Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Finnur Tómas Pálmason, miðvörð- urinn ungi hjá KR, er á leið til sænska úrvalsdeildarliðsins Norr- köping. Jónas Kristinsson, fram- kvæmdastjóri KR, staðfesti við Fót- bolta.net í gær að samningar félaganna á milli væru í höfn og Ex- pressen sagði í framhaldi af því að Finnur væri búinn að ganga frá málum við Norrköping og yrði formlega kynntur hjá félaginu síð- ar í vikunni. Finnur er 19 ára og hefur leikið 31 leik með KR í úr- valsdeildinni á undanförnum tveim- ur árum. Finnur á leiðinni til Norrköping Morgunblaðið/Hari Svíþjóð Finnur Tómas Pálmason fer frá KR til Norrköping. Manchester United verður á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fyrsta sinn síðan Alex Ferguson hætti störfum sem knattspyrnustjóri árið 2013, fái liðið stig úr leik sínum gegn Burnley á Turf Moor í kvöld. Liverpool er efst með 33 stig og betri markatölu en Manchester United, sem einnig er með 33 stig en á leikinn í kvöld til góða. Með sigri eða jafntefli fer United í topp- sætið með 36 eða 34 stig. Á sunnu- daginn kemur mætast síðan Liver- pool og Manchester United á Anfield í sannkölluðum toppslag. Í fyrsta sinn frá Ferguson-árum? AFP Efstir? Leikmenn Manchester United gætu fagnað vel í kvöld. HM 2021 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslenskir og spænskir þjálfarar stjórna flestum lið- um á heimsmeistaramóti karla í Egyptalandi sem hefst í Kaíró á morgun, miðvikudag, með upphafs- leik Egypta og Sílebúa. Liðin í lokakeppni HM eru 32 talsins, fleiri en nokkru sinni fyrr, en þeim hefur verið fjölgað úr 24 frá síðasta móti. Þjálfararnir eru 33 talsins en Tékkar mæta til leiks með tvo fyrrverandi lands- liðsmenn sína, Jan Filip og Daniel Kubes, við stjórnvölinn. Af þessum 33 þjálfurum eru fjórir Ís- lendingar og fjórir Spánverjar en engin önnur þjóð á fleiri en tvo þjálfara á mótinu. Tuttugu af þessum 32 landsliðum eru undir stjórn heimamanns eða heimamanna og því aðeins tólf sem eru með erlendan aðalþjálfara. Alfreð einn sá reyndasti á HM Alfreð Gíslason er í hópi reyndustu þjálfara mótsins en hann tók við þýska landsliðinu á síðasta ári eftir afar farsælan feril með þýsk félagslið allt frá árinu 1997. Hann þjálfaði íslenska landsliðið á árunum 2006 til 2008 og var hársbreidd frá því að koma því í undanúrslit á HM 2007. Dagur Sigurðsson þjálfar lið Japans en hann hefur verið með liðið í fjögur ár, eða síðan hann hætti með þýska landsliðið eftir að hafa stýrt því til Evrópumeistaratitils í Póllandi og bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016. Halldór Jóhann Sigfússon þjálfar lið Barein en hann tók við því í nóvember eftir að hafa áður þjálf- að 19 ára og 21 árs landslið Persaflóaríkisins. Guðmundur Þ. Guðmundsson er síðan fjórði ís- lenski þjálfarinn á mótinu en hann hefur stýrt ís- lenska liðinu frá 2018 og var áður með það 2001- 2004 og 2008-2012. Guðmundur vann silfurverðlaun á ÓL í Peking 2008 og bronsverðlaun á EM í Aust- urríki 2010 sem landsliðsþjálfari Íslands og hreppti ólympíugull sem þjálfari Dana á ÓL í Ríó árið 2016. Jordi Ribeira stýrir spænska liðinu en landar hans Valero Rivera, Manolo Cadenas og Roberto García þjálfa lið Katar, Argentínu og Egyptalands. Spænsku þjálfararnir fjórir á mótinu eru því með lið hver í sinni heimsálfu. Sænskir þjálfarar stjórna tveimur erlendum landsliðum en Ljubomir Vranjes þjálfar Slóvena og Robert Hedin þjálfar lið Bandaríkjanna sem er á stórmóti í fyrsta sinn í tuttugu ár. Athyglisvert er að aðeins einn þýskur þjálfari starfar á mótinu en Velimir Petkovic, sem er fædd- ur í Júgóslavíu, stjórnar landsliði Rússa. Þjálfarar liðanna 32 eru eftirtaldir: A-riðill: Þýskaland: Alfreð Gíslason – Ísland Ungverjaland: István Gulyás – Ungverjaland Úrúgvæ: Jorge Botejara, – Úrúgvæ Grænhöfðaeyjar: José Tomaz – Grænh.eyjar B-riðill: Spánn: Jordi Ribera – Spánn Túnis: Sami Saidi – Túnis Brasilía: Marcus Oliveria – Brasilía Pólland: Patryk Rombel – Pólland C-riðill: Króatía: Lino Cervar – Króatíu Katar: Valero Rivera – Spánn Japan: Dagur Sigurðsson – Ísland Angóla: Nelson Damiao Catito – Angóla D-riðill: Danmörk: Nikolaj Jacobsen – Danmörk Argentína: Manolo Cadenas – Spánn Barein: Halldór Jóhann Sigfússon – Ísland Kongó: Francis Guzolana – Kongó E-riðill: Noregur: Christian Berge – Noregur Austurríki: Ales Pajovic – Slóvenía Frakkland: Guillaume Gille – Frakkland Bandaríkin: Robert Hedin – Svíþjóð F-riðill: Portúgal: Paulo Pereira – Portúgal Alsír: Alain Portes – Frakkland Ísland: Guðmundur Guðmundsson – Ísland Marokkó: Noureddine Bouhaddioui – Marokkó G-riðill: Svíþjóð: Glenn Solberg – Noregur Egyptaland: Roberto García – Spánn Tékkland: Jan Filip/Daniel Kubes – Tékkland Síle: Mateo Jesús Garralda – Síle H-riðill: Slóvenía: Ljubomir Vranjes – Svíþjóð Hvíta-Rússland: Iouri Shevtsov – Hv.Rússland Suður-Kórea: Il-koo Kang – Suður-Kórea Rússland: Velimir Petkovic – Þýskaland Komast allir fjórir í milliriðla? Af íslensku þjálfurunum fjórum er Alfreð sá sem mætir til leiks með mesta pressu á bakinu. Þjóð- verjar vilja vinna til verðlauna á öllum stórmótum, hversu raunhæft sem það svo er hverju sinni. Stað- reyndin er sú að frá því Þýskaland varð heims- meistari árið 2007 er Dagur Sigurðsson eini þjálf- arinn sem hefur komið þýska liðinu á verðlaunapall á stórmóti, og það tvívegis. Þjóðverjar enduðu í fjórða sæti á síðasta heimsmeistaramóti, á sínum heimavelli fyrir tveimur árum. Guðmundur á raunhæfa möguleika á að komast nokkuð langt með íslenska liðið, sem ætti að fara í milliriðil án teljandi vandræða. Eftir það þyngist róðurinn verulega en hann ætti að geta barist með íslenska liðinu um sæti í átta liða úrslitum. Dagur á ágæta möguleika á að fara með jap- anska liðið í milliriðil en Japanir munu væntanlega slást við Angóla um þriðja sæti C-riðils og um að fara áfram. Hætt er við að japanska liðið eigi erfitt uppdráttar gegn Króötum og Katarbúum. Halldór Jóhann gæti líka hæglega komið liði Barein í milliriðil. Bareinar ættu að vera sigur- stranglegri gegn Kongó og gætu slegist við Arg- entínu um annað sæti D-riðils. Ekkert þessara liða mun hinsvegar ógna öflugu liði dönsku heimsmeist- aranna. Ef allt gengur að óskum gætu Íslendingarnir fjórir allir verið með í milliriðlakeppni mótsins sem hefst 20. janúar. Flestir þjálfaranna á HM eru frá Íslandi og Spáni  Tólf lið af 32 með erlenda þjálfara og þrjú þeirra með Íslending við stjórnvölinn Morgunblaðið/Hari Barein Halldór Jóhann Sigfússon er þriðji Íslendingurinn með liðið. Ljósmynd/@DHB_Teams Þýskaland Alfreð Gíslason á að fara langt með þýska liðið á HM. Morgunblaðið/Eggert Ísland Guðmundur Þ. Guðmunds- son hefur náð frábærum árangri. AFP Japan Dagur Sigurðsson hefur stjórnað liðinu í fjögur ár.  Landsliðsbakvörðurinn Elvar Már Friðriksson var í liði vikunnar í litháísku A-deildinni í körfuknattleik en deildin birti úrvalslið sitt í gær. Elvar var í lyk- ilhlutverki hjá Siauliai, einu sinni sem oftar, þegar lið hans lagði Neptunas að velli á sunnudaginn, 93:88. Hann skor- aði ellefu stig og átti ellefu stoðsend- ingar, og fékk samtals 25 framlagsstig, sem var þriðja hæsta stigatalan í síð- ustu viku í deildinni.  Bjarki Pétursson, Íslandsmeistari í golfi, var kjörinn íþróttamaður Borg- arfjarðar árið 2020. Bjarki sigraði á Ís- landsmótinu sem haldið var í Mos- fellsbæ að þessu sinni og gerði það með glæsibrag en Bjarki lék holurnar 72 á samtals þrettán höggum undir pari sem er mótsmet. Kristín Þórhalls- dóttir, margfaldur methafi í kraftlyft- ingum, hafnaði í 2. sæti í kjörinu og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir körfu- knattleikskona í 3. sæti. Hún er í liði Skallagríms sem varð bikarmeistari og vann einnig Meistarakeppni KKÍ.  Ekki eru öll lið tilbúin til að hefja keppni á Íslandsmóti þótt leyfi hafi fengist til þess frá heilbrigðis- yfirvöldum. Vestfjarðaliðið Vestri getur ekki teflt fram liði í úrvalsdeild karla í blaki um næstu helgi. Vestramenn unnu óvæntan sigur á meisturum Þróttar frá Neskaupstað í fyrsta leik sínum í Mizuno-deild karla í byrjun október, 3:1, en það reyndist eini leik- urinn til dagsins í dag þar sem keppni var frestað í kjölfarið. Um næstu helgi átti Vestri að taka á móti Hamri á Ísa- firði í Mizuno-deild karla en þeim leik hefur nú verið frestað þar sem fjórir af leikmönnum Vestra eru erlendir og komast ekki til landsins í tæka tíð.  Englandsmeistarar Liverpool heim- sækja Manhcester United á Old Traf- ford í fjórðu umferð ensku bikarkeppn- innar í knattspyrnu en dregið var í gær. Leikurinn fer fram laugardaginn 23. janúar. United hefur unnið keppnina tólf sinnum á meðan Liverpool hefur unnið hana sjö sinnum.  Enska knattspyrnufélagið Arsenal vonast til þess að kaupa markvörð í jan- úarglugganum en landsliðsmarkvörð- urinn Rúnar Alex Rúnarsson er samn- ingsbundinn úrvalsdeildarfélaginu. David Ornstein, blaðamaður The Athle- tic, greinir frá því að Rúnar Alex hafi alltaf verið hugsaður sem þriðji mark- vörður liðsins og að Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vonist til þess að fá inn vara- markvörð í janúar til þess að berjast af alvöru við Bernd Leno um markvarð- arstöðuna. Rúnar Alex hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðinu en hann var í byrjunarliði Arsenal sem tapaði 4:1-fyrir Manchester City í undanúrslitum enska deildabikarsins í desember í London. Þar gerði hann sig sekan um slæm mis- tök og hefur hann ekki fengið tækifæri í byrjunarliðinu síðan. Ef Arsenal tekst að klófesta annan markvörð í gluggan- um verður Rúnari Alex leyft að yfirgefa Arsenal á láni og hafa nokkur lið sýnt markverð- inum áhuga sam- kvæmt The Athletic og Orn- stein. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.