Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 4

Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Tekist hefur að koma rafmagni aftur á á öllum hæðum háskólabyggingar- innar Gimli eftir vatnslekann mikla sem varð aðfaranótt fimmtudags. „Það er mjög stór áfangi,“ segir Ing- ólfur B. Aðalbjörnsson, bygginga- stjóri Háskóla Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Starfsfólk í Gimli á því að geta mætt til vinnu í dag, en byggingin hýsir aðallega skrifstofur fyrir starfsfólk skólans auk nem- endaþjónustu. Flæddi inn í tæknirými Ingólfur segir það nú alveg ljóst hvaða byggingar urðu fyrir mestu tjóni. „Háskólatorg og Gimli urðu verst úti, það er ekki spurning. Það er mikið tjón niðri í tæknirýminu í Gimli þar sem rafmagnstaflan og loftræstisamstæðan þar fóru á flot,“ segir hann. Þá geti leynst skemmdir víða undir yfirborðinu. „Gifsveggir geta verið erfiðir eftir að raki kemst í þá, þó maður haldi að þeir séu orðnir þurrir er ekki þar með sagt að öllu sé lokið því svona skemmdir geta verið lengi að koma fram,“ segir Ingólfur. Engin hjálp í vatnsskynjurum Í maí 2017 kom upp vatnsleki í tveimur stofum á Háskólatorgi sem olli umtalsverðum skaða. Ingólfur segir reynsluna af þeim leka ekki hafa hjálpað í aðgerðum í síðustu viku, þar sem vatnsmagnið hafi verið allt annað. „Við erum með vatns- skynjara á þeim stöðum þar sem hætta er á að vatn komi inn. Hann hefði engu reddað í sjálfu sér, því þetta gerðist allt svo hratt.“ Næsta verkefni skólastjórnenda sé að meta það tjón sem orðið hefur. Í dag hefst sú vinna. Starfsemi í Gimli hefst aftur í dag  Háskólatorg og Gimli urðu verst úti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vatnsleki Tjónið af vatnslekanum er gífurlegt fyrir Háskóla Íslands. Menningarstarfsemi hefur truflast mjög í heimsfar- aldrinum. Stjórnvöld og Listahátíð í Reykjavík ákváðu að bæta úr því með Listagjöfinni, þar sem bóka mátti listflutning fyrir utan heimili vina eða ættingja. Alls voru 750 listagjafir veittar af 105 listamönnum, flestar fyrir jól, en vegna veðurs urðu Vestfirðir út undan og nú er verið að bæta úr því. Á laugardag tóku bræðurnir Ómar og Óskar Guðjónssynir lagið á Tálknafirði við mikinn fögnuð.Vonast er til að veita megi listagjafir á norðanverðum Vestfjörðum í komandi viku. Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Bræður taka lagið úti á palli á Tálknafirði Síðbúnar Listagjafir á Vestfjörðum Jón Sigurðsson Nordal Oddur Þórðarson Hrina snjóflóða gekk yfir landið um helgina og féll fjöldi flóða á Norður- landi og Vestfjörðum. Snjóflóð féllu meðal annars á veginn um Öxna- dalsheiði og veg- inn um Eyrarhlíð milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Rýmingu aflétt Rýming tók gildi á sunnan- verðum Siglufirði á miðvikudag, en henni var aflétt í gær. Þá voru þrjú hús rýmd á Flat- eyri á laugardag og féllu tvö lítil flóð nálægt bænum í gær, en rýmingu var einnig aflétt þar í gær í kjölfar flóðanna. Óvissustig vegna snjó- flóðahættu á Norðurlandi var þó enn í gildi þegar blaðið fór í prentun. Þá féll flóð ofan við bæinn Smiðsgerði undir Kolbeinsstaðahnjúkum í Skagafirði á laugardag. Flóðið stöðv- aðist um 250 metra frá bænum en á leiðinni hreif það með sér tréskúr sem honum tilheyrði. „Ég óttast að það hafi fallið flóð ansi víða í hlíðinni núna. En það hefur alla vega farið einhver spýja hérna niður og tekið þennan bárujárnsskúr, sem var nú ekki ýkja merkileg bygging, svolítið hér fyrir innan bæinn,“ sagði Jón Árni Friðjónsson, sem býr í Smiðs- gerði, í samtali við mbl.is. Hefur muggað linnulítið Einar Sveinbjörnsson veðurfræð- ingur segir veðuraðstæður í vikunni, sem ollu snjóflóðunum, vera sérstak- ar en þó ekki óvenjulegar. „Við höf- um frekar vanist því að það geri stór- hríðarveður í einn til tvo sólarhringa, þar sem sér ekki út úr augum og svo lagast veðrið eftir það. Þá falla stundum snjóflóð strax í kjölfarið,“ segir hann í samtali við Morgunblað- ið. „Nú hefur það hins vegar verið þannig að það hefur snjóað nokkuð lengi jafnt og þétt á Norðurlandi. Sums staðar hefur muggað linnulítið síðan á mánudag í síðustu viku.“ Hann segir sömu veðuraðstæður hafa orðið til þess að snjóflóð féllu bæði á Norðurlandi og Vestfjörðum. „Hins vegar held ég að það sé alveg ljóst að í þessari hrinu núna hafi ver- ið meiri snjókoma á Norðurlandi en á Vestfjörðum. En fyrir vestan hefur yfirleitt þurft tiltölulega lítinn snjó til að koma þessu á hreyfingu.“ „Búum hérna til að hafa snjó“ Jón Hansen, forstöðumaður snjó- moksturs hjá Akureyrarbæ, gefur aðspurður lítið fyrir að snjóþungt sé fyrir norðan. „Þetta er nú bara svona sýnishorn af því sem var í fyrra,“ segir hann við Morgunblaðið. Á dögum sem þessum fara snjómokstursmenn bæjarins af stað um klukkan fimm á morgnana, og klára sinn vinnudag ekki fyrr en undir kvöldmatarleytið. Þrátt fyrir það segir Jón Akureyringa alls ekki vilja minni snjó. „Við þurfum snjó í fjallið til að komast á skíði. Það er fjöldi fólks hérna í bænum sem vill hafa sem mestan snjó í fjallinu. Við búum hérna til að hafa snjó.“ Snjóflóðahrina á landinu yfir helgina  Rýma þurfti á Flateyri og Siglufirði  Sérstakar veðuraðstæður að sögn veðurfræðings  Stór snjó- flóð féllu á veginn yfir Öxnadalsheiði  Óvissustig er enn í gildi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Ryðja vegina „Þetta er nú bara svona sýnishorn af því sem var í fyrra,“ segir Jón Hansen, forstöðumaður snjómoksturs hjá Akureyrarbæ. Einar Sveinbjörnsson Jóhannes Eðvaldsson, fyrrverandi landsliðs- fyrirliði og atvinnu- maður í knattspyrnu er látinn, 70 ára að aldri, en hann hefur verið búsettur í Skot- landi lengst af frá 1975. Jóhannes fæddist 3. september 1950. Foreldrar hans voru Sigríður Bjarnadóttir og Eðvald Hinriksson. Bróðir hans var Atli Eðvaldsson sem einnig var landsliðsmaður í fótbolta en hann lést eftir baráttu við krabbamein árið 2019. Jóhannes lék á sínum tíma 34 landsleiki fyrir Ísland, þar af 27 sem fyrirliði, og skoraði í þeim tvö mörk, annað þeirra með frægri hjólhesta- spyrnu gegn Austur- Þýskalandi 1975. Hann hóf meistara- flokksferilinn með Val árið 1968 og lék 92 deildarleiki fyrir liðið á árunum 1968 til 1974, þar sem hann skoraði 28 mörk. Hann kom víða við á atvinnumannaferli sínum, spilaði með Cape Town City í Suð- ur-Afríku og Holbæk í Danmörku en hjá skoska stórliðinu Celtic gerði hann garðinn frægan á árunum 1975 til 1980. „Búbbi“, eins og þáverandi landsliðsfyrirliði var jafnan kall- aður, var vinsæll hjá stuðnings- mönnum Celtic sem kölluðu hann „Big Shuggie“. Hann lék 188 leiki með Celtic og skoraði 36 mörk. Hann varð tvisvar skoskur meistari og tvisvar bikarmeistari með Celtic, og þá hóf hann ferilinn þar í ágúst 1975 með því að skora sigurmarkið gegn Englandsmeisturum Derby County í uppgjöri meistaraliða grannþjóðanna á Bretlandseyjum. Mánuði síðar lék hann gegn bróður sínum Atla er Celtic og Valur mættust í Evrópukeppni bikarhafa en Jóhannes var fyrirliði Skotanna á Laugardalsvellinum í 2:0-sigri. Eftir það lék hann með Tulsa í Bandaríkjunum, Hannover í Þýska- landi og lauk atvinnumannaferl- inum í liði Motherwell í Skotlandi áður en hann lauk ferlinum sem spilandi þjálfari Þróttar úr Reykja- vík í efstu deild 1985. Andlát Jóhannes Eðvaldsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.