Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 FASTEIGNASALA Nóatún 17 | 105 Reykjavík | valborg@valborgfs.is | Sími 419 7900 valborgfs.is Glæsilegar nýjar íbúðir í Fossvogsdal ogHraunbæ Óskumað ráða löggilta fasteignasala VERÐMETUM SAMDÆGURS ÓSKUMEFTIRÖLLUMGERÐUMEIGNAÁ SKRÁ FOSSVOGSDALUR HRAUNBÆR Tilbúnar til afhendingar! Örfáar íbúðir óseldar! Elvar Guðjónsson Viðskiptafræðingur Lögg. fasteignasali Sími 895 4000 elvar@valborgfs.is Þórður Heimir Sveinsson Lögmaður og lögg. fasteignasali Jónas Ólafsson Viðskiptafræðingur Sími 824 4320 jonas@valborgfs.is Gunnar Biering Agnarsson Nemi til löggildingar Sími 823 3300 gunnar@valborgfs.is María Sigurðardóttir Viðskiptafræðingur Lögg. fasteignasali Sími 820 1780 maria@valborgfs.is Allar upplýsingar veita: Skattfrjáls söluhagnaður SUMARHÚSAEIGENDUR Frá 1. janúar 2021 er hagnaður af sölu sumarhúsa skattfrjáls.* Hafðu samband við okkur og fáðu frekari upplýsingar. Skógarvegur 6-8 Íbúðakjarni með 69 íbúðum á 4 hæðum auk bílakjallara. Hraunbær 103 A, B og C Nýjar íbúðir fyrir 60+ Valborg óskar eftir að ráða löggilta fasteignasala. Frábær vinnuaðstaða og góður vinnuandi. Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson, elvar@valborgfs.is *að ákveðnum skilyrðum uppfylltum Vaxandi ofbeldi í bandarísku samfélagi hlýtur að valda mörg- um verulegum áhyggjum. Ekki ein- göngu í BNA heldur í heiminum öllum. Og nú fyrir skömmu óð rumpulýður inn í sjálft þinghúsið með tilheyrandi uppi- vöðslusemi þar sem 5 manns létu lífið. Athygli beinist að rétti banda- rískra borgara til að hafa byssur í fórum sínum. Heimildin er ákvæði í 2. viðauka bandarísku stjórn- arskrárinnar frá 1791. Fyrir áhugasama um stjórn- arskrármál þá er þessi heimild mjög góð til að kynnast bandarísku stjórnarskránni og efni hennar þar sem farið er ítarlega í allar greinar hennar og viðauka: https://en.wikipedia.org/wiki/Con- stitution_of_the_United_States Um réttinn til að hafa byssur undir höndum má lesa nánar: https://en.wikipedia.org/wiki/ Right_to_keep_and_bear_arms- _in_the_United_States Þegar litið er aftur til ársins 1791 þá er bandarískt samfélag í mótun. Mikið var þá um ýmiskonar ofbeldi af ýmsu tagi sem fylgir þeim aðstæðum sem þarna voru fyrir hendi. Frumbyggjar Ameríku voru hvarvetna flæmdir í burtu úr heimkynnum sínum og reyndu hvað þeir gátu að veita viðnám. Í ungum samfélögum sem eru að mótast við nýjar aðstæður gætir mikils ójafnvægis þar sem hver og einn verður að bjarga sér og verj- ast þeim hættum sem þeir geta átt von á. Undir þessum kringum- stæðum reynist byssan vel. Á þess- um tíma voru byssur einfaldir framhlaðningar þar sem reikna mátti með nokkrum tíma í að hlaða byssuna til að beita henni öðru sinni. Afkastageta slíkra byssu- gerða var því afar takmörkuð mið- að við byssur sem nú þekkjast. Á þessum tíma var auk þess engin lögregla til staðar nema ef vera skyldi í borgum og stærri bæjum. Það er því mjög eðlilegt að banda- ríska þingið samþykki þessa viðbót við stjórnarskrána undir lok 18. aldar að þegnum sé heimilt að eiga og bera vopn þar sem það á við. En er líklegt að amerískir þing- menn á 18. öld hafi gert sér grein fyrir því að byssur áttu eftir að verða afkastameiri og þar með var- hugaverðari? Afturhlaðningar og marghleypur koma fyrst fram á 19. öld þegar þeir sem tóku þátt í samþykkt- inni 1791 voru fyrir löngu komnir undir græna torfu. Vopnaframleiðendur og vopnasalar vilja eðlilega túlka þessa heimild sem víðtæk- asta. En er það skyn- samlegt? Frelsi er og verður alltaf takmarkað. Einn góður borgari benti á nefið á sér og kvað frelsi náungans enda þar sem nefið á sér væri. Mikið til í því. Í dag er misnotkun vopna gríð- arleg. Sum árin falla fleiri í Banda- ríkjunum fyrir byssum en þeir sem látast í umferðarslysum. Það ætti því að vera um þessar mundir eitt af meginmarkmiðum bandarískra yfirvalda að takmarka byssueign og setja strangari reglur um skot- vopn. Sumir menn eiga ekki að koma nálægt byssum. En auðvitað þýðir þetta mikla viðhorfsbreyt- ingu. Einn kunningi minn sem hefur lengi verið starfandi prestur sagði mér eitt sinn frá því að á náms- árum sínum sótti hann framhalds- nám í BNA, m.a. til að kynna sér safnaðarstarf í BNA. Þar kynntist hann starfsfélaga sínum og bauð hann Íslendingnum heim til sín. Mikið varð landi okkar undrandi og satt best að segja mjög hneyksl- aður þegar bandaríski sálusorg- arinn lauk upp byssuskápum sínum en þar voru geymdar hvorki fleiri né færri en 18 byssur! Já, það er margt undarlegt í kýrhausnum. Óskandi er að bandarískt sam- félag átti sig á þessu vægast sagt ömurlega ástandi þegar vonin og trúin er bundin við byssur og of- beldi fremur en friðsamlegar og farsælar leiðir með von um betri framtíð. Megi nýr forseti BNA leiða þá vegferð sem verður allri heims- byggðinni til heilla. Byssuákvæði bandarísku stjórnarskrárinnar Eftir Guðjón Jensson » Óskandi er að banda- rískt samfélag átti sig á þessu vægast sagt ömurlega ástandi þegar vonin og trúin er bundin við byssur og ofbeldi fremur en friðsamlegar og farsælar leiðir. Guðjón Jensson Höfundur er leiðsögumaður og eldri borgari í Mosfellsbæ. arnartangi43@gmail.com Á vef Fiskistofu er hinn 7. janúar 2021 frétt frá stofunni um að hún hafi tekið í notkun dróna við eftirlit. Í fréttinni kemur fram að drónarnir verði not- aðir við eftirlit á sjó, vötnum og landi. Í fréttinni er tekið fram að aflað hafi verið allra tilskilinna leyfa. Líka er sagt til hverra menn eigi að snúa sér ef þeir vilji frekari upplýsingar og hafði undirritaður samband við deild- arstjóra veiðieftirlits Fiskistofu og spurði um útgáfu leyfanna og hvort sjávarútvegsráðherra eða einhver í hans um- boði hefði gefið leyfi fyr- ir notkun drónanna í höfnum eða yfir fiski- skipi við löndun eða hver önnur störf sem fylgja fiskiskipi. Ekki var ann- að á deildarstjóranum að skilja en sjávarútvegsráðherra hefði leyft ótakmörkuð afnot drónanna við eftirlit, þar með talið að fylgjast með skipverjum við komu að skipi eða brottför, allt að dyrum heimilis skipverjans, í raun mætti Fiskistofa fylgjast með skip- verjanum allan sólarhringinn hvar sem næðist til hans. Fyrir tveimur árum viðraði þáver- andi fiskistofustjóri þá hugmynd að setja um borð í trillur sem önnur fiskiskip myndavélar til að Fiskistofa gæti fylgst með skipverjum við störf sín. Sagðist Fiskistofa vera með heimild frá ráðherra til að fara í þetta. Fiskistofa var spurð hvort henni væri kunnugt um að í fæstum þeim fleytum sem stunda hand- færaveiðar væri önnur salernis- aðstaða en borðstokkurinn, sem myndavélin ætti að mynda, eða fata og óhjákvæmilegt væri að neðrihluti líkama manna sem væru að gera þarfir sínar yrði í mynd við eftirlitið sökum smæðar þeirrar fleytu sem Fiskistofa teldi nauðsynlegt að fylgj- ast með ef eyðing fiskstofna á Ís- landsmiðum ætti ekki að eiga sér stað. Ekki hefur enn orðið af því að Fiskistofa komi með myndavélar um borð í smæstu klósettlausu trillur en nú skulu það vera drónar fyrir starfs- menn Fiskistofu að leika sér með og vísað er í ESB, þaðan sem allt gott á víst að koma. En trillukarlar munu halda áfram að gera þarfir sínar úti á dekki á kló- settlausum trillum og veifa afturend- anum við verkið hvort sem dróni frá ráðherra strandveiða og grásleppu er við myndatöku af viðburðinum eða ekki. Nei ráðherra, svona á ráðherra ekki að gera. Nei ráðherra! Eftir Sigurgeir Jónsson Sigurgeir Jónsson »En trillukarlar munu halda áfram að gera þarfir sínar úti á dekki á klósettlausum trillum og veifa afturendanum við verkið. Höfundur er smábátasjómaður í Suðurnesjabæ. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.