Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 20

Morgunblaðið - 25.01.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. JANÚAR 2021 ✝ GuðríðurMagnúsdóttir fæddist í Friðheimi í Mjóafirði í Suður- Múlasýslu 1. maí 1929. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Hrafnistu í Reykjavík 11. jan- úar 2021. For- eldrar hennar voru hjónin Magnús Tómasson og Kar- en Björg Óladóttir. Guðríður var elst fimm systkina: Sig- urjón, f. 1931, Óli Tómas, f. 1940, Gísli, f. 1941 og Elín Sig- urbjörg, f. 1943. Lifir Elín ein eftir af systkinunum. Guðríður gekk í barnaskól- ann í Mjóafirði, sótti nám í Hús- mæðraskólanum á Laugalandi í Eyjafirði og tók gagnfræðapróf við Gagnfræðaskólann á Seyð- isfirði. Þar kynntist hún eig- inmanni sínum Sigurði Krist- inssyni kennara sem fæddur var í Vallanesi á Fljótsdalshér- aði 1925. Þau giftu sig árið 1950 og bjuggu fyrstu fimm ár- in í Mjóafirði þar sem Sigurður eiginmaður hennar er Ágúst og börn þeirra eru Alvar Ernir, Alba Liv og drengur Ágústs- son. Árið 1955 fluttu þau hjónin búferlum frá Mjóafirði til Reykjavíkur og áttu þar síðan heima alla tíð. Guðríður vann utan heimilisins við ýmis störf. Var um tíma í eldhúsinu á elli- heimilinu Grund en lengst af og allt þar til hún lét af störfum sökum aldurs vann hún á póst- húsi R-5 við Rauðarárstíg. Eftir að hún hætti launaðri vinnu gerðist hún sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum og vann í búðinni þeirra á Laugaveginum meðan heilsan leyfði. Ásamt því vann hún sjálfboðaliðastarf á leikskóla barnabarnabarna sinna þar sem hún las fyrir börnin einu sinni í viku. Guðríður hafði yndi af að ferðast og stunda útivist. Ferð- aðist hún töluvert bæði utan- lands og innan og heillaðist af náttúrunni og hálendinu. Því átti Austurríki sérstakan stað í hjarta hennar. Þar sem Sig- urður maður hennar var far- arstjóri hjá Ferðafélagi Íslands fór hún í margar ferðir með honum. Þórsmörk og Land- mannalaugar voru hennar perl- ur hérna heima. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju 25. janúar 2021 klukkan 15. var skólastjóri. Hann lést árið 2017. Kjörsonur þeirra var Óskar Áskell Sigurðsson, fæddur 1956, dáinn 2018. Eftirlifandi eig- inkona hans er Re- bekka Alvarsdóttir, fædd 1956. Þau eignuðust fimm börn: 1) Karen Rakel, f. 1979, eiginmaður hennar er Stefán Þór, börn þeirra eru Rebekka Rut, Mikael Gunnar, Mattías Nökkvi og Eið- ur Arnar, þau eiga eitt barna- barn, Mikael Árna. 2) Guðríður Svava, f. 1981, eiginmaður hennar er Halldór Benjamín, börn þeirra eru Kristinn Abel og Auður Elísa. 3) Alvar, f. 1982, unnusta hans er Eydís Örk, börn þeirra eru María Von, Óskar og Sævar Ingi. 4) Edith Ósk, f. 1988, sambýlis- maður hennar er Kristinn Dan, börn þeirra eru Dagur Dan, Frosti Dan, Isabel Dan og Máni Dan. 5) Kristín Eva, f. 1990, Elsku amma, nú ertu farin í hvíldina löngu. Það er ótrúlegt að hugsa til þess því mér fannst þú vera eilíf. Þú lagðir mikinn metnað í allt sem þú gerðir, hvort sem það var matur eða vinna, þá mest af öllu var það að vera amma. Hver dagur með þér var ævintýri líkast. Ég minnist allra ferðalaganna sem við fórum í. Þórsmörk var uppáhaldsstað- urinn minn við skoðuðum hell- ana, drukkum kakó, brauð og alltaf kleinur með. Svo sagðir þú okkur sögur af tröllum, ljósá- lfum og huldufólki. Fallegi garð- urinn þinn sem var fullur af lit- ríkum blómum var svo dásamlegur. Þú sagðir mér að það byggju ljósálfar í fallegu blómunum. Ég trúði þessu öllu og sagði þér að ég væri líka ljósálfur í dulbúningi. Þú varst ótrúleg elsku amma. Það var svo gott að vera hjá þér. Heimilið ykkar afa var eins og að stíga inn í tímavél aftur í tímann, þar var svo mikið af gömlu dóti og það mátti fikta í öllu, ritvélin hans afa, kíkjar, stækkunargler og eldgamla sjónvarpið sem var örugglega hundrað ára stóð ofan á gamalli kistu sem að þú sagði að væri með fjársjóði. Þú gerðir allt fyrir okkur. Svo voru það gistingarnar, þá var alltaf borð- aður góður kvöldmatur, svo sett- ir þú okkur Eddýju í bað, þurrk- aðir okkur svo með hlýju og mjúku handklæði. Svo fórum við í flotta gamla náttkjóla af þér, þú bjóst svo vel um okkur í mjúku rúmi sem þú töfraðir úr sófa og ég svaf eins og engill með goss- una mína. Mér leið alltaf vel hjá þér. Ég er svo þakklát fyrir þessar dásamlegu stundir og fyrir þig. Ég þakka guði fyrir að hafa gefið þér pabba því í leið- inni gaf hann mér frábæra ömmu. Það var sannkallaður heiður að vera ömmustelpan þín og að fá að halda í höndina á þér þegar þú kvaddir þetta líf. Takk fyrir allt, elsku besta amma mín, þú varst svo frábær. Ég mun halda minningu þinni lifandi og ég vona að einn daginn verði ég svona góð amma eins og þú. Fyrir hönd okkar ömmu- barnanna þinna, (Karen Rakel, Guðríður Svava, Alvar, Edith Ósk), Kristín Eva. Elsku amma. Ég á engin orð til að lýsa þakklæti mínu fyrir að hafa fengið þig sem ömmu. Einstak- ari ömmu er erfitt að finna. Svo gefin að okkur barnabörnunum og góð. Sama hvað við gerðum, þú reiddist aldrei og allt sem þú gerðir með okkur, sama hversu ómerkilegt það var, varð eins og ævintýri. Meiri að segja að borða tómatsósubrauð hjá þér var spennandi því þú bjóst til leik úr því. Gæska þín og ljúflyndi var svo mikið og við elskuðum að fá að vera hjá þér. Meira að segja þegar við vorum unglingar þá var ljúft að fá að koma í hlýjuna til þín í Ásgarði og Ljósheimum. Minningarnar munu lifa að eilífu amma mín. Fallega amman sem elskaði svo vel. Ég á svo fá orð sem ná utan um það hver þú varst fyrir okkur systkinin. Betri ömmu er vart hægt að hugsa sér. Þú varst svo falleg, umburðalynd, hlý, góð, skemmtileg og svo fórnfús. Fyrir okkur ertu hetja og sann- kölluð amma eins og þær gerast langbestar. Takk fyrir að breiða yfir okk- ur fyrir háttinn amma, takk fyrir lestur á Dísu ljósálfi og Alfinni álfakonungi, takk fyrir að leyfa okkur að smakka strepsils. Takk fyrir að leika við okkur úti í garði, takk fyrir allar ferðirnar sem við fórum í. Takk fyrir öll tómatsósu og eggjabrauðin með aromati á. Takk fyrir að laut- arferðirnar í skóginum. Takk fyrir allar baksturstundir og alla laugardagslambahryggina. Takk fyrir allar skuggamyndasýning- arnar og takk fyrir að geyma hvern einasta miða sem við skrifuðum kveðju á. Takk fyrir að taka pabba sem þitt barn og ala hann upp í elsku og ham- ingju. Takk fyrir hvert einasta knús, hversu heitt og sveitt sem það var, takk fyrir alla hlýjuna amma. Við elskum þig öll til him- ingeimsins og til baka. Það var okkar heiður að fá að vera með þér til síðasta andardráttar. Ég vona að ég verði eins amma og þú. Fyrir hönd okkar allra barna- barna þinna (Karen, Alvar, Eddý og Krist- ín) Guðríður Svava. Mig langar að minnast systur minnar með örfáum minninga- brotum. Guðríður áttu auðvelt með að vera ein og gat setið löngum stundum og hugsað um lífið og tilveruna í Mjóafirði sem var. Heimahagarnir voru henni mjög kærir og í sveitinni þurfti á öll- um höndum að halda og hún lét ekki sitt eftir liggja. Hvort sem það voru heimilisstörfin, hey- skapurinn, smalamennskan eða annað sem til féll. Oft var hún send með kaffi til þeirra sem heyjuðu á engjunum, heitt kaffi í glerflösku með ullarsokk utan um ásamt brauði. Svo þurfti hún líka að vera búin að hlusta á veð- urspána í útvarpinu áður en hún fór af stað. Pabbi sagði: Þú þarft ekkert að leggja spána svo mjög á minnið, en þú þarft að vita hvar lægðirnar og hæðirnar halda sig, ég þarf svo sem ekkert annað. Guðríður var okkur þremur yngstu systkinum sínum sem önnur móðir, Óla, Gísla og mér. Til dæmis tók hún okkur til sín eitt af öðru í skóla út á Brún í Mjóafirði þar sem hún bjó með Sigurði eiginmanni sínum sem var skólastjóri við barnaskólann þar. Enduðum við á því að vera þar öll í einu á sama tíma ásamt belju og ketti sem fylgdi okkur. Aldrei heyrði maður haft orðinu hærra um aukið álag á heimilið. Margar fallegar flíkur saumaði hún á okkur systkinin. Hún tók Tómas afa til sín til dauðadags þegar fjölskyldan flutti frá Frið- heimi til Reykjavíkur og líka mig um tíma. Hún hugsaði um og annaðist pabba og mömmu þeg- ar þau þurftu á aðstoð að halda sökum elli og heilsubrests. Allt var sjálfsagt. Guðríður var gull af manni og að lokum vil ég þakka fyrir endalausa hlýju og hjálpsemi. Hvíl í friði. Elín. Guðríður Magnúsdóttir ✝ Guðrún Ans-nes fæddist á Siglufirði 5. mars 1934. Hún lést á heimili sínu 23. desember 2020. Hún var dóttir Þorvaldar Ansnes, f 29. júní, 1910, d. 1971, og Sólveigar Bjarnadóttur, f. 24. maí 1909, d. 1983. Guðrún átti tvo bræður, þeir voru Hörður Ansnes, f. 11. janúar 1932, d. 1938, og Bjarni Hörður Ans- nes, f. 24. júlí 1940. Hinn 25.04. 1954 giftist Guðrún Harry Steinsson, f. 27. sept- ember 1933, d. 17. janúar 2003. Börn þeirra eru Esther Judith Steinsson, f. 23.05. 1953, Sól- veig Steinsson, f. 15.11. 1954, Halla Steinsson, f. 12.01. 1956, Val- dís Harrysdóttir, f. 20.12. 1959, Inger Steinunn Steinsson, f. 28.12. 1963, Anna Rut Steins- son, f. 09.02. 1968, Þorvaldur Ansnes Steinsson, f. 15.07. 1969. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Það var fyrir rúmum fimmtíu árum að ég hitti Guðrúnu Ans- nes fyrst, Núru eins og hún var alltaf kölluð. Þá að stíga í væng- inn við elstu dóttur hennar, Est- her. Það átti eftir að verða litríkur tími og ógleymanlegur. Í áranna rás bættust margir í tengdabarnahópinn því þessi mæta kona átti sex dætur og einn son. Hún var gift sjómanni og þess vegna vön að sjá um hlut- ina. Núra var glæsileg, sjálfstæð, opin, kát og hress, vel að sér í flestu, þekkti stóran hluta heimsins og gat sagt ótal sögur frá furðulegustu stöðum, svo sem siglingum gegnum Pa- namaskurðinn eða Beirút 1975 þar sem henni var hent út af Holiday-Inn-hótelinu öryggisins vegna þegar borgarastríðið hófst í þeirri fögru borg og hót- elið stóð eftir eins og gatasigti, eða bara prakkarastrik frá Siglufirði, Vík og Reykjavík á hennar uppeldisárum. Við sátum mörg kvöld í Kaupmannahöfn þegar hún millilenti þar fyrir eða eftir samveru með Harry hvar svo sem hann var í heiminum þá stundina, meðan við Esther bjuggum í borginni á námsárun- um, og gaf hún að venju grein- argóða lýsingu á hinum ýmsu stöðum og staðháttum, en hann var oftast á erlendum skipum. Ferðirnar og samveran áttu eftir að verða fleiri í gegnum þau dásamlegu ár sem hennar naut við. Börn, barnabörn og tengda- börn bjuggu oftar en ekki úti um allt, í Noregi, París, Jakarta í Indónesíu, á mörgum stöðum í Svíþjóð og Danmörku, Perugia á Ítalíu eða Barcelóna, tengda- sonur frá Southlake í Texas sem kynnti hana fyrir sínu fólki, svo eitthvað sé nefnt. Hún lætur eftir sig helling af börnum og barnabörnum. Okkur öll naut hún þess að hitta, hvar og hvenær sem var, hún var næstum eins og söng- kver, tók oft fram gítarinn og söng eitthvað gamalt og gott þar sem það átti við þá stundina með kröftugum undirtektum viðstaddra. Hún var einstök við að fá hópinn saman og þá skipti engu hvort barnið var stálpað eða ekki, allir fengu sömu áheyrn og allir voru jafn spennandi að fylgjast með. Eins og eitt hennar barna- barna sagði, amma Núra er ei- líf, og það er eitt af mörgu sem þessi magnaða kona gerði, hún leyfði okkur að kíkja aðeins inn í eilífðina, með allri sinni bjart- sýni og jákvæðni um komandi framtíð. Núra varð einn af mínum tryggustu og bestu vinum og fæ ég seint þakkað að hafa fengið að vera samferða henni frá því að ég kom að þessari fjölskyldu. Svo lengi sem við lifum mun- um við minnast hennar og rifja upp allt það sem við áttum með þessari kjarnakonu. Jóhann Einarsson. Guðrún Ansnes Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR HELGI ÁGÚSTSSON, Boðaþingi 8, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 15. janúar. Útför fer fram frá Lindakirkju fimmtudaginn 28. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og fjöldatakmarkana verða aðeins nánasta fjölskylda og vinir viðstödd. Athöfninni verður streymt á www.lindakirkja.is/utfarir Hólmfríður Ágústsdóttir Ásbjörn G. Guðmundsson Hólmfríður Erlingsdóttir Ágúst Guðmundsson Hafdís Viggósdóttir Þorsteinn Guðmundsson Björk Birgisdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri, GUÐMUNDUR ÍSAK PÁLSSON, Sunnuhlíð í Hrunamannahreppi, lést miðvikudaginn 20. janúar. Jarðarförin verður í Hruna laugardaginn 30. janúar kl. 15 en vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á facebook.com/hrunaprestakall. Guðrún Emilsdóttir Eyrún Guðmundsdóttir Guðmundur Þór Guðmundss. Margrét Guðmundsdóttir Friðrik Magnússon Páll Guðmundsson Alma Jenný Sigurðardóttir og barnabörn Ástkær pabbi okkar, tengdapabbi, afi og langafi, GUÐMUNDUR AGNAR GUÐJÓNSSON, bóndi á Harastöðum, Fellsströnd, andaðist miðvikudaginn 13. janúar. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 29. janúar klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða einungis fjölskylda og vinir viðstödd útförina. Sigríður Guðmundsdóttir Þorsteinn Ólafsson Elvar Trausti Guðmundsson Jóhanna Hjörleifsdóttir Selma Guðmundsdóttir Bragi Þór Thoroddsen Aron Freyr Guðmundsson Guðrún Björk Guðmundsd. afabörn og langafabörn Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru aðgengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum.         þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber að höndum og aðrar gagnlegar       við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.