Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
Nám & námskeið
fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 15. janúar 2021
NÁNARI UPPLÝSINGAR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
PÖNTUN AUGLÝSINGA
fyrir klukkan 12 þriðjudaginn 12. janúar
SÉRBLAÐ
Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru
sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám.
–– Meira fyrir lesendur
60 ára Arnfríður er
Siglfirðingur en býr í
Kópavogi. Hún er með
embættispróf í guð-
fræði frá HÍ og dokt-
orspróf í guðfræði frá
Lútherska háskólanum
í Chicago. Arnfríður er
prófessor í trúfræði við HÍ og situr í stjórn
Stofnunar Sigurbjörns Einarssonar.
Maki: Gunnar Rúnar Matthíasson, f.
1961, sjúkrahúsprestur.
Börn: Guðmundur Már, f. 1991, Anna
Rún, f. 1997, og Margrét Tekla, f. 2004.
Foreldrar: Guðmundur Jónasson, f.
1918, d. 2016, búfræðingur og útibús-
stjóri KEA á Siglufirði, og Margrét María
Jónsdóttir, f. 1927, d. 2012, húsmóðir á
Siglufirði.
Arnfríður
Guðmundsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Það er einhver ólga innra með þér
sem þarfnast útrásar. En til eru þeir dagar
þar sem þú skalt fara varlega í hlutina.
20. apríl - 20. maí
Naut Nú er rétti tíminn til að hringja í
gamla vini eða skrifa þeim bréf. Leitaðu
uppi fólk með svipað lífsviðhorf og njóttu
fjörlegra samræðna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Fjötrar fortíðarinnar losna af þér
í dag. Talaðu við vini þína, félaga og maka.
Varastu að taka hlutina of alvarlega og
forðastu að treysta um of á innsæi þitt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú gætir fundið til leiða í vinnunni
eða vantrúar á sjálfa/n þig. Þú þarft á öllu
þínu að halda til þess að ljúka við það
stóra verkefni sem þú hefur tekið að þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er eitt og annað sem þú ert að
kljást við þessa dagana en með réttu hug-
arfari ferðu létt með það. Hættu að eyða
tímanum til einskis og drífðu þig!
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Næsta mánuð munu samskipti við
aðra kenna þér margt um þig. Reyndu ekki
að stjórna öllum í kringum þig og snúðu
þér að eigin málum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er nauðsynlegt að staldra við og
gefa sér tíma til að skoða hlutina vand-
lega. Gefðu þér svo tíma til að vera með
því fólki sem skiptir þig öllu máli.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Dramatíkin laðar og lokkar.
Sýndu sérstaka þolinmæði í samskiptum
við þína nánustu og mundu að mál hafa
fleiri en eina hlið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þig langar til að koma skipu-
lagi á hlutina bæði í vinnunni og á heim-
ilinu og hefja að því loknu nýjan kafla.
Haltu áfram þegar niðurstaðan liggur fyrir.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að læra að hafa betri
stjórn á skapi þínu, þar sem þér hættir
einkum til að særa þá sem nærri þér
standa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Lífið er bæði flóð og fjara og nú
mun eitthvað raska ró þinni. Mættu því af
festu og láttu staðreyndirnar tala.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er kominn tími til þess að gera
eitthvað skemmtilegt með fjölskyldunni
hvort sem er heima eða heiman. Endaðu
vikuna á að gera eitthvað óvenjulegt.
urður doktorsnám við dýrafræðideild
Háskólans í Liverpool á Englandi en
rannsóknarverkefnið fjallaði um
árum voru uppi áætlanir um að
sökkva stórum hluta veranna undir
miðlunarlón.“ Haustið 1976 hóf Sig-
S
igurður Sveinn Snorrason
fæddist 12. janúar 1951 í
Hamarstíg 2 á Akureyri á
heimili móðurforeldra
sinna, Sveins og Guð-
bjargar Bjarman, og dvaldist þar
fram á vorið 1952. „Þá var mér komið
í fóstur til afabróður míns, Stefáns
Bjarman, og Þóru Eiðsdóttur konu
hans, sem þá bjuggu á Dalvík. Svo
háttaði til að faðir minn hafði farið til
náms í skógfræði í Noregi og mamma
ákvað þarna um vorið að flytja út til
hans en sá ekki möguleika á að taka
mig með. Ég dvaldi hjá Þóru og Stef-
áni í u.þ.b. tvö ár en flutti þá út til for-
eldranna í Ási í Noregi.
Þegar pabbi lauk námi vorið 1956
fluttum við heim og settumst að í
Vesturbænum í Reykjavík en haustið
1958 fluttumst við á Freyjugötu 1 og
ég settist í sjö ára bekk í Miðbæjar-
barnaskólanum þaðan sem ég út-
skrifaðist með barnaskólapróf vorið
1964. Á þessum árum eyddi ég fyrst
sumrunum hjá Stefáni og Þóru, sem
þá voru flutt til Akureyrar. Sumarið
1960 komst ég svo í sveit hjá sæmd-
arhjónunum Sigurði Karlssyni og
Kristínu Jónsdóttur á Draflastöðum í
Fnjóskadal og var þar í kaupa-
mennsku í fimm sumur.“
Haustið 1964 settist Sigurður í
Hagaskóla þar sem hann lauk lands-
prófi vorið 1967 og þaðan í MR og
lauk hann stúdentsprófi þaðan vorið
1971. „Sumarið 1965 fékk ég sum-
arvinnu hjá Skógræktinni, nánar til-
tekið hjá Ágústi Árnasyni, skógar-
verði í Hvammi í Skorradal, en um
mitt sumar 1968 hóf ég störf við gróð-
urrannsóknir og gróðurkortagerð hjá
Yngva Þorsteinssyni hjá Rannsókn-
arstofnun landbúnaðarins.
Dvölin á Draflastöðum og sumar-
störfin hjá skógræktinni og RALA
vöktu áhuga minn á náttúrufræði og
haustið 1971 hóf ég nám til BS-prófs í
líffræði og lauk því vorið 1974. Á
námsárunum í HÍ stundaði ég ýmis
rannsóknastörf á sumrin, lengstum
tengd rannsóknum á líffræði heiða-
gæsar í Þjórsárverum, en á þessum
dýralíf á botni Þingvallavatns og var
hluti stærra verkefnis, undir stjórn
Péturs M. Jónassonar, sem fól í sér
að greina megindrætti í vistkerfi
vatnsins. Hann dvaldi í Liverpool til
sumarsins 1980 en flutti þá heim. Eft-
ir heimkomuna vann Sigurður áfram
við rannsóknir á lífríki Þingvallavatns
auk þess að sinna stundakennslu við
líffræðiskor HÍ. Hann varði dokt-
orsritgerðina haustið 1982. Hann
varð lektor við HÍ 1989, dósent 1992
og prófessor 2005. Hann var for-
stöðumaður líffræðistofnunar HÍ
1999-2011 og forseti líf- og
umhverfisvísindadeildar HÍ 2008-
2012.
„Árið 1981 hóf ég undirbúning að
rannsóknum á bleikjuafbrigðum í
Þingvallavatni, tók upp þráðinn þar
sem Bjarni Sæmundsson og Árni
Friðriksson höfðu skilið við á fyrri
hluta 20. aldarinnar. Með mér störf-
uðu tveir framhaldsnemar, Hilmar J.
Malmquist, nú forstöðumaður Nátt-
úruminjasafns Íslands, og Skúli
Skúlason, prófessor og fv. rektor Há-
skólans á Hólum. Það er skemmst frá
Sigurður Sveinn Snorrason prófessor – 70 ára
Ljósmynd/Sigurður S. Snorrason
Fjölskylduboð Snorri, Greipur, Steinunn, Vigfús, Hrefna og Björg á 70 ára afmæli Hrefnu í fyrra.
Lífríki Þingvallavatns helsta
viðfangsefnið á ferlinum
Hestamaðurinn Sigurður með vini sínum, Stjarna.
40 ára Pan ólst upp í
101 og Vesturbænum í
Reykjavík og býr í
Þingholtunum. Hann
er tónlistarmaður og
hefur gefið út fjöl-
margar plötur, m.a.
með föður sínum. Pan
er nú að vinna að verki með Þorkeli Atla-
syni tónskáldi sem verður gefið út í Bret-
landi í maí. Hann hefur einnig unnið að
skipulagningu tónlistarviðburða, þ.á m.
Extreme Chill Festival.
Maki: Guðrún Lárusdóttir, f. 1971, fata-
hönnuður.
Sonur: Mikael Thorarensen, f. 2009.
Foreldrar: Óskar Thorarensen, f. 1958,
tónlistarmaður, bús. í Reykjavík, og Inge-
borg Linda Mogensen, f. 1955, d. 2017.
Pan
Thorarensen
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is