Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Svíar tilkynntu í gær, sunnudag, að þeir myndu taka fyrir komur fólks frá Noregi næstu þrjár vikurnar að minnsta kosti. Ástæðan er að klasi hins breska afbrigðis kórónuveir- unnar, sem dreifist hraðar en frum- veiran, hefur fundist í norsku höfuð- borginni Ósló. „Þar sem norskar verslanir og áfengisgeymslur eru lokaðar er hætta á að Norðmenn leggi leiðina til Svíþjóðar eftir brjóstbirtu og dreifi þannig sýkingum,“ sagði innanrík- isráðherrann Mikael Damberg í gær. Sænsk stjórnvöld sögðust einnig myndu framlengja bann við ferðum fólks frá Bretlandi og Danmörku til Svíþjóðar til 14. febrúar vegna hinnar hraðfara veiru sem fyrst uppgötv- aðist í Bretlandi. Sl. miðvikudag höfðu 50 Svíar sýkst af hennar völd- um og 70 Norðmenn í gær. Ósló og nágrenni lúta nú ströng- ustu aðgerðum gegn veirufaraldr- inum vegna enska afbrigðisins sem kom fyrst upp utan borgarinnar. Er nú krafist vottorðs um að viðkomandi hafi reynst ósýktur síðustu 24 stund- irnar fyrir komu til Noregs. Annars prófs er krafist af þeim sem ferðast þaðan sem nýja afbrigðið er virkt. Frakkar hertu til munu landa- mæraeftirlit í gær og er það liður í umfangsmiklu stríði þeirra til að sporna við útbreiðslu veirunnar til að koma megi í veg fyrir að athafnalíf og allt daglegt líf stöðvist þriðja sinni. Komufarþegar frá ESB-löndunum verða að geta sýnt fram á neikvætt veirupróf síðustu þrjá sólarhringana fyrir komu. Áður gilti þetta bara um komur frá löndum utan ESB. Rúmlega 25 milljónir Bandaríkja- manna hafa sýkst af kórónuveirunni, covid-19, frá því hennar varð vart fyr- ir ári. Aðeins fimm dögum fyrir þenn- an áfanga voru dauðsföll af völdum veirunnar orðin 400.000, að sögn Johns Hopkins sem safnar og varð- veitir upplýsingar um afleiðingar veirunnar. Keppast við að koma á skriði Ríki heims keppast við að koma sem mestu skriði á bólusetningar svo sem flestir hafi verið sprautaðir áður en kórónuveiran stökkbreytir sér frekar. Þjóðverjar verða fyrstir þjóða Evr- ópusambandsins (ESB) til að brúka sömu mótefnablönduna og þá sem kom Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, aftur á fætur eftir að hann veiktist af kórónuveirunni í október sl., að sögn heilbrigðis- ráðherrans Jens Spahn. „Ríkisstjórnin hefur keypt 200.000 skammta fyrir 400 milljónir evra,“ segir Spahn í útbreiddasta blaði Þýskalands, Bild am Sonntag. Svíar banna fólk frá Noregi AFP Noregur Hjúkrunarkona býr sig undir bólusetningu í Drammen.  Ósló og nágrenni lúta nú ströngustu aðgerðum gegn veirufaraldr- inum vegna breska afbrigðisins  Frakkar herða landamæraeftirlit Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Rússneska lögreglan handtók á fjórða þúsund manns í aðför að sam- tökum stjórnarandstöðuleiðtogans og andófsmannsins Alexeis Navalnís víða um Rússland í fyrradag. Fang- elsunum hefur verið mótmælt á Vest- urlöndum og sagði Jean-Yves le Dri- an, utanríkisráðherra Frakklands, aðgerðirnar „óþolandi smán“ gagn- vart réttarfarsreglum og vísbend- ingu um vaxandi einræði. „Mér finnst þessi stígandi í átt til einræðis mikið áhyggjuefni,“ sagði Le Drian. Evrópusambandið tók í sama streng og undrast harkaleg við- brögð lögreglunnar gegn friðsömum mótmælum. Josep Borrel, utanríkis- málastjóri ESB, sagði að sambandið myndi ræða „næstu skref“ í dag. Bandaríkin fordæmdu „harðæðis- taktík“ Moskvustjórnarinnar. Tugþúsundir manna virtu sam- komubann að vettugi og gengu til stuðnings Navalní sem situr á bak við lás og slá. Mótmælin eru þau um- fangsmestu gegn Vladímír Pútín for- seta um langt árabil í Rússlandi. Lögregla hafði uppi gríðarlegan við- búnað en það fældi fólk ekki frá þátt- töku. Í Moskvu sást óeirðalögregla berja mótmælendur með kylfum og draga þá á burt. Óháð samtök sem mæla þátttöku í mótmælum, OVD Info, segja að um 3.100 manns hafi verið handteknir í mótmælunum og leiddir á brott, þar af rúmlega 1.200 í Moskvu einni og sér. Yfirvöld í Kreml hafa ekkert viljað tjá sig um þetta efni. Efnt var til mótmæla í óleyfi í um eitt hundrað borgum frá austustu byggðum og Síberíu í austri og til Moskvu og Pétursborgar í vestri. Þátttakendur voru á öllum aldri, frá unglingum og upp í háaldraða sem hvöttu til þess að Navalní yrði sleppt. Að minnsta kosti 40.000 manns gengu til liðs við gönguna í miðborg Moskvu, að sögn fréttastofunnar Reuters. Rússneska innanríkisráðu- neytið sagði þá hafa verið tíu sinnum færri eða 4.000. Vitni að mótmælum segja umfang aðgerða um landið allt ekki eiga sér fordæmi og ekki hafi verið haldin svo fjölmenn mótmæli í Moskvu í áratug. Á Púshkíntorgi í miðri Moskvu hrópuðu mótmælendur „Frelsi fyrir Navalní“ og „Pútín farðu burt“. Kona nokkur sagði við blaðamann BBC að hún tæki þátt í mótmælunum vegna þess að „Rússlandi hefur verið breytt í fangabúðir“. Sergej Radtsjenko, 53 ára mótmælandi í Moskvu, sagði: „Ég þreyttur á að vera hræddur, hér er ég ekki bara vegna sjálfs mín og fyrir Navalní heldur son minn líka því það er engin framtíð í þessu landi.“ Eiginkonu Navalnís, Júlíu, var haldið stutta stund í Moskvu. Hún birti myndskeið á Instagram undir fyrirsögninni: „Afsakið lítil mynd- gæði. Lítið og lélegt ljós í lögreglu- bílnum.“ Hópur mótmælenda gekk að öryggisfangelsinu þar sem Na- valní er vistaður og voru margir þeirra handteknir. Að sögn fréttastofunnar Sota voru mótmælendur í stærstu borg aust- ursins, Vladívostok, minnst 3.000 en yfirvöld sögðu þá hafa verið 500. Í myndskeiði AFP-fréttastofunnar sjást lögreglumenn hlaupa inn í hóp þeirra og berja mótmælendur með kylfum. Í borginni Jakútsk í Síberíu beit kuldi þátttakendur sárt, en þar var 50°C frost. Navalní er þekktasti andstæðing- ur Pútíns forseta og hvatti til mót- mæla gegn honum eftir heimkomuna frá Þýskalandi á sunnudaginn fyrir viku. Hann var handtekinn er hann steig aftur fæti á rússneska jörð eftir meðferð við eitrun sem nærri dró hann til dauða. Yfirvöld hafa verið sökuð um að láta byrla honum tauga- eitur í ágúst í fyrra. Bíður hann dóms fyrir sakir sem hann hefur borið af sér. Á fjórða þúsund Rússa handteknir  Vestrænar ríkisstjórnir hafa mótmælt fangelsunum í Rússlandi og mikilli hörku lögreglunnar AFP Átök Mótmælendur og lögregla augliti til auglitis við mótmælin í Moskvu. Lögreglan þótti beita óheyrilegu ofbeldi. Réttarhöldum yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í öldungadeild þingsins hefur verið seinkað um hálfan mánuð frá því sem áður var ráðgert. Leiðtogar flokkanna náðu samkomulagi um seinkunina svo öldungadeildin geti fyrst lokið öðrum mikilvægum málum sem fyrir henni liggja, svo sem staðfesting á skipan ráðherra ríkisstjórnar Joes Bidens, að sögn Chucks Schumers, leiðtoga meiri- hluta deildarinnar. Fulltrúadeildin ákærði Trump til embættismissis 13. janúar sl. öðru sinni, sem á sér engin fordæmi í banda- rískri sögu. Átti hann þá aðeins ósetið eina viku á valdastóli. Ákæran verður afhent og lesin upp í öldungadeildinni í dag og daginn eftir verða allir 100 þingmenn deildarinnar svarnir inn sem dómarar í málinu á hendur Trump. Nancy Pelosi verður fulltrúi full- trúadeildarinnar við málssóknina og eftir ávarp hennar verður óskipuðu varnarliði Trumps gefið tækifæri til að reifa vörn sína. Þegar farið hefur verið yfir atvik og lagalegar hliðar málsins verður málinu frestað til 8. febrúar. Fyrir deildinni liggur að vega og meta hvort dæma skuli Trump fyrir það sem bandaríska stjórnarskráin kallar „glæpi á háu stigi og misgjörð- ir“. Hann var ákærður til embættis- missis í fulltrúadeildinni fyrir að „hvetja til innrásar“ í þinghúsið í ræðu í Washington 6. janúar, daginn sem hópur fólks sem honum er hliðhollt réðst inn í fulltrúadeildina. Fimm manns biðu bana í áhlaupinu, þar á meðal lögregluþjónn. agas@mbl.is Réttað yfir Trump í febrúar  Önnur lögsókn á hendur Trump AFP Áhlaup Ráðist var inn 6. janúar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.