölmarga heyrnarlausa inn í iðnnám og annað framhalds- nám. Þegar Jóhannes fór á eftir- laun lét hann gamlan draum rætast. Hann hafði tekið viðtöl við marga frumherja í útvarps- virkjun. Í samvinnu við góðan félaga úr hópi íslenskukennara skólans gaf hann út ýtarlega og vandaða bók er fjallar um stéttabaráttu og tæknileg við- fangsefni þessara brautryðj- enda. Stórt verkefni en allir sem þekktu Jóa vissu að hann myndi ljúka því með sóma eins og öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Síðastliðið ár var Jóhannesi erfitt og hann lést í árslok. Eng- inn vinnur sitt dauðastríð, ekki einu sinni baráttujaxl eins og Jóhannes Helgason. Við þökkum Jóa fyrir samstarfið og vinátt- una. Farðu í friði kæri vinur. Við sendum Fríðu konu hans og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Frímann I. Helgason. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS KRISTINN ÞÓRÐARSON, Dalsmynni, lést á krabbameinsdeild Landspítalans 29. desember. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Ásta Margrét Sigurðardóttir Petrea Tómasdóttir Þórður Tómasson Sigurður Grétar Tómasson Ámundi Sjafnar Tómasson Sesselja Salóme Tómasd. Tómas Kristinn Tómasson Margrét Ósk Tómasdóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir, frændi, mágur og barnabarn, ÞORLÁKUR INGI SIGMARSSON, Hamrakór 12, Kópavogi, lést 27. desember. Sigmar Örn Sigþórsson Sesselja Hreinsdóttir Eyjólfur Þór Jónasson Ástrós Elma Sigmarsdóttir Arnar Pálsson Þorbjörg Lilja Sigmarsdóttir Daníel Rafn Jónsson Eysteinn Hrafn Arnarsson Elskulegur faðir, tengdafaðir, bróðir, mágur og frændi, SIGURGEIR BJARNI GUÐMANNSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri Íþróttabandalags Reykjavíkur, lést á Vífilsstöðum miðvikudaginn 30. desember. Jarðarförin fer fram í kyrrþey. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Samtök sykursjúkra. Rannveig Sigurgeirsdóttir Sverrir Jónsson Elín Guðmannsdóttir Bára Guðmannsdóttir Alda Guðmannsdóttir Anna S. Guðmundsdóttir Guðmann Sigurgeir, Bára og Bára Vilborg systkinabörn og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.