Morgunblaðið - 12.01.2021, Side 21
nöfn ættingjanna á hreinu, hvað
þeir voru að gera og talaði ætíð
um alla af stolti, hafði gaman af að
sýna myndir af þeim og segja frá.
Segja má að Magga hafi verið
örlagavaldur í mínu lífi. Ég hafði
ekki komið nokkur sumur í Ás þar
sem ég var farin að vinna sum-
arvinnu í Reykjavík en heimsókn-
in að vorlagi 1985 norður í Keldu-
hverfi varð til þess að ég kynntist
mínum manni sem bjó í sveitinni,
settist þar að árið 1988 og hef búið
þar síðan. Alltaf héldum við
Magga góðu sambandi og vorum
saman í Kvenfélagi Keldhverfinga
um árabil þar sem við fórum m.a.
saman í viku skemmtiferð til Par-
ísar árið 1993. Hún var alltaf tilbú-
in til að taka þátt í samveru, var
fróðleiksfús og dugleg að sækja
viðburði sem henni stóðu til boða
enda hrókur alls fagnaðar.
Í byrjun desember heyrði ég í
henni þegar hún var á Kristnesi
og við áttum langt og gott spjall
um heima og geima. Það er dýr-
mætt að hafa átt þetta samtal við
hana þótt ég hafi ekki náð að hitta
hana fyrir jól þegar ég vissi í hvað
stefndi. Möggu auðnaðist langlífi,
var heilsuhraust og bjó sjálfstætt
alla sína tíð enda sagðist hún ekki
ætla á elliheimili. Hún ætlaði beint
upp í „garð“ þegar hún færi úr
Reykhúsum. Minningin um lífs-
glaða og einstaka konu mun lifa í
hug og hjarta okkar sem urðum
henni samferða á lífsins leið.
Hrund Ásgeirsdóttir.
Góð vinkona okkar og nágranni
Magga í Ási er látin. Hún kom úr
Reykjavík kaupakona til bræðr-
anna Yngva og Braga sem voru
bændur í Ási, með henni kom
þriggja ára drengur, Smári, við
systkinin á næsta bæ, Ásbyrgi,
stutt á milli bæja.
Magga var glæsileg stúlka,
bráðskemmtileg og alltaf glöð, við
munum hana ekki öðruvísi, það
fylgdi henni svo margt gott.
Ógleymanlegar minningar skjóta
upp kollinum. Mamma og við syst-
ur þrjár gerðum margt saman og
Baldvin og Smári urðu leikfélagar.
Sólardagar eru margir í minning-
unni, t.d. syntum við í Ástjörninni
með fuglalífið allt um kring og
flórgoðann allsráðandi. Fyrsta
minning um Smára er þegar hann
kom með hest í bandi niður brekk-
una ofan úr Ási. Munum Möggu
og Yngva í tilhugalífinu leiðast eft-
ir barminum uppi á björgum, við
systur og Magga að máta föt, Siva
elst okkar systkina og snemma
góð í fatavali. Við að skottast upp í
Ás með skilaboð úr símanum, ekki
kominn sími á alla bæi. Í minning-
unni erum við endalaust að
skreppa upp í Ás enda alltaf gam-
an að kom til Möggu. Fjölskylda
hennar stækkaði ört og sjálf átti
hún mjög stóra fjölskyldu og vini
fyrir sunnan og við sögðum stund-
um að það væri hótel hjá Möggu
og Yngva á sumrin. Magga gaf
okkur bréf sem mamma hafði
skrifað henni eftir að foreldrar
okkar fluttu suður og búin að vera
nokkra mánuði í Reykjavík, það
var einlægt og gaman að fá það. Í
minningu okkar Stínu stendur
upp úr síðasta heimsókn foreldra
okkar í Ás. Við flugum norður og
tókum bíl og keyrðum í margar
heimsóknir, byrjuðum í Ási. Eins
og alltaf veisla hjá Möggu, mikið
hlegið og rifjaðar upp gamlar
minningar. Á myndum sem við
Stína eigum af þessari heimsókn
er sólskinsbros á öllum enda sögð-
um við að pabbi hefði sleppt stafn-
um þegar hann kom á þessar
gömlu góðu heimaslóðir. Eftir að
við systkinin vorum öll flutt suður
og komin með fjölskyldur var ekki
oft komið í Ásbyrgi án þess að
heimsækja Ás líka. Ófá eru símtöl-
in á milli gegnum árin, enginn
munur á Möggu, minnið óbreytt
og jólakortin skrifaði hún eins og
komst á kortið. Við systkinin
þökkum samfylgdina og vináttuna
og vottum börnum hennar og af-
komendum öllum innilega samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Hulda Kristín og
Baldvin Jóhann.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021
Guðbjörg er gift Ólafi Einari
Sigurðssyni, fæddur 1947.
Þeirra börn eru Guðvarður
Björgvin Fannberg, fæddur
1977 og Sigurbjörg Ósk, fædd
1979.
Guðvarður er kvæntur
Hrefnu Sif Gísladóttur, fædd
1984. Synir þeirra eru Guðjón
Gísli, fæddur 2012, Björgvin
Rúnar, fæddur 2014 og Arnór
Kári, fæddur 2016.
Sigurbjörg Ósk er gift Sig-
urði Arnari Jónssyni, fæddur
1977. Börn þeirra eru Sara
Dögg, fædd 2002 og Einar Þór,
fæddur 2005.
Lengst af starfaði Jóna Bríet
sem dómritari hjá bæjarfóg-
etanum í Hafnarfirði og sýslu-
manni Kjósarsýslu. Hún var vel
lesin og fróð um náttúru Íslands
og hafði ferðast mikið og gengið
um landið sitt.
Útförin fer fram 12. janúar
2021 klukkan 13.
Vegna aðstæðna verða ein-
göngu nánasta fjölskylda og vin-
ir viðstödd. Hægt verður að
nálgast streymi á:
https://youtu.be/n2k7tdeI4Og
Virkan hlekk má nálgast á:
https://mbl.is/andlat
Einar Sigurðsson,
1912-1942, og Ind-
íana Elísabet Guð-
varðardóttir, 1911-
2006.
Börn Jónu Bríet-
ar og Guðvarðar
eru Guðjón, fæddur
19. janúar 1953 og
Guðbjörg, fædd 5.
júlí 1956.
Guðjón kvæntist
Hjördísi Ingu Sig-
urðardóttur, fædd 1955. Þau
skildu. Börn þeirra eru Sig-
urður, fæddur 1976, Jóna Bríet,
fædd 1977 og Anton, fæddur
1991. Jóna Bríet var gift Steini
Hafliðasyni, fæddur 1977. Þau
skildu. Börn þeirra eru Hinrik
Dagur, fæddur 2003, Hjördís
Lind, fædd 2006 og Lilja Sól,
fædd 2015. Seinni kona Guðjóns
er Ásdís Sigurðardóttir, fædd
1950. Hún á fimm uppkomin
börn frá fyrra hjónabandi.
Jóna Bríet, mamma, var skáti
af lífi og sál. Hún lifði sam-
kvæmt hugsun skátastarfins,
hjálpsöm, greiðvikin og alltaf
viðbúin. Hún kynntist pabba í
skátastarfinu og þegar hann og
vinir hans stofnuðu Hjálparsveit
skáta í Hafnarfirði var hún rit-
ari félagsins og fundir voru oftar
en ekki haldnir við eldhúsborðið
á heimili þeirra að Fögrukinn
14. Hún tók iðulega þátt í æfing-
um og leitum sveitarinnar.
Hún varð ung ekkja, með
þriggja ára dreng og langt
gengin með annað barn. Það
þarf ekki að fjölyrða um hvernig
ástandið var. Þá var enginn op-
inber stuðningur, henni stóð
ekki annað til boða en halda
áfram á eigin spýtur.
Við áfallið flutti hún til for-
eldra sinna í Kópavogi með
drenginn og þar fæddi hún dótt-
ur rúmum tveimur vikum eftir
fráfall eiginmannsins. Fyrstu
árin dvaldi hún hjá foreldrum
sínum og hóf störf utan heimilis.
Á meðan hún var í vinnu voru
börnin í öruggu skjóli hjá ömmu
og afa.
Með staðfestu og dugnaði hélt
hún áfram. Hún lauk við húsið
þeirra sem var rúmlega fokhelt
þegar pabbi féll frá, flutti inn
nokkrum árum seinna og bjó
börnum sínum gott og fallegt
heimili. Þar bjó hún fram á elli-
ár.
Mamma var vel lesin og fróð
um landið sitt, jarðfræði, ör-
nefni, náttúru. Hún ferðaðist
mikið innanlands, oftast með
Ferðafélagi Íslands og svo Úti-
vist. Hún sótti myndakvöld
þessara félaga þegar hún gat.
Ekki má gleyma Hinu íslenska
náttúrufræðifélagi, þar sótti hún
fróðleik á fræðslufundum og fór
í ferðir sem buðust. Hún gekk
mikið, um hálendið, nágrenni
Hafnarfjarðar og Reykjanesið,
þar sem hún þekkti vel jarð-
fræði og jarðsögu.
Hún var vandvirk handa-
vinnukona, hvort sem um var að
ræða útsaum, prjónles eða ann-
að.
Hún var alltaf virk í skáta-
starfinu, var ein af stofnendum
St. Georgsgildisins í Hafnarfirði
og leið best ef hún gat gert eitt-
hvert gagn. Hún var skáti fram
á síðustu stund.
Jóna Bríet var vel liðin í
starfi, dugleg og fljót að tileinka
sér nýjungar. Hún var dómritari
og þegar tölvurnar tóku við af
ritvélunum varð henni að orði að
ef hún gæti ekki lært á tölv-
urnar gæti hún eins hætt störf-
um.
Þetta lýsti vel viðhorfi henn-
ar, vandamálin voru til að leysa
þau.
Hún var ótrúleg, ég er henni
þakklát fyrir gott veganesti.
Guðbjörg.
„Lífið er erfitt, en um leið og
þú hefur áttað þig á því verður
það örlítið léttara.“ Þetta gætu
vel verið einkunnarorð mömmu í
gegnum erfiða lífsbaráttu.
Ég var bara krakki þegar hún
fór að fara með mig með sér í
útilegur inn á hálendið. Þær
urðu óteljandi, þvílík þraut-
seigja að þvælast með krakka,
síðan ungling, ungan mann, með
fjölskyldu minni og svo að lok-
um allra síðustu ár sem hún var
rólfær, fór hún með okkur Ás-
dísi í hennar uppáhaldsstað
Landmannalaugar og víðar. Af
hálendishrifningu afa og
mömmu fékk ég minn skerf, bý
við alla ævi.
Það þurfti að spá í hvern aur,
að sjálfsögðu, samt var það svo
að ég fann það ekki mikið í sam-
skiptum við félaga mína, hún
veitti mér ábyggilega meir en
hún gat í raun og veru, sem hef-
ur verið erfitt á þeim umbrota-
tímum sem ’68-kynslóðin ólst
upp við, verkstjórar hjá
Bæjarútgerðinni horfðu stund-
um í gegnum fingur sér með ald-
urstakmörk til vinnu við mig,
sennilega hefur það hjálpað til
við tískufatakaup mín.
Flest jól þáði hún að vera fyr-
ir austan hjá okkur, mér er nær
að halda að í augum ömmu-
barnanna hafi hún verið ómiss-
andi hluti af jólunum.
Mér er efst í huga þakklæti
fyrir andlegt veganesti sem hún
veitti mér, það er nokkuð sem
mölur og ryð fá ekki grandað og
fylgir mér ævina út.
Að lokum vil ég þakka; Óla
fyrir þolinmæði, góðmennsku og
hjálpsemi sem hann var alltaf
tilbúinn til að veita henni, Hjör-
dísi fyrir einlæga vináttu í henn-
ar garð, Ásdísi minni fyrir alveg
einstök vináttutengsl sem þær
mamma mynduðu sín á milli, þar
fór margt hvíslið á milli sem
enginn heyrði nema þær. Ásdís
fylgdi henni úr hlaði í hennar
síðustu ferð, með sameiginlegu
bænahaldi. Eftir á fannst manni
eins og það eina sem væri eftir
að mamma segði væri „ég er
tilbúin.“ Ásdís hjó líka á hnút
sem áratugum saman hafði verið
óleystur, okkur ber að þakka
það.
Nú er komið að því, mamma
mín, að þið pabbi hittist í land-
inu þar sem sólin sest aldrei.
Guðjón.
Jóna Bríet
Guðjónsdóttir
✝ Jóna BríetGuðjónsdóttir,
Bíbí, fæddist 5.
mars 1933 í Breið-
holti í Vest-
mannaeyjum. Hún
lést á Hjúkr-
unarheimilinu Sól-
vangi 16. desember
2020. Jóna Bríet
var dóttir hjónanna
Guðjóns H. Jóna-
tanssonar renni-
smiðs frá Breiðholti í Vest-
mannaeyjum, 1910-1993, og
Guðríðar Árnadóttur frá Hrólfs-
staðahelli í Landsveit, 1906-
1984. Bræður Jónu Bríetar voru
Árni, 1934-2015, og Rúnar,
1939-1957.
Eiginmaður Jónu Bríetar var
Guðvarður Björgvin Fannberg
Einarsson húsasmiður frá Hafn-
arfirði, fæddur 21. júlí 1931, dá-
inn 17. júní 1956.
Foreldrar Guðvarðar voru
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
HERMANN ÁGÚST,
Engjavegi 53, Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum á
Selfossi sunnudaginn 3. janúar.
Útförin fer fram frá Selfosskirkju fimmtudaginn 14. janúar
klukkan 14. Vegna fjöldatakmarkana verður athöfninni streymt á
vef Selfosskirkju.
Guðmunda Auður Auðunsdóttir
Auðunn Hermannsson Bergþóra Þorkelsdóttir
Birna Gerður Hermannsd. Björn Sigþórsson
Hulda Soffía Hermannsdóttir Gunnar Þór Jónsson
Auður Ágústa Hermannsd. Guðjón Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
SIGURÐUR ÓLAFSSON,
mjólkurfræðingur frá Snælandi,
Austurvegi 53,
Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum laugardaginn 9. janúar.
Jarðarför auglýst síðar.
Guðmundur Sigurðsson Bergljót Þorsteinsdóttir
Ólafur Sigurðsson Kristín Björnsdóttir
Guðrún I. Sigurðardóttir Sigurjón Þórðarson
Einar Þorbjörnsson Sigrún Erlendsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir og afi,
PÁLL ÁRNASON
frá Auðsstöðum í Vestmannaeyjum,
lést á Hraunbúðum, dvalarheimili aldraðra
í Vestmannaeyjum, 1. janúar.
Útförin fer fram föstudaginn 15. janúar
klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt frá
heimasíðunni www.landakirkja.is.
Kristinn Karl Bjarnason
Guðmundur Árni Pálsson María Höbbý Sæmundsdóttir
Andri Páll Guðmundsson Arnar Ási Guðmundsson
Guðni Sigurður Guðmundsson
Ástkær eiginkona mín,
RAGNHEIÐUR ÞÓRA KOLBEINS,
lést á krabbameinslækningadeild
Landspítalans sunnudaginn 27. desember.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 15. janúar klukkan 17.
Aðstandendur afþakka blóm og kransa.
Þeim sem vilja minnast Ragnheiðar Þóru er bent á námssjóð
Rósu Guðbjargar dóttur okkar: banki 515-26-121004, kennitala
121004-2240. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir. Vinir og vandamenn eru hvattir til
klæða sig upp, koma saman í hæfilega stórum hópum og
upplifa athöfnina með okkur í beinu streymi á vefslóðinni
http://beint.is/streymi/ragnheidurthora.
Jarðsett verður í kirkjugarði Kotstrandarkirkju í Ölfusi með
hækkandi sól.
Ást og friður.
Guðmundur Pálsson og fjölskylda.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HAUKUR ÁRSÆLSSON,
fyrrv. rafmagnseftirlitsmaður,
lést á Droplaugarstöðum fimmtudaginn
7. janúar. Útför hans fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verður útförinni streymt á slóðinni
beint.is/streymi/haukura. Upplýsingar eru einnig á Mbl/andlát.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug.
Gísli Hauksson Hrafnhildur Snorradóttir
Ólafur Hauksson Sigurlaug Bragadóttir
Ársæll Hauksson Helga Haraldsdóttir
Þorleifur Hauksson
Jóhann Hauksson Björk Ásgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
INGIBJÖRG VERMUNDSDÓTTIR,
Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu á Nesvöllum miðvikudaginn
30. desember. Útförin fer fram frá
Sandgerðiskirkju föstudaginn 15. janúar klukkan 11.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina.
Athöfninni verður streymt á hlekknum www.streyma.is.
Sigríður Fjóla Þorsteinsd. Þráinn Maríusson
Brynja Hjarðar Þorsteinsd. Jón Gunnar Sigurðsson
Guðríður Helga Þorsteinsd. Kristján Símonarson
Elvar Þór Þorsteinsson Aníta Ósk Guðbjargardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR A. ÞORMAR
tannlæknir,
lést 3. janúar. Útförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn
14. janúar klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu vinir og ættingjar
viðstaddir. Hægt verður að fylgjast með útförinni á
www.streyma.is.
Kristín Þormar
Andrea Þormar Atli Már Jósafatsson
Ólafur Þormar
Sveinbjörn Þormar Kristín Þórsdóttir