Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.01.2021, Blaðsíða 32
Hljómsveit Unnar Birnu og Björns Thoroddsen heldur tvenna tónleika í vikunni, þá fyrri 14. janúar í Gamla bíói og þá seinni 15. janúar á Hótel Selfossi, og hefjast hvorir tveggja kl. 20.30. Vegna fjöldatakmarkana er takmarkað magn miða í boði, að því er fram kemur á tix.is. Hljómsveitina skipa Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu, Björn Thoroddsen á gítar, Skúli Gíslason á trommur og Sigurgeir Skafti Flosason á bassa. Tvennir tónleikar með hljómsveit Unnar Birnu og Björns Thoroddsen það hafi ekki verið í boði vegna veir- unnar. „Ég held að fólk sé fegið að það sé verið að gera eitthvað, að reyna að breyta hversdagsleik- anum.“ Skólastarfið á tíma veirunnar hef- ur verið mjög óvenjulegt, að sögn Þóru Rannveigar. Hún hafi til dæmis verið vön því að kynnast nýju fólki á hverri önn en það hafi ekki gerst á þessum tíma. „Tengingin er langt því frá eins góð og áður og maður sér engin ný andlit. Kannski fáum við ekki að fara aftur inn í skólann eins og áður og þá verður það leiðinlegt en fyrirkomulagið verður að vera eins og það verður að vera.“ Þrátt fyrir neikvæð áhrif veir- unnar segir Þóra Rannveig að ástandið komi ekki öllum illa. „Þótt skemmtilegra sé að hitta krakkana í frímínútum finnst mér þægilegt námsins vegna að vera í fjarnámi.“ Foreldrar hennar eru í áhættuhópi og því býr hún hjá ömmu sinni og hittir bara hana og kærasta sinn. „Allir dagar hafa einhvern veginn verið eins en með hverjum deginum sem líður færist maður nær því að þessu ástandi ljúki og þá ætla ég að gera sem mest,“ segir Þóra Rann- veig, sem stefnir í haust á háskóla- nám í sköpun eða hönnun, arkitektúr eða byggingarverkfræði. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Félagslíf í framhaldsskóla er mikil- vægur hluti skólastarfsins, en vegna samkomutakmarkana í kórónuveiru- faraldrinum hafa nemendur þurft að bregða út af vananum. „Það var skrýtið að taka við stjórn nemenda- félagsins þegar öll starfsemi var löm- uð en við höfum samt reynt að gera ýmislegt skemmtilegt,“ segir Þóra Rannveig Emmudóttir, forseti nem- endafélags Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Nemendur FB í list- og verknámi hafa stundum mátt mæta í skólann en aðrir hafa verið í fjarnámi. Þóra Rannveig er á listnámsbraut og út- skrifast sem stúdent í vor. Hún segir að bryddað hafi verið upp á ýmsu í ljósi breyttra aðstæðna. Þau hafi til dæmis fengið Jón Jónsson tónlistar- mann til þess að syngja og spjalla við nemendur á samskiptaforritinu Teams á nýnemakvöldinu og Pálma Ragnarsson hvatningarfyrirlesara á miðri haustönninni. Söngur, sýningar og bingó „Jón var með „peppræðu“ fyrir nýnemana í þeim tilgangi að hrista þá saman og koma þeim í stuð og Pálmi talaði um jákvæð samskipti,“ segir Þóra Rannveig. Leikarinn Vil- helm Neto hafi verið með uppistand á youtube-streymi, sem hafi verið eingöngu fyrir FB, og boðið hafi ver- ið upp á ýmsar uppákomur tengdar náminu. Í því sambandi nefnir hún rafræna tískusýningu frá lokaárs- nemendum á textílbraut og rafræna myndlistarsýningu myndlistarnema. Farið hafi verið í leiki á instagram eins og til dæmis hreyfikeppni, þar sem nemendur hafi skrásett í sér- stakt app hreyfingu sína, göngu, hlaup og hjólatúra, og nokkrir hafi síðan verið dregnir út og fengið verð- laun. Eins hafi verið ljósmynda- keppni á instagram og rafrænt bingó. „Við höfum aldrei verið með svona instagram-leiki áður og raf- rænar tísku- og myndlistarsýningar voru líka nýbreytni í skólanum. Mjög margir tóku þátt í bingóinu rétt fyrir jólin, það heppnaðist sérlega vel og við ætlum að endurtaka það.“ Þóra Rannveig segir að flestir nemendur vilji venjulegt félagslíf en Fjölbreytt félagslíf í FB  Nemendafélagið á skemmtilegum rafrænum nótum  Biðin eftir „eðlilegu“ ástandi styttist með hverjum deginum Morgunblaðið/Árni Sæberg Jákvæð Þóra Rannveig Emmudóttir, forseti nemendafélags FB. Þórska ffi á K1 00 - öll laug ardags kvöldm illi 8 og 12 Á Þórsk affi spilu m við gö mul og góð d anslög í bland vi ð það vinsæla sta í dag - Hver v ar þinn uppáh aldssk emmt istaðu r? Var það Ingólfs kaffi, T unglið, Sportk affi, Ka ffi Ólive r eða Thorva ldsen? Við rifju m upp s kemmti legar sö gur af skem mtistöð um og h eyrum í fólki sem van n á þess um stöð um og auðvitað líka í þei m sem s kemmtu sér á þe ssum st öðum. Þór Bæring sér um að allir skemmti sér vel á Þórskaffi - öll laugardagskvöld á K100 frá 20.00 til 00.00 ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 12. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Mögulega gæti hornaspilið orðið meira og betra en oft áður hjá íslenska liðinu. Liðið er vel sett með Bjarka Má Elísson, Odd Gretarsson, Arnór Þór Gunnarsson og Sig- valda Björn Guðjónsson í hornunum. Allt miklir marka- skorarar með sínum félagsliðum. Miðað við hvernig hornaspilið var á köflum gegn Portúgal ætti íslenska liðinu að ganga vel að nýta hornamennina,“ segir með- al annars í grein um karlalandsliðið í handknattleik í blaðinu í dag en Ísland mun hefja leik á HM í Egypta- landi á fimmtudagskvöldið. »27 Hornaspil íslenska liðsins gæti orðið betra á HM en oft áður ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.