Morgunblaðið - 25.01.2021, Side 15

Morgunblaðið - 25.01.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 Á gangi Það er útsala í Ísbirninum á Laugavegi, sem er vel við hæfi þegar kuldaboli lætur finna fyrir sér, eins og verið hefur síðustu daga þó ekki snjói í bænum eins og víða annars staðar á land- inu. Þessi vegfarandi stikaði þó grímulaust fram hjá einmana hvítabirninum við dyrnar, pírandi augun með samanbitnar tennur og hendur grafnar í vösum, gegn nístandi heimskautavindinum. Eggert Við höfum nú horft upp á hverja frest- unina á fætur annarri í borgarlínumálum. Skýrsla sem átti að koma út í september 2020 er ekki komin enn, handvömm tafði útboð um hönnun Fossvogsbrúar og opnun tilboða í ráðgjafaþjónustu hefur verið frestað. Þá bendir margt til þess, að arðsemi borgarlínu verði svo neikvæð næstu áratugi að Sölvi Helgason gæti ekki einu sinni reiknað hagnað í hana, eins og hann reiknaði barn í þá svörtu. Á sama tíma þarf þjóðin að ná sér eft- ir Covid-kreppu og standa því lítil efni til að flýta framkvæmdum með fyrirsjáanlegu tapi á næstu árum og áratugum. Með hliðsjón af þessari alvarlegu stöðu mála ætti það í raun að vera formsatriði eitt að fresta borgarlínu þar til farið hefur fram fagleg at- hugun á þjóðhagslegri arðsemi framkvæmdanna, áreiðanleika ætl- aðrar þreföldunar á notkun og áætlun á raunverulegri þörf fyrir stærri vagna í sérrými. Aðeins hálf sagan sögð Hvatinn að borgarlínu virðist ekki vera sá að hvetja til farþega- fjölgunar hjá strætó, heldur einhver óskil- greind löngun til að „vera eins og hinir“. Þessir „hinir“ vísa hér til þeirra borga sem borgarstjórn valdi að heimsækja til að kynna sér mögulegar útfærslur. Síðan hafa þessar borgir verið taldar upp sem fyrirmyndir að „hágæða samgöngukerfi“ og þess vandlega gætt að sneiða hjá öðrum mögulegum valkostum. Skorti frekari réttlætingu er „skuldbindingarspilið“ í loftslags- málum gjarnan dregið upp. En risavaxnir liðvagnar ætlaðir fyrir „hágæða samgöngukerfi“ borg- arlínunnar menga helmingi meira en strætisvagnarnir sem fyrir eru. Þetta er þvert á skuldbind- ingar okkar í loftslagsmálum. Virðist þá litlu skipta hversu hægt orkuskipti hafa gengið hjá Strætó bs., sem eru eitt mik- ilvægasta umhverfismálið í sam- göngum, en einungis 15 vagnar af 170 gengu fyrir rafmagni 2019. Rafvæðing einkabílaflotans hefur hins vegar gengið vel. Annað sem einnig hefur gleymst að nefna er að borgarlínan verður of hægfara til að flokkast undir „hágæða samgöngukerfi“. Ástæðuna má rekja til þess hve stutt er á milli biðstöðva. Erlendis eru lestir hluti af almenningssamgöngukerf- inu, þær fara miklu hraðar yfir en strætisvagnar og eru oft fljótari en bílar. Vanda verður betur til verka Umferðartafir á höfuðborgar- svæðinu voru af Samtökum iðn- aðarins áætlaðar um 15 milljarðar á ári og síðan hefur umferð vaxið. Ekki er ljóst hvernig talan 15 var fundin, en niðurstöður skýrslu sem gerð var um hagkvæmni borgarlínu fyrir hönnunarteymið reyndust rangar (sjá Ragnar Árnason, Mbl. 09.11. 2020). Þar að auki eru villur af stærð- fræðilegum toga. Vorið 2019 var samið við ráðgjafa um að taka upp nýtt reiknilíkan sem getur reiknað umferðartafir með meiri nákvæmi en áður var hægt. Kom- inn er tími til að eitthvað fréttist af því. Þessir 15 ma.kr./ári eru trúlega vanreiknaðir, rétta talan nær 30 ma.kr./ári. Þetta er óá- sættanleg blóðtaka fyrir bæði al- menning og atvinnulíf landsins, gera verður almennilega grein- ingu á þessu. Mörgu má ljúga með þögninni Þess má svo geta, að eftir því sem málflutningur þeirra sem mæla mest með borgarlínu er skoðaður betur, þeim mun fleira hefur komið í ljós sem veikir þann málflutning og þagað hefur verið yfir. Sem dæmi, þá er markmiðið um að ná 12% ferða inn í borgarlínu ekki byggt á raunhæfri greiningu á líklegri notkun, heldur er þetta lausleg ágiskun á hvað borgarlína þurfi til að bera sig. Þessa stærð hafa ráðgjafar síðan verið fengnir til að nota í útreikningum. BRT kemst illa eða ekki fyrir Að mörgu leyti er skiljanlegt að borgalínuverkefninu hafi verið seinkað. Það verður mikil áskorun að láta BRT-sérbrautakerfi ganga upp í þröngum götum Reykjavík- urborgar. Verði samgöngukerfið sett í heild sinni upp í BRT býður það jafnframt upp á slík tæknileg, skipulagsleg, umhverfisleg og fjárhagsleg vandamál að nánast ógjörningur verður að leysa þau. Miklu betri og hagkvæmari lausn- ir eru í boði og löngu tímabært er að þær verði teknar til alvar- legrar athugunar. Frestum borgarlínu Samt sem áður hlýtur hönn- unarteymi verkefnisins að verða að skila einhverju áþreifanlegu af sér. Svona vinnubrögð, að kynna málin ekki fyrir íbúum höfuð- borgarsvæðisins og gefa þeim þar með kost á að meta helstu kosti og galla, eru óviðunandi. Þá er ekki síður óviðunandi að strika út allt nema gæluverkefnið og út- færa það með óskhyggjuna eina að forsendu. Að misbeita svo skipulagsvaldinu með því móti til að standa í vegi fyrir hag- kvæmum framkvæmdum sem borga sig upp á einu ári, eins og mislægum gatnamótum Reykja- nesbrautar og Bústaðavegar, nær engri átt. Við stöndum frammi fyrir efna- hagslegum afleiðingum heimsfar- aldurs og hljótum að spyrja hvort þjóðarbúið hafi efni á öðru en bestu lausnum. Því ber að fresta borgarlínu á meðan þjóðhagsleg hagkvæmni verður reiknuð í botn. Borgarstjóri þarf að kveðja sér hljóðs og tilkynna að ekki verði hafist handa fyrr en borgarlínu- verkefnið hefur verið grand- skoðað á faglegum grunni. Með hliðsjón af þeim miklu almanna- hagsmunum sem eru í húfi er borgarstjórn ekki stætt á öðru. Eftir Jónas Elíasson » Borgarlínu þarf að fresta, þá gefst tæki- færi til að til að kanna betri og hagkvæmari lausnir. Jónas Elíasson Höfundur er prófessor. Frestum borgarlínu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.