Morgunblaðið - 25.01.2021, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 25.01.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verk, segir uppsteypu á nýjum höfuðstöðvum Landsbankans við Hörpu ganga prýðilega. Um það bil 75% af verkinu sé nú lokið. ÞG verk varð hlutskarpast í útboði um uppsteypu á húsinu sem verður um 16.500 fermetrar, að meðtöldum bílakjallara. Niðurstaða útboðsins lá fyrir í ágúst 2019 og hófst uppsteyp- an í september sama ár. Stefnt er að því að ljúka henni í júlí. Tvær til þrjár hæðir eftir Þorvaldur segir eftir að steypa tvær til þrjár hæðir á suðurhlutan- um, sem snýr að Hafnartorgi, og svo eina til tvær hæðir í öðrum áföngum. Suðurhluti höfuðstöðvanna verður hæsti hluti byggingarinnar sem er lægri norðanmegin við Hörpu. Sameiginlegur bílakjallari verður undir Hörpu, höfuðstöðvum Lands- bankans og Hafnartorgi með stæð- um fyrir alls um 1.100 bíla. Þorvaldur segir að samhliða upp- steypunni sé ÍAV að vinna í frágangi innanhúss og utanhúss. Þorvaldur áætlar aðspurður að hátt í 2.000 tonn af steypustyrktar- járni fari í höfuðstöðvarnar og 13-14 þúsund rúmmetrar af steypu í um 53 þúsund fermetra af mótaflötum. Miðað við að hver steypubíll taki um sjö rúmmetra þurfi því að fara tæplega 2.000 ferðir með steypu. Ekki samið við fleiri í bili Rúnar Pálmason, upplýsinga- fulltrúi Landsbankans, segir að sam- ið hafi verið verið lægstbjóðendur ÞG vegna uppsteypu 2019 og ÍAV vegna fullnaðarfrágangs 2020. „Áður var samið við lægstbjóð- anda, sem var Ístak, vegna jarð- vinnuframkvæmda árið 2019. Ekki hafa verið gerðir aðrir samningar vegna verklegra framkvæmda,“ segir Rúnar. Ekki sé búið að gera samninga vegna innkaupa á hús- gögnum í nýja húsið. Stefnt sé að flutningi í húsið síðari hluta árs 2022. Varðandi endurbætur á útibúi bankans í Mjódd segir hann það opið en fólk beðið um að panta tíma. „Þar eru sjálfsafgreiðslutæki aðgengileg og við aðstoðum sem fyrr fólk við að nýta sér þau, sé eftir því óskað. End- urbótum á útibúinu er nánast lokið og við reiknum með að þeim verði að fullu lokið um mánaðamótin.“ Nýju höfuðstöðvarnar á áætlun  Forstjóri ÞG verk áformar að ljúka uppsteypu Landsbankahússins í júlí  75% af verkinu sé lokið  Uppsteypan kalli á 2.000 ferðir steypubíla  Bankinn hyggst flytja í húsið eftir um eitt og hálft ár Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gegnt Hafnartorgi Nýjar höfuðstöðvar Landsbankans verða teknar í notkun á síðari hluta næsta árs. VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 ismanna. Þar er Teitur Björn Ein- arsson, varaþingmaður Norðvest- urkjördæmis meðal hinna fyrstu. Talið hefur verið að Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ráðherra og varaformaður flokksins frá Akra- nesi, stefni á 1. sætið, en einnig hef- ur verið hvíslað um að hún gæti farið í Suðvesturkjördæmi, sem veiti ekki af sterkum konum, en hún býr í Kópavogi. Þar hefur Vilhjálmur Bjarnason og boðað framboð. Meiri spenna er e.t.v. um Norð- austurkjördæmi, þar sem gengið er út frá því að Kristján Þór Júlíusson muni hætta. Mikið er talað um að þar þurfi sterkan frambjóðanda í efsta sætið, en færra um nöfn í því samhengi. Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, hefur gefið það frá sér, en vel má vera að Krist- ján Þór Magnússon, sveitarstjóri Norðurþings, gefi kost á sér og eins er Gauti Jóhannesson í Múlaþingi hinu nýja að velta framboði fyrir sér. Í Reykjavík hyggjast allir þing- menn flokksins halda áfram og Hild- ur Sverrisdóttir varaþingmaður vill aftur komast í fast sæti. Rætt er um að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sækist eftir fyrsta sætinu í prófkjöri, sem Guðlaugur Þór Þórðarson fékk síðast, en hann hefur ekki gert mikið úr því og kveðst sækjast áfram eftir 1. sætinu í sínu kjördæmi í Norður- BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Kosningar til Alþingis verða hinn 25. september í haust og eru stjórn- málaflokkar farnir að setja sig í stellingar fyrir þær. Það er komin kosningalykt í þingsali, Viðreisn og Flokkur fólksins læddu út nýjum flokksmerkjum, en umfram allt eru stjórnmálamenn farnir að benda á sæti. Þar fara ekki alltaf saman framboð og eftirspurn. Samfylking Samfylkingin er sennilegast lengst komin í framboðsmálum sín- um. Í Reykjavík var ákveðið að hafa flókna nýbreytni um uppstillingu listanna, sem ekki verður séð að samræmist skuldbindandi reglum flokksins um aðferðir við val á fram- boðslista. Þar eru heimilaðar fjórar aðferðir og þetta var ekki ein þeirra. Framkvæmdin reyndist enda afar umdeild og ekki bitið úr nálinni með hana, þó gengið sé út frá því að Kristrún Frostadóttir leiði í öðru kjördæminu og Helga Vala Helga- dóttir í hinu. Þar viðhöfðu ungir frambjóðendur hefðbundna smölun en aðrir ekki, en uppstillingar- nefndin virðist hafa litið á niðurstöð- una sem fyrirmæli. Fór svo að Ágústi Ólafi Ágústssyni var rutt burt af lista og eins virðist Rósa Björk Brynjólfsdóttir ekki hafa þar hlotið meiri náð en svo að hún vill efsta sætið í Suðvesturkjördæmi, en þar situr Guðmundur Andri Thors- son fyrir. Þá hafa Jóna Þórey Pét- ursdóttir, fyrrv. forseti stúdentaráðs HÍ, og Guðmundur Ari Sigur- jónsson, bæjarfulltrúi flokksins á Seltjarnarnesi, sagst líka vilja for- ystusæti þar í Kraganum. Sjálfstæðisflokkur Enn hafa ekki margir kandídatar boðað framboð meðal sjálfstæð- Reykjavík, sem honum fellur að lík- indum í skaut hvort sem hann fær efsta eða næstefsta sætið í sameig- inlegu prófkjöri kjördæmanna. Framsókn Hjá Framsókn hyggst Ásmundur Einar Daðason bjóða sig fram í Norður-Reykjavík, en Lilja Alfreðs- dóttir verður áfram efst í Suður- Reykjavík. Þrír vilja fara í efsta sæt- ið í Norðvesturkjördæmi, sem þá losnar, þau Halla Signý Kristjáns- dóttir þingmaður, Stefán Vagn Stef- ánsson varaþingmaður og Guðveig Lind Eyglóardóttir, oddviti flokks- ins í Borgarbyggð. Brotthvarf Þór- unnar Egilsdóttur af þingi vegna veikinda losar efsta sæti í Norðaust- urkjördæmi, en Ingibjörg Ólöf Is- aksen, bæjarfulltrúi á Akureyri, og Líneik Anna Sævarsdóttir vilja það báðar. Þá er Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, sagður áhugasamur um sæti. Vinstri græn Vinstri græn munu halda forval um allt land, en fæstir vænta veru- legra tíðinda. Í Norðausturkjör- dæmi losnar sæti Steingríms J. Sig- fússonar, en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir þingflokksformaður vill það. Kolbeinn Óttarsson Proppé, vill úr Suður-Reykjavík í Suður- kjördæmi, þar sem sæti Ara Trausta Guðmundssonar losnar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- ráðherra fer að líkindum fram í Suð- vesturkjördæmi, en vegna fléttulista myndi það sennilega velta Ólafi Þór Gunnarssyni af þingi og kann hann að fara til Reykjavíkur. Píratar Talsverðra breytinga er að vænta á listum Pírata, þar eru þrír reynd- ustu þingmennirnir af sex að hætta. Þar hefur verið opnað fyrir skrán- ingar í prófkjör, sem fram fer 3. mars. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir hefur sagst vilja færa sig í Suðvest- urkjördæmi þar sem Jón Þór Ólafs- son er að hætta, en mögulega mun Sara Óskarsson sækjast eftir sama sæti. Álfheiður Eymarsdóttir vara- þingmaður vill vera í efsta sæti í Suðurkjördæmi, sem losnar þegar Smári McCarthy hverfur af þingi. Viðreisn Allir fjórir þingmenn Viðreisnar eru sagðir vilja halda áfram, en einn- ig er vitað að Benedikt Jóhannesson, stofnandi flokksins og fyrrverandi formaður, hefur áhuga á að komast aftur á þing, að líkindum í Suðvest- urkjördæmi. Eins er nafn Daða Más Kristóferssonar hagfræðiprófessors og varaformanns flokksinsreglulega nefnt í Reykjavík. Aðrir flokkar Ekki hefur mikið heyrst um fram- boðsmál hjá Miðflokknum. Talið er að allir vilji þingmennirnir sex halda áfram, nema hugsanlega Gunnar Bragi Sveinsson. Fyrir liggur að Tómas Tómasson, Tommi, vill bjóða sig fram fyrir Flokk fólksins, en annars hefur lítið heyrst úr þeirri átt. Hins vegar gætir nokkurrar spennu um hvaða fólk Sósíal- istaflokkurinn leiðir fram, enda hef- ur fylgi flokksins verið í námunda við að ná inn á þing um nokkurt skeið. Þar staldra flestir við hvort Gunnar Smári Egilsson hljóti ekki að gefa kost á sér, en einnig munu athafnaskáldin Jökull Sólberg Auð- unsson og Hörður Ágústsson í Macl- and vera áhugasamir. Framboð og eftirspurn til Alþingis  Framboðsmál fyrir þingkosningar í haust eru tekin að skýrast eftir því sem fleiri kynna sig til leiks  Ekki er mikið um að þingmenn hyggist hætta  Nokkrir kunna þó að flytja sig milli kjördæma Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þingsæti Í þingsalnum eru 63 stólar og nóg af fólki sem vill máta sig við þá. Laus sæti eru hins vegar einhverju færri, enda vilja margir sitja sem fastast.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.