Morgunblaðið - 12.01.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.01.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Úti Vel hefur viðrað til útivistar á höfuðborgarsvæðinu undanfarna daga. Við Ægisíðu mátti í gær njóta meiri loftgæða en víða annars staðar í borginni, enda fjarri helstu umferðaræðum. Eggert Á næstu árum þarf að fjárfesta, fram- kvæma og framleiða og gera Ísland sjálfbært á flestum sviðum at- vinnulífs. Ísland er sjálfbært á mörgum sviðum, t.a.m. hreint vatn, heitt vatn, endur- nýjanleg orka, hreinar fiskafurðir og hreint loft. Ísland getur orðið sjálfbært í lífrænum landbúnaði og grænmetisframleiðslu á næstu árum með skattívilnunum og lækkun á raf- orkuverði til sjálfbærrar framleiðslu. Ísland á að vera með sjálfbært heil- brigðiskerfi í fremstu röð þar sem hægt er að framkvæma valkvæðar aðgerðir og veita framúrskarandi þjónustu á öllum sviðum heilbrigð- isþjónustu. Byggja þarf tvö ný há- tæknisjúkrahús, annars vegar á Keldum og hins vegar að Vífils- stöðum til að mæta mikilli eftirspurn eftir framúrskarandi læknisþjónustu á öllum sviðum en eftirspurn mun aukast mikið á næstu árum. Útrýma þarf biðraðamenningu í heilbrigð- iskerfinu með góðu samstarfi ríkis og einkaaðila. Auka þarf einkaframkvæmd og samkeppni á flestum sviðum heilbrigðisþjón- ustu, en þannig eykst verðmætasköpun og sjálfbærni. Hefja þarf byggingu hjúkr- unarheimila með metn- aðarfullum hætti um allt land strax á næsta ári nálægt kjörnum heilbrigðisþjónustu og hátæknisjúkrahúsa. Mikilvægt er að taka stórar „strategískar“ ákvarð- anir til að mæta framtíðinni með því að hugsa stórt og vera skrefi framar. Lífsstílsfjárfestingar í heilsu, mat- vælum, fjártækni, fjarskiptum og heilbrigðismálum eru stóru málin næstu árin. Íslendingar eiga að hefj- ast handa strax og byrja fjárfest- ingar og framkvæmdir um allt land sem auka sjálfbærni og verðmæta- sköpun. Einnig þarf að koma af stað framleiðslu sem tengist matvæla- framleiðslu sem byggist á sjálfbærni en grænmetisframleiðsla er að aukast hratt um allt land enda nægt af vatni, hreinu lofti og endurnýj- anlegri orku. Nú þarf stóriðja 21. aldarinnar að fá endurnýjanlega orku á ásættanlegu verði en þannig er hægt að mæta loftslagsmark- miðum með minni flutningum milli landa. Mikilvægt er að stjórnmálamenn og embættismenn landsins taki upp þessa vinningsformúlu sem gæti bætt verulega rekstur ríkis og sveit- arfélaga. Ísland er einstakt land vegna legu sinnar, menningar, ís- lenskrar tungu, ómengaðrar nátt- úru, náttúruauðlinda og hæfi- leikaríkra Íslendinga á mörgum sviðum. Styrkleikar landsins felast einnig í smæð landsins, íbúafjölda og vel menntuðum Íslendingum á fjöl- mörgum sviðum. Ísland er ríkulega búið náttúruauðlindum sem eiga eft- ir að margfaldast í verðmætum á þessari öld, s.s. vatn, endurnýjanleg orka, hreinar fiskafurðir, lífrænn landbúnaður og hreint loft. Náttúra landsins er einstök en íslensk víðerni og óviðjafnaleg náttúrufegurð mun leiða til mikillar eftirspurnar sem verður að stjórna með stefnumörkun til lengri tíma með hagsmuni lands- ins að leiðarljósi. Sóknarfæri lands- ins eru mikil í verðmætasköpun á næstu áratugum vegna legu landsins og auðlinda sem eru eftirsóknarverð í heimi þar sem neyslan er stjórnlaus á kostnað náttúrunnar og landgæða. Af þessari upptalningu má ráða að fjársjóður Íslands er mikill horft til framtíðar og með skýrri framtíð- arsýn og leiðtogafærni getum við náð árangri. Skýr framtíðarsýn og leiðtoga- færni býr til vinningslið Mikilvægustu þættir í rekstri fyr- irtækja og stofnana á næstu áratug- um eru skýr framtíðarsýn og leið- togafærni þeirra sem stjórna. Nú þarf að byrja að spila sóknarbolta sem er einfaldlega besti möguleikinn til sigurs og árangurs. Á næstu árum mun krafa almennings og skattgreið- enda um betri meðferð almannafjár og betri nýtingu á fjármunum að hætti hinnar hagsýnu húsmóður aukast. Mikilvægt er að þekking á stefnumörkun til langs tíma og leið- togafærni sé hjá stjórnmálamönnum og embættismönnum. Í mikilvæg- ustu málaflokkunum, menntamálum, heilbrigðismálum og samgöngu- málum, virðist skorta framtíðarsýn og alla stefnumörkun til langs tíma. Þessir þrír málaflokkar nema sam- tals um 65% af ríkisútgjöldum. Mjög mikilvægt er að ná góðum tökum á þessum málaflokkum með hagræð- ingu og skarpri framtíðarsýn. Með skýrri framtíðarsýn og leiðtogafærni er hægt að ná mikilli hagræðingu og aukinni verðmætasköpun í opinber- um rekstri á mörgum sviðum. Á næstu misserum þurfa opinberir að- ilar að hafa góð gildi í heiðri eins og ábyrgðartilfinningu, ráðdeild og út- sjónarsemi og forðast hégómagirnd og sýndarmennsku í innkaupum. Veljum íslenska framleiðslu og sköp- um störf um allt land með hugrekki og ástríðu fyrir Ísland. Fjárfestum, framkvæmum og framleiðum til ár- angurs fyrir Ísland. Eftir Albert Þór Jónsson » Á næstu árum þarf að fjárfesta, framkvæma og fram- leiða og gera Ísland sjálfbært á flestum sviðum atvinnulífs. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur, MCF í fjármálum fyrirtækja og hefur 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði. Fjárfestum, framkvæmum og framleiðum Hvernig stendur á þessu gríðarlega fylgi Trumps? Sigur í for- setakosningunum 2016, 72 milljónir at- kvæða í forsetakosn- ingunum 2020, gríð- arlegur fjöldi nú á götum úti, innrás í þinghúsið til stuðnings honum? Flaumur breytinga í bandarísku þjóðfélagi hefur orðið milljónum fólks í þjóð- félaginu andstreymur. Ráðist hefur verið í miklar breytingar án þess að takast á við afleiðingarnar. Trump hefur ekki reynst hinn frelsandi engill, rugludallur, en eigi að síður finnst mörgum hann vera að reyna að hjálpa þeim. Hnattvæðingunni fylgdi mikill innflutningur frá löndum sem bera ekki kostnað af velferð vestrænna ríkja. Fyrirtæki í mið- ríkjunum, sem hafa meiri framleiðslukostn- að, hærri laun, lífeyr- iskostnað, orlof, veik- indadaga, en t.d. ríki í Asíu, gátu ekki keppt. Í miðríkjunum urðu hundruð verksmiðja gjaldþrota, hundruð þúsunda fjölskyldna misstu vinnuna, urðu gjaldþrota, misstu hús- næði sitt á nauðung- aruppboð, gátu ekki kostað nám barna sinna o.s.frv. Á sama tíma urðu tug- ir milljóna milljónamæringar t.d. í Kína. Trump barðist gegn alþjóða- samningum og afleiðingum þeirra. Í hruninu 2008 sáu Íslendingar afleið- ingar laga um frjálsan flutning fjár- magns þegar lög og reglugerðir voru mismunandi í hinum ýmsu löndum. Í kjölfar baráttunnar við hlýnun loftslags var kolanámum lokað, verksmiðjur sem byggðu á þeim iðn- aði urðu gjaldþrota, fjöldi manna missti lífsviðurværi sitt, hætt var við lagningu olíuleiðsla, áhrifin urðu gríðarleg og þess ekki freistað að takast á við þau. Trump barðist gegn þátttöku í alþjóðasamtökum og baráttu gegn hlýnun jarðar. Eiturlyfjahörmungarnar tröllríða sumum borgum Bandaríkjanna, um 30% ungmenna í sumum borgum eru á valdi eiturlyfja og missa fram- tíðarmarkmið. Eiturlyf flæða inn frá Kólumbíu og Mexíkó. Trump barð- ist fyrir vegg á landamærunum. Líf fjölmargra fjölskyldna er í rúst. Við höfum orðið vitni að fjölda- hreyfingum, gríðarlegum fjölda á götum úti vegna kynþáttamisréttis, svört líf skipta máli. Margir telja straum innflytjenda takmarka möguleika sína til vinnu. Efnahagslegt ójafnvægi veldur óánægju og misræmi, 2-3% íbúanna eiga 96-98% allra eigna í landinu. Því er haldið fram að efnahagslegt misræmi ógni lýðræðinu. Þannig mætti lengi telja. Nú eru miklar umræður um óróaseggi sem ógna lýðræðinu. En um er að ræða afleiðingar ástandsins í þjóðfélag- inu. Stjórnvöld samþykkja hnatt- væðingu án þess að takast á við af- leiðingarnar, samþykkja baráttu gegn hlýnun jarðar án þess að tak- ast á við áhrifin á þjóðfélagshópa. Hin óábyrga hönd markaðarins horfir til hagvaxtar en ekki mis- ræmis sem skapast, hin óviðráð- anlega áfergja dauðlegra manna til að eignast allan heiminn. Við horfum undrandi á hundruð metra af biðröðum fólks sem bíður daglangt eftir að fá að kjósa. Þessi tæknivæddasta þjóð sem ferðast um heiminn og krefst lýðræðis og mannréttinda getur illa talið at- kvæði í forsetakosningum sínum, varð ekki hæstiréttur að skera úr í kosningum Gores og Bush, hvernig er lýðræði og mannréttindum hátt- að í helstu vinalöndum Bandaríkj- anna, t.d. Sádi-Arabíu? Segðu mér hverjir eru vinir þínir og ég skal segja þér hver þú ert. Svo virðist sem milljónum Banda- ríkjamanna finnist að Trump með alla sína galla sé að berjast fyrir rétti þeirra. Hin ráðandi stétt sé of langt frá hinu líðandi og stríðandi lífi fjöldans. Í fornum bókum Íslend- inga segir: Á skal að ósi stemma. Takast þarf á við orsakir óróans. Ástandið í Bandaríkjunum, víðari útsýn, orsakir og afleiðing Eftir Guðmund G. Þórarinsson Guðmundur G. Þórarinsson » Svo virðist sem milljónum Banda- ríkjamanna finnist að Trump með alla sína galla sé að berjast fyrir rétti þeirra. Hin ráðandi stétt sé of langt frá hinu líðandi og stríðandi lífi fjöldans. Höfundur er verkfræðingur. gudm.g.thorarinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.