Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 SÉRBLAÐ SMARTLANDS BLAÐIÐ Fylgir Morgunblaðinu 12. febrúar –– Meira fyrir lesendur PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til 8. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Fjallað verður um tískuna 2021 í förðun, snyrtingu, útliti og fatnaði auk umhirðu húðarinnar, heilsu, dekur o.fl. 60 ára Hoffý er fædd í Reykjavík en fluttist á Hvolsvöll haustið 1965 og hefur búið þar síð- an. Hún er húsmóðir eins og er en er að hjálpa manni sínum við smíðar. Hoffý er í Kven- félaginu Einingu í Hvolhreppi hinum forna. Maki: Sigmar Jónsson, f. 1957, vinnur við smíðar og er að byggja og selja. Börn: Elísabet Rut, f. 1982, Jón Ægir, f. 1987 og Rúnar Helgi, f. 1998. Barnabörn- in eru orðin fimm. Foreldrar: Helgi Einarsson, f. 1926, d. 1998, múrari, og Guðrún Aðalbjarnar- dóttir, f. 1928, d. 2008, húsmóðir. Þau voru búsett í Reykjavík og á Hvolsvelli. Hólmfríður Kristín Helgadóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það getur verið ósköp þreytandi að hlusta á sjálfshól annarra. Morgundag- urinn verður betri en dagurinn í dag. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú ert með hugmyndir um hvernig á að breyta einhverjum nákomnum til hins betra. Ástarsamband blómstrar og bónorð er ekki svo fjarlæg hugmynd. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gætir fundið til leiða í vinnunni eða vantrúar á sjálfa/n þig. Með minniháttar breytingum getur þú skapað frábært heimili. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ef þú leggur áherslu á að hlusta og taka á móti visku annarra muntu koma mjög miklu í verk. Þú hefur komið maka þínum mjög á óvart síðustu daga. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert listræn/n og því ekki úr vegi að nota tækifærið til sköpunar. Eitthvað er komið til ára sinna og þarf endurnýjun. Ekki bíða of lengi. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Allt sem þú leggur á þig til þess að skipuleggja þig betur og taka til í kringum þig ber mikinn árangur núna. Leggðu spilin á borðið og sjáðu hvað gerist. 23. sept. - 22. okt.  Vog Látið gott af ykkur leiða, þannig öðl- ast líf ykkar fyllingu. Þú treystir sumum ekki fyrir horn, hvað ætlarðu að gera í því? 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú munt komast að því að hæfileikar þínir liggja á mörgum sviðum. Þú þráir að víkka sjóndeildarhringinn, hvað er að stoppa þig? 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að þú ert sjálf/ur gædd/ur þeim hæfileikum sem duga þér til árangurs. Ekki láta dýra hluti liggja á glámbekk. 22. des. - 19. janúar Steingeit Allir uppskera eins og þeir hafa sáð til og þú auðvitað líka. Farðu þínar eig- in leiðir, ekki hlusta á aðra nema með öðru eyranu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Oft var þörf en nú er nauðsyn á að þú beinir athyglinni að því að rækta sjálfa/n þig andlega sem líkamlega. Þú ert allt í öllu í fjölskyldunni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Samband virðist vera að þróast hratt í ranga átt. Þú ert á báðum áttum um fasteignakaup. Hugsaðu dæmið til enda. Algalíf framleiðir fæðubótarefnið astaxanthín úr örþörungum og mun framleiðslan þrefaldast vegna stækk- unarinnar. Öll framleiðsla Algalífs fer fram í stýrðu umhverfi innanhúss skapar yfir hundrað störf á fram- kvæmdatímanum og eftir stækkun verða frambúðarstörfin 75. Fyrir- tækið er starfrækt í Reykjanesbæ, á gamla varnarliðssvæðinu. S karphéðinn Orri Björnsson er fæddur 25. janúar 1971 í Reykjavík en hefur búið í Hafnarfirði frá 15 ára aldri, fyrir utan þau ár sem hann dvaldist erlendis. Á sumrin var hann í sveit hjá frændfólki sínu á Syðri-Þverá í Vesturhópi í Húna- vatnssýslu. Orri gekk í Seljaskóla í Breiðholti en að loknum grunnskóla varð hann stúdent frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Að stúdentsprófi loknu nam hann lögfræði við Háskóla Ís- lands. Orri hefur búið og starfað í Búlg- aríu, Kenía og Noregi, þar sem hann leiddi meðal annars ýmis verkefni í lyfja- og líftæknigeirunum og var t.a.m. sérstakur ráðgjafi á vegum Sameinuðu þjóðanna. „Þetta byrjaði þannig að ég fór að vinna fyrir lyfja- fyrirtækið Delta fyrir 23 árum, sem síðan varð Actavis, og fór svo til Búlg- aríu að vinna fyrir Pharmaco sem sameinaðist Delta skömmu síðar og varð að Actavis. Þar var ég í fjögur ár. Svo kom ég aftur heim og fór að vinna í Actavis áfram. Svo fór ég til Kenía en þar var fyrirtæki sem vildi fá leyfi Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar til að framleiða HIV-lyf. Ég var ráðinn í gegnum skrifstofu Sameinuðu þjóðanna og var á þeirra vegum til að koma fyrirtækinu í gegnum skoðun. Þar var ég í tvö ár.“ Ræktar örþörunga Orri hefur verið forstjóri líftækni- fyrirtækisins Algalífs frá árinu 2013, en það ár var fyrirtækið stofnað. „Ég var fenginn inn í fyrirtækið sem ráð- gjafi. Nokkrum mánuðum seinna komu nýir eigendur að fyrirtækinu, en þeir eru ennþá eigendur þess, og ég var ráðinn forstjóri,“ en eigandi Algalífs er Sanapharma Holding í Noregi. Orri hefur síðan þá farsæl- lega leitt uppbyggingu fyrirtækisins og starfa nú þar um 35 manns og árs- veltan er um 1,5 milljarðar króna. Fyrir dyrum stendur fjögurra milljarða króna stækkun Algalífs sem með umhverfisvænum orkugjöfum, og eru bæði magn og gæði stöðug. Framleiðslan er umhverfisvæn og ekkert jarðefnaeldsneyti er notað í ferlinu. Notast er við sérstök LED- Orri Björnsson, forstjóri Algalífs – 50 ára Forstjórinn Orri fyrir framan ræktunarkerfin sem notuð eru við ræktun örþörunganna. Fjögurra milljarða króna stækkun fyrirtækisins Gettu betur Orri fyrir miðju í liði Flensborgar sem keppti til úrslita 1991. Með honum í liði voru Bjarni Kristjánsson og Svanur Már Snorrason.Á Kínamúrnum Orri hefur ferðast víða. Ljósmynd/Sveinbjörn Berentsson 40 ára Salka er Reykvíkingur, ólst upp í Laugarnes- hverfinu og býr í Sundunum. Hún er með BA-próf í leiklist frá Aberystwyth- háskóla í Wales, MA- próf í ritlist frá Glasgow-háskóla og MA-próf í þýðingafræðum frá HÍ. Salka er þýðandi og leikskáld og er að vinna að nýju verki með leikhópnum Soðið svið, sem fer fram í bréfum og símtöl- um. Sonur: Árni Finnur, f. 2018. Foreldrar: Olga Guðrún Árnadóttir, f. 1953, rithöfundur og tónlistarkona, og Guðmundur Ólafsson, f. 1951, leikari og rithöfundur. Þau eru búsett í Reykjavík. Salka Guðmundsdóttir Til hamingju með daginn Selfoss Valtýr Óskar Magnússon fæddist 25. janúar 2020 kl. 2.48. Hann vó 3.120 g og var 48 cm langur. For- eldrar hans eru Magnús Ingi Þórsson og Ásta Eyrún Andrésdóttir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.