Morgunblaðið - 11.01.2021, Page 26
Á ÁSVÖLLUM
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslenska karlalandsliðið í handknatt-
leik kann enn að skipta um gír og
spæna fram úr andstæðingunum eins
og það var þekkt fyrir á tímum silf-
urdrengjanna. Ekki er nú svo ýkja
langt síðan en nógu langt til þess að
nýtt lið hefur verið mótað og er ef til
vill enn í mótun. Ísland vann Portú-
gal með níu marka mun í und-
ankeppni EM 2022 á Ásvöllum í
Hafnarfirði í gær 32:23 og stakk gest-
ina af í síðari hálfleik en Portúgal
hafði fimm marka forskot þegar
langt var liðið á fyrri hálfleik.
Portúgal var yfir 12:7 en þá skor-
aði íslenska liðið fimm mörk í röð.
Portúgalska liðið er áhættusækið í
þeim skilningi að liðið beitir oft þeirri
leikaðferð að taka markvörðinn út af í
sókn og sækja með sjö menn. Þegar
vel tekst til skapa þeir sér galopin
marktækifæri með þessu. Sá böggull
fylgir þó skiljanlega skammrifi að
missi þeir boltann getur andstæðing-
urinn skoraði opið markið. Þetta eru
nú handboltaunnendur farnir að
þekkja en einnig hefur lið Makedóníu
notast við þessa leikaðferð en Ísland
og Makedónía dragast ansi oft saman
á EM og HM. Svo fór í gær að Ísland
skoraði fjögur mörk í röð í opið mark-
ið hjá Portúgal og komst þannig inn í
leikinn með því að minnka muninn í
11:12.
Fram að þessu leist manni satt að
segja ekki vel á leik íslenska liðsins.
Dauft var yfir mönnum og þegar bar-
áttan er ekki fyrir hendi er ekki von á
góðu í landsleikjum í íþróttinni. Allt
annað var hins vegar að sjá til ís-
lenska liðsins í síðari hálfleik og þá
virtist leikur þess smella saman bæði
í vörn og sókn. Um leið var eins og
Portúgalarnir brotnuðu. Þeir höfðu
höndlað spennuna nokkuð vel í fyrri
leik liðanna og landað sigri en gáfust
nánast upp í gær. Ef til vill áttu þeir
bara engin svör þegar íslenska liðið
fann taktinn.
Ekki hjálpaði heldur til fyrir
portúgalska liðið að þegar því tókst
að komast í góð skotfæri í síðari hálf-
leik varði Ágúst Elí Björgvinsson
ítrekað frá þeim. Þar sem Ísland
vann í gær stærri sigur en Portúgal
vann gegn Íslandi á miðvikudag á Ís-
land nú alla möguleika á að vinna rið-
ilinn og sæti á EM er svo gott sem í
hendi. Ísland á eftir að mæta Litháen
á útivelli og spila tvívegis gegn Ísrael.
Tólf leikmenn skoruðu
„Já við eigum að vinna riðilinn úr
því sem komið er og það er okkar
markmið. Gummi [Guðmundur Þ.
Guðmundsson landsliðsþjálfari] setti
dæmið upp á einfaldan hátt og benti
okkur á að með því að vinna þennan
leik með meira en tveimur mörkum
ættum við að geta unnið riðilinn. Við
gerðum það og göngum ekki ósáttir
frá þessum leik. Níu marka sigur er
ekkert lítið á móti Portúgölum sem
eiga góða handboltamenn,“ sagði
Ágúst þegar Morgunblaðið ræddi við
hann á Ásvöllum í gær.
Sameiginlegt átak skilaði góðum
sigri í gær. Margir leikmenn fengu að
spreyta sig enda skoruðu tólf leik-
menn fyrir Ísland í leiknum. Ef taka
á einhvern út fyrir sviga í þetta skipt-
ið fer best á því að nefna frammistöðu
Ágústs í markinu. Hann kom inn á
eftir tólf mínútur og varði frábærlega
í síðari hálfleik.
„Einhvern veginn fundum við ís-
lenska hjartað. Ég veit ekki alveg
hvernig ég á að útskýra hvernig þetta
gerðist í síðari hálfleik en leikmenn
Portúgals virtust alveg týna sínum
leik um leið. Í fyrri hálfleik var
hörkubarátta en í þeim síðari var
sama hvað þeir gerðu því við áttum
svör við því. Þeir áttu einnig í erf-
Gírkassinn í góðu
lagi hjá liðinu í
aðdraganda HM
Ísland setti í fimmta gír og stakk Portúgal af á Ásvöllum
Fyrir vikið blasir efsta sæti riðilsins við í undankeppni EM
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021
England
Bikarkeppnin, 3. umferð:
Everton – Rotherham..................... (frl.) 2:1
Gylfi Þór Sigurðsson kom inn sem vara-
maður hjá Everton á 66. mínútu.
Arsenal – Newcastle................................ 2:0
Rúnar Alex Rúnarsson var varamark-
vörður Arsenal.
Burnley – MK Dons.................... (1:1) 5:4 (v)
Jóhann Berg Guðmundsson lék fyrstu 83
mínúturnar með Burnley.
Boreham Wood – Millwall....................... 0:2
Jón Daði Böðvarsson kom inn sem vara-
maður hjá Millwall á 61. mínútu.
Blackpool – WBA ....................... (2:2) 5:4 (v)
Daníel Leó Grétarsson lék fyrstu 99 mín-
úturnar með Blackpool.
Nottingham Forest – Cardiff .................. 1:0
Luton – Reading ....................................... 1:0
Norwich – Coventry ................................. 2:0
Chorley – Derby ....................................... 2:0
Bournemouth – Oldham........................... 4:1
Stevenage – Swansea ............................... 0:2
Bristol Rovers – Sheffield Utd ................ 2:3
Blackburn – Doncaster ............................ 0:1
Stoke – Leicester ...................................... 0:4
Wycombe – Preston.................................. 4:1
QPR – Fulham.................................. (frl.) 0:2
Exeter – Sheffield Wednesday................ 0:2
Huddersfield – Plymouth......................... 2:3
Brentford – Middlesbrough..................... 2:1
Manchester United – Watford ................ 1:0
Barnsley – Tranmere ............................... 2:0
Crawley – Leeds ....................................... 3:0
Bristol City – Portsmouth........................ 2:1
Manchester City – Birmingham.............. 3:0
Chelsea – Morecambe .............................. 4:0
Cheltenham – Mansfield ................. (frl.) 2:1
Marine – Tottenham................................. 0:5
Newport – Brighton ................... (1:1) 3:2 (v)
Þýskaland
Augsburg – Stuttgart .............................. 1:4
Alfreð Finnbogason var allan tímann á
varamannabekk Augsburg.
Staðan:
Bayern München 15 10 3 2 46:24 33
RB Leipzig 15 9 4 2 26:12 31
Leverkusen 15 8 5 2 30:15 29
Dortmund 15 9 1 5 31:19 28
Union Berlin 15 6 7 2 31:20 25
Wolfsburg 15 6 7 2 22:17 25
Mönchengladbach15 6 6 3 28:24 24
Freiburg 15 6 5 4 28:24 23
Eintracht Frankfurt
15 5 8 2 25:23 23
Stuttgart 15 5 6 4 30:22 21
Augsburg 15 5 4 6 17:23 19
Hertha Berlín 15 4 4 7 23:25 16
Werder Bremen 15 3 6 6 17:24 15
Hoffenheim 15 4 3 8 22:30 15
Arminia Bielefeld 15 4 1 10 10:24 13
Köln 15 2 5 8 13:27 11
Schalke 15 1 4 10 12:39 7
Mainz 15 1 3 11 14:33 6
B-deild:
Darmstadt – Hannover............................ 1:2
Guðlaugur Victor Pálsson var ekki í leik-
mannahópi Darmstadt.
Spánn
Osasuna – Real Madrid ............................ 0:0
Granada – Barcelona ................................ 0:4
Staðan:
Atlético Madrid 15 12 2 1 29:6 38
Real Madrid 18 11 4 3 30:15 37
Barcelona 18 10 4 4 37:17 34
Villarreal 18 8 8 2 26:17 32
Real Sociedad 19 8 6 5 29:16 30
Sevilla 16 9 3 4 21:13 30
Granada 17 7 3 7 19:29 24
Celta Vigo 18 6 5 7 22:28 23
Cádiz 18 6 5 7 15:22 23
Levante 17 5 6 6 23:24 21
Athletic Bilbao 18 6 3 9 21:22 21
Real Betis 17 6 2 9 20:31 20
Valencia 18 4 7 7 24:25 19
Eibar 18 4 7 7 15:18 19
Alavés 18 4 6 8 16:23 18
Real Valladolid 18 4 6 8 16:25 18
Getafe 16 4 5 7 12:17 17
Elche 15 3 7 5 13:18 16
Osasuna 17 3 6 8 15:25 15
Huesca 17 1 9 7 14:26 12
B-deild:
Málaga – Real Oviedo.............................. 1:1
Diego Jóhannesson var allan tímann á
varamannabekk Real Oviedo.
Ítalía
Genoa – Bologna ...................................... 2:0
Andri Fannar Baldursson var allan tím-
ann á varamannabekk Bologna.
Staða efstu liða:
AC Milan 17 12 4 1 37:19 40
Inter Mílanó 17 11 4 2 43:23 37
Roma 16 10 4 2 37:23 34
Juventus 16 9 6 1 35:16 33
Holland
Zwolle – AZ Alkmaar .............................. 1:1
Albert Guðmundsson var allan tímann á
varamannabekk AZ Alkmaar.
Belgía
Oostende – Charleroi............................... 3:2
Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 72 mín-
úturnar með Oostende.
Grikkland
PAOK – Volos ........................................... 3:1
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn
með PAOK og skoraði eitt mark.
Panetolikos – Olympiacos....................... 1:2
Ögmundur Kristinsson var allan tímann
á varamannabekk Olympiacos.
Jóhann Berg Guðmundsson spilaði
sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði
fyrir Burnley er liðið vann MK
Dons í vítakeppni í 64-liða úrslitum
enska bikarsins í knattspyrnu. Gylfi
Þór Sigurðsson kom inn á sem
varamaður í 2:1-sigri Everton á
Rotherham í framlengdum leik. Jón
Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður í liði Millwall sem lagði
Boreham Wood að velli, 2:0, og
Daníel Leó Grétarsson byrjaði fyrir
C-deildarlið Blackpool sem vann
frækinn sigur á úrvalsdeildarfélag-
inu West Brom í vítakeppni.
Íslendingaliðin
áfram í bikarnum
AFP
Endurkoma Jóhann Bergi sneri
loks aftur í lið Burnley eftir meiðsli.
Knattspyrnumaðurinn Emil Páls-
son leitar sér að nýju félagi eftir að
samningur hans við norska úrvals-
deildarliðið Sandefjord rann út um
áramótin en hann er þó ekki tilbú-
inn að snúa aftur til Íslands.
Miðjumaðurinn, 27 ára, er frá
Ísafirði en spilaði lengst af með FH
hér heima á árunum 2011 til 2017.
„Hugurinn er alltaf úti, ég tel mig
eiga fullt erindi í að spila í Skandin-
avíu,“ sagði Emil í útvarpsþætti fót-
bolta.net í gær. „Mér líður ekki eins
og ég sé tilbúinn að koma heim á
þessum tímapunkti.“
Ekki tilbúinn að
koma aftur heim
Morgunblaðið/Eggert
Útlönd Emil Pálsson ætlar ekki að
snúa heim til Íslands alveg strax.
Ásvellir, undankeppni EM karla, sunnu-
dag 10. janúar 2021.
Gangur leiksins: 1:0, 2:2, 3:4, 5:7, 6:9,
7:12, 12:12 12:13, 15:13, 16:14, 18:17,
25:17, 26:18, 29:19, 32:23.
Mörk Íslands: Bjarki Már Elísson 9,
Elvar Örn Jónsson 5, Ómar Ingi Magn-
ússon 3/1, Arnór Þór Gunnarsson 3, El-
liði Snær Viðarsson 3,
Janus Daði Smárason 2, Sigvaldi Björn
Guðjónsson 2, Ólafur Guðmundsson 1,
Viggó Kristjánsson 1, Kristján Örn
Kristjánsson 1, Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 1, Ágúst Elí Björgvinsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson
10/1.
ÍSLAND – PORTÚGAL 32:23
Utan vallar: 12 mínútur
Mörk Portúgals: Antonio Ro-
drigues 5/1, André Gomes 5,
Victor Iturriza 3, Fábio Magalha-
es 2, Belone Moreira 2, Miguel
Martins 1, Pedro Portela 1/1, Rui
Silva 1, Daymaro Salina 1, Diogo
Branquinho 1, Leonel Fernandes
1.
Varin skot: Alfredo Quintana 6,
Humberto Gomes 2.
Utan vallar: 8 mínútur
Dómarar: Renars Licis og Zig-
mars Sondors, Lettlandi.
Áhorfendur: Engir.
Snorri Einarsson endaði í 41. sæti á Tour de Ski-
mótaröðinni eftir frábæran endasprett í Val di Fiemme
á Ítalíu í gær. Mótaröðin hófst 1. janúar og keppt var á
sjö mótum í þremur löndum. Í keppni dagsins endaði
Snorri í 30. sæti og voru þetta hans bestu úrslit á móta-
röðinni.
Lokaganga mótsins fór fram í Val di Fiemme með 10
kílómetra göngu með frjálsri aðferð og notast var við
hópræsingu. Snorri hóf leik í 43. sæti en vann sig upp
um alls 13 sæti, meðal annars þökk sé frábærum enda-
kafla en síðasta klifrið er þrír og hálfur kílómetri upp
skíðabrekku þar sem hækkunin er alls 420 metrar.
Snorri endar á svipuðum stað og á mótaröðinni í fyrra þar sem hann
lauk keppni í 37. sæti en að þessu sinni, eins og fyrr segir, var hann í 41.
sæti af alls 84 keppendum. Skíðasamband Íslands hefur fylgst með
árangri Snorra á heimasíðu sinni.
Frábær endir í Val di Fiemme
Snorri
Einarsson
Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Þýskalandi áttu ekki í
vandræðum með að vinna 34:20-heimasigur á Austurríki
í undankeppni EM karla í handbolta í gærkvöldi. Með
sigrinum tryggði liðið sér sæti á EM í Ungverjalandi og
Slóvakíu á næsta ári. Antonio Metzner var markahæstur
í þýska liðinu með fimm mörk Alfreð hefur farið mjög
vel af stað með þýska liðið og stýrt því til sigurs í fimm
fyrstu leikjum sínum.
Þýskaland hefur leik á HM í Egyptalandi á föstudag-
inn kemur með leik gegn Úrúgvæ en Grænhöfðaeyjar og
Ungverjaland eru einnig í riðlinum. Í Slóveníu gerðu
heimamenn jafntefli við lærisveina Erlings Rich-
ardssonar í hollenska landsliðinu 27:27. Hollendingar skoruðu tvö síðustu
mörkin og tryggðu sér góð úrslit gegn sterkum andstæðingi. Holland er í
þriðja sæti riðilsins með þrjú stig, eins og Slóvenía, en Pólland er í toppsæt-
inu með fjögur stig.
Alfreð á EM með Þýskalandi
Alfreð
Gíslason