Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI THE HOLLYWOOD REPORTER CHICAGO SUN-TIMES Franski djass- píanóleikarinn og tónskáldið Claude Bolling er látinn, níræð- ur að aldri. Boll- ing var ekki síst þekktur fyrir bræðing djass og klassíkur en hljómplatan með samstarfsverkefni þeirra flautu- leikarans Jean-Pierres Rampals, Suite for Flute and Jazz Piano, frá 1975, var í heilan áratug á metsölu- listum klassískrar tónlistar og er með söluhæstu klassísku plötum. Bolling samdi tónlist við fjölmargar kvikmyndir. Píanistinn Claude Bolling látinn Claude Bolling Fyrir rúmum tveimur árum höfðaði bandaríska tónlistarkonan Tracy Chapman mál gegn löndu sinni, hinum vinsæla rappara Nicki Min- aj, eftir að þá óútgefið lag, „Sorry“, með Minaj var leikið í útvarps- útsendingu og taldi Chapman það taka mikið úr lagi sínu „Baby Can I Hold You“. Samkvæmt fréttum hafa sættir nú náðst í málinu án þess að dómur hafi fallið og hefur Minaj greitt Chapman 450 þúsund dali í bætur, um 57 milljónir króna. Samkvæmt The New York Times hefur málið vakið mikla athygli og umræðu meðal sérfræðinga í höf- undarrétti þar sem lagið, sem Minaj flutti ásamt rapparanum Nas, var aldrei formlega gefið út og hljóm- aði einungis einu sinni í útvarpinu. Chapman sagði Minaj hafa beðið um leyfi fyrir að nota stef frá sér en því var hafnað. Minaj hélt því fram á móti að notkun sín félli undir svokölluð „fair use“, sem veiti flytjendum und- anþágu frá höfundarréttarákvæð- um. Deilan snerist síðan um það hvernig lagið, sem enn var í vinnslu, hafi borist útvarpsþætt- inum. Haft er eftir lögmanni Minaj að ákveðið hafi verið að semja um lyktir málsins, það hefði verið enn dýrara að láta dómstóla dæma. Minaj greiddi Chapman 57 milljónir kr. Nicki Minaj Félagsfundur Klassís, Fagfélags klassískra söngvara á Íslandi, lýsir yfir vantrausti á stjórn og óperu- stjóra Íslensku óperunnar, Stein- unni Birnu Ragnarsdóttur, vegna stjórnunarhátta stofnunarinnar á undanförnum árum, segir í tilkynn- ingu sem Klassís hefur sent frá sér. Vantraustsyfirlýsingin var sam- þykkt á fjölmennum fjarfundi. Í til- kynningunni segir að söngvarar inn- an vébanda félagsins hafi sýnt langlundargeð gagnvart stjórn- unarháttum Íslensku óperunnar um langt skeið en nú sé það þrotið. „Söngvarar hafa alla tíð stutt óp- eruflutning á Íslandi með sínu fram- lagi og haft ríkan skilning á þröngri fjárhagsstöðu óperunnar. Söngvarar hafa þannig oftar en ekki sungið fyr- ir Íslensku óperuna fyrir brot af því sem þeir fá greitt fyrir sína vinnu er- lendis,“ segir í tilkynningunni. „Að- koma söngvara að stjórn Íslensku óperunnar var mikil í upphafi en hef- ur farið stöðugt minnkandi og er nú svo komið að aðkoma þeirra er eng- in. Dæmi eru um að stjórnin hafi markvisst komið í veg fyrir aðkomu söngvara, til dæmis með því að breyta samþykktum sínum á lok- uðum fundi til að koma í veg fyrir að réttilega tilnefndir söngvarar tækju sæti í stjórn. Undanfarin ár hefur stjórn og óperustjóri Íslensku óp- erunnar endurtekið sýnt áhugaleysi á að heyra sjónarmið, umkvörtunar- efni og tillögur frá söngvurum og öðru fagfólki á sviði óperulistar.“ Gallaðir verksamningar Þá segir: „Íslenska óperan er nán- ast eini starfsvettvangurinn fyrir óperusöngvara á Íslandi, enda eina stofnunin sem fær fé úr ríkissjóði eyrnamerkt óperustarfsemi. Í krafti einokunarstöðu sinnar og að- stöðumunar hefur þessi sjálfseign- arstofnun aðeins boðið söngvurum gallaða verksamninga, sem gera ákvæði sem vísa í kjarasamning við stéttarfélögin (FÍH og FÍL) að engu, eins og nýfallinn dómur hefur nú leitt í ljós.“ Þá segir að stjórnunarhættir og stefna Íslensku óperunnar í kjara- málum söngvara hafi leitt til þess að laun söngvara hafa lækkað að raun- gildi. Enn fremur séu dæmi um tölu- verðan óútskýrðan launamun kynjanna. „Sjá má mikla fylgni milli þess að fólk kvarti eða leiti réttar síns og þess að fá ekki aftur vinnu hjá Íslensku óperunni, eða mögu- leika á vinnu með fyrirsöng. Óperustjóri hefur einhliða breytt ákvæðum um flytjendarétt og tekið út rétt til greiðslu vegna sýninga í sjónvarpi og ennfremur bætt við ákvæðum um að söngvarar afsali sér rétti til viðbótargreiðslna vegna streymis innanlands sem utan. Um leið og þetta er gert hefur streymi sýninga Íslensku óperunnar á al- þjóðlegum streymisveitum orðið að nýrri tekjulind fyrir óperuna.“ Vísar ásökunum á bug Í samtali við Steinunni Birnu á vef RÚV í gær vísar hún ásökunum söngvaranna á bug en að það sé eðli- legt að uppi séu ólíkar skoðanir um stjórnun menningarstofnana. Hún segist líka eiga í mjög góðum sam- skiptum við fjölmarga söngvara sem koma fram á vegum Íslensku óp- erunnar svo þessi viðbrögð hafi komið henni mjög á óvart. Ásakanir eins og um að söngvarar sem komi fram með umkvörtunar- efni séu ekki ráðnir aftur og um launamun kynja segir Steinunn Birna ekki eiga við rök að styðjast. Ljósmynd/Jóhanna Ólafsdóttir Ópera Frá uppfærslu Íslensku óp- erunnar á La traviata eftir Verdi. Vantraust á óperustjórann  Félag söngvara ósátt við óperuna Í Louvre-safninu í París hefur undanfarna tíu mánuði verið rólegt um að litast, sem er æði óvenjulegt í þessu vinsælasta safni jarðar. Árið 2019 heimóttu 9,6 milljónir manna safnið og stefndi í enn meiri aðsókn í fyrra, vegna einstakrar sýningar á verkum eftrir Leonardo da Vinci sem sett var upp þegar 500 ár voru frá láti hans. En safnið var lokað stóran hluta ársins vegna kórónu- veirufaraldurins og komu því aðeins 2,7 milljónir gesta á árinu; nam sam- drátturinn milli ára 72 prósentum. Eftir langa lokun í fyrravor var Louvre opnað aftur í fyrrasumar en með miklum takmörkunum. Telja stjórnendur safnsins það hafa misst af um 90 milljónum evra í tekjur. Á venjulegu ári eru þrír af hverjum fjórum gestum í heimsókn í Frakk- landi en í fyrra breyttist hlutfallið með færri ferðamönnum og voru um 70 prósent gesta franskir. AFP Tómlegt Mona Lisa Da Vincis horfir yfir tóman Salle des Etats-salinn í Louvre, þar sem venjulega er þröng gesta. Aðsókn dróst saman um 72%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.