Morgunblaðið - 11.01.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.01.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE HOLLYWOOD REPORTER CHICAGO SUN-TIMES Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Tónlistarkonan Salóme Katrín hlaut bæði lof og athygli í fyrra fyrir EP- plötu sína Water, hlaut í desember Kraumsverðlaunin fyrir hana en verðlaunin eru veitt árlega fyrir íslenskar hljómplötur sem þykja hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar gæði, metnað og frum- leika. Auk þess sæmdi Árni Matt- híasson Salóme titlinum „nýliði ársins“ í ársupp- gjöri sínu um hlljómplötur ársins 2020 í Morgunblaðinu. Water kom út seint í nóvember og hefur að geyma fimm lög eftir Salóme sem eru jafnframt þau fyrstu sem hún samdi, tók upp og sendi frá sér. Segir í tilkynningu að ekki sé að finna eiginlegan söguþráð á plötunni eða boðskap heldur sé verkið ein stór hugleiðing ungrar konu sem mann- eskjur af öllum toga geti kafað í eða speglað sig við, líkt og ýmsar mik- ilvægar plötur sem orðið hafi á vegi tónlistarkonunnar um ævina. Salóme samdi lögin á Ísafirði og í Reykjavík á árunum 2017-19, tók þau upp í Sví- þjóð, Hafnarfirði og Reykjavík á ár- unum 2019-20 í samstarfi við Baldvin Hlynsson sem útsetti einnig nokkur þeirra. Um hljóðblöndun og tónjöfn- un sá Magnús Árni Øder Kristins- son. Salóme syngur og leikur á píanó en einnig var leikið á strengjahljóð- færi, blásturshljóðfæri og slagverk. Uppvaxtarárin oft átakanleg Í tilkynningu skrifar Salóme að það hafi blundað lengi í sér draumur um að semja og gefa út eigin tónlist en á sama tíma hafi hluti af henni alltaf haldið að það væri ekki mögu- leiki þar sem hún væri ekki til þess fallin. „En svo hófst atburðarás í lífi mínu sem ég gat engan veginn náð utan um í hausnum á mér eða komið í orð. Nema þegar ég sat við píanóið og leyfði tilfinningum og hugrenn- ingum að flæða. Allt sem ég gat ekki sagt – við sjálfa mig, við aðra – lék þar lausum hala og mér tókst loksins að hugsa skýrt og skilja sjálfa mig og umheiminn að marki,“ skrifar Sal- óme. Blaðamaður spyr Salóme nánar út í atburðarásina sem hún nefnir, hvaða atburðarás var það? „Það er stór atburðarás sem ég vísa í og gríðarlega persónuleg á marga vegu. Til að einfalda þetta – eða kannski ekki – er hún þessi tími í lífinu frá því maður er unglingur og að því að fullorðnast aðeins. Upp- vaxtarárin „part two“ sem eru oft mjög átakanleg, þegar maður er að læra ýmislegt um lífið og sjálfan sig, ýmislegt sem maður gat ekki séð fyr- ir,“ svarar Salóme. Lífsnauðsynlegt og -hættulegt Salóme fæddist árið 1995 og er því 25 ára. Hún er fædd og uppalin á Ísafirði og sótti báða tónlistarskóla bæjarins sem barn, lærði á píanó og söng. „Þegar ég kláraði menntaskóla flutti ég suður og byrjaði í djasssöng í Tónlistarskóla FÍH,“ segir hún. Djassinn er hins vegar ekki áberandi á Water, hvorki í hljóðfæraleik né söng, lögin falleg og tilfinningahlaðin með tregafullum selló- og píanóleik. Hvað nafngift plötunnar varðar, Water eða Vatn, segir Salóme að hún heiti eftir samnefndu lagi á plötunni sem hún telji það besta á henni. „Ástæðan fyrir því að lagið heitir „Water“ og að mér þótti það hæfa plötunni í heild er helst sú að það tekst á við tilfinningar. Platan er um tilfinningar, þegar öllu er á botninn hvolft, og vatn er svolítið eins og til- finningar. Það er lífsnauðsynlegt en líka lífshættulegt,“ útskýrir Salóme. Hún hafi alist upp í nálægð við hafið á Vestfjörðum, horft á það út um gluggann heima hjá sér og hlustað á það. „Það er að koma út tónlistar- myndband við titillagið og það er tekið upp á Ísafirði,“ bætir Salóme við. Renndi blint í sjóinn Hvað hinar góðu viðtökur varðar segir Salóme þær ómetanlegar og þá sérstaklega á þessum óvissutímum Covid-19. „Ég renndi alveg blint í sjóinn með þetta allt saman, gaf út eitt lag í mars, rétt áður en sam- komubann hófst og hélt þá tónleika. Það var stappfullt á þeim,“ segir Salóme. Platan hafi svo komið út þegar allt tónleikahald hafi legið niðri vegna fjöldatakmarkana. Hvað við tekur árið 2021 er erfitt að segja en Salóme segist þó ætla að gefa út fleiri lög og þá stök lög en ekki plötu, „nema eitthvað magnað gerist“. Annað sem liggur fyrir eru tónleikar hennar á Iceland Airwaves í nóvember sem var aflýst í fyrra vegna farsóttarinnar. Ljósmynd/Kata Jóhanness Tilfinningar Salóme segir plötu sína Water fjalla um tilfinningar, þegar öllu sé á botninn hvolft. Tónlistin er eins og vatnið  Salóme Katrín hlaut Kraumsverðlaunin 2020 fyrir Water  Ein stór hugleið- ing ungrar konu  Uppvaxtarárin „part two“ eru oft mjög átakanleg, segir hún Listi yfir söluhæstu hljómplötur og vinsælustu lög ársins 2020 hefur verið gefinn út og í toppsætinu á plö- tulistanum er plata Hafdísar Huldar Vögguvísur og eru seld eintök sam- tals 3.939. Næst kemur Bríet með plötuna Kveðja, Bríet sem seldist í 3.313 eintökum og þá plata Pop Smoke, Shoot For The Stars Aim For The Moon. The Weeknd á plöt- una í fjórða sæti, After Hours. Af öðrum plötum íslenskra flytjenda má nefna Debussy – Rameau, plötu Víkings Heiðars Ólafssonar píanó- leikara, GDRN með samnefndri söngkonu og JóiPé og Króli eru í tíunda sæti með plötuna Í miðjum kjarnorkuvetri. Plötulistinn nær yfir streymi, geisladiska- og vínilplatna- sölu og í tilviki geisladiska og vínils er um að ræða smásölu í þeim versl- unum sem þátt taka í Tónlistanum en eins og áður vantar inn nær alla sölu sem á sér stað utan verslana, svo sem sölu á tónleikum eða „beint frá býli“ að því er segir í tilkynningu og að slík sala geti í mörgum til- fellum verið veruleg. Þá er streymi umreiknað í seld eintök samkvæmt alþjóðlegri venju og þarf hvert lag af 10 laga breiðskífu að ná 100 streymum, eða öll 10 lögin samtals 1.000 streymum, til að jafngilda einu seldu eintaki af breiðskífu. Hvað lagalistann fyrir árið 2020 varðar er tekið fram að útvarpshlut- inn sé „vigtaður“ með þeim hætti að bæði fjöldi spilana og heildarhlustun á viðkomandi útvarpsstöð hafi þar vægi. Sá hluti sé unninn í samstarfi við Radiomonitor.com en útvarps- stöðvarnar séu Rás 2, Bylgjan, FM957, X-ið 97,7 og K100. Á toppi listans er lagið „Blinding Lights“ með kanadíska tónlistarmanninum The Weeknd og næst kemur „Esjan“ með Bríeti. Í þriðja sæti er „Í kvöld er gigg“ með Ingó veðurguð og í fjórða sæti „Think About Things“ með Daða og Gagnamagninu. Hafdís og Weeknd í toppsætum Hafdís Huld The Weeknd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.