Morgunblaðið - 12.01.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
Límtré
• Vatnsfráhrindandi olíuborið límtré
• Hægvaxið gæðalímtré
• Sérsmíðum eftir máli
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
Borgarráð hefur samþykkt að
Reykjavíkurborg greiði Knatt-
spyrnusambandi Íslands 42 milljónir
króna vegna þeirrar ákvörðunar að
Fram hætti að leika heimaleiki sína á
Laugardalsvelli frá og með árinu
2019. KSÍ rekur Laugardalsvöll.
Frá árinu 2019 hafa Framarar leik-
ið heimaleiki sína í knattspyrnu á fé-
lagssvæðinu við Safamýri. Þar með
féllu niður leikir félagsins á Laug-
ardalsvelli, sem gert var ráð fyrir í
samningi borgarinnar og KSÍ. Þegar
hið nýja svæði Fram í Úlfarsárdal
verður tilbúið færast leikirnir þang-
að, svo Framarar munu ekki leika
heimaleiki sína á Laugardalsvelli um
fyrirsjáanlega framtíð.
KSÍ ritaði borgarstjóra bréf í júní
2019 vegna þeirrar stöðu sem upp var
komin. Á fundi borgarráðs 30. apríl
2020 var samþykkt að fela embætt-
ismönnum borgarinnar að hefja við-
ræður við KSÍ. Niðurstaða vinnunnar
var sú að mæla með því að árlegt
framlag Reykjavíkurborgar til rekst-
urs Laugardalsvallar verði 57 millj-
ónir frá og með 2020. Þá verði innt af
hendi 42 milljóna króna eingreiðsla
vegna niðurfellingar heimaleikja.
Greiða til KSÍ hækkar um 7,7 millj-
ónir árlega 2020-2025. sisi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalsvöllur Fram hefur ekki leikið heimaleiki þar síðan árið 2018.
Greiða KSÍ bætur
Tekjutap þegar Fram hætti að leika
á Laugardalsvelli Borgin bregst við
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fasteignaskattar af íbúðar- og at-
vinnuhúsnæði í flestum eða nær öll-
um stærri sveitarfélögum landsins
ættu að lækka á yfirstandandi ári.
Álagningarprósenta fasteignaskatta
í ellefu af 20 stærstu sveitarfélögum
landsins á nýbyrjuðu ári lækkar frá í
fyrra, ýmist af íbúðarhúsnæði eða at-
vinnuhúsnæði, og lækkar í sumum
sveitarfélögum milli ára í báðum
þessum flokkum samkvæmt nýrri
samantekt hag- og upplýsingasviðs
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Álagningarprósentan á íbúðarhús-
næði hækkar í einu sveitarfélagi,
Akraneskaupstað, eða úr 0,241% af
fasteignamati í 0,251%, en þar lækk-
aði hins vegar fasteignamat milli ára.
Í Múlaþingi hækkar álagning á at-
vinnuhúsnæði úr 1,646% í 1,650% en
álagning á íbúðarhúsnæði lækkar og
í Grindavíkurbæ hækkar álagning á
atvinnuhúsnæði úr 1,320% í 1,450%
en álagning á íbúðarhúsnæði lækkar.
Fjögur lækka í báðum flokkum
Fjögur sveitarfélög af 20 stærstu
lækka álagningarhlutföll fasteigna-
skatta bæði af íbúðarhúsnæði og at-
vinnuhúsnæði en þau eru Kópavog-
ur, Reykjanesbær, Norðurþing og
Hveragerðisbær.
Álagningarhlutfall fasteigna-
skatta er óbreytt í báðum flokkum á
milli ára í átta sveitarfélögum en þau
eru Seltjarnarnes, Garðabær, Borg-
arbyggð, Akureyri, Fjarðabyggð,
Vestmannaeyjar, Árborg og Suður-
nesjabær.
Í eftirtöldum sveitarfélögum
lækkar álagningarprósenta vegna
íbúðarhúsnæðis en helst óbreytt af
atvinnuhúsnæði; í Hafnarfirði, Ísa-
firði og í Skagafirði.
Álagning fasteignaskatta í
Reykjavíkurborg og Mosfellsbæ
lækkar á atvinnuhúsnæði á þessu ári
en er óbreytt af íbúðarhúsnæði.
Ef eingöngu er litið á höfuðborg-
arsvæðið má sjá af talnasamantekt
sambandsins að álagningarprósenta
á atvinnuhúsnæði er óbreytt í öllum
sveitarfélögunum á svæðinu nema
Reykjavík þar sem hún lækkar.
Hlutfallið er þó hæst í borginni eða
1,600%, Í Garðabæ er það 1,590%, Í
Mosfellsbæ 1,560%, 1,470% í Kópa-
vogi, 1,400% í Hafnarfirði og 1,188%
á Seltjarnarnesi.
Álagningarhlutfallið á íbúðarhús-
næði á höfuðborgarsvæðinu er hæst
í Hafnarfrði, 0,258%, 0,212% í Kópa-
vogi, 0,207% í Mosfellsbæ, 0,185% í
Garðabæ, 0,180% í Reykjavík og
0,175% á Seltjarnarnesi.
Í samantekt sambandsins er á það
bent að vegna áætlaðra verðlags-
breytinga í ár, þar sem spáð er 2,7%
hækkun neysluverðsvísitölunnar,
muni tekjur allra 20 stærstu sveitar-
félaganna af fasteignasköttum bæði
vegna íbúðar- og atvinnuhúsnæðis
lækka að raungildi um 2,2% frá í
fyrra. Raunlækkun tekna af fast-
eignasköttum af íbúðarhúsnæði
verði 0,9% og 2,9% lækkun af at-
vinnuhúsnæði.
Fasteignaskattarnir lækka
Ellefu af 20 stærstu sveitarfélögunum lækka álagningu fasteignaskatta
Fjögur lækka bæði af íbúðum og atvinnuhúsnæði Tekjurnar lækka að raungildi
Morgunblaðið/Hari
Sveitarfélög Tekjur af fasteigna-
skatti ættu að lækka milli ára.
Karl og kona sem slösuðust í hlíð-
um Móskarðshnjúka á sunnudag
liggja á Landspítalanum. Þau hafa
verið í rannsóknum en eru ekki í
lífshættu.
Lögreglan ræddi stuttlega við
þau í gær og benda fyrstu upplýs-
ingar til þess að hálka og klaki hafi
valdið slysinu. Ekkert liggur nánar
fyrir um meiðslin sem fólkið hlaut
eða aldur þess. Mikill viðbúnaður
viðbragðsaðila var á svæðinu þegar
slysið átti sér stað. Björgunarsveit-
armenn og sjúkraflutningamenn
komu á vettvang á sexhjólum og
þyrla Landhelgisgæslunnar flutti
fólkið á Landspítalann.
Morgunblaðið/Eggert
Hnjúkar Slysið varð á sunnudag.
Hálka hafi
valdið slysi
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Síðastliðið ár var ár mikilla breyt-
inga hjá Heimkaupum, að sögn Guð-
mundar Magnasonar framkvæmda-
stjóra. „Stærstu breytingarnar voru
í matvörunni en þar rétt rúmlega
þrefaldaðist veltan ef árið er skoðað í
heild sinni,“ sagði Guðmundur í
skriflegu svari. Hann sagði að vef-
verslun með matvöru á Íslandi væri
farin að hlaupa á milljörðum króna.
„Hjá okkur er matvaran að auki
orðin stærri en sérvaran sem verður
líka að teljast fréttir því við byrjuð-
um ekki í matnum fyrr en í lok árs
2018 en höfum verið í sérvörunni í
sjö ár,“ sagði Guðmundur. Þrátt fyr-
ir þetta var meiri vöxtur í sölu á raf-
tækjum, leikföngum, snyrtivörum,
og annarri sérvöru hjá Heimkaupum
í fyrra en undanfarin ár.
Guðmundur sagði ljóst að kórónu-
veirufaraldurinn hefði keyrt þennan
mikla vöxt áfram að miklu leyti. „Ég
myndi líka segja að hjá okkur hafi
orðið ákveðin kaflaskil að geta sent
matvöru af stað með 90 mínútna fyr-
irvara og að hafa náð gæðunum á
grænmetinu og ávöxtunum þannig
að margir eru farnir að treysta okk-
ur betur en að fara sjálfir út í búð að
kaupa ferskvöruna.“
Hann segir að þeim sem prófa að
kaupa matvöru hjá Heimkaupum
þyki þægilegt að fá hana senda heim
að dyrum og haldi því oftar en ekki
áfram. „Þar af leiðandi sjáum við
fram á áframhaldandi vöxt í ár þó að
hann verði trúlega ekki sá sami í pró-
sentum talið,“ sagði Guðmundur.
Hann segir að markmiðin hjá Heim-
kaupum árið 2021 séu þau að tryggja
að Heimkaup séu fyrsti valkostur
þeirra sem panta í matinn á netinu
með því að bjóða meira úrval og betri
þjónustu en keppinautarnir.
Söluaukning hjá Hópkaupum
„Nýliðið ár kom mjög vel út hjá
okkur. Við sáum bæði aukna sölu á
vörum og aukningu í sölu á þjónustu
eins og dekri, hóteltilboðum og
ýmissi afþreyingu,“ sagði Sindri
Reyr Smárason, sölustjóri hjá Hóp-
kaupum.
Breytingar urðu á eftirspurn við-
skiptavina í fyrra. Þannig jókst t.d.
spurn eftir heilsuvörum og ýmsum
vörum til líkamsræktar eftir að kór-
ónuveirufaraldurinn fór af stað í
mars. Það hélst fram eftir ári þegar
fólk þurfti að halda sig heima við og
gat ekki farið í ræktina. Salan á þess-
um vörum hélst góð út árið.
Viðskiptavinum Hópkaupa fjölg-
aði einnig í fyrra. „Það var eins og
fólk gæfi sér meiri tíma til að versla á
netinu og hefði lært betur á vefversl-
anir,“ sagði Sindri .
Mikil söluaukning í netverslunum
Mikil aukning í matvöru hjá Heim-
kaupum Vöxtur hjá Hópkaupum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Netverslun Kórónuverirufaraldurinn hafði þau áhrif að netverslun jókst.