Morgunblaðið - 12.01.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 12.01.2021, Qupperneq 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA „ÉG VONA AÐ ÞÚ HAFIR SETT STAÐSETNINGARTÆKI Á ÞESSA KÚLU!” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... að leita að hinum helmingnum sem fullkomnar þig. ÉG ER BÚINN AÐ VERA LENGI Í BRANSANUM SPARK! OG STEND MIG ENN MEÐ PRÝÐI AUGUN FYLGJA MANNI EFTIR HVERT SKREF! ÞETTA ER SJÓN- HVERFING! ÉG VAR AÐ TALA UM VERÐINA! MANNA- MYNDIR „ÉG HELD AÐ ÉG HAFI EKKI KEYRT OF HRATT – EN ÞAÐ ER MÁNUDAGUR OG ÉG ER Á LEIÐINNI Í VINNUNA. KANNSKI MISSTI ÉG MIG SVOLÍTIÐ Í GLEÐINNI YFIR ÞVÍ.” að segja að þessar rannsóknir voru upphaf viðamikils rannsóknarstarfs sem miðaði að því að varpa ljósi á til- urð og viðhald bleikjuafbrigðanna í Þingvallavatni og, í víðara samhengi, orsakasamhengi tegundamyndunar almennt. Þessar rannsóknir, sem enn eru í gangi, hafa leitt af sér fjölda meistara- og doktorsritgerða við há- skóla hér og erlendis og birtingu fjöl- margra greina í viðurkenndum vísindaritum.“ Sigurður sat í stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags á tíunda áratugn- um. Hann var í Mótettukór Hall- grímskirkju um árabil og nokkur ár í Schola cantorum. „Helstu áhugamál mín eru ferðalög og útivera í íslenskri náttúru, hestamennska, skíða- mennska og brids.“ Fjölskylda Eiginkona Sigurðar er Hrefna Sig- urjónsdóttir, f. 24.10. 1950, prófessor. Þau hafa lengst af búið í Grundar- gerði 20 í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Foreldrar: Björg Ólafs- dóttir, f. 19.3. 1921, húsmóðir, búsett á hjúkrunarheimilinu Seltjarnarnesi, og Sigurjón Sigurðsson f. 24.7. 1920, d. 5.2. 2013, bankamaður. Þau bjuggu lengst af í Hólmgarði 33 í Reykjavík. Börn Sigurðar og Hrefnu eru: 1) Björg, f. 25.10. 1974, hjúkrunarfræð- ingur í Reykjavík, var gift Eiríki Vig- fússyni efnafræðingi. Sonur þeirra er Vigfús, f. 13.5. 2002, menntaskóla- nemi; 2) Snorri, f. 28.11. 1981, Ph.D., líffræðingur á skipulagssviði Reykja- víkurborgar, bús. í Reykjavík. Systkini Sigurðar: Stefanía, f. 27.3. 1954, d. 18.12. 1968; Þóra, f. 25.8. 1957, d. 5.5. 2002, mannfræðingur; Arnór, f. 29.12. 1960, skógfræðingur, bús. í Kópavogi; Steinunn, f. 22.6. 1966, líffræðingur, bús. í Kópavogi; Guðrún Margrét, 26.9. 1972, stjórn- endamarkþjálfi, bús. í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar voru Snorri Sigurðsson, f. 15.4. 1929, d. 26.5. 2009, skógfræðingur, og Sigurlaug Sveins- dóttir Bjarman, f. 27.12. 1929, d. 27.12. 2007, húsfreyja. Þau bjuggu lengst af í Hrauntungu 52 í Kópavogi. Sigurður Sveinn Snorrason Sigurður Stefánsson prestur og alþingismaður í Vigur í Ísafjarðardjúpi Þórunn Bjarnadóttir húsfreyja í Vigur Sigurður Sigurðsson sýslumaður Skagfirðinga og bæjarfógeti á Sauðárkróki,Suðurgötu 3 Guðríður Stefanía Arnórsdóttir húsfreyja á Suðurgötu 3 á Sauðárkróki Snorri Sigurðsson skógfræðingur, lengstum í Hrauntungu 52 í Kópavogi Arnór Árnason prestur í Hvammi Stefanía Sigríður Stefánsdóttir húsfreyja í Hvammi í Laxárdal í Skagafirði Árni Eiríksson organisti og bóndi á Reykjum í Tungusveit í Skagafirði Steinunn Jónsdóttir húsfreyja á Reykjum Sveinn Árnason Bjarman aðalbókari KEA, Hamarstíg 2 Guðbjörg Björnsdóttir Bjarman húsfreyja í Hamarstíg 2 á Akureyri Björn Jónsson prestur á Miklabæ Guðfinna Jensdóttir húsfreyja á Miklabæ í Blönduhlíð Úr frændgarði Sigurðar Sveins Snorrasonar Sigurlaug Sveinsdóttir Bjarman húsfreyja, lengstum í Hrauntungu 52 í Kópavogi Á Boðnarmiði verða mismunandiakstursskilyrði yrkisefni Sig- urlínar Hermannsdóttur: Í loftinu lúmskur er raki því liggur á götunum klaki er menn virðast ei sjá og varast ei má. Allir af gætni því aki. Þessi staka sem Hallmundur Guðmundsson orti að liðnum há- degisverði ber með sér, að höf- undur kann að meta góðan mat: Allt sem mér er afar kært er af losta metið. Það lambakét á fat var fært að fullu nú er étið. Eyjólfur Ó. Eyjólfsson yrkir: Á fallegum mönnum og fríðum er skalli með skínandi hlíðum. Er í rökkrinu frýs þar ráðsettar lýs renna sé kátar á skíðum. Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson yrkir breiðhendu: Vertu jafnan glöð í geði, gakktu alltaf hress frá beði. Þá mun dagsverk ljúfar líða, launum fyrir, ekki kvíða. Allur er varinn góður. Jón Atli Játvarðarson yrkir: Engan fyrir finn ég snjó, fæ nú betri kosti. Treð ég mér í takkaskó í tíu stiga frosti. Jón Gissurarson gerir tíðarfarið í Skagafirði að umtalsefni og lýkur svo: „Frost hefur hert til muna og sýnir mælirinn það nú vera 13 gráð- ur. Maður getur því verið nokkuð sáttur hvað tíðina varðar, samt þyngist róðurinn að sjálfsögðu allt- af eitthvað þegar kólnar“: Kólnað hefur nú á ný nauma tel það kosti. Mínar þyngjast þrautir í þrettán gráðu frosti. Gunnar J. Straumland hefur nokkuð til síns máls: Ef hvorki dugar gort né gum, (þó gífuryrðin virki sum) og valdi sumum vonbrigðum van á frægðarljómanum, má þó reyna að öðlast frægð að endemum. Guðmundur á Sandi orti, – þessi staka var oft sungin á Sal í MA: Margur blásinn belgur sprakk bljúgur laut að Fróni, í sem glettin ungfrú stakk ástar-títuprjóni. Gömul vísa í lokin: Hægra er að passa hundrað flær á hörðu skinni en píkur tvær á palli inni. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af matmanni, akstursskil- yrðum og ráðsettum lúsum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.