Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Ég ætlaði að henda heilhveitibrauði í vinnufélaga minn, en hætti við. Mér fannst það fullgróft!    Ég legg mig alltaf 100% fram í vinnunni. 12% á mánu- dögum 23% á þriðjudögum 40% á mið- vikudögum 20% á fimmtudögum og 5% á föstudögum.    Getur feitt fólk fylgst grannt með fréttum?    Hvað sagði framherjinn þegar hann vildi fá fyrirgjöf? „Fyrir- gefðu!“    Ef maður lækkar rostann í rost- ungi, verður þá bara ungi eftir?    Í eigin jarðarför er maður oftast vant við látinn.    Dönsk pæling: Hjartaskurðlæknir fór með bílinn sinn á verkstæði. Bifvélavirkinn: „Við vinnum eigin- lega sams konar störf læknir. Ég hreinsa ventlana og karboratorinn, skipti um púströr, set svo allt á sinn stað og eftir það gengur bíllinn eins og ekkert sé. Samt ert þú með miklu hærri tekjur en ég. Hvað segirðu við því?“ Læknirinn: „Ég veit hvað þú meinar, en – hefurðu reynt að gera þetta allt á meðan vélin er í gangi?“    Þessi flensa er alltaf að ganga, hún hlýtur að vera í ansi góðu formi!    Ég reyndi einu sinni að vera uppi- standari en það gekk ekki upp. Það var bara hlegið að mér!    Ég er ekkert að segja að mað- urinn minn sé ljótur. En hann bank- aði upp á, hjá nágrannanum á Hallo- ween, til þess að biðja hann um að lækka í græjunum – og kom til baka með poka af Haribo.    Ég frétti af einum sem fór á eBay og var svo lélegur í ensku að hann ýtti alltaf á „Buy Now!“ og hélt hann væri að kveðja.    Gengi krónunnar var rétt í þessu að bætast á lista Ríkislögreglustjóra yfir hættulegustu gengi Íslands!    Móðir mín sagði að leiðin að hjarta mannsins væri í gegnum magann. Yndisleg kona, en glataður skurðlæknir!    Ég fékk flís um daginn. Hún var svo langt niðri að það þurfti sálfræð- ing til að ná henni upp aftur.    Hvað kallast lúsmý sem treðst framfyrir? Skjúsmý    Óska eftir tveggja ára bát … má vera fjögurra ára! Ef maður lækkar rostann í rostungi … Bókarkafli | Bókaútgáfan Hólar hefur gefið út Fimmaurabrandara 2, sem hefur að geyma sýnis- horn úr safni Fimmaurabrandarafjelagsins. Spaugarar Kristján B. Heiðarsson, forseti Fimmaurabrandarafjelagsins og stofnandi þess, og skósveinar hans: Albert Svan Sigurðsson, Gunnar Kr. Sigurjónsson og Hallur Guðmundsson. Þeir hafa safnað bröndurunum. Styrkjum að upphæð 75 milljónir króna var nýverið úthlutað til 116 verkefna um allt land í fyrri út- hlutun Tónlistarsjóðs árið 2021. Samkvæmt lögum er hlutverk Tón- listarsjóðs að efla íslenska tónlist og stuðla að kynningu á íslenskum tónlistarmönnum og tónsköpun þeirra. Alls bárust að þessu sinni alls 248 umsóknir frá mismunandi grein- um tónlistar og er það 56% fjölgun í umsóknum frá nóvember 2019. Sótt var um rúmlega 251 milljón króna. Skiptast styrkveitingar þannig að átta styrkir fara til tónlistarhátíða af ýmsum toga, 37 styrkveitingar til klassískra tónlistarverkefna, 30 til samtímatónlistar og raftónlistar, 15 til ýmiss konar rokk-, hipphopp- og poppverkefna, 16 til námskeiða- halds, kennslu og miðlunar af ýms- um toga, auk þess sem sex verkefni á sviði þjóðlagatónlistar og fjögur djassverkefni eru styrkt. Fimm samstarfssamningar endurnýjaðir til þriggja ára Endurnýjaðir voru fimm sam- starfssamningar til þriggja ára. við Caput, Kammersveit Reykjavíkur og Stórsveit Reykjavíkur, sem fá sex milljónir hver hópur, og Myrka músíkdaga og Sumartónleika í Skál- holti, sem fá fjórar milljónir hvor hópur. Auk þess eru í gildi tveir þriggja ára samningar sem ná til 2021, en samkvæmt þeim fær Jazzhátíð Reykjavíkur 2,5 milljónir og Nordic Affect 1,5 milljónir. Hæstu verkefnastyrki, að upphæð 1,2 milljónir króna, hljóta Pera Óperukollektíf fyrir trjáóperu á Íslandi og Góli fyrir óperutónleika í Árnesi og óperu- og skólatónleikar á Höfn. Sex styrki að upphæð ein milljón króna hljóta Andlaga fyrir Sönghátíð í Hafnarborg, Eyrún Unnarsdóttir fyrir Leyndarmál Súsönnu, Gusgus fyrir breiðskífuna Mobile Home, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins fyrir Start, Sinfóníu- hljómsveit Austurlands fyrir vor- tónleika og Ung nordisk musik fyrir starf Íslandsdeildar UNM 2021- 2023. Fimm styrki að upphæð 800 þús- und krónur hljóta ErkiTíð – íslensk tónlistarhátíð fyrir ErkiTíð 2021, Evrópusamband píanókennara fyrir VIII. píanókeppni EPTA á Íslandi, Kammermúsíkklúbburinn fyrir tón- leikaröðina, Listvinafélag Hallgrímskirkju fyrir 39. starfsár sitt og Pétur Björnsson fyrir verk- efnið Elja streymir um land allt. Þrjá styrki að upphæð 700 þúsund krónur hljóta Iceland Vocal Collec- tive fyrir íslenska kórverkakeppni, Sigurður Bjarki Gunnarsson fyrir Reykholtshátíð 2021 og Sindri Freyr Steinsson fyrir tónleikaröðina Huldumaður og víbrasjón. Aldrei fór ég suður og 15:15 Sex styrki að upphæð 600 þúsund krónur hljóta Aduria fyrir Aduria Herbergi Lívíu, Alexandra Cherny- shova fyrir frumflutning óperunnar Góðan daginn frú forseti í konsert- uppfærslu, Félag íslenskra tónlist- armanna fyrir Tónaland – lands- byggðartónleikar, Hildigunnur Halldórsdóttir fyrir 15:15 tónleika- syrpuna, HIMA – Alþjóðlega tónlist- arakademían í Hörpu fyrir HIMA 2021 og Ragnheiður Erla Björns- dóttir fyrir tónleikhússýninguna Fuglabjargið. Átján styrki að upp- hæð 500 þúsund krónur hljóta meðal annars Aldrei fór ég suður fyrir Aldrei fór ég suður 2021, Jósep Gíslason fyrir sumartónleika í Hall- grímskirkju í Saurbæ við Hvalfjarð- arströnd, Kammerkórinn Cantoque fyrir Nordic Echo - Bergmál úr norðri, Kristján Freyr fyrir Íslensku tónlistarverðlaunin 2021, Lista- félagið Klúbburinn fyrir röðina Háflóð í Skerjafirði, Múlinn fyrir tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu, Orgelhúsið félagasamtök fyrir Orgelkrakka, Rósa Þorsteins- dóttir fyrir rannsókn á tilbrigðum rímnakveðskapar tíu kvæðamanna, Schola cantorum fyrir tónleikana The Gospel of Mary í Hall- grímskirkju, Strokkvartettinn Siggi fyrir flutning á strengjakvartettum Atla Heimis Sveinssonar, Sumar- tónleikar og kórastefna við Mývatn fyrir tónlistarhátíðina Úlfaldi úr Mýflugu, Tungumálatöfrar fyrir vef- tónleikaröð fyrir börn og Töfrahurð fyrir Börnin tækla tónskáldin 2021. 75 milljónir króna til samtals 116 verkefna  Fyrri úthlutun 2021 úr Tónlistarsjóði  248 umsóknir Ljósmynd/Owen Fiene Fuglabjargið Meðal verkefna sem hljóta styrk úr Tónlistarsjóði er tónleik- hússýningin Fuglabjargið sem sýnd er í Borgarleikhúsinu nú um stundir. Þrátt fyrir vonir manna úti um heimsbyggðina um að dreifing bóluefna kunni á næstu mánuðum að slá á áhrif heimsfaraldurs kór- ónuveirunnar hafa skipuleggj- endur hvers viðamikla menningar- viðburðarins af öðrum nú tekið ákvörðun um að ýmist aflýsa þeim strax eða fresta þar til síðar á árinu. Stjórnendur áhrifamestu myndlistarkaupstefnunnar sem haldin er ár hvert, hinnar sviss- nesku Art Basel, hafa frestað henni frá júní fram í september. Kvikmyndahátíðin fræga í Cannes, sem alla jafna er haldin í maí, verður í júlí, segja stjórnendur henar nú. Og langfjölsóttasta dægurtónlistarhátíð Bretlandseyja, Glastonbury-hátíðin sem allt að 200 þúsund gestir sækja, hefur verið slegin af í ár. Þá hefur frumsýningu væntan- legrar kvikmyndar um njósnarann sívinsæla James Bond, No Time to Die, sem þegar hefur verið frestað nokkrum sinnum vegna faraldurs- ins, verið frestað einu sinni enn og á að vera í oktober. Í umfjöllun the New York Times um tónlistarhátíðir sem er frestað segir að skipuleggjendur Hróars- kelduhátíðarinnar í Danmörku stefni enn að því að halda hátíðina í júní og verður rapparinn Kend- rick Lamar skærasta stjarnan. Er rætt um að gestir þurfi að hafa eins konar stafrænt vegabréf sem segi hvort þeir hafi verið bólusett- ir, hafi mótefni gegn Covid-19 eða hafi greinst neikvæðir í prufu áður en þeir mæta á hátíðina. efi@mbl.is Hátíðum og við- burðum frestað AFP Bond Unnendur njósnarans þurfa að bíða til hausts eftir næstu mynd. Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta 544 5151 tímapantanir Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992 Getum sótt og skilað bílum á höfuðborgarsvæðinu án endurgjalds Förum yfir bifreiðar fyrir aðalskoðun/endurskoðun og förum með bifreiðina í skoðun Kominn tími á aðalskoðun? Allar almennar BÍLAVIÐGERÐIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.