Morgunblaðið - 25.01.2021, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Það var um aldamótin sem Sigurður
John Lúðvíksson tók sig upp ásamt
fjölskyldu og flutti til Spánar. Þá
renndi hann ekki grun í að áratug síð-
ar stæði hann í umsvifamiklum at-
vinnurekstri í hinu nýja gistiríki. En
lífið er oft óútreiknanlegt og margt
sem gerist fyrir sambland dugnaðar
og tilviljana.
„Eftir að við fluttum út skildi ég við
konuna og það kom dálítið rót á hlut-
ina. Það tók mig nokkur ár að átta
mig á hvað ég vildi vinna við en réð
mig svo í vinnu hjá norskri fasteigna-
sölu hér á svæðinu. Svo kom hrunið
og þá fékk ég vinnu við að selja mark-
ísur. Þegar ég var búinn að vera í átta
mánuði hjá fyrirtækinu þá hugsaði
ég: í stað þess að selja bara markísur
þá væri betra að selja líka gler, hurðir
og allt sem fólk vill kaupa af því tagi.“
Óx hratt fyrstu árin
Sigurður stofnaði því lítið fyrirtæki
og réð tvo stráka til starfa. Í fyrstu
herjaði hann á veitingahúsamarkað-
inn, mætti á staðinn, gerði tilboð og
dró upp teikningar af því hvernig
mætti bæta aðstöðuna á stöðunum.
„Á þessum tíma voru allir staðirnir
með sólhlífar en ég gat boðið þeim
upp á almennilegar markísur. Við
byrjuðum bara með þetta heima, ég
samdi við fyrirtæki sem saumaði dúk-
ana og keypti grindurnar við. Þetta
gerðist allt nokkuð hratt og innan tíð-
ar leigði ég atvinnuhúsnæði og var
kominn með fimm eða sex manns í
vinnu.“
Í dag er fyrirtækið með eigin fram-
leiðslu á flestu því sem það selur og
vöruframboðið samanstendur m.a. af
fyrrnefndum markísum, svalalokun-
arkerfum ýmiskonar, grindverkum úr
gleri og öðru slíku.
„Við framleiðum í raun allt sem
hægt er að búa til úr ryðfríu stáli, áli
og gleri.“
Fleiri Íslendingar í hópnum
Sigurður segist ekki hafa þjónustað
íslenska markaðinn á Spáni sérstak-
lega en hann taki eftir því að þeim
fjölgi ört í hópi viðskiptavina.
„Eftir að Íslendingar fóru að kaupa
sér hús hérna á svæðinu þá fóru þeir
að koma til mín. Margir þeirra áttuðu
sig hins vegar ekkert á því að ég væri
Íslendingur. Ég heiti Sigurður John
en ég notast að mestu bara við milli-
nafnið hérna úti. Sumir hafa reyndar
staðið í þeirri trú að þessi John hafi í
raun keypt fyrirtækið af þessum Sig-
urði. Þeir hafa ekki áttað sig á að
þetta er einn og sami maðurinn,“ seg-
ir hann og hlær. Sigurður hefur ekki
þurft að víkka út starfssvæði fyrir-
tækisins. Nóg sé að gera á Torrevieja
og í u.þ.b. 25 kílómetra radíus.
„Hér hefur uppbyggingin verið
gríðarleg. Við eltum í raun bara bygg-
ingarkranana og dreifum upplýsinga-
bæklingum í húsin. Fyrirtækið er að
verja yfir 85.000 evrum [jafnvirði 13,4
milljóna króna] í markaðsmál á ári
hverju. Svo erum við eina fyrirtækið
af þessu tagi sem er með kynning-
arrými í stórri verslunarmiðstöð hér í
nágrenninu. Þar er ég með þrjár öfl-
ugar stelpur sem taka á móti gestum
þar sem þeir geta pantað tíma hjá
sölumanni og kynnt sér vörurnar okk-
ar.“ Í dag er Toldos Corona með
framleiðsluna í eigin húsnæði sem er
um 1.400 fermetrar að stærð. Að auki
er athafnasvæði við húsið sem er um
1.000 fermetrar.
„Ég stefni á að stækka við okkur á
þessu ári. Það er vöxtur framundan
jafnvel þótt keppinautar okkar standi
flestir í stað eða séu að minnka. Velt-
an í fyrra nam ríflega 2 milljónum
evra [jafnvirði 315 milljóna króna] og
ég held að það verði mikill vöxtur í ár.
Ég trúi því að annaðhvort sé maður
að stefna niður á við eða upp á við og
það er miklu betra að stefna upp á við.
Ég ætla að reyna að halda því þann-
ig.“
Sigurður John segir að atvinnuleysi
sé mikið og viðvarandi á Spáni. Hann
hafi hins vegar einvalalið í starfsliði
sínu sem vinni sem einn maður.
Stytti vinnudaginn verulega
„Það tók mig auðvitað tíma að finna
rétta fólkið og ég hef lært mikið á
þessum 10 árum. En ég hef líka
ákveðið að borga hærri laun en keppi-
nautarnir gera og ég hef líka gert aðr-
ar breytingar. Við tókum t.d. út síest-
una þannig að í stað þess að fólk fari
frá í tvo eða tvo og hálfan tíma í há-
deginu þá er bara hálftími í mat og
fólk fær sér samloku eða eitthvað slíkt
að borða. Það þýðir að fólk byrjar
klukkan 8 á morgnana og er búið kl.
16:30. Áður en við breyttum þessu var
fólk ekki komið heim til sín fyrr en kl.
20:00 á kvöldin. Þá vinnum við ekki
um helgar þannig að fólk hefur þær
alveg út af fyrir sig.“ Það er ekkert
fararsnið á Sigurði John og hjá hon-
um starfa í dag tvö af þremur barna
hans. Ræturnar eru þó enn heima og
hann rifjar upp gamlar sögur að
heiman, m.a. þegar hann rak versl-
unina Taboo sem seldi hjálpartæki
ástarlífsins. Þá rifjast einnig upp í
samtali við blaðamann ógleymanlegir
dagar frá júlímánuði 1994.
„Maður stóð í ýmsu. Ég var t.d.
fenginn til að hlaupa í skarðið fyrir
Sylvester Stallone við gerð myndar-
innar Judge Dredd. Hún var tekin
upp að hluta heima á Íslandi og karl-
inn mætti ekkert á svæðið. Ég sá bara
um málið,“ segir Sigurður John léttur
í bragði.
Með 40 manns í vinnu á Spáni
Sigurður John Hefur byggt upp fyrirtækið síðastliðinn áratug eða svo.
Sigurður John Lúðvíksson stofnaði Toldos Corona fyrir 10 árum Smíðar markísur, bílskýli og
margt fleira fyrir heimamenn og gesti þeirra Hyggst auka umfang framleiðslu og þjónustu enn frekar
Toldos Corona Sigurður segir
fyrirtækið stefna á vöxt á þessu ári..
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Verktakafyrirtækið MótX hefur selt
113 af 128 íbúðum í sex fjölbýlis-
húsum í Norðlingaholti í Reykjavík.
Nánar tiltekið á Elliðabraut 12-22.
Salan vekur athygli enda komu
íbúðirnar í sölu eftir lok fyrstu
bylgju kórónu-
veirufaraldursins
í byrjun síðasta
sumars. Þær
seldust svo jafnt
og þétt í gegnum
þriðju bylgju far-
aldursins sl.
haust.
Vignir S. Hall-
dórsson, stjórn-
arformaður
MótX, segir vaxtalækkanir Seðla-
bankans hafa gert stærri hópi kleift
að kaupa íbúðir.
Hefur áhrif á leigumarkaðinn
Margir kaupendur á Elliðabraut
hafi verið að kaupa sínu fyrstu eign.
Fyrir vikið sé mikil blöndun meðal
íbúa í húsinu. Rætt sé um að þessi
þróun hafi áhrif á leigumarkaðinn.
„Þar hafa umsvifin minnkað
vegna þess að svo margir hafa tök á
að kaupa sér íbúð,“ segir Vignir.
Hann segir aðspurður að margir
kaupendur stærri íbúðanna á Elliða-
braut hafi selt sérbýli og flutt í
Norðlingaholtið. En þakíbúðirnar
kostuðu tæpar 100 milljónir.
Því miður engar lóðir
Spurður hvort MótX hyggist
byggja meira á þessu svæði, í ljósi
þessa árangurs, segir Vignir að því
miður séu engar lóðir í boði. Fyrir-
tækið hafi í þessu tilviki fengið lóð
undir atvinnuhúsnæði breytt svo þar
mætti reisa íbúðir.
Hann hafi áhyggjur af lóðaskorti
vegna þéttingarstefnu borgarinnar.
Sú stefna muni að óbreyttu leiða til
umframeftirspurnar eftir íbúðum.
MótX er jafnframt að ljúka við
2.800 fermetra atvinnuhúsnæði fyrir
Kapp í Turnahvarfi í Kópavogi og að
hefja uppbyggingu íbúða í Hraun-
götu í Urriðaholti í Garðabæ.
Vignir segir félagið hafa að jafnaði
35 á launaskrá og undirverktaka.
Vaxtalækkanir hafa
stækkað kaupendahópinn
Stjórnandi hjá MótX segir fyrstu kaupendur áberandi
MótX seldi 113 af 128 íbúðum á Elliðabraut í faraldrinum
Morgunblaðið/Baldur
Elliðabraut 12-22 Húsin eru með opnum svæðum á milli og bílakjallara.
Vignir Steinþór
Halldórsson
● Eigið fé íslenskra innlánsstofnana
nam 658 milljörðum króna í lok síðasta
árs. Þetta kemur fram í nýbirtum hag-
tölum Seðlabanka Íslands. Jókst eigið fé
þeirra um 30,8 milljarða króna frá árs-
lokum 2019 eða um tæp 5%.
Um nýliðin áramót námu heildareignir
innlánsstofnana 4.208 milljörðum króna
og innlendar eignir voru þar uppistaðan
eða 3.785 milljarðar.
Innlendar skuldir þeirra námu 2.804
milljörðum og af því voru 2.177 milljarðar
skuld í formi innlána frá innlendum að-
ilum. Erlendar skuldir námu 745 millj-
örðum og af því voru 633,8 milljarðar í
formi erlendrar verðbréfaútgáfu.
Eigið fé innlánsstofn-
ana jókst um 5% 2020
25. janúar 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 129.14
Sterlingspund 176.28
Kanadadalur 101.58
Dönsk króna 21.102
Norsk króna 15.195
Sænsk króna 15.572
Svissn. franki 145.74
Japanskt jen 1.2442
SDR 186.17
Evra 157.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 188.3501
Hrávöruverð
Gull 1853.6 ($/únsa)
Ál 1992.5 ($/tonn) LME
Hráolía 56.0 ($/fatið) Brent